Morgunblaðið - 03.08.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2021
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*
-�-"%
,�rKu!,
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Audley
Nú 19.495 kr. 38.990 kr.
50-60% afsláttur
Útsölulok
3.-7. ágúst
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Hlutabréfaverð Amazon hækkaði
um 0,2% í viðskiptum gærdagsins
eftir að hafa hrunið um 7,6% í Nas-
daq-kauphöllinni í New York á
föstudag. Greiningaraðilar vestan-
hafs benda á að lækkun hlutabréf-
anna megi helst rekja til tveggja
þátta sem opinberaðir voru í árs-
hlutauppgjöri fyrirtækisins eftir
lokun markaða síðastliðinn fimmtu-
dag. Í fyrsta lagi reyndist tekju-
vöxtur fyrirtækisins á fjórðungnum
talsvert minni en markaðsaðilar
höfðu haft væntingar um og þá upp-
lýsti fyrirtækið einnig að yfirvöld í
Lúxemborg hefðu lagt á það sekt að
fjárhæð 746 milljónir evra, jafnvirði
nærri 110 milljarða króna.
Tekjurnar aukast og aukast
Heildartekjur Amazon á öðrum
ársfjórðungi 2021 námu 113 millj-
örðum dollara, jafnvirði 14.000
milljarða króna. Jukust þær um
27,2% frá sama fjórðungi í fyrra.
Höfðu greiningaraðilar gert ráð fyr-
ir að tekjurnar myndu nema að
minnsta kosti 115 milljörðum doll-
ara.
Rekstrarkostnaður fyrirtækisins
jókst á sama um 26,9% og nam
105,4 milljörðum dollara, jafnvirði
13.100 milljörðum króna. Hagnaður
á fjórðungnum nam 7,8 milljörðum
dollara, jafnvirði 970 milljarða
króna og jókst um 48,3%.Á fjár-
festakynningu sem haldin var í kjöl-
far þess að Amazon birti uppgjörið
fyrir fjórðunginn sagði Brian Ol-
savsky, fjármálastjóri fyrirtækisins,
að markmið um tekjuvöxt hefðu
sennilega ekki náðst vegna aukinn-
ar útbreiðslu bóluefnis gegn kór-
ónuveirunni sem aftur leiddi til þess
að fólk væri í auknum mæli reiðubú-
ið til að hverfa aftur til fyrra lífs
eins og það mótaðist fyrir farald-
urinn.
„Ekki aðeins með því að versla
með hefðbundnum hætti heldur
einnig að lifa lífinu og fara út á með-
al fólks,“ sagði Olavsky og bætti við:
„Það dregur úr þeim tíma sem fólk
ver í að versla.“ Þótt tekjuaukning
fyrirtækisins hafi ekki orðið sú sem
bjartsýnustu spár gerðu ráð fyrir
hafa umsvif fyrirtækisins vaxið
gríðarlega síðustu mánuði. Á það
benti Andy Jassy, sem settist í for-
stjórastól Amazon í stað Jeffs Bezos
í byrjun júlímánaðar.
„Síðastliðna 18 mánuði hefur
smásöluhluti fyrirtækisins afgreitt
fordæmalausan fjölda vöru, þar á
meðal búnað fyrir persónulegar
sóttvarnir fólks, matvæli og aðrar
vörur sem stutt hafa við getu sam-
félaga um heim allan til þess að tak-
ast á við þær erfiðu aðstæður sem
hlotist hafa af faraldrinum.“
Risasekt í öllu samhengi
Í árshlutareikningi Amazon var
markaðurinn upplýstur um að yf-
irvöld í Lúxemborg hefðu þann 16.
júlí síðastliðinn lagt 746 milljóna
evra sekt á fyrirtækið á grundvelli
þess að fyrirtækið hafi ekki fylgt
reglum Evrópusambandsins um
meðferð persónuupplýsinga fólks.
Lúta brotin einkum að því hvernig
fyrirtækið nýtir gögn til þess að
beina tilteknum, sérsniðnum aug-
lýsingum að fólki. Evrópuhöfuð-
stöðvar Amazon eru staðsettar í
Lúxemborg og því heyrir starfsemi
þess í álfunni að stórum hluta undir
eftirlitsstofnanir ríkisins. Fjárhæð
sektarinnar vekur talsverða athygli
enda er hún margfalt hærri en sú
sem frönsk eftirlitsyfirvöld lögðu á
Google vegna brota á sömu reglum.
