Morgunblaðið - 12.08.2021, Síða 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
Gæðagleraugu fyrir krakka
á góðu verði!
Úrval af umgjörðum frá Rock Star, Titanflex Kids og Nike.
Kíktu við í næstu verslun Eyesland eða kláraðu kaupin í
vefverslun eyesland.is.
Eyesland Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð sími 510 0110 www.eyesland.is
Á undangengnum árum hafa
orðið mikla breytingar í fjarskipta-
málum Íslendinga. Tækninni hef-
ur fleygt fram og sífellt fleiri þætt-
ir mannlífsins eru nú háðir net- og
símatengingum.
Eftir að ákveðið var fyrir all-
mörgum árum að selja Símann frá
íslenska ríkinu með manni og mús,
ef svo má að orði komast, hefur
samkeppnisstaða landsbyggð-
arinnar versnað gagnvart þéttbýl-
inu. Þar sem ríkið á enga innviði
lengur í fjarskiptaþjónustu ræðst hún af hagn-
aðarvon einkafyrirtækja sem líkt og flest slík nú
til dags eru rekin með hámarksarðsemi að leið-
arljósi. Þannig má segja að krafan um sífellt
hraðari nettengingar vegna aukinnar tölvu-
tækni hafi skilið dreifbýlið eftir í rykmekki þar
sem lítil hagnaðarvon einkafyrirtækjanna hefur
orðið til þess að lítið er gert þar. Því var ís-
lenska ríkið tilneytt að leggja fram mikla fjár-
muni í uppfærslu fjarskipta á landsbyggðinni,
s.s. í farsímakerfi og ljósleiðarakerfi. Þrátt fyrir
það hafa bæði sveitarfélög og íbúar dreifbýlis
þurft að greiða stórar fjárhæðir líka til að fá
ljósleiðaratengingu inn á sín heimili og fyrir-
tæki.
Þessu hafa fylgt talsverðir vaxtarverkir. Til
að mynda má nefna að mjög víða er lítið eða
ekkert farsímasamband, hvort tveggja er varð-
ar talsamband eða netsamband. Það er ekki
einu sinni svo gott að samband sé öruggt á þjóð-
vegi 1, hvað þá á öðrum vegum eða heima á
sveitabæjum um allt land. Þá hefur komið í ljós
að þegar rafmagn fer af í vondum vetrarveðrum
er ekki tryggt að þessi símakerfi hafi varaafl
nema skamma stund. Þannig hafa komið upp
varasamar aðstæður í slæmum veðrum að vetri
þegar rafmagn fer af stórum landsvæðum. Á
sama tíma hættir heimasíminn að virka, en
mjög víða er búið að slökkva á
gamla koparvírnum fyrir heima-
síma sem ekki þurftu sértengingu
við rafmagn heimila til að virka.
Þegar rafmagnsleysi hefur svo
dregist á langinn dettur farsíma-
samband einnig út, ef það var fyrir
hendi áður. Þá hefur skapast
hættulegt ástand þar sem fólk
hvorki kemst í burtu né getur haft
samband við umheiminn ef bráð
veikindi eða slys ber að höndum.
Þörf er á átaki í uppbyggingu
farsímakerfisins á Íslandi. Sjá þarf til þess að
fyrirtæki í farsímaþjónustu fari saman í þá veg-
ferð og að samkeppnisyfirvöld verði sett á hlið-
arlínuna í því máli þar sem sjónarmið um sam-
keppni í slíkri uppbyggingu eiga ekki við. Þá
þurfa ríki og sveitarfélög að koma að og hafa
skoðun á því hvernig kerfið verður uppbyggt
því þar liggur ábyrgðin á heilsu og velferð
landsmanna. Tilkoma farsímakerfis með al-
mennilegri útbreiðslu án „dauðra“ punkta á
krítískum stöðum er mál sem snýst um heilsu
og velferð íbúa þessa lands og sívaxandi fjölda
þeirra sem það heimsækja.
Sækjum fram og gerum betur fyrir Ísland
allt.
