Fréttablaðið - 18.12.2021, Blaðsíða 86
BÆKUR
Nýja Reykjavík
Dagur B. Eggertsson
Útgefandi: Veröld
Fjöldi síðna: 352
Björn Þorláksson
Það er ljóst að stakkaskipti
Reykjavíkur sem höfuðborgar
Íslands eru Degi B. Eggerts
syni, höfundi Nýju Reykja
víkur, mikið ástríðuefni.
Nýútkomin bók hans ber
öll merki þess. Hún er kannski
engin Njála byggingarsögu en
upplýsandi rit að mörgu leyti.
Texti bókarinnar og mynda
val er oft af persónulegum
toga. Þannig mætti segja
að sumpart sé um að ræða
ákveðinn ævisöguhluta Dags
sem hann kýs að segja sjálfur, auk
skipulagsfróðleiks. Það er dálítil
kúnst að troða þessu tvennu undir
einn hatt. Sumt gengur vel upp en
á köflum vantar kannski ögn upp
á jafnvægi þar sem persónusagan
verður full ágeng.
Dagur er vitaskuld umdeildur
maður, líkt og f lestir aðrir þaul
s æt n i r for i ng ja r. En m i n na
umdeildur en búast mætti við.
Ástæðu þess má ef laust þakka
þeim eiginleikum sem hann býr
yfir sem manneskja. Fæstir efast
um brennandi áhuga hans á
umhverfismálum og sem braut
ryðjanda í femínískum áherslum.
Kemur hvort tveggja fram með
skýrum hætti í bókinni. Ráðandi
áhersla er á framtíðarsýn sem illu
heilli skortir oft hjá stjórnmála
mönnum. Höfundur er óhræddur
við að læða tilfinningum í textann.
„Ráðhús hinna sterku kvenna er
ein millifyrirsögnin“. „Ástfanginn
af skipulagsmálum“ er kaflaheiti.
Það kann að vekja athygli hve
Dagur hnýtir lítt í pólitíska and
stæðinga sína. Hvað það varðar
kallast bókin á við Rætur Ólafs
Ragnars Grímssonar. Dagur veit,
líkt og fyrrverandi forseti Íslands,
að samhent átak þarf til umbóta,
hvort sem um ræðir skipulagsmál
eða framtíð barnanna okkar. Þá er
oft best að halda sig á uppbyggi
legum nótum.
Loftslagsmálin og Borgarlínan fá
eðli máls samkvæmt nokkurt vægi.
Hluti bókarinnar útskýrir og rétt
lætir hvers vegna almenningsam
göngur eru það sem koma skal.
Dagur stígur þó ekki skrefið um of
sem sölumaður eigin hugmynda.
Afstaðan liggur eigi að síður skýrt
fyrir: Einkabílnum er nú á tímum
gert of hátt undir höfði.
„Til viðbótar þessu öllu fylgja
virkum ferðamátum betri loft
gæði, færri alvarleg umferðarslys
og regluleg og góð hreyfing sem
hefur ótvíræð jákvæð áhrif fyrir
einstaklinginn en einnig lýðheilsu
og heilbrigði þjóðarinnar,“ skrifar
Dagur.
Ætlar einhver að mótmæla lækn
inum Degi svo bragð sé að? n
NIÐURSTAÐA: Bók sem á mikið
erindi við samtímann. Samfélags-
fróðleg og persónuleg í senn og
vekur lesendur til umhugsunar.
Umbreyting Reykjavíkur
BÆKUR
Tilfinningar eru fyrir
aumingja
Kamilla Einarsdóttir
Útgefandi: Veröld
Fjöldi síðna: 141
Brynhildur Björnsdóttir
Skáldskapur er mikilvægur fyrir sál
ina og andann, til að hjálpa okkur
að gleyma dagsins amstri um stund
og týna okkur í öðrum heimum og
tímum þar sem lífið rímar kannski
að einhverju leyti við okkar. Hann
er þó enn mikilvægara tæki til að
greina samtímann og tíðarandann
og mikilvægasta tannhjólið í þeirri
vél er húmor og greiningarhæfni
á eigið umhverfi, eins konar fjar
sýnisgleraugu á það sem stendur
fólki næst.
Kamilla Einarsdóttir hlaut
mikla athygli og lof fyrir hina mjög
svo skemmtilegu Kópavogskró
niku sem kom út fyrir þremur
árum, þar sem hún fjallaði um
ástina og ástarsorgir í Kópavogi
og nærsveitum. Í þessari bók er
meiri áhersla á vináttuna og hina
merkjanlegu togstreitu sem sam
tímafólk á í, við að reyna að sam
ræma forskrifaðar hugmyndir um
ást og ástarsambönd annars vegar
og raunveruleikann sem litast af
einmanaleika og stefnuleysi hins
vegar. Það má næstum heyra upp
hafsstefið í vinsælustu sjónvarps
þáttaröð allra tíma hljóma undir
fyrsta kafla bókarinnar: Það sagði
þér enginn að lífið yrði svona …
nema bara í óþekkjanlegri dauða
rokksútgáfu því söguhetjan Halla
og vinir hennar myndu aldrei láta
sjá sig vitna í Friends nema dauð,
þó þau hafi í laumi horft á allar
seríurnar, oft.
