Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 38

Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Opin og frjáls um- ræða um málefni út- lendinga á Íslandi verður að eiga sér stað í samfélaginu. Fólk verður að geta tjáð sig án þess að óttast að yfir það komi ómálefnaleg gagnrýni og persónu- legar árásir. Þennan málaflokk þarf að ræða, við þurfum sem þjóð að ákveða hvaða stefnu við ætlum okkur að taka. Stefnu verður að marka sem er byggð á þeirri erfiðu reynslu sem grannþjóðir okkar hafa haft á undanförnum árum og áratugum. Fyrirkomulagið sem við búum við í dag er óskilvirkt og það skortir upplýsingagjöf. Við þurfum að byggja upp kerfi sem tekur vel á móti þeim sem vilja koma hingað til að aðlagast samfélaginu og leggja sitt af mörkum til að gera þjóðfélagið betra. Styðja þarf við fólk sem vill búa hér og starfa og fólk sem sannanlega er að flýja of- sóknir og er í hættu í heimalandi sínu. Við þurfum að finna leið í sameiningu en ekki að rífa niður hvert annað og þær stofnanir sem eru að vinna að þessum málaflokki með hagsmuni þjóðarinnar að leið- arljósi. Efla þarf Útlendingastofn- un og stytta biðtíma umsókna, en það er gert með því að forgangs- raða þeim miklu fjármunum sem nú þegar fara í málaflokkinn, ásamt því að efla þarf löggæslu og landamæravörslu. Við Íslendingar búum við þann veruleika að hingað kemur fólk bæði í góðum tilgangi og slæmum. Ég hef í störfum mínum hjálpað mörgum konum og börnum sem hafa lent í klóm manna sem hingað hafa komið á fölskum forsendum. Þeir halda heilu fjölskyldunum í ótta með ofbeldi og yfirgangi. Margar þessara kvenna hafa ekki fjárhagslega burði til að standa í málaferlum við slíka menn. Vegna þessa festast þær oft á tíðum í ofbeldis- samböndum. Fjöldi þessara tilvika hefur komið mér á óvart og hvernig til þessara sambanda er stofnað. Ég hef einnig aðstoðað fólk við að eignast hér varanlegan samastað, sem hefur þurft á vernd að halda, og einnig fólk sem hefur komið hingað til að vinna og sjá sér og sínum farborða. Stuðningur við fólk í heimalandi sínu er einnig leið sem vert er að skoða betur. Til þess að geta aðstoðað þá sem þess þurfa þá þarf að skerpa á reglum og upplýsingagjöf til að koma í veg fyrir að hingað komi inn hópar sem ekki þurfa aðstoð frá okkur. Leggja þarf áherslu á að aðstoða konur og börn sem eru á flótta. Í dag hallar verulega á konur þegar kemur að innflytj- endum á Íslandi. Það þarf því að styðja við konur og börn sem hing- að koma. Við verðum að marka okkur stefnu sem er byggð á heildarhags- munum samfélagsins þar sem allir þegnar þess fá að blómstra. Það gerum við með því að forgangsraða þeim fjármunum sem í málaflokk- inn fara, styrkja grunnstoðirnar og nýta þá fjármuni á sem bestan og skynsamlegastan hátt, enda er það skylda hvers ríkis að hámarka nýt- ingu fjármuna skattgreiðenda í þágu þegna sinna. Eftir Vilborgu Þór- önnu Bergmann Kristjánsdóttur Vilborg Þóranna Berg- mann Kristjánsdóttir » Opin og frjáls um- ræða um málefni út- lendinga á Íslandi verð- ur að eiga sér stað í samfélaginu. Höfundur er lögfræðingur og sáttamiðlari og skipar 1. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir komandi alþingis- kosningar. vilborg@logvest.is Hvers vegna má ekki ræða málefni út- lendinga á Íslandi? Hið pólitíska lands- lag breytist ört. Nýir flokkar koma og fara í hverjum kosningum og fylgi rótgrónari fram- boða sveiflast í takt við tíðarandann. