Morgunblaðið - 12.08.2021, Síða 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Rauðufossar í Friðlandi að Fjalla-
baki hafa síðustu sumur komið
sterkir inn sem ferðamannastaður
og margir sett stefnuna þangað.
Umrætt svæði er 5 km löng keðja
fossa, sem allir eru sem kórónur í
fallegu landslagi á þessum slóðum.
Þegar ekið er í Landmannalaugar
fara margir svonefnda Dómadals-
leið, en af henni og til suðurs er far-
inn slóði að Krakatindi. Eftir stuttan
akstur um þá braut er komið að bíla-
stæði þaðan sem er stutt ganga að
fossunum og áfram að svonefndu
Rauðauga. Úr rauðum botni þess ós-
ar fram blátært vatnið í Rauðufoss-
akvísl. Staður þessi er í daglegu tali
kallaður Auga og hefur vakið eftir-
tekt margra.
Mikil umferð hefur verið um
Rauðufossasvæðið, sem fæstum var
til skamms tíma kunnugt um. Birt-
ing mynda af svæðinu í sjónvarpi
fyrir nokkrum árum þótti orka tví-
mælis, enda sköpuðu þær ánauð á
svæðið. Við því var brugðist með
framkvæmdum, eins og gerð göngu-
stíga. Hluti svæðisins, það er leiðin
frá bílastæði að fossum, er þó áfram
á appelsínugulum lista Umhverfis-
stofnunar; það er fylgst vel er með
þróun mála og gripið verður inn í ef
ástæða þykir til. Úrbætur eru svo í
bígerð 2022-2023, enda eru fjár-
munir til framkvæmda þá tryggðir.
Náttúruperlur Frá því fyrst var sagt frá Rauðufossum og hinu einstaka Auga hafa margir lagt þangað leið sína, svo jafnvel hafa verið uppi áhyggjur af því að svæðið réði ekki við álagið.
Rauðufossar á appelsínugulum lista
- Perla að Fjalla-
baki - Fjölsótt og
framkvæmdir eru
á dagskránni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Augað Héðan streymir vatnið, en rétt er þó að minna á boðskap í frægri vísu Sigurðar Nordal að sjaldan verður ósinn eins og uppsprettuna dreymir.
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
NISSAN - QASHQAI TEKNA PLUS – RN. 331481.
Nýskráður 7/2019, ekinn 30 þ.km., dísel, hvítur,
sjálfskipting, leiðsögukerfi, 360° myndavél og
nálgunarvarar, stöðugleikakerfi, bluetooth.
Verð 4.590.000 kr.
VOLVO - XC90 T8 TWIN ENGINE INSCRIPTION
RN. 153738. Nýskr. 8/2020 (2021), ekinn 0 þ.km.,
bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, dráttarkrókur,
sjónlínuskjár, GPS, bluetooth, litað gler, o.fl.
Verð 12.490.000 kr.
VW GOLF GTE PLUG IN HYBRID COMFORT
RN. 331213. Nýskráður 3/2020, ekinn 18 þ.km.,
bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, hraðastillir,
360° nálgunarvarar, stöðugleikakerfi, bluetooth.
Verð 4.590.000 kr.
NISSAN QASHQAI TEKNA – RN. 331182.
Nýskráður 1/2017, ekinn 44 þ.km., dísel, ljósgrár,
sjálfskiptur, dráttarkrókur, bakkmyndavél,
fjarlægðarskynjarar aftan, hraðastillir, bluetooth.
Verð 3.490.000 kr.