Fréttablaðið - 18.12.2021, Page 98
Daði Freyr og félagar
hans í Gagnamagninu
eru þannig vafalítið
streymis-methafar
Íslands þetta árið.
70 Lífið 18. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐANNÁLL ÍSLENSK POPPTÓNLIST 18. desember 2021 LAUGARDAGUR
Það var hart í ári í popptón
listarbransanum, þar sem
nýjum útgáfum þurfti að
fylgja eftir með streymistón
leikum, frekar en stuði í kjöt
heimum. Tekjur af tónleika
haldi voru þannig í lágmarki
vegna áframhaldandi sam
komubanns vegna kórónu
veirufaraldurs.
ninarichter@frettabladid.is
Popparar landsins létu þó ekki
deigan síga, og var framleiðsla með
besta móti. Það er ógjörningur að
gera íslenskri tónlistarsenu skil í
þessari upptalningu, en hér skal
talið upp brot af því efni sem fór
hátt.
Blindar götur flugu hátt
Aron Can sló í gegn á útvarpsstöðv
um, streymisveitum og dansgólfum
landsins með plötunni Andi, líf,
hjarta, sál. Lögin Flýg upp og Blindar
götur fengu dreifingarsamning hjá
eyrnaormum landsins, sem leiddi til
þess að flestir poppunnendur fengu
þessa smelli á heilann á einhverjum
tímapunkti.
Gleðin kom úr geimnum
Inspector Spacetime kom eins og
neonlituð sending úr geimnum,
með átta laga breiðskífu i janúar.
Tónlistin hefur verið áberandi á
skemmtistöðum og í útvarpi, en
dans, gleði og einlægir textar heill
uðu hlustendur upp úr skónum, og
voru mögulega meðalið sem land
inn þurfti á krefjandi ári.
Diskóinu var drull
Sviðslistakonan Vigdís Hafliðadótt
ir söng sig inn í hjörtu landsmanna
með diskóstemmdri yfirlýsingu um
að sér væri drull, með kvintettinum
Flott. Textum sveitarinnar mætti
lýsa sem hreinskilnum og ferskum,
og endurspegla þeir vel þankagang
kvenna af þúsaldarkynslóðinni.
Rakel var að spá
Rakel skaust upp á stjörnuhimin
inn með stuttskífunni Nothing
ever changes. Þá tók hún lagið með
CeaseTone og JóaPé, í hinu brjál
æðislega grípandi lagi Ég var að spá.
Greddan og gæðin í eina sæng
Jói Pé birtist einnig á nýrri plötu
gulldrengjanna í Kef LAVÍK, sem
sendu frá sér metnaðarfulla plötu
sem var ofar jarðar en þeirra fyrri
verk. Sveitin hefur á nokkrum árum
öðlast nokkurs konar költstöðu
með gallharðan aðdáendahóp í
kringum sig. Á nýju plötunni heldur
sveitin í sín séreinkenni í djörfum
efnistökum og stíl, en samt mátti
greina vönduð ástarljóð innan um
sögur af kynlífi, lyfjaneyslu og and
legri kreppu.
Ástin var hrein
Algjörlega hinum megin á ástarjátn
ingakvarðanum mátti síðan finna
dúett Jóns Jónssonar og GDRN, þar
sem sungið var um að væri ástin
hrein, leitaði hamingjan heim, af
12 laga breiðskífu Jóns sem kom út
á árinu. Útsetningin minnir blaða
mann óneitanlega mikið á stærstu
smelli bresku sveitarinnar London
Grammar. Ástardúett ársins, segja
aðdáendur.
Bríet kvaddi sér hljóðs
Tónlistarkonan Bríet hélt vinsæld
um sínum. Varla mátti labba inn á
kaffihús eða vinnustað án þess að
einhver væri að hlusta á, eða tala um
Kveðju Bríetar sem kom út í fyrra.
