Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
VIÐTAL
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Ég byrjaði að vinna hjá Spotify 2016
og það kom nú bara þannig til að ís-
lenskur vinur minn, Daði Bjarnason,
sem þá var að vinna hjá fyrirtækinu,
mælti með mér og hvatti mig til að
sækja um stöðu, sem ég gerði,“ segir
Freyr Sævarsson, Íslendingur í
sænsku höfuðborginni Stokkhólmi,
sem starfað hefur hjá tónlistarveit-
unni góðkunnu síðastliðin fimm ár, en
þar vinna mörg þúsund manns, enda í
margt hornið að líta, höfundaréttar-
mál, greiðslur til tónlistarfólks,
svindltilraunir og ótalmargt annað.
Freyr er gagnaverkfræðingur hjá
Spotify, eða „data engineer“, en játar
þó að þýðingin sé engan veginn full-
mótuð þar sem hann er í raun ekki
verkfræðimenntaður. „Þetta er ekki
almennilega til á íslensku svo sem, en
ég er í gagnaforritun, þá er maður að
vinna úr gögnum og stærri gagna-
söfnum og skrifa alls konar kóða, til
dæmis til að finna hagnýtar upplýs-
ingar úr stórum gagnasöfnum,
hreinsa þau eða gera þau á einhvern
hátt aðgengilegri,“ segir Freyr
blaðamanni, sem er eitt spurningar-
merki, forðaði sér enda rakleiðis í
máladeild í menntaskóla á sínum
tíma.
Doktorsnám í dulkóðunarfræði
Freyr hefur numið harðsnúin
fræði, hann lauk BS-gráðu í stærð-
fræði frá Háskóla Íslands og hélt því
næst austur til meginlandsins og lauk
meistaranámi í blendingi af stærð-
fræði og tölvunarfræði við Konung-
lega tækniháskólann í Stokkhólmi,
KTH. Hann hélt svo út á íslenskan
vinnumarkað og starfaði hjá Hug-
smiðjunni í eitt og hálft ár áður en
sænska höfuðborgin tók honum opn-
um örmum á ný.
„Þá fór ég í doktorsnám í því sem
kallast cryptografía, eða dulkóðunar-
fræði, en kláraði ekki nema eitt ár af
því, það gekk bara ekki upp af ýms-
um ástæðum,“ segir Freyr, enda
hefðu einhverjir vafalítið talið kvót-
ann fylltan með því sem á undan var
gengið. Eftir stuttan stans hjá fyrir-
tæki sem heitir Webstep opnaði tón-
listarveitan góðkunna, sem hálf
heimsbyggðin hefur í eyrum sér dag-
inn út og inn, dyr sínar fyrir Frey.
Svikahrappar falsa spilanir
„Spotify er mjög skemmtilegur
vinnustaður. Auðvitað hefur gríðar-
lega margt breyst í Covid,“ játar
Freyr, sem hefur starfað í fjórum
deildum fyrirtækisins síðan hann tók
sér þar bólfestu. „Ég byrjaði fyrst í
deild sem sér um launagreiðslur til
listamannanna, sem byggjast á því
hvað fólk er að hlusta á. Það er
gríðarlega mikilvægt að þeir útreikn-
ingar séu réttir. Næst vann ég við að
búa til eins konar grunngagnasett
fyrir allt fyrirtækið, sem er notað fyr-
ir mikilvægustu viðskiptatengdu
upplýsingarnar, svo sem fjölda not-
enda og annað slíkt, nokkuð sem er í
notkun alls staðar hjá okkur, til dæm-
is við villugreiningu þar sem mikil-
vægt er að hægt sé að bregðast við
strax,“ útskýrir Freyr.
Því næst lá leið hans í deild, sem
fæst við hvers kyns svindltilraunir
gagnvart fyrirtækinu, sem óprúttnir
aðilar spreyta sig á. „Svindlið, sem
við vorum að berjast gegn, snerist
um listamenn, alvöru eða ekki, sem
eru að falsa spilanir á lögunum sínum
fyrir peninga eða vinsældir, yfirleitt
með því að nota botta [forrit sem kall-
ast yrkjar á íslensku og eru þeirrar
náttúru að síendurtaka ákveðin verk-
efni]. Það bitnar svo sem ekki beint á
notendum, en frekar á Spotify og
öðrum listamönnum.“ Þar starfaði
Freyr um þriggja ára skeið, en vinn-
ur nú með teymi tengdu hugbúnaðar-
lausnum sem sýna notendum Spotify
textana við lögin sem hlýtt er á
hverju sinni. „Þetta er reyndar fídus
sem er ekki búið að sleppa í Evrópu
enn þá, en hann er kominn út í Asíu
og Suður-Ameríku.“
Hópur Íslendinga
starfar hjá fyrirtækinu
Freyr segir starfsfólk Spotify á
heimsvísu um fimm þúsund manns,
þar af fimmtán hundruð í Stokkhólmi
svo augljóslega er það meira eljuverk
en margur ætlar að veita sauðsvört-
um pupulnum aðgang að uppáhalds-
tónlistinni, hvort sem fólk situr í
strætó á leið til vinnu í Kuala Lump-
ur eða er úti að hjóla á Ísafirði.
