Morgunblaðið - 12.08.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.08.2021, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Miklar lagnaframkvæmdir standa nú yfir í Vesturbæ Reykjavíkur með óhjákvæmilegum götulokunum. Það eru Veitur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, sem standa fyrir fram- kvæmdunum. Verkið felur í sér lagningu á nýju aðskildu skólpkerfi í Vesturgötu, frá Stýrimannastíg að Bræðraborgar- stíg, niður að Hlésgötu við Slippinn, þar sem nýtt hverfi mun brátt rísa við Vesturbugt. Jafnframt er unnið að endurnýjun á kaldavatnslögnum og lagningu ídráttarröra fyrir raf- magn, ljósleiðara og umferðarljós. Vegna framkvæmdanna var Mýr- argata lokuð fyrir bílaumferð í tæp- an mánuð í júní og fram í júlí. Mýr- argötu hefur verið lokað á ný, í þetta sinn vegna þess að skipt verður um vatnslagnir við Héðinshúsið. Á að ljúka í október Í júlí hófust síðan framkvæmdir á Vesturgötunni. Byrjað var við gatnamót Bræðraborgarstígs og Vesturgötu og síðan haldið í austur- átt að Stýrimannastíg. Útlit er fyrir að framkvæmdum ljúki á Vest- urgötu í október, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar. Við framkvæmdasvæðið í Vest- urgötu verður lokað á aðgengi fyrir bíla á meðan framkvæmdum stend- ur en aðgengi fyrir gangandi og hjól- andi vegfarendur tryggt. Fram kemur í frétt á heimasíðu Veitna að verkefnið sé mikilvægt þar sem skólp hafi flætt í kjallara nokkurra húsa í leysingum og mikilli úrkomu. Fráveitukerfið verður stækkað og lagnir fyrir regnvatn og skólp aðgreindar. Kaldavatnslagn- irnar eru einnig komnar á tíma en þær eru flestar frá árinu 1925. Verkið var boðið út og bárust tvö tilboð. Alma verk ehf. bauð 165,3 milljónir og Berg verktakar 148,2 milljónir en kostnaðaráætlun var 122,5 milljónir. Samið var við Berg verktaka að vinna verkið. Núverandi skólplögn í Vesturgötu liggur grunnt þar sem mjög stutt er niður á klöpp undir götunni og ekki hefur verið fleygað fyrir þeim á sín- um tíma. Því þarf að fleyga töluvert af klöpp langa leið. Sú vinna getur verið ansi hávaðasöm og fólk finnur fyrir titringi. Á íbúðasvæðum er að- eins heimilt að vinna á virkum dög- um milli kl. 08:00 og 18:00. Aðra daga er fleygun ekki heimil. Skoðun á húsum við vinnusvæðið hefur þegar farið fram svo hægt sé að meta hvort fleygunin hafi áhrif á þau, að því fram kemur á heimasíðu Veitna. Vegna framkvæmdanna þurfti að loka Nýlendugötu á milli lóðar rúss- nesku rétttrúnaðarkirkjunnar og leikvallarins frá 19. maí fram í ágúst. Leikvöllurinn verður lokaður fram á haust. Lagnir endurnýjaðar í Vesturbæ - Lagnir fyrir regn- vatn og skólp að- skildar og vatnspípur frá 1925 aflagðar Morgunblaðið/sisi Vesturbærinn Vinnuvélar á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstígs. Til vinstri er Bræðraborgarstígur 1, þar sem mannskæður eldsvoði varð í fyrra. Framkvæmdastjórn Sósíalista- flokksins hefur farið þess á leit við útvarpsráð og yfirstjórn Ríkisút- varpsins að flokkurinn fái úthlut- aðan auglýsingatíma hjá miðlum fyrirtækisins eins og meðaltal þess sem flokkarnir á Alþingi kaupa, í það minnsta eins og sá flokkur sem auglýsir minnst kaupir af Ríkisút- varpinu. Þetta kemur fram í bréfi sem flokkurinn hefur sent útvarpsstjóra og útvarpsráði, með afriti til fjöl- miðla. Benda sósíalistar á að flokk- arnir á þingi hafi ákveðið að „styrkja sjálfa sig fjárhagslega með því að færa á kjörtímabilinu 2.848 milljónir króna úr ríkissjóði í eigin sjóði, þar með talda kosningasjóði sína.“ Telur flokkurinn að þessi ákvörð- un skaði lýðræðið þar sem hætta sé á að erindi nýrra grasrótarfram- boða almennings muni drukkna í auglýsingum þeirra flokka sem hafa skammtað sér þessa styrki. Styrkirnir séu því í raun ekki til að örva lýðræðið heldur til að verja völd og stöðu þeirra flokka sem fyr- ir eru. Vilja fá úthlutað auglýsingatíma í RÚV Vinna við nýja skrifstofubyggingu Alþingis gengur ágætlega þótt hægt hafi á verkinu yfir sumarleyfistím- ann. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu þingsins. Flatarmál aðal- byggingarinnar verður 5.073 m² að viðbættum 1.307 m² bílakjallara. Í fréttinni kemur fram að kórón- uveirufaraldurinn haft áhrif á verkið eins og annað í samfélaginu. Efnis- verð hefur hækkað og biðtími lengst, þar sem skortur er á hrávöru í heim- inum. Einnig eru tafir í flutninga- kerfum heimsins af völdum farald- ursins. Kostnaðaráætlun þessa verkhluta hljóðaði upphaflega 3.340 milljónir króna. Búið er að steypa gólfplötu 1. hæð- ar, um 60% af veggjum 1. hæðar og undirsláttur hafinn á gólfplötu 2. hæðar. Sem stendur er verkið um það bil tveimur mánuðum á eftir áætlun, m.a. vegna flækjustigs við uppsteypu 1. hæðar en þar er mikil sjónsteypa og háir veggir, segir í fréttinni. Aðalverktakinn, ÞG verk- takar, gerir þó ráð fyrir að seinkunin verði unnin upp á næstu mánuðum og því eiga verklok að haldast óbreytt, þ.e. í apríl 2023. Að jafnaði eru á milli 30 og 40 starfsmenn á verkstað; staðarstjóri, tæknimenn, smiðir og verkamenn frá aðalverktaka og píparar, raf- virkjar og aðrir undirverktakar sem vinna að verkþáttum á verkstað eftir þörfum. Vinnsla steinklæðningar er í fullum gangi hjá Steinsmiðju SSJ í Hafnarfirði og steinsmiðju S. Helga- sonar í Kópavogi. Vegna framkvæmdanna hefur Tjarnargötu milli Vonarstrætis og Kirkjustrætis verið lokað fyrir bíla- umferð en reiknað er með að hún verði opnuð aftur í byrjun ágúst 2022. sisi@mbl.is Ljósmynd/Alþingi Alþingisreitur Búið er að steypa gólfplötu 1. hæðar nýju byggingarinnar og byrjað að steypa veggi. Oddfellow-húsið og ráðhúsið í bakgrunni. Faraldurinn hefur haft áhrif á verkið - Unnið er við nýbyggingu Alþingis Blautfóður. Fullt af blautfóðri. Fyrir hunda og ketti. Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.