Morgunblaðið - 12.08.2021, Qupperneq 30
30 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
EPLAEDIK HEFUR ALDREI
SMAKKAST BETUR!
NÝTT
Útsölustaðir: Apótek, heilsubúðir, heilsuhillur stórmarkaðanna og Heimkaup.is
Aðeins ein
Tafla á dag
1000mg í töflu
ásamt túnfífli,
ætilþistli og króm
LJÚFfENGT EPLABRAGÐ
100% hrein og náttúruleg
vara unnin úr eplum
Sykurlaust
án gelatíns og allra gervi
litar- og bragðefna
BAKSVIÐ
Baldur S. Blöndal
baldurb@mbl.is
Læknirinn Hákon Hákonarson
stofnaði rannsóknarstofuna Arctic
Therapeutics á Akureyri árið 2017.
Hann vonast nú til þess að geta opn-
að fjölþættar skimunarstöðvar hér á
landi með sams konar mótefnavaka-
prófum og heimsbyggðin hefur
kynnst í kórónuveirufaraldrinum á
næsta ári ásamt því að bjóða upp á
„sniðlækningar“ á sama stað.
Félagið er í eigu Hákonar auk
þriggja annarra en Hákon er stofn-
andi félagsins og aðaleigandi. Hann
ræður, auk lögfræðingsins Davids
Hymans Moskowitz og viðskiptajöf-
ursins Philips Harpers, yfir 90%
eignarhlut í félaginu.
Nýlega hóf fyrirtækið að fjárfesta
í LumiraDx-vélum sem eru fjölnota
tæki sem lesa úr mótefna- og mót-
efnavakaprófum. Í augnablikinu eru
tækin einungis notuð til þess að
framkvæma Covid-hraðpróf en fé-
lagið stofnaði Covidtest.is í því skyni
að bjóða upp á slíka skimun. Sá
rekstur hefur gengið vel að sögn
Hákonar og hafa tæplega 10.000
próf verið framkvæmd á starfs-
stöðvum á Akureyri og Klepps-
mýrarvegi.
Covid-hraðpróf
bara fyrsta skref
Arctic Therapeutics á allar vél-
arnar en Hákon segir kórónuveiru-
próf einungis fyrsta skrefið. „Við
fórum í þessa fjárfestingu vegna
þess að hægt er að nota tækin áfram
í önnur hraðpróf sem falla undir
hugtakið sniðlækningar (e. precision
medicine). Ég byrjaði fyrst að nota
þessa tækni hér á spítalanum í
Pennsylvaníu og sá hve nákvæm og
hraðvirk þessi tæki eru.“
Hákon sér framtíð læknisfræðinn-
ar í tækjum sem þessum. „Lumira
er núna að þróa 25 mismunandi
hraðpróf sem við munum bjóða upp
á í framhaldi af Covid. Þau munu
geta greint marga efnaskiptasjúk-
dóma og sjaldgæfa sjúkdóma. Einn-
ig hjarta- og æðasjúkdóma, sjálfs-
ofnæmissjúkdóma, öndunarfæra-
sjúkdóma, sýkingar og fleira. Í dag
er til dæmis hægt að framkvæma
mælingar á Covid-veirunni og á
mörgum öðrum veirum með sama
prófinu, en tæknin er ennþá í fullri
þróun.“
Tækin virka eins og blóðsykurs-
mælar þannig að sjúklingurinn læt-
ur lífssýni úr sér, hvort sem það er
blóðdropi, munnvatn, strok eða ann-
að, á spjald sem síðan er rennt inn í
vélina sem greinir sýnið og leitar að
samsvörun við þann sjúkdóm sem er
verið að rannsaka hverju sinni.
Greiningin tekur, eins og Covid-
hraðprófin, vel innan við hálftíma og
stundum bara örfáar mínútur.
„Við hugsum þetta þannig að sett-
ar verði upp forvarnaheilsumið-
stöðvar í framtíðinni og prófin verða
það hagstæð að fólk hefur alveg efni
á að greiða fyrir þau sem hluta af
heilsumati. Niðurstöðurnar leyfa
okkur síðan að para lyf eða aðra
meðferð við þá sjúkdóma sem við
greinum og búa til ný lyf fyrir þá
sjúkdóma og einkenni sem ekki eru
til með mikilli nákvæmni (e. pre-
cision medicine). Sem sagt skimun
og meðferð á sama vettvangi.“
Hákon vonast til þess að setja upp
stöðvarnar strax á næsta ári. „Það
er allavega markmiðið að gera þetta
á næsta ári. Það þarf auðvitað fag-
gildingu og sannreyna þarf notagildi
prófanna fyrir þá sjúkdóma sem við
prófum fyrir. Við erum að vinna í því
núna og hefjum starfsemi um leið og
þetta er tilbúið. Við erum þegar
komin með starfsfólk í höfuðstöðv-
um okkar fyrir norðan sem eru að
vinna áfram í þessu verkefni.“
Munu framkvæma hrað-
próf á yfir 25 sjúkdómum
Greining Hákon Hákonarson er barnalæknir og sérfræðingur í lungna- og genarannsóknum við háskólasjúkrahúsið
í Fíladelfíu í Bandaríkjunum auk þess að vera forstöðumaður erfðarannsóknamiðstöðvar spítalans.
