Morgunblaðið - 03.08.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2021
Svíþjóð
Gautaborg – Norrköping ....................... 1:2
- Kolbeinn Sigþórsson lék allan leikinn
með Gautaborg.
- Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með
Norrköping og Ísak B. Jóhannesson fyrstu
87 mínúturnar. Jóhannes Kristinn Bjarna-
son var ekki í hópnum.
Östersund – Hammarby ......................... 1:1
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Hammarby.
Djurgården – Häcken ............................. 2:1
- Oskar Tor Sverrisson kom inn á sem
varamaður á 76. mínútu og Valgeir Lund-
dal Friðriksson á 86. mínútu hjá Häcken.
Sirius – Örebro ........................................ 1:2
- Aron Bjarnason lék ekki með Sirius
vegna meiðsla.
Staða efstu liða:
Djurgården 13 9 3 1 24:8 30
Malmö 13 9 2 2 31:16 29
AIK 13 7 3 3 17:12 24
Elfsborg 13 7 2 4 19:13 23
Hammarby 13 6 4 3 25:17 22
Norrköping 13 6 2 5 17:13 20
Kalmar 13 4 5 4 12:14 17
B-deild:
Sundsvall – Brage.................................... 3:3
- Bjarni Mark Antonsson var ekki í leik-
mannahóp Brage.
Trelleborg – Helsingborg ...................... 2:0
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg.
Frakkland
B-deild:
Nimes – Dijon........................................... 2:1
- Elías Már Ómarsson lék fyrstu 65 mín-
úturnar með Nimes.
KNATTSPYRNA
Ólympíuleikar
Konur, A-riðill:
Angóla – Japan ..................................... 28:25
Svartfjallaland – Suður-Kórea............ 28:26
Noregur – Holland .............................. 29:27
Noregur – Japan.................................. 37:25
- Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
Suður-Kórea – Angóla ......................... 31:31
Holland – Svartfjallaland .................... 30:29
_ Lokastaðan: Noregur 10, Holland 8,
Svartfjallaland 4, Suður-Kórea 3, Angóla 3,
Japan 2.
Konur, B-riðill:
Rússland – Frakkland ......................... 28:27
Brasilía – Svíþjóð.................................. 31:34
Ungverjaland – Spánn ......................... 29:25
Frakkland – Brasilía ............................ 29:22
Spánn – Rússland................................. 31:34
Ungverjaland – Svíþjóð ....................... 26:23
_ Lokastaðan: Svíþjóð 7, Rússland 7,
Frakkland 5, Ungverjaland 4, Spánn 4,
Brasilía 3.
Karlar, A-riðill:
Þýskaland – Brasilía ............................29:25
- Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Spánn – Argentína ............................... 36:27
Noregur – Frakkland........................... 32:29
_ Lokastaðan: Frakkland 8, Spánn 8,
Þýskaland 6, Noregur 6, Brasilía 2, Argent-
ína 0.
Karlar, B-riðill:
Portúgal – Japan ................................. 30:31
- Dagur Sigurðsson þjálfar Japan.
Egyptaland – Barein........................... 30:20
- Aron Kristjánsson þjálfar Barein.
Danmörk – Svíþjóð............................... 30:33
_ Lokastaðan: Danmörk 8, Egyptaland 8,
Svíþjóð 8, Barein 2, Portúgal 2, Japan 2.
HANDBOLTI
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Greifavöllur: KA – Keflavík...................... 18
Würth-völlur: Fylkir – Leiknir R ....... 19.15
Í KVÖLD!
ÓLYMPÍULEIKAR
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Á Ólympíuleikunum í Tókýó í Japan
í ár eru íslenskir þjálfarar fleiri en
íslenskir keppendur og hefur þeim
flestum gengið vel og sumum frá-
bærlega. Einn þeirra hefur þegar
stýrt lærisveinum sínum til ólymp-
íugulls og -silfurs og annar stefnir
ótrauður á að stýra liði sínu til ann-
ars gulls.
Vésteinn Hafsteinsson varð á
ferli sínum margfaldur Íslands-
meistari í kringlukasti og keppti á
fernum Ólympíuleikum. Hann er
þjálfari Svíanna Daniels Ståhl og
Simons Pettersson, sem enduðu í
efstu tveimur sætunum í úrslitum
kringlukasts karla á leikunum á
laugardag. Ståhl vann gullið og Pet-
tersson tók silfrið. Vésteinn hefur
áður þjálfað kringlukastara sem
hefur unnið til verðlauna á Ólymp-
íuleikum. Undir leiðsögn hans vann
Eistinn Gerd Kanter gull á leik-
unum í Peking árið 2008 og brons á
leikunum í Lundúnum árið 2012. Þá
vann Daninn Joachim Olsen til silf-
urverðlauna í kúluvarpi á leikunum
í Aþenu árið 2004 undir handleiðslu
Vésteins.
