Morgunblaðið - 12.08.2021, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
metanól eða vetni sem eldsneyti á
skip og koma upp vistvænum sam-
göngum. Síðan þurfum við að sam-
þætta flokkun um allt land og tryggja
að úrgangur sé lágmarkaður og end-
urunninn. Við þurfum að vinna á öll-
um stöðum,“ segir hann.
Auk þessara þátta telur Jón Ágúst
einnig mikilvægt að við hugum að
aukinni skógrækt og endurheimt vot-
lendis og lífríkinu sem þar er að
finna. Með votlendi munu þau svæði
sem við þurrkuðum upp hætta að losa
gróðurhúsalofttegundir. Er upp-
bygging skóga auk þess skilvirk leið
til að auka bindingu gróðurhúsaloft-
tegunda og hefur hún einnig marg-
vísleg jákvæð áhrif á vistkerfið. Sam-
kvæmt úttekt Klappa þurfa
Íslendingar nú að gróðursetja að
minnsta kosti fimm milljónir trjá-
plantna árlega fram til 2030 ef við
viljum stefna á kolefnishlutleysi árið
2040. „Ef við tölum um skógræktina
sérstaklega þá þarf að tífalda hana
miðað við það sem hún er í dag. Það
tekur síðan 10 til 15 ár fyrir tré að
byrja að binda þannig að við þurfum
að koma öllum þessum skógi upp fyr-
ir 2025 sirka svo hann sé farinn að
hafa tilsett áhrif árið 2040.“
Að sögn Jóns Ágústs eru íslenskir
bændur í lykilstöðu í þessari baráttu,
sérstaklega hvað varðar losun gróð-
urhúsalofttegunda frá landi. Er því
mikilvægt að lögð sé áhersla á að
vinna með þeim í endurheimt vot-
lendis og uppbyggingu skógræktar.
Segir hann mikil verðmæti fólgin í
því að binda kolefni og því sé nú þörf
á að viðskiptalíkan verði útbúið sem
segir til um hvernig bændur geti selt
bindingu til þeirra sem þurfi á því að
halda. Með þeim hætti geti þeir virki-
lega breytt atvinnuháttum og tekju-
möguleikum býlanna.
Aðgerðaleysi kostar
Segir Jón Ágúst nú mikilvægt að
ríkið leggist í miklar fjárfestingar til
að takast á við loftslagsmálin. Hingað
til hafa fjármunir sem varið er í þetta
verkefni numið einhverjum hundruð-
um milljóna. „Í líkönum sem við gerð-
um árið 2017 gerðum við spá um að
kostnaðurinn sem við þyrftum að
leggjast í væri á bilinu 270-300 millj-
arðar. Það verður aldrei minna en
það. Eftir því sem tíminn sem við höf-
um til ráðstöfunar styttist því meiri
verður fjárfestingin.“
Segir hann jafnframt mikilvægt að
sköpuð sé umgjörð til að leiðbeina
neytendum í íslensku samfélagi svo
hægt sé að hámarka árangurinn í
baráttunni. Segir hann ríkið hafa
margvísleg tól til að stýra neyslu
fólks og hegðun. Verðum við að sam-
einast um þessa baráttu rétt eins og
við gerðum í baráttunni við kórón-
uveirufaraldrinum.
„Við sem einstaklingar köllum á
framleiðslu því við erum neytendur.
Við þurfum að fara að draga úr allri
okkar neyslu og það strax. Við getum
ekki verið að henda rusli á þessum
stórkostlega skala. Við þurfum að
fara að endurnýta og endurvinna.
Það myndi minnka framleiðslu, það
er ljóst. Við sem einstaklingar þurf-
um að fara að taka þetta til okkar.
Þetta snýr allt að okkur í grunninn.“
Bjartsýnn á framtíðina
Þrátt fyrir að baráttan við lofts-
lagsbreytingar virðist oft og tíðum
óyfirstíganlegt verkefni sem geti
reynst afar kvíðavaldandi fyrir
marga kveðst Jón Ágúst standa í
þeirri trú að marga jákvæða punkta
megi finna í þessu líka. Sérstaklega
hvað varðar atvinnusköpun og styrk-
ingu innviða. Telur hann Ísland vera í
kjörstöðu til að snúa vörn í sókn með
fjárfestingum og þróun grænna
tæknilausna og hugbúnaðar. Getum
við svo miðlað þekkingu okkar og
reynslu til annarra þjóða sem þurfa á
því að halda.
„Við þurfum að hugsa þetta upp á
nýtt, þetta er kannski eitt stærsta at-
vinnutækifærið okkar og stærsta
tækifærið til að styrkja Ísland. Þetta
er ekki verkefni til þess að herða að
okkur heldur verkefni til þess að
skapa störf fyrir ungt fólk og verða til
fyrirmyndar í loftslagsmálum. Þetta
er áskorun en þetta getum við gert.“
Telur hann mikilvægt að fjölmiðlar
og ráðamenn hvetji almenning til
dáða frekar en halda uppi hræðslu-
áróðri. Við græðum lítið á því að gera
fólk óttaslegið án þess að veita því
von um framhaldið.
„Það er mikið verið að sýna okkur
hvernig heimurinn er að brenna og
við verðum óttaslegin og lokum fyrir
það. Við verðum að nálgast málið
með öðrum hætti, fræða fólk og upp-
lýsa. Segja því hvert verkefnið er.
Okkar verkefni er að draga úr losun
um 55%. Þetta er einfalt. Við þurfum
bara að gera meira af því góða og
minna af því slæma,“ segir hann.
Staða Íslands í samanburði við lönd innanESB
Losun gróðurhúsalofttegunda, tonn CO2-ígilda á íbúa
Heimild: Klappir/Eurostat
Lúxemborg
Ísland
Írland
Tékkland
Eistland
Kýpur
Holland
Belgía
Pólland
-55%Markmið ESB
(+Ísland og Noregur)
Núverandi
meðaltalslosun ESB
0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20
Samkvæmt Eurostat
er losun frá Íslandi
15,8 t CO2-ígilda/íbúa
(án landnotkunar, skógræktar,
alþjóðaflugs og siglinga)
Uppbygging skóga til bindingar á CO2
Markmið um kolefnishlutleysi fyrir 2040
80
60
40
20
0
5
4
3
2
0
2020 2025 2030 2035 2040
Heimild:
Klappir
Milljónir trjáa
mt CO2
Plöntun,milljónir trjáa
Binding,milljónir tonna CO2
KOMDUÚT
AÐHJÓLA
EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF REIÐ- OG RAFHJÓLUM
Skoðaðu úrvalið á orninn.is
ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
Frábært fjölnota hjól
Álstell, 16 gírar
Vökvabremsur
Radioactive Red
99.990 kr.
MARLIN6
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Læsanlegur dempari
Gunmetal
109.990 kr.
DS2
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Matte Dnister Black
104.990 kr.
FX2Disc