- Íslenskur læknir segir hraðprófin bjóða upp á nýja kosti í heilbrigðisþjónustu
12. ágúst 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.43
Sterlingspund 175.21
Kanadadalur 100.59
Dönsk króna 19.927
Norsk króna 14.151
Sænsk króna 14.508
Svissn. franki 137.07
Japanskt jen 1.1447
SDR 179.49
Evra 148.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.1523
« Brynja Bald-
ursdóttir hefur
tekið við starfi for-
stjóra Greiðslu-
miðlunar Íslands
(GMÍ). Sigurður
Arnar Jónsson
hefur samhliða
þessum breyt-
ingum látið af
störfum sem for-
stjóri félagsins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Þar segir einnig að GMÍ og dóttur-
félög, Motus og Greiðslumiðlun, séu
leiðandi á Íslandi á sviði kröfustjórn-
unar fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, lífeyr-
issjóði og opinbera aðila. Einnig segir í
tilkynningunni að þjónusta samstæð-
unnar felist m.a. í greiðslulausnum,
innheimtu, kröfukaupum og lánaum-
sýslu.
Greiðslumiðlun á og rekur meðal
annars Pei-greiðslulausnina sem um
2.000 fyrirtæki nýta sér sem greiðslu-
lausn við sölu á vörum og þjónustu til
einstaklinga.
Motus hefur samkvæmt tilkynning-
unni um árabil verið í fararbroddi á
sviði kröfustjórnunar og innheimtu en
með tilkomu Greiðslumiðlunar hefur
lausnamengi GMÍ breikkað mjög.
Brynja gegndi stöðu framkvæmda-
stjóra Creditinfo Lánstrausts sl. sex
ár, þar af sem svæðisstjóri yfir Íslandi
og Eystrasaltslöndunum síðustu fjögur
ár. Hún situr í stjórn Viðskiptaráðs,
Fossa markaða og Véla og verkfæra.
Brynja tekur við
Greiðslumiðlun Íslands
Skipti Brynja
Baldursdóttir.
STUTT
Olíufélagið Skeljungur hf. hagnaðist
um 292 milljónir króna á öðrum
fjórðungi þessa árs. Á sama tíma í
fyrra hagnaðist fyrirtækið um 114
milljónir króna og er vöxturinn milli
ára því 156%.
Eignir Skeljungs nema nú rúmum
28 milljörðum króna og hafa vaxið
um rúm 10% frá áramótum þegar
þær voru 25,5 milljarðar króna.
Eigið fé skeljungs er rúmir 9,9
milljarðar króna og stendur nánast í
stað milli ára.
Eiginfjárhlutfall félagsins er
35,2% en var 38,9% árið 2020.
Umskipti í rekstri
Í árshlutareikningnum er farið
yfir áhrif veirufaraldursins á rekst-
urinn og þar segir að hann hafi haft
talsverð áhrif, einkum á Íslandi í
byrjun ársins þar sem eftirspurn
hafi dregist verulega saman frá
fyrra ári. Þeim samdrætti hafi verið
mætt að einhverju leyti með hag-
ræðingu í rekstri.
Einnig segir að á síðari hluta árs-
helmingsins hafi átt sér stað um-
skipti í rekstri á Íslandi með fjölgun
ferðamanna ofl. Ennfremur segir að
áhrif Covid-19 séu óviss þegar horft
sé til næstu mánaða með hliðsjón af
mögulegum ferða- og samkomu-
takmörkunum. Það sé hins vegar
mat stjórnar og stjórnenda fyrir-
tækisins að samstæðan sé vel í stakk
búin til þess að takast á við mögu-
legar aðstæður sem tengjast Co-
vid-19, hvort sem litið er til högunar
á þjónustu við viðskiptavini, fjár-
hags- eða lausafjárstöðu, eins og það
er orðað í árshlutareikningnum.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Rekstur Tekjur Skeljungs voru
rúmir 12 milljarðar á tímabilinu.
Skeljungur hagn-
ast um 292 mkr.
- Eignir aukast
um 10% frá
áramótum