Þórir Hergeirsson hefur þjálfað
norska kvennalandsliðið í hand-
knattleik í rúm 12 ár. Á þeim tíma
hefur liðið unnið allt sem hægt er
að vinna, þar á meðal ólympíugull á
leikunum árið 2012. Brons var nið-
urstaðan í Ríó de Janeiro í Brasilíu
á leikunum árið 2016 en í ár stefna
þær norsku ótrauðar á að næla í
sitt þriðja gull í sögunni og annað
undir stjórn Þóris.
Norska liðið virðist óstöðvandi og
vann alla fimm leiki sína í A-
riðlinum. Í fjórðungsúrslitunum
mætir Noregur Ungverjalandi og
ætti liðið sannarlega að vera sterk-
ari aðilinn þar, enda ansi sigur-
stranglegt í keppninni.
Tveir í fjórðungsúrslitum
karla
Þrír íslenskir þjálfarar mættu til
keppni með lið sín í handknattleik
karla og hafa allir staðið sig með
sæmd. Þýskaland, undir stjórn Al-
freðs Gíslasonar, er komið í fjórð-
ungsúrslitin eftir að hafa hafnað í
þriðja sæti í A-riðlinum með þrjá
sigra í fimm leikjum.
Þjóðverjar mæta Egyptalandi í
fjórðungsúrslitunum í hádeginu í
dag þar sem búast má við hörku-
leik.
Í B-riðlinum stuðlaði íslensk sam-
vinna að því að Barein, undir stjórn
Arons Kristjánssonar, komst óvænt
í fjórðungsúrslitin á sínum fyrstu
Ólympíuleikum. Barein vann aðeins
einn af fimm leikjum sínum en eini
sigurinn, 32:30 kom gegn Japan,
sem Dagur Sigurðsson þjálfar.
Þar sem Barein tapaði naumlega,
25:26, fyrir Portúgal voru bæði lið
komin með tvö stig fyrir loka-
umferðina og Japan gat einnig jafn-
að þau að stigum með sigri gegn
Portúgal í henni. Skemmst er að
segja frá því að Japan gerði það en
aðeins með einu marki, 31:30.
Lærisveinar Arons í Barein kom-
ust þar með í fjórðungsúrslitin á
bestum árangri í innbyrðis viður-
eignum milli liðanna þriggja. Læri-
sveinar Dags voru afar nálægt því
að taka sjálfir síðasta sætið í úrslit-
unum en hefðu þurft að skora tvö
mörk til viðbótar gegn Portúgal og
árangur heimamanna því prýði-
legur á heildina litið.
Barein mætti Frakklandi í fjórð-
ungsúrslitunum í nótt eftir að blaðið
fór í prentun en leiða má að því lík-
um að þar hafi lærisveinar Arons
mætt ofjörlum sínum, þótt liðið geti
sannarlega spilað vel á góðum degi.
Þjálfurunum gengur vel
- Eitt gull þegar í
höfn - Annað í
kortunum?
AFP
Sigursæll Þórir Hergeirsson segir norska liðinu til á leikunum í Tókýó.
Atvinnukylfingurinn Guðmundur
Ágúst Kristjánsson bar sigur úr
býtum í Einvíginu á Nesinu eftir
baráttu við Ragnhildi Kristins-
dóttur á lokaholunni. Á meðal
þekktra kylfinga sem tóku þátt á
mótinu voru Andri Þór Björnsson,
Axel Bóasson, Birgir Leifur Haf-
þórsson, Haraldur Franklín Magn-
ús og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir
ásamt áðurnefndum Guðmundi
Ágústi og Ragnhildi. Spilað var til
styrktar Barna- og unglingageð-
deild Landsspítalans sem fékk eina
milljón króna í lok mótsins.
Guðmundur vann
Einvígið á Nesinu
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Meistari Guðmundur Ágúst fagnaði
sigri í Einvíginu á Nesinu í gær.
Jamaíkinn Elaine Thompson-Herah
sló 33 ára gamalt ólympíumet
Bandaríkjakonunnar Florence
Griffith Joyner er hún hljóp 100
metra á 10,61 sekúndu og nældi sér
í gullverðlaun í greininni á Ólymp-
íuleikunum í Tókýó á laugardaginn
var. Jamaíkakonur röðuðu sér í öll
efstu þrjú sætin.
Ítalinn Lamon Jacobs vann óvænt
í karlaflokki er hann hljóp á 9,80
sekúndum og setti í leiðinni nýtt
Evrópumet. Fred Kerle frá Banda-
ríkjunum varð annar og Andre de
Gresse frá Kanada þriðji.
Metin féllu í 100
metra hlaupum
AFP
Meistari Elaine Thompson-Herah
er sprettharðasta kona heims.
Bandaríska fimleikastjarnan Sim-
one Biles mun taka þátt í úrslitum
kvenna á jafnvægisslá á Ólympíu-
leikunum í Tókýó í dag.
