Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 44
44 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
✝
Steinunn Hlín
Guðbjartsdóttir
fæddist í Reykjavík
29. nóvember 1949.
Hún lést á heimili
sínu 1. ágúst 2021.
Foreldrar hennar
voru hjónin Elín
Ólafsdóttir, fædd
21.4. 1927 í Vest-
mannaeyjum, d. 23.5.
1990, og Guðbjartur
Guðmundsson, fædd-
ur 22.9. 1926 á Stokkseyri, d.
18.9. 2007.
Systkini Steinunnar eru
Linda, f. 6.6. 1947, Pétur, f.
22.11. 1957, og Jónína, f. 21.4.
1962.
Hinn 28.4. 1990 giftist Stein-
unn Erlendi Magnússyni, f. 16.9.
1948, foreldrar hans voru hjón-
in Unnur Erlendsdóttir frá Mó-
gilsá á Kjalarnesi, f. 28.11.
1922, d. 11.4. 2006, og Magnús
Kr. Finnbogason frá Neðri-
Presthúsum í Mýrdal, f. 29.7.
1925, d. 30.1. 2009.
Steinunn Hlín, f. 11.7. 2002, og
4) Laufey Stefánsdóttir, f. 22.6.
1972, maki Hilmar Finnur Bin-
der, f. 7.10. 1968, börnin þeirra
eru Stefán, f. 30.12. 1990, Dag-
ur, f. 18.1. 1999, Máni, f. 4.7.
2003, og fyrir átti Hilmar Eddu,
f. 30.8. 1985.
Steinunn ólst upp í Akur-
gerði í Reykjavík og gekk í
Réttarholtsskóla. Á sumrin
dvaldi hún hjá afa og ömmu í
Vestmannaeyjum og fór ung að
árum að vinna í fiski þar.
Steinunn vann skrifstofustörf
hjá G. Þorsteinssyni og Johnson
um árabil. Árið 1983 hóf hún
störf hjá Almennum trygg-
ingum sem síðar urðu Sjóvá-
Almennar tryggingar og þar
urðu starfsárin 34 eða þar til
hún greindist með þau veikindi
sem hún átti eftir að glíma við í
rúm fimm ár.
Steinunn og Erlendur bjuggu
lengst af í Fögrubrekku 44 í
Kópavogi.
Útför Steinunnar Hlínar fer
fram frá Vídalínskirkju í Garða-
bæ í dag, 12. ágúst 2021, klukk-
an 13.
Stytt slóð á streymi:
https://tinyurl.com/s5ftjxs8
Virkan hlekk má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Börn Stein-
unnar og Erlends
eru: 1) Unnur, f.
7.5. 1985, maki
Jón Ingi Þorvalds-
son, f. 25.7. 1984,
börnin þeirra eru
Birta Guðrún, f.
7.2. 2011, Hákon
Jaki, f. 18.11.
2013, og Hekla
Lind, f. 26.5. 2016.
2) Elín, f. 24.5.
1988, maki Kristmundur Davíð
Ólafsson, f. 8.9. 1984, börnin
þeirra eru Darri, f. 5.3. 2010,
Laufey, f. 20.7. 2013, og Sóley,
f. 2.3. 2021.
Fyrri maður Steinunnar var
Stefán Jónsson og börn þeirra
eru 3) Guðbjartur Stefánsson, f.
1.7. 1969, maki Anna Sigríður
Jónsdóttir, f. 24.12. 1970, börn-
in þeirra eru Arnar Ingi, f. 11.1.
1990, og dóttir hans er Fanney
Rán, f. 14.8. 2009, Elísa Sif, f.
