Morgunblaðið - 12.08.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 12.08.2021, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 metanól eða vetni sem eldsneyti á skip og koma upp vistvænum sam- göngum. Síðan þurfum við að sam- þætta flokkun um allt land og tryggja að úrgangur sé lágmarkaður og end- urunninn. Við þurfum að vinna á öll- um stöðum,“ segir hann. Auk þessara þátta telur Jón Ágúst einnig mikilvægt að við hugum að aukinni skógrækt og endurheimt vot- lendis og lífríkinu sem þar er að finna. Með votlendi munu þau svæði sem við þurrkuðum upp hætta að losa gróðurhúsalofttegundir. Er upp- bygging skóga auk þess skilvirk leið til að auka bindingu gróðurhúsaloft- tegunda og hefur hún einnig marg- vísleg jákvæð áhrif á vistkerfið. Sam- kvæmt úttekt Klappa þurfa Íslendingar nú að gróðursetja að minnsta kosti fimm milljónir trjá- plantna árlega fram til 2030 ef við viljum stefna á kolefnishlutleysi árið 2040. „Ef við tölum um skógræktina sérstaklega þá þarf að tífalda hana miðað við það sem hún er í dag. Það tekur síðan 10 til 15 ár fyrir tré að byrja að binda þannig að við þurfum að koma öllum þessum skógi upp fyr- ir 2025 sirka svo hann sé farinn að hafa tilsett áhrif árið 2040.“ Að sögn Jóns Ágústs eru íslenskir bændur í lykilstöðu í þessari baráttu, sérstaklega hvað varðar losun gróð- urhúsalofttegunda frá landi. Er því mikilvægt að lögð sé áhersla á að vinna með þeim í endurheimt vot- lendis og uppbyggingu skógræktar. Segir hann mikil verðmæti fólgin í því að binda kolefni og því sé nú þörf á að viðskiptalíkan verði útbúið sem segir til um hvernig bændur geti selt bindingu til þeirra sem þurfi á því að halda. Með þeim hætti geti þeir virki- lega breytt atvinnuháttum og tekju- möguleikum býlanna. Aðgerðaleysi kostar Segir Jón Ágúst nú mikilvægt að ríkið leggist í miklar fjárfestingar til að takast á við loftslagsmálin. Hingað til hafa fjármunir sem varið er í þetta verkefni numið einhverjum hundruð- um milljóna. „Í líkönum sem við gerð- um árið 2017 gerðum við spá um að kostnaðurinn sem við þyrftum að leggjast í væri á bilinu 270-300 millj- arðar. Það verður aldrei minna en það. Eftir því sem tíminn sem við höf- um til ráðstöfunar styttist því meiri verður fjárfestingin.“ Segir hann jafnframt mikilvægt að sköpuð sé umgjörð til að leiðbeina neytendum í íslensku samfélagi svo hægt sé að hámarka árangurinn í baráttunni. Segir hann ríkið hafa margvísleg tól til að stýra neyslu fólks og hegðun. Verðum við að sam- einast um þessa baráttu rétt eins og við gerðum í baráttunni við kórón- uveirufaraldrinum. „Við sem einstaklingar köllum á framleiðslu því við erum neytendur. Við þurfum að fara að draga úr allri okkar neyslu og það strax. Við getum ekki verið að henda rusli á þessum stórkostlega skala. Við þurfum að fara að endurnýta og endurvinna. Það myndi minnka framleiðslu, það er ljóst. Við sem einstaklingar þurf- um að fara að taka þetta til okkar. Þetta snýr allt að okkur í grunninn.“ Bjartsýnn á framtíðina Þrátt fyrir að baráttan við lofts- lagsbreytingar virðist oft og tíðum óyfirstíganlegt verkefni sem geti reynst afar kvíðavaldandi fyrir marga kveðst Jón Ágúst standa í þeirri trú að marga jákvæða punkta megi finna í þessu líka. Sérstaklega hvað varðar atvinnusköpun og styrk- ingu innviða. Telur hann Ísland vera í kjörstöðu til að snúa vörn í sókn með fjárfestingum og þróun grænna tæknilausna og hugbúnaðar. Getum við svo miðlað þekkingu okkar og reynslu til annarra þjóða sem þurfa á því að halda. „Við þurfum að hugsa þetta upp á nýtt, þetta er kannski eitt stærsta at- vinnutækifærið okkar og stærsta tækifærið til að styrkja Ísland. Þetta er ekki verkefni til þess að herða að okkur heldur verkefni til þess að skapa störf fyrir ungt fólk og verða til fyrirmyndar í loftslagsmálum. Þetta er áskorun en þetta getum við gert.“ Telur hann mikilvægt að fjölmiðlar og ráðamenn hvetji almenning til dáða frekar en halda uppi hræðslu- áróðri. Við græðum lítið á því að gera fólk óttaslegið án þess að veita því von um framhaldið. „Það er mikið verið að sýna okkur hvernig heimurinn er að brenna og við verðum óttaslegin og lokum fyrir það. Við verðum að nálgast málið með öðrum hætti, fræða fólk og upp- lýsa. Segja því hvert verkefnið er. Okkar verkefni er að draga úr losun um 55%. Þetta er einfalt. Við þurfum bara að gera meira af því góða og minna af því slæma,“ segir hann. Staða Íslands í samanburði við lönd innanESB Losun gróðurhúsalofttegunda, tonn CO2-ígilda á íbúa Heimild: Klappir/Eurostat Lúxemborg Ísland Írland Tékkland Eistland Kýpur Holland Belgía Pólland -55%Markmið ESB (+Ísland og Noregur) Núverandi meðaltalslosun ESB 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 Samkvæmt Eurostat er losun frá Íslandi 15,8 t CO2-ígilda/íbúa (án landnotkunar, skógræktar, alþjóðaflugs og siglinga) Uppbygging skóga til bindingar á CO2 Markmið um kolefnishlutleysi fyrir 2040 80 60 40 20 0 5 4 3 2 0 2020 2025 2030 2035 2040 Heimild: Klappir Milljónir trjáa mt CO2 Plöntun,milljónir trjáa Binding,milljónir tonna CO2 KOMDUÚT AÐHJÓLA EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF REIÐ- OG RAFHJÓLUM Skoðaðu úrvalið á orninn.is ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA Frábært fjölnota hjól Álstell, 16 gírar Vökvabremsur Radioactive Red 99.990 kr. MARLIN6 Frábært fjölnota hjól Álstell - 24 gírar Vökva diskabremsur Læsanlegur dempari Gunmetal 109.990 kr. DS2 Frábært fjölnota hjól Álstell - 24 gírar Vökva diskabremsur Matte Dnister Black 104.990 kr. FX2Disc
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.