Biles hafði dregið sig úr keppni í
golfæfingum, stökki og tvíslá til að
einbeita sér að geðheilsu sinni. Þá
dró hún sig einnig úr keppni í liða-
keppninni og fjölþraut.
Biles var ólík sjálfri sér og átti
ekki sinn besta dag á fyrsta degi
fimleikakeppninnar. Hún dró sig úr
keppni í kjölfarið vegna andlegra
veikinda.
Hin 24 ára gamla Biles vann fern
gullverðlaun á Ólympíuleikunum í
Ríó árið 2016 og ein bronsverðlaun.
Hún er að mörgum talin ein besta
íþróttakona allra tíma en hún hefur
unnið 19 gullverðlaun á heims-
meistaramótum.
Biles hefur enn ekki unnið ól-
ympíugull á jafnvægisslá, því hún
hafnaði í þriðja sæti í greininni í
Ríó. Hún fær verðuga samkeppni
þar sem Sunisa Lee, sem vann gull í
fjölþraut í Tókýó, keppir einnig á
jafnvægisslá.
AFP
Endurkoma Simone Biles snýr aftur á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Sú besta mætir
aftur til leiks í Tókýó
Handknattleiksdeild Þórs á Akur-
eyri hefur gengið frá samningi við
Stevce Alusovski frá Norður-
Makedóníu og mun hann þjálfa ka-
lalið félagsins í handbolta á næstu
leiktíð. Félagið staðfesti ráðn-
inguna á heimasíðu sinni í gær.
Alusovski þjálfaði síðast stórlið
Vardar frá Skopje, en liðið varð
Evrópumeistari 2017 og 2019. Und-
ir stjórn Alusovski varð Vardar
deildar- og bikarmeistari í Norður-
Makedóníu á síðustu leiktíð en
þrátt fyrir það var Alusovski látinn
taka pokann sinn. Kröfurnar hjá
Vardar eru miklar enda liðið 14
sinnum orðið landsmeistari frá
árinu 1999.
Gamla kempan Veselin Vujovic
tók við þjálfun Vardar af Alusovski.
Sigursæll leikmaður
Alusovski lék með Vardar á sín-
um tíma og vann 13 meistaratitla
og 11 bikarmeistaratitla með liðinu.
Þá lék hann yfir 200 landsleiki fyrir
þjóð sína og skoraði 900 mörk.
Hann varð í 11. sæti á HM 2009 og
5. sæti á EM 2010 með Norður-
Makedóníu.
Frá árinu 2017 hefur Alusovski
þjálfað Pelister, Rabotnik og síðast
Vardar í heimalandinu.
Landslagið verður vægast sagt
breytt fyrir Alusovski því hann fer
úr því að þjálfa stórveldi í Evrópu
og í það þjálfa Þór í 1. deildinni, en
Þórsarar féllu úr efstu deild á síð-
ustu leiktíð eftir aðeins eitt ár í
deild þeirra bestu.
Þór vann aðeins fjóra leiki af 22 á
síðustu leiktíð og fékk níu stig. Að
lokum var liðið fimm stigum frá því
að halda sæti sínu í efstu deild.
johanningi@mbl.is
Frá stórliði í Evrópu
til Þórs á Akureyri
AFP
Stórveldi Stevce Alusovski kemur
til Akureyrar frá stórveldi.
Ólympíuleikar
Karlar, A-riðill:
Íran – Frakkland.................................. 62:79
Bandaríkin – Tékkland ...................... 119:84
_ Lokastaðan: Frakkland 6, Bandaríkin 5,
Tékkland 4, Íran 3.
Karlar, B-riðill:
Ítalía – Nígería ..................................... 80:71
Ástralía – Þýskaland ............................ 89:76
_ Lokastaðan: Ástralía 6, Ítalía 5, Þýska-
land 4, Nígería 3.
Karlar, C-riðill:
Argentína – Japan................................ 97:77
Spánn – Slóvenía .................................. 87:95
_ Lokastaðan: Slóvenía 6, Spánn 5, Arg-
entína 4, Japan 3.
Konur, A-riðill:
Kanada – Spánn.................................... 66:76
Suður-Kórea – Serbía .......................... 61:65
_ Lokastaðan: Spánn 6, Serbía 5, Kanada
4, Suður-Kórea 3.
Konur, B-riðill:
Nígería – Japan .................................. 83:102
Frakkland – Bandaríkin ...................... 82:93
_ Lokastaðan: Bandaríkin 6, Japan 5,
Frakkland 4, Nígería 3.
Konur, C-riðill:
Kína – Belgía......................................... 74:62
Ástralía – Púertó Ríkó ......................... 96:69
_ Lokastaðan: Kína 6, Belgía 5, Ástralía 4,
Púeró Ríkó 3.