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur einn flokka haldið stöðu sinni sem lang- stærsta stjórnmála- hreyfing landsins og mælist iðulega um tvö- falt stærri en sá næsti. Aðrir eru ekki svipur hjá sjón. Hæst ber hnignun Samfylking- arinnar, sem eitt sinn var breiðfylk- ing krata og hófsamra jafnaðar- manna og naut um 30% fylgis á árum áður. Flokkurinn hefur nú endurskil- greint sig sem popúl- íska öfgavinstrihreyf- ingu og má gott heita ef fylgi hennar hangir í kringum 10%, þriðjung þess sem áður var. Stefnumálin eru enda fábrotin og hverfast fyrst og fremst um hærri skatta, meiri rík- isafskipti og það sem hæst ber á samfélags- miðlum hverju sinni. Í orði eða á borði? Það má með sanni segja að hinn hófsami krati sé týndur í stjórn- málaumhverfi nútímans. Þótt ein- hverjir leiti í VG hefur flokkurinn sögulega ekki höfðað sérstaklega til þess hóps. Lítið rennur til Sósíal- istaflokks fyrrverandi auðkýfingsins Gunnars Smára Egilssonar, sem kennir sig nú við gjaldþrota hug- myndafræði einræðisherra í löndum á borð við Kúbu og Venesúela. Þeir sem hallast til vinstri, en þó ekki um of, virðast því helst eiga skjól í fangi Viðreisnar. Í orði er Viðreisn miðju-hægriflokkur, en hefur á borði teygt sig til vinstri. Sést það best í Reykjavík, þar sem flokkurinn stökk á fyrsta tækifæri til að styrkja vinstrimeirihlutann sem hefur stefnt borginni í veru- legar fjárhagskröggur síðustu ár. Flokksfólki líður best í umræðum um aðild að Evrópusambandinu og álíka dægurmál, en fátt er um svör þegar kemur að raunverulegum stefnumálum. Skýrar línur Í haust verður kosið um stöðug- leika og skynsamleg skref út úr kór- ónukreppunni. Það er til mikils að vinna að forðast hreinan vinstri- meirihluta, líkt og réð ríkjum eftir efnahagshrunið 2008 með tilheyr- andi afleiðingum. Fátt liggur fyrir um áætlun Viðreisnar að loknum kosningum, en formaðurinn hefur ekki útilokað þátttöku í vinstristjórn fjölda flokka. Það er til mikils að vinna fyrir Viðreisn að skýra línurnar. Að svara því hvort hann verði trúr uppruna sínum og vilji stöðugleikastjórn frá miðju, eða kjósi fjölmennan vinstri- bræðing. Af sögunni má ætla að hið síðarnefnda verði fyrsti kostur ef kallið kemur. Komi ekki fram áætl- anir um annað mega kjósendur reikna með að atkvæði til flokksins sé ekkert annað en atkvæði með við- reisn vinstrimanna. Eftir Berglindi Ósk Guðmundsdóttur » Í haust verður kosið um stöðugleika og skynsamleg skref út úr kórónukreppunni. Það er til mikils að vinna að forðast hreinan vinstri- meirihluta, líkt og réð ríkjum eftir efnahags- hrunið 2008 með tilheyr- andi afleiðingum.Berglind Ósk Guðmundsdóttir Viðreisn vinstrimanna Höfundur er þingframbjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Ég kom til Íslands fyrir 20 árum eða fyrst árið 2000. Síðan hefur margt breyst í lífi inn- flytjenda. Margir hafa flutt hingað til landsins frá árinu 2000. Margir fluttu hingað vegna vinnu, aðrir vegna fjöl- skyldusameiningar og sumir vegna annarra ástæðna. Má þar nefna flóttafólk víða að úr heiminum. Samkvæmt gögnum Hagstofu Ís- lands fluttu hingað rúmlega 51 þús- und erlendir ríkisborgar umfram brottflutta. Á sama tíma fluttu rúm- lega 11 þúsund íslenskir ríkisborg- arar frá landinu. Í dag eru um 67 þúsund af mannfjöldanum á Íslandi fæddir erlendis, þar af um 50 þús- und fæddir innan Evrópu. Reikna má með að stór hluti er- lendra ríkisborgara hafi flutt til Ís- lands á þeim tíma sem ég hef búið á Íslandi. Á þessu tímabili hef ég stofnað mitt heimili og alið upp dæt- ur mínar. Af þessum fjölda innflytj- enda og nýrra Íslendingar eru nú í ár, m.v. tölu Hagstofu Íslands, rúm- lega 46 þúsund starfandi og 33% þeirra eru af erlendum uppruna og starfa á höfuðborgarsvæðinu. Þar af eru um 45% konur og 55% karlar. Þetta er því stór hópur sem skilar miklum tekjum í ríkissjóð Íslands. Þessi þjóðfélagshópur er verðmæt auðlind. Þetta eru nýir Íslendingar. Án þessara innflytjenda, nýju Ís- lendinga, hefði