Spotifyárslistar íslenskra tónlist
arunnenda voru gjarnan toppaðir
með lagi af plötunni, annað árið í
röð, og þeir sem ekki stukku á Bríet
arvagninn í fyrra virðast hafa gert
það núna. Hún söng líka dúett með
Bubba Morthens fyrr á árinu, Ást
rós, sem vakið hefur mikla lukku.
Palli hreif hipphopp-heiminn
Annar dúett sem rataði í eyru popp
unnenda var lagið Spurningar,
með Birni og margföldum Íslands
meistara í diskótónlist Íslands, Páli
Óskari. Birnir sendi frá sér plöt
una Bush ido við mikla hrifningu
íslenska rappheimsins og þar fór
hæst lagið Racks.
Daði drottnaði yfir streyminu
Daði Freyr, Júróvisjón og Tiktok
stjarna með meiru, sló í gegn heima
og erlendis með Júróvisjónfram
laginu 10 years og kom Íslandi í
fjórða sæti í keppninni. Í samantekt
keppninnar yfir mest streymdu lög
ársins úr keppninni hafnaði lagið í
sjötta sæti með tæplega 30 milljón
spilanir. Daði Freyr og félagar hans
í Gagnamagninu eru þannig vafa
lítið streymismethafar Íslands
þetta árið.
Jökull gladdi úr Geldingadölum
Kúrekarnir í Kaleo sendu frá sér
plötuna Surface sounds. Þeir bættu
um betur og sendu líka frá sér tón
listarmyndband sem tekið var upp
við eldstöðina í Geldingadölum. Í
athugasemdum við myndbandið
má sjá erlenda aðdáendur tapa sér
af hrifningu yfir því að maður sem
heiti eftir náttúrufyrirbærinu jökli
stígi á stokk fyrir framan virka eld
stöð, sannarlega á landi elds og ísa.
Grant valdi stjörnu
GusGus og Vök leiddu saman hesta
sína í fyrra með laginu Higher,
sem kom út á breiðskífu GusGus
á árinu. Vök sendi frá sér stutt
skífu í ár. John Grant dúkkaði upp
í alls konar samstarfi, bæði með
GusGus og einnig með Ellen Krist
jánsdóttur, í laginu Veldu stjörnu,
sem er sunnudagsmorgnapopp í
heimsklassa.
Marglyttur yfir Miklubrautinni
Í haust sendi Dr. Gunni síðan frá
sér plötuna Nei, ókei, sem innihélt
fjöldann allan af hversdagsljóðum
um aumingja með Bónuspoka,
marglyttur yfir Miklubrautinni og
fuglahræðu í Hvassaleiti.
Nýbylgjan gekk aftur
Í grasrótinni bar það hæst að pönk
sveitin Skrattar sendi frá sér plötuna
Hellraiser IV. Platan fór um víðan
völl, sótti sterkt í eldra nýbylgju
popp og minnti blaðamann stund
um á tilraunakenndari og hrárri
útgáfu af bresku eightiessveitinni
The Cure.
Markaðsbrellur Birgittu Lífar
Viðburður sem vakti athygli í
popptónlistarsenunni á árinu var
ákvörðun athafnakonunnar og
áhrifavaldsins Birgittu Lífar Björns
dóttur um að gerast umboðsmaður
f yrir tónlistarmanninn Húgó.
Hann skellti einnig í dúett með
Herra Hnetusmjöri við miklar vin
sældir. Ráðgátan um Húgó er óleyst
í árslok og veltir blaðamaður fyrir
sér öllum möguleikum, jafnvel
hvort Birgitta Líf sé mögulega sjálf
Húgó? n
Poppað í lokuðum potti
á stafrænum veitum
1 2 3
4 6
5
7
8
Þrátt fyrir krefjandi aðstæður var uppskeran í íslensku poppi góð þetta árið. 1. Kef LAVÍK. MYND/AÐSEND 2. Daði Freyr. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 3. Margrét Rán/Vök. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
4. GDRN. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 5. Inspector Spacetime. MYND/SKJÁSKOT 6. Aron Can. MYND/ANNA MAGGÝ 7. Bríet. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 8. Vigdís Hafliðadóttir/Flott. MYND/HÖRÐUR SVEINSON