Morgunblaðið - 03.08.2021, Síða 3
- Segir nálgun Páls sem forseta EFTA-dómstólsins rétta
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmað-
ur og fyrrverandi hæstaréttardóm-
ari, segir að óeðlilegt hafi verið að
Páll Hreinsson, forseti EFTA-dóm-
stólsins, hafi tekið að sér skýrslu-
gerð um lögmæti sóttvarnaaðgerða á
Íslandi.
Þannig tekur Jón Steinar undir
gagnrýni Carls Baudenbacher,
fyrrverandi forseta EFTA-dóm-
stólsins, sem skrifaði harðorða
grein í Morgunblaðið síðasta laug-
ardag, þar sem hann sagði Pál hafa
misst sjálfstæði sitt sem forseti
dómstólsins.
„Það er athuga-
vert að Páll
Hreinsson, ver-
andi forseti í þess-
um dómstól, skuli
taka að sér verk-
efni fyrir íslenska
ríkið. Vegna þess
að þar geta verið
álitamál sem þarf
að leita álits hjá
dómstólnum og
það sér það hver maður að hann á
ekki að blanda sér í slíkt. Þannig að
ég tek undir með þeirri gagnrýni hjá
Baudenbacher.“
Jón Steinar tekur þó ekki undir
með Baudenbacher að öllu leyti, eins
og hann útskýrði fyrir mbl.is í gær.
Hann segist sjálfur vera alfarið á
móti því að alþjóðlegir dómstólar,
eins og EFTA-dómstólinn, grafi
undan fullvalda dómstólum aðildar-
ríkja með því sem kallað er „lifandi
lögskýringum“.
Páll hefur ekki svarað
Mbl.is og Morgunblaðið hafa reynt
að ná tali af Páli, til þess að leita við-
bragða við skrifum Carls Baudenbac-
her. Þá hefur Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra ekki enn svarað
símtölum blaðamanna Morgunblaðs-
ins og mbl.is.
Nánar er fjallað um málið á mbl.is,
fréttavef Morgunblaðsins.
Athugavert að Páll hafi
tekið að sér skýrslugerð
Jón Steinar
Gunnlaugsson
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2021
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
544 5151
tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
„Eins og aðrir landsmenn bíðum við
þess með öndina í hálsinum að sjá
hvernig faraldurinn þróast og hver
áhrifin verða á upphaf skólastarfs,“
segir Þorgerður Laufey Diðriksdótt-
ir, formaður Félags grunnskólakenn-
ara
Í dag, 3. ágúst, hefst að tillögu sótt-
varnalæknis gjöf örvunarskammts til
kennara og annars starfsfólks skóla
sem í vor og sumar fékk Janssen.
Efnin sem nú bjóðast eru Pfizer eða
Moderna og er ætlað að skerpa á
þeirri vörn sem þegar er til staðar. Í
dag mætir í sprautun fólk fætt í jan-
úar og febrúar, þau sem afmæli eiga í
mars koma á morgun, og svo fram-
vegis. Öðrum sem fengu Janssen mun
sömuleiðis bjóðast aukaskammtur
fyrir 20. ágúst. „Kennarar byrja í vik-
unni að undirbúa sig fyrir veturinn og
mæta svo í skólana nærri 13. ágúst,
daginn sem yfirstandandi sóttvarna-
aðgerðir falla úr gildi. Börnin mæta
svo 23. ágúst og þá og helst fyrr þarf
að vera komið alveg á hreint hvort til
dæmis þurfi að hólfa skólahúsnæði
niður til að koma í veg fyrir smit eða
gera ráðstafanir,“ segir Þorgerður.
Börn í Þýskalandi fá sprautu
Í Þýskalandi mun bóluefni gegn
kórónuveirunni bjóðast börnum, 12
ára og eldri. Það er gert gegn ráðgjöf
sem þýska bólusetningastofnunin,
STIKA, gaf. Heilbrigðisráðherrar
sambandsríkjanna 16 sem mynda
Þýskaland hafa sömuleiðis ákveðið að
fólk í áhættuhópum fái örvunar-
skammta, sagði í gær á vef Der
Spiegel.