íslenska ríkið, sveit- arfélög og aðrir opinberir aðilar ekki getað sinnt skyldu sinni og gætt vel að sínu fólki í grunnþjónustu. Flestir nýir Íslendingar byrja að vinna strax á fyrsta degi eða mjög fljótlega eftir að flutt hefur ver- ið til landsins. Fyrsta kynslóð innflytjenda hefur í raun ekki þurft að nota grunnþjónustu sem samfélagið og ríkið hefur annars þurft að byggja upp, t.a.m. skólastofnanir. Lang- flestir byrja strax að afla ríki og sveitar- félögum tekna í formi skatta og gjalda. Það að ala upp einstakling frá fæðingu, í gegnum grunnskóla, menntaskóla og fleira kostar sitt. Með tilkomu innflytjenda hefur samfélagið í þessu efni sparað gríð- arlega mikið fjármagn. Eina und- antekningin frá þessu varðar mál- efni flóttafólks sem eðli máls samkvæmt er kostnaðarsamt ferli. Engu að síðu hafa ríki og sveitar- félög fengið að njóta góðs af skatt- tekjum sem greiddar eru af nýjum Íslendingum. Einkageirinn hefur einnig getað nýtt starfskrafta nýrra Íslendingar til að stækka við sína þjónustu og náð að svara eftirspurn eftir henni. Lengi get ég talið upp framlag innflytjenda til samfélagsins í heild- inni. En ég verð að benda á að oftast vinnur þetta fólk erfiðustu verkin. Fjölmargir fá lægri laun en Íslend- ingar og vinna lengri vinnutíma. Oft- ast starfa nýir Íslendingar í vinnu sem er langt undir hæfileikum, menntunarstigi og getu þeirra. Það má með rökum segja að innflytj- endur þurfi að leggja meira á sig en aðrir borgar til að öðlast þau lífs- gæði sem flestum finnast sjálfsögð. Hægt að flokka innflytjendur sem viðkvæman hóp. Þessi hópur þarf umgjörð og af mun betri gæðum. Það þarft að styrkja hópinn í ýmsum samfélagsþáttum. Það þarft t.d. að styrkja menntun þeirra og börn þeirra. Það þarf að styrkja tungu- málastöðu þeirra, búa til aðstæður svo það séu raunverulega jöfn at- vinnutækifæri með því að viður- kenna reynslu, menntun og hæfni þeirra. Ríki og sveitarfélög þurfa að stíga dýpra inn og þróa skilvirka að- lögunarstefnu (e. Integration pol- icy). Sem borgandi launþegi, atvinnu- rekandi, sem innflytjandi og sem samfélag í heildinni þurfum við öll að spyrja sjálf okkur hvort það sé ekki kominn tími til að tala opinskátt um málefni innflytjenda og stöðu þeirra sem telja fleiri tugi þúsunda ein- staklinga. Er ekki kominn tími til að gera betur við þennan hóp sem við erum nú með hér í landinu, þá sem hér eiga heima, eru orðnir hluti af okkar samfélagi og skila miklu í þjóðar- búið? Að mínu mati hefur ekki verið nóg að gert fyrir þá sem teljast inn- flytjendur á Íslandi og öðlast hafa öll sín réttindi með lögmætum hætti og skilað sínu. Með því að standa við bakið á nýj- um Íslendingum erum við að stuðla að þátttöku þessa þjóðfélagshóps í samfélaginu. Með menningarlegum fjölbreytileika (e. cultural diversity), innihaldsríkari sátt, meiri skilningi innan samfélags okkar tryggjum við sjálfbærni samfélagsins (e. social sustainability) til lengri framtíðar. Samhliða erum við saman að styrkja og þróa Ísland, íslenska menningu og velferð. Sem réttlátt samfélag og sem samfélag sem vill stuðla að umburð- arlyndi eigum við öll að vinna að þessu málefni saman svo þessi hópur sitji ekki eftir og finni sig sem „ann- ar flokks“ á Íslandi. Kæru innflytjendur og nýir Ís- lendingar: velkomnir heim. Eftir Danith Chan »Með því að standa við bakið á nýjum Ís- lendingum erum við að stuðla að þátttöku þessa þjóðfélagshóps í sam- félaginu. Danith Chan Höfundur skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík suður fyrir komandi kosningar til Alþingis Íslendinga. Velkomin heim Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felli- gluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.