Morgunblaðið - 12.08.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.08.2021, Blaðsíða 11
Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Birgir Ómar Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Norðurflugs, sat að snæðingi með eiginkonu sinni á veit- ingastað í borginni þegar honum barst hjálparbeiðni frá gönguhópi sem lent hafði í sjálfheldu við Ljósá að Fjallabaki á mánudag. „Ég náði ekki einu sinni að klára steikina!“ segir Birgir í samtali við Morgun- blaðið. Einn í hópnum hafði ökklabrotn- að illa á göngunni og ljóst að að- stoðar þyrlu væri þörf. Landhelg- isgæslan var upptekin í öðru útkalli og komst því ekki strax á staðinn. Hópurinn hafði þó séð þyrlu á flugi á svæðinu en vissi ekki að þar væri um að ræða þyrlu frá Norðurflugi. Einstök tilviljun réð því að hópurinn hringdi í framkvæmdastjóra fyrir- tækisins, sem fór strax í að bjarga málunum. „Ég hafði samband við fram- leiðslufyrirtækið Hero Productions sem var með umrædda þyrlu á leigu hjá okkur en þeir voru einmitt á þessu svæði í upptökum fyrir bandarískan kúnna. Þeir hringja svo út til að fá samþykki kúnnans fyrir því að þyrlan yrði notuð til að flytja einstaklinginn sem hafði slasast og hann sagði strax já,“ segir Birgir. „Með samþykki kýldum við bara á þetta.“ Vel gekk að komast að ein- staklingnum sem hafði slasast enda var hann kominn á jafnsléttu þegar þyrluna bar að garði. Flogið var svo með hinn slasaða til móts við björg- unarsveitarbíl sem var í grenndinni. Birgir telur ekki að þarna hafi verið um björgunaraðgerð að ræða enda hafi Norðurflug ekki heimild til að sinna slíkum aðgerðum. Hann sé þó glaður að hafa geta orðið gönguhópnum að liði. „Þetta var bara smá vinaleg að- stoð. Við erum ekki í björgunar- aðgerðum því slíkar aðgerðir krefj- ast sérstaks leyfis.Við höfum ekki verið að sækjast eftir því leyfi enda hefur Landhelgisgæslan alltaf tekið þessi útköll,“ segir hann. „Við höf- um þó alltaf reynt að gera okkar besta til að hjálpa þegar við getum, eins og í þessu tilfelli.“ Norðurflug vill gjarnan vera við- bragðsaðilum innan handar í ein- faldari útköllum, að sögn Birgis. Það komi honum þó á óvart hve lítill samstarfsvilji sé af hálfu Landhelg- isgæslunnar. „Það þarf að meta hvert útkall fyrir sig því sum þeirra eru ekkert það alvarleg. Þá gætu einhverjir aðrir, eins og til dæmis við, tekið þau á meðan gæslan færi í alvarlegri útköllin.“ Inntur eftir við- brögðum segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæsl- unnar, það ekki hafa komið til tals að fara í samstarf við önnur þyrlu- félög. Var úti að borða þegar hjálparbeiðnin barst - Varð að hlaupa frá steikinni - Vill í samstarf við gæsluna Morgunblaðið/Eggert Framkvæmdastjóri Birgir Ómar Haraldsson hjá Norðurflugi. Í baráttu við COVID-19 býður Donnamaska, grímur og andlitshlífar sem eru gæða vara frá DACH og notuð um allan heim. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika Sími 555 3100 www.donna.is Heildsöludreifing Type II 3ja laga medical andlitsgríma FFP3 Respirator Comfort andlitsgríma með ventli FFP3 High-Risk andlitsgríma Andlitshlíf móðufrí C-gríma Pandemic Respirator andlitsgríma Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga Lokað á laugardögum í sumar. www.spennandi-fashion.is ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA 50-60% AFSLÁTTUR AF FATNAÐI OG SKÓM! Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Fæst í netverslun belladonna.is Nýjar haustvörur streyma inn Skipholti 29b • S. 551 4422 Ný sending frá Verðhrun á útsölunni – 60-70% Skoðið laxdal.is Nýtt frá Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebookAllt um sjávarútveg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.