Bókin hverfist um þá hugmynd
Höllu að stofna þungarokkshljóm
sveit með vinum sínum til að koma
í veg fyrir endalausar umræður um
viðhald fasteigna, sem henni finnst
vera farnar að einkenna vina
hópinn. Bókin fjallar þó minnst
um hljómsveitina heldur hvernig
þessir ólíku einstaklingar á for
miðaldrasíðæskuskeiði, sem stopul
skólaganga leiddi saman úr öllum
áttum, fóta sig í heimi þar sem til
finningar eru fyrir aumingja en eru
samt alls staðar að þvælast og gera
fólki erfitt fyrir. Halla er eins konar
nútíma Bridget Jones og lýsingar á
raunum hennar í ástamálum eru
jafn fyndnar og raunveruleiki
þeirra er sorglegur, skorturinn á
raunverulegum samskiptum með
markmið í skilaboðaflæmi netveru
leikans þar sem nándin á heima, á
meðan kynlíf er stundað á óper
sónulegum nótum inni á klósetti.
Söguþráðurinn sjálfur er þannig
séð ekkert endilega neitt markverð
smíð, svolítið sundurlaus og út um
allt eins og líf Höllu, en það skiptir
bara engu máli því bókin er svo
fyndin, mannlýsingar svo góðar og
tíðarandavísanir svo markvissar
og gegnumgangandi. Og í gegnum
fyndnina og tíðarandann má
finna sársauka sem er sammann
legur og á við á öllum tímum:
Óttinn við einmanaleikann og
tilgangsleysi allra hluta. n
NIÐURSTAÐA: Vel skrifuð og ein-
staklega fyndin samtímalýsing
um nándina á netinu og einmana-
leikann í raunheimum, vináttu og
dren.
Ástin á tímum drensins
kolbrunb@frettabladid.is
Árlegir aðventutónleikar Diddúar og
drengjanna verða haldnir í Mosfells
kirkju sunnudaginn 19. desember kl.
16.00. Á efnisskránni eru verk tengd
jólum og Ave Maríur í bland við
klassíska blásaratónlist.
Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýs
dóttir, sópran, Sigurður Ingvi Snorra
son og Kjartan Óskarsson, klarín
ettur, Emil Friðfinnsson og Þorkell
Jóelsson, horn, og Brjánn Ingason
og Snorri Heimisson, fagott.n
Aðventutónleikar í Mosfellskirkju
Diddú og drengirnir verða í Mosfells-
kirkju á sunnudaginn MYND/AÐSEND
Kamilla Einarsdóttir er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir
skáldsögu sína Tilfinningar eru fyrir aumingja. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
kolbrunb@frettabladid.is
Í dag, laugardaginn 18. desember,
f lytur Sönghópurinn Voces Thules
efnisskrá undir yfirskriftinni Dýr
lingar, á vegum 15:15 tónleika
syrpunnar í Breiðholtskirkju. Söng
hópurinn, sem nú heldur upp á 30
ára afmæli, f lytur hátíðarsöngva
til heiðurs vinsælustu dýrlingum á
Íslandi fyrr á öldum, Sankti Niku
lási, Þorláki helga, Guðmundi góða,
heilagri Sesselju, heilögum Magnúsi
Orkneyjajarli og Hallvarði Vébjarn
arsyni. Bæði Nikulás og Þorlákur
eiga messudaga sína á aðventunni,
Nikulás 5. desember og Þorlákur
þann 23., en tíðasöngur þeirra beggja
er varðveittur í tveimur af merkustu
nótnahandritum sem skrifuð voru
á Íslandi.
Voces Thules skipa þeir Eggert
Pálsson, Einar Jóhannesson, Eiríkur
Hreinn Helgason, Eyjólfur Eyjólfsson
Pétur Húni Björnsson, Sigurður Hall
dórsson og Sverrir Guðjónsson.n
Hátíðarsöngvar til heiðurs dýrlingum
Voces Thules verður í Breiðholts-
kirkju á morgun. MYND/AÐSEND
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
S. 555 3100 · donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Góð jólagjöf
Verð kr.
39.420
handa pabba og mömmu
og afa og ömmu
58 Menning 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 18. desember 2021 LAUGARDAGUR