Bóluefnin Pfizer og Moderna eru
samþykkt af Lyfjastofnun Evrópu
(EMA) fyrir börn 12 ára og eldri en
hafa hingað til alla jafna ekki staðið
þýskum börnum til boða. Foreldrar
gátu þó fengið bólusetningu fyrir
börn sín, ef óskað var. Á Íslandi munu
foreldrar barna 12 til 18 ára geta beð-
ið um bóluefni við Covid-19 þegar
færi gefst, sagði Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir á upplýsingafundi
Almannavarna á dögunum.
„Ef rannsóknir staðfesta að bólu-
setningar gagnist börnum eigum við
að fara þá leið. Sóttvarnalæknir tekur
þó ákvörðunina sem við fylgjum,“
sagði Óskar Reykdalsson, læknir og
forstjóri Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðsins, við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Hugsanlega bólusett í skólum
„Yngra fólk svarar bólusetningum
yfirleitt vel og veikist sjaldan af Covid
– og þá yfirleitt vægt. Áherslan hefur
því beinst að eldri og viðkvæmari
hópum. Og sprauturnar virka, rann-
sóknir í Bandaríkjunum sýna að þeir
sem látast af völdum veirunnar eru í
99,99% tilvika óbólusettir,“ segir Ósk-
ar.
Nýgengi innanlandssmita af Covid
miðað við hverja 100 þúsund íbúa hef-
ur verið 358 manns á sl. fjórtán dög-
um – og 15 liggja nú á sjúkrahúsi af
völdum sjúkdómsins. „Ég hef áhyggj-
ur ef sjúkdómurinn heldur áfram að
breiðast út af sama hraða og verið
hefur síðustu daga. Slíkt eykur líkur á
stökkbreytingu veirunnar,“ segir
Óskar Reykdalsson.
„Því er mikilvægt að halda áfram
með viðbótarskammti til eldra fólks
sem gjarnan svarar bóluefni seinna
en aðrir. Hvað varðar börnin þá gætu
bólusetningar hafist til dæmis þegar
starf grunnskóla hefst aftur eftir
sumarleyfi, eins og skólahjúkrunar-
fræðingar skoða nú.“
Bólusetning skólabarna í skoðun
- Með öndina í hálsinum, segir formaður Félags grunnskólakennara - Þýsk börn sprautuð - Áfram-
hald bólusetninga mikilvægt, segir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- Útbreiðsla áhyggjuefni
Óskar
Reykdalsson
Þorgerður Laufey
Diðriksdóttir
Annie Mist Þórisdóttir hlaut bronsverðlaun
á Heimsleikunum í crossfit, sem fram fóru í
Bandaríkjunum um helgina. Hún segist í
samtali við mbl.is vera ótrúlega ánægð með
árangurinn og að henni hafi ekki þótt rétt-
látt að telja sér trú um að hún gæti náð svo
langt eftir erfitt ár. Þá hafi markmiðið með
þátttökunni verið að ná stjórn á líkama og
huga og sjá hvar hún stæði.
„Ég er enn þá að átta mig á hlutunum en
ég er bara ótrúlega ánægð og hlakka til að
koma heim og fagna með fjölskyldunni,“
segir Annie um árangurinn.
Hún segir að það hafi verið erfitt fyrir sig
að vera með ákveðnar væntingar til leik-
anna, hún hafi farið fram og til baka með
það síðustu mánuði hvort hún væri tilbúin
til að keppa. Markmiðið hafi þó alltaf verið
að komast í topp tíu ef hún tæki þátt, sem
tókst svo sannarlega. „Þannig að allar
væntingar stóðust og mun meira en það,“
segir Annie.
Hún segist alls ekki hafa búist við því að
hún næði eins langt og raun ber vitni.
„Meira að segja þegar ég var að fara inn í
síðasta daginn þá þorði ég ekki að trúa því
að ég gæti endað á palli. Þetta var einhvern
veginn svo fjarlægt í huganum á mér áður
en ég byrjaði að keppa,“ segir Annie en hún
eignaðist dóttur fyrir tæpu ári. Nánar er
rætt við Annie á mbl.is gunnhildursif@mbl.is
Annie Mist náði frábærum en óvæntum árangri á Heimsleikunum í crossfit með því að hreppa bronsverðlaunin
Ótrúlega ánægð
og hlakkar til
að koma heim
Ljósmyndir/Crossfit Games
Afrekskona Annie Mist lyftir lóðum á Heimsleikunum og til hægri samfagnar Katrín Tanja henni, eftir að bronsið var í höfn um helgina.