„Þetta er í raun ótrúlega margt,
tæknifólk, auglýsingar, hönnun, lög-
fræðingar og nefndu það bara,“ segir
Freyr og ljóstrar því upp að Íslend-
ingar við störf hjá Spotify séu á bilinu
tíu til fimmtán. „Við erum með svona
hóp á spjallborðinu, en það er ekki
eins og við hittumst mikið, þetta er
mest fólk sem starfar á skrifstofun-
um í Stokkhólmi og New York, þær
eru langstærstar,“ segir Freyr og
bætir því við að reyndar hittist fæstir
á þessum síðustu og verstu þar sem
skrifstofur Spotify hafi staðið auðar
allan Covid-faraldurinn. „En jú jú,
við Íslendingarnir hittumst auðvitað
eftir föngum í kaffi og mat.“
Nýr erfingi með haustinu
Hvernig upplifir hann þá Íslend-
ingasamfélagið í Svíþjóð? „Þetta er
náttúrulega svo dreift, Íslendingar
hér eru með Facebook-hóp auðvitað,
en fólk er úti um allt land og svo
verða bara til vinahópar á hverjum
stað, eins og hérna í Stokkhólmi, en
það er svo sem ekkert miðstýrt
skipulag á bak við það.“
Kona Freys er Dagný Vilhelms-
dóttir líffræðingur, sem starfar á
Karólínska sjúkrahúsinu í Stokk-
hólmi og hefur þeim Frey þegar orð-
ið einnar dóttur auðið, Hjördísar
Bjargar, „en það er reyndar annað á
leiðinni í september,“ játar Freyr
ísmeygilega.
Ekki hefur þeim skötuhjúum gef-
ist mikill tími fyrir tómstundir og
áhugamál samhliða uppeldi frum-
burðarins, en þau Dagný stunda þó
kajak-róður eftir því sem aðstæður
bjóða upp á. „Svo hef ég nú verið að
glamra eitthvað á gítar í Covid-inu,
en það er reyndar alls ekki í frásögur
færandi,“ segir Freyr með auðheyrt
bros á vör, en við ljóstrum engu að
síður upp um gítarglamrið hér.
Hyggjast flytja til Íslands
Hann kveðst reikna með að starfa
hjá Spotify eitthvað áfram, en þau
Dagný og börnin verði þó líklega ekki
fjarri landi elds og ísa um aldur og
ævi. „Við búumst nú við að flytja til
Íslands á næstu árum. Spotify er orð-
ið meira „remote“ fyrirtæki núna,
fólk er að vinna héðan og þaðan, en
það er reyndar ekki í boði frá Íslandi
enn þá af hálfu fyrirtækisins,“ játar
Freyr Sævarsson gagnaverkfræð-
ingur í lokin og kýs greinilega, eins
og Gunnar á Hlíðarenda í ljóði Jón-
asar, heldur að bíða hel en horfinn
vera fósturjarðar ströndum.
New York Skyggnið frá starfsstöðvum Spotify í New York er ekki amalegt.
Starfsheitið finnst ekki á íslensku
- Freyr Sævarsson starfar hjá tónveitunni Spotify - Gríðarlega margt breyst í Covid - Lætur vel
af Svíþjóðardvölinni - Svindlarar falsa spilanir laga - Leggja á ráðin um flutninga til Íslands
Ljósmynd/Stúdíó Dís
Fjölskyldan Þótt starfstitill
Freys sé hálfgert vandræða-
gerpi á ástkæra ylhýra táknar
það ekki að hann geti ekki átt
fallega fjölskyldu. Dagný Vil-
helmsdóttir hér á mynd og dótt-
irin Hjördís Björg. Nýtt barn er
væntanlegt í september.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
Allt til
kerrusmíða
2012
2020