Strandapósturinn - 01.06.1972, Qupperneq 59
ellefu tonn. Þetta var þó annar stærsti báturinn frá Hnífsdal á
þessum árum. Flestir voru þeir sjö til átta tonn.
Nú eiga Hnífsdælingar stóra og góða fiskibáta. Ennfremur góða
fiskihöfn og fiskvinnslustöð þar við. Stendur þetta innanvert við
þorpið og því verður allt svo hreint og vinalegt í þorpinu sjálfu.
Raunar fannst mér alltaf hreint og fallegt í Hnífsdal á þeim árum,
sem ég var þar sjómaður. Þó verður að segja eins og er, að misjöfn
var nú snyrtimennskan og hreinlætið.
Eitt áttu þó Hnífsdælingar á þeim árum ómælt og sameiginlegt,
en það var drengskapur, vinsemd og hjálpsemi öllum okkur, sem
þar vorum aðkomnir, og þeim óviðkomandi um annað en vinnu
hjá þeim á vertíð, annaðhvort á sjó eða landi. Þannig eru Hnífs-
dælingar enn þann dag í dag, og þannig eru ísfirðingar einnig.
A Hnífsdal og Isafjörð mun ég því ætíð líta sem mína eigin heima-
byggð. Þeir staðir eru hluti af lífsuppeldi mínu og mótuðu það
ekki minna en heimabyggðin. Þar er að verki fyrst og fremst gott
og hjartahlýtt fólk. Umgerðin hefur miklu minna að segja, þó að
hún hafi einhver áhrif.
Seinnipart dags fórum við inn á Homvík og gerðum að afla.
Strekkings vindur var úti fyrir og nokkur alda, en það var að
birta í lofti og allt útlit fyrir gott veður með kvöldinu. Þegar við
höfðum lokið aðgerð, fórum við í land og höfðurn tal af Horn-
bændum. Fengum við hjá þeim bjargfuglsegg og létum þá fá
salt, sem þá vanhagaði um. Um kvöldið fórum við svo út og héld-
um norður af Hornbjargi. Var þá komið gott veður, og undir mið-
nætti gerði hið fegursta veður, sem hélzt alla þessa nótt. Himinninn
var heiður og hvergi ský á lofti. Sól seig að haffleti og var sem hún
settist á hafið eða rönd af henni hyrfi í það á tímabili. Sjór var
spegilsléttur svo langt sem augað eygði. Birtuskil vom svo til engin.
Sá, sem ekki hefur komið í nálægð við fuglabjarg um varp og
útungunartíma, getur vart gert sér í hugarlund þann óhemju fjölda
af fugli og allt það líf, og allt það starf, sem þar fer fram. Þó sjá
þeir, sem í nálægð eru, aðeins takmarkaðan tíma, ekki nema hluta
af þessu lífi og starfi. Þeir, sem fara á bjarg sem kallað er, kynnast
þessu nokkuð vel. Það iðar allt af lífi og önn, sem í stórborg væri.
Margradda garg, vængjaþytur og bergmál blandast saman og
57