Nam sú sekt 50 milljónum evra.
Tilslakanir hafa áhrif á Amazon
Ljósmynd/AFP
Amazon Jeff Bezos hefur auðgast gríðarlega á uppbyggingu Amazon sem hann stofnaði 5. júlí 1994.
- Eftir gríðarlega sókn netverslunar á síðustu misserum leita neytendur í hefðbundnar verslanir á ný
- Amazon sektað um 110 milljarða - Tekjuvöxtur en samt vonbrigði - Bezos ekki ríkasti maður í heimi
Munaði þar mestu um handbært fé sem fór úr
32,4 milljónum í árslok 2019 í 117,3 milljónir um
síðastliðin áramót.
Eigið fé nam 67,5 milljónum og hafði aukist
um 37,8 milljónir.
Þegar rýnt er í skýringar við ársreikninginn
sést að fyrirtækið stólar í auknum mæli á verk-
töku við veitta þjónustu. Þannig nam aðkeypt
þjónusta 175,2 milljónum á árinu 2020 en hafði
numið 70,3 milljónum á árinu 2019. Kostnaður
við hefðbundin laun lækkaði á sama tíma um
32,7 milljónir og nam 92,1 milljón.
Eignamiðlun er í eigu félaganna 4115 ehf. og
173 ehf. Félögin tvö eru í eigu fasteignasalanna
Kjartans Hallgeirssonar og Guðlaugs Inga Guð-
laugssonar.
Hagnaður fasteignasölunnar Eignamiðlunar
nam 62,6 milljónum króna í fyrra og jókst
hann um tæpar 40 milljónir milli ára. Tekjur
jukust um 34% og námu 482,8 milljónum
króna. Rekstrarkostnaður jókst hins vegar um
22% og nam 402,8 milljónum króna. Laun og
launatengd gjöld námu 287,6 milljónum og juk-
ust um 64,7 milljónir en skrifstofu- og stjórn-
unarkostnaður jókst um 7,6 milljónir og nam
115,2 milljónum.
Eignir fyrirtækisins námu 134,3 milljónum í
árslok 2020 og höfðu aukist um 59,3 milljónir.
Hagnaður Eignamiðlunar eykst
- Fasteignasalan fer
meira fram í verktöku
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eignamiðlun Er ein rótgrónasta fasteignasala
landsins. Stofnuð árið 1957.
3. ágúst 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.31
Sterlingspund 172.19
Kanadadalur 99.11
Dönsk króna 19.71
Norsk króna 14.041
Sænsk króna 14.392
Svissn. franki 136.1
Japanskt jen 1.1244
SDR 176.11
Evra 146.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.4558
Eigið fé innlánsstofnana nam 723,4
milljörðum króna í lok júnímánaðar
samkvæmt tölum sem Seðlabanki
Íslands hefur birt. Hefur eigið fé
þeirra vaxið um 63 milljarða frá ára-
mótum og hefur ekki verið hærra
síðan í september 2008, rétt áður en
bankakerfið hrundi nær allt til
grunna.
Heildareignir innlánsstofnana í
lok júní námu 4.563 milljörðum
króna og þar af voru 3.726 milljarðar
bundnir í innlendum útlánum og
markaðsverðbréfum. Skuldir stofn-
ananna námu 4.563 milljörðum og
þar af námu innlán frá innlendum
aðilum 2.337 milljörðum.
Eigið fé
fer vaxandi
- Innlánsstofnanir
eiga 723 milljarða
umfram skuldir
Samkvæmt lista Forbes yfir auðugustu menn í heimi
hefur Frakkinn Bernard Arnault og fjölskylda hans
tekið fram úr Jeff Bezos í kapphlaupinu um titilinn
sem hlotnast ríkasta manni í heimi á hverjum tíma.
Sviptingar á hlutabréfaverði Amazon hafa nú að
minnsta kosti í tvígang skotið hinum 72 ára gamla
Frakka upp í efsta sætið. Eru eignir hans metnar á
194,4 milljarða dollara, jafnvirði 24.200 milljarða
króna. Byggir auðsæld hans fyrst og fremst á lúx-
usvöruveldinu LVMH.
Lúxus sem skilar fúlgum
TRÓNIR Á TOPPNUM
Bernard Arnault