Fjarskipti og öryggi
landsmanna
Eftir Högna Elfar Gylfason
» Þá hefur skapast hættulegt
ástand þar sem fólk hvorki
kemst í burtu né getur haft
samband við umheiminn ef
bráð veikindi eða slys ber að
höndum.
Högni Elfar Gylfason
Höfundur skipar 5. sæti á lista Miðflokksins
í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi
alþingiskosningar.
bjorkoghogni@gmail.com
Við erum öll að fóta okkur í nýjum raun-
veruleika heimsfaraldurs sem hefur leikið
okkur grátt. Það þarf að huga að mörgu og
ríki og sveitarfélög þurfa að bregðast hratt við
gagnvart starfsfólki sínu sem staðið hefur í
eldlínunni, þar hefur ríkið staðið sig betur en
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Það eru
margar starfsstéttir sem hafa verið undir
miklu álagi síðan Covid-heimsfaraldurinn
skaut upp kollinum. Margt af því fólki sem
vinnur á vegum sveitarfélaga hefur lagt á sig
meiri vinnu en áður en heimsfaraldurinn skall
á, fólk sem ekki hefur fengið neinar sérstakar
álagsgreiðslur fyrir sín störf, þar geta sveit-
arfélög gert miklu betur. Nú þegar hefur t.d.
borist erindi um álagsgreiðslur til sjúkraflutn-
ingafólks SHS til Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins þeirri beiðni var vísað til heilbrigð-
isráðuneytis.
Álagsgreiðslur
Tekjur Reykjavíkurborgar drógust ekki
saman vegna Covid árið 2020, ólíkt öðrum
sveitarfélögum sem misstu stóran hluta af sín-
um tekjustofni. Því hefur Reykjavíkurborg
tækifæri til þess að gera betur fyrir það
starfsfólk sem hefur unnið undir miklu álagi
síðan að heimsfaraldurinn braust út. Þetta
getum við gert án þess að skerða grunnþjón-
ustu einfaldlega með því að falla frá verk-
efnum sem eru fyrirhuguð og flokkast ekki
undir grunnþjónustu. Líkt og endurgerð á
Grófarhúsinu, sú endurgerð á að kosta 4,5
milljarða og á að lífga upp á hús sem er í full-
komnu lagi. Einnig væri hægt að auka veru-
lega einskiptistekjur sem hafa verið að drag-
ast saman með því að auka framboð lóða.
Þannig væri auðveldlega hægt að afla meiri
tekna fyrir borgina og láta hluta þeirra fara í
álagsgreiðslur. Ríkið varði milljarði í álags-
greiðslur til heilbrigðisstarfsfólks árið 2020,
þetta hafa sveitarfélög ekki leikið eftir fyrir
sitt fólk sem hefur verið undir miklu álagi.
Reykjavíkurborg getur auðveldlega tekið af
skarið og greint það hvaða starfsstéttir hafa
verið undir meira álagi eftir að heimsfarald-
urinn skall á og greitt þeim sem verið hafa
undir miklu álagi sérstaka álagsgreiðslu.
Áframhaldandi heimsfaraldur
Við vitum ekki mikið um framhaldið annan
en að á heimsfaraldrinum verður framhald og
því er viðbúið að ákveðnar starfsstéttir munu
áfram búa við aukið álag. Fjárfestum í fólkinu
okkar, þeim sem hafa lagt mikið á sig til þess
að líf okkar allra raskist sem minnst, þeim
sem hafa unnið undir miklu álagi í yfir eitt og
hálft ár og munu því miður verða að vinna
undir miklu álagi enn þá.
Undir álagi
Eftir Valgerði Sigurðardóttur
og Þorvald Tolla Ásgeirsson
»Margt af því fólki sem vinn-
ur á vegum sveitarfélaga
hefur lagt á sig meiri vinnu en
áður en heimsfaraldurinn skall
á, fólk sem ekki hefur fengið
neinar sérstakar álagsgreiðslur
fyrir sín störf, þar geta sveit-
arfélög gert miklu betur.
Valgerður
Sigurðardóttir
Höfundar eru borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og
formaður félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi.
Þorvaldur Tolli
Ásgeirsson