28.12. 1992, sambýlismaður Jón
Baldvinsson, f. 30.5. 1995, og
Elsku mamma mín, hvað ég
sakna þín sárt. Þú varst ekki
bara mamma mín heldur líka
besta vinkona mín, sú sem ég
hringdi í oft á dag. Þér gat ég
sagt allt, við skildum hvor aðra
og einhvern veginn sagðir þú
alltaf það sem ég þurfti að
heyra. Eftir símtal við þig var
allt betra. Hvernig á ég að geta
vanist því að geta ekki hringt í
þig? Stundum finnst mér í ör-
skamma stund eins og ég geti
það, t.d. þegar Sóley gerir eitt-
hvað sætt þá gríp ég símann og
um daginn þegar hún fékk
fyrsta grautinn þá langaði mig
svo að geta sent þér myndband
af því. Hvað þú varst ánægð með
litlu Sóleyju okkar, hún fékk þig
alltaf til að brosa, fram á þinn
síðasta dag. Ég gleymi því aldrei
þegar þið pabbi komuð til okkar
daginn sem Sóley fæddist, þú
varst svo þakklát fyrir að fá að
upplifa þann dag. Ég gleymi
heldur aldrei svipnum á andlit-
inu þínu þegar þú heyrðir nafnið
hennar í skírninni. Þú varst svo
hrifin, blómastelpan sjálf. Þú
varst svo tengd náttúrunni, elsk-
aðir fuglana og blómin. Þú naust
þín best þegar þú varst í sveit-
inni ykkar pabba að dúllast við
blómin og fylgjast með fuglun-
um. Þú kunnir svo sannarlega að
lifa í núinu og þú kunnir svo vel
að meta lífið, alltaf jákvæð, alltaf
sátt. Það var alltaf svo fallegt í
kringum þig. Þú stjanaðir við
allt í umhverfi þínu og gerðir
líka svo fallegan og góðan mat,
en enginn matur er eins góður
og mömmumatur.
Hugarfar þitt í veikindunum
var einstakt, þú tókst á við þau
af þvílíku æðruleysi, horfðir allt-
af bara fram á veginn og hafðir
alltaf eitthvað til að hlakka til.
Þú varst þrátt fyrir allt, ávallt
þakklát, þakklát fyrir hvern dag
sem þér var gefinn. Það var
aðdáunarvert að fylgjast með
ykkur pabba í gegnum veikindi
þín, þið létuð ekkert stoppa ykk-
ur, fóruð í margar utanlands-
ferðir og veiðiferðir og hélduð
ykkar striki í að skapa góðar
minningar. Ég dáðist svo að þér
þegar við sóttum þig upp í
Langá þar sem þú varst að veiða
með pabba, til að skutla þér í
geislameðferð og svo vildirðu
fara beint aftur upp í á að veiða.
Ótrúleg. Hetjan okkar.
Þú barst veikindi þín ekki ut-
an á þér því varst alltaf svo fal-
leg og fín og skartaðir þínu fal-
lega hlýja brosi, sætasta konan á
svæðinu. Það er svo lýsandi fyrir
þitt hugarfar að þegar þú lást á
spítalanum, sárlasin í sumar, þá
varstu að skoða föt í símanum
þínum og sendir okkur að kaupa
fallegt sumardress og nýjan
varalit.
Ó, hvað ég óskaði þess heitt
að þú myndir hressast, fara í
fínu fötin þín, setja á þig varalit-
inn og saman myndum við fá
okkur eitthvað gott að borða og
þú myndir njóta þín, njóta þess
að borða góðan mat.
En stundirnar urðu ekki
fleiri.
Nú ertu komin í sumarlandið,
umvafin fallegum blómum og
sætum litlum fuglum.
Við sitjum eftir með sorg og
söknuð í hjörtum okkar og reyn-
um að læra á lífið án þín. Ég veit
þú verður samt áfram með okk-
ur, í hjörtum okkar og fylgist
með okkur. Við munum ylja okk-
ur við allar góðu minningarnar
og passa að krakkarnir gleymi
aldrei góðu ömmu sinni sem
elskaði þau svo heitt. Þú kenndir
okkur svo margt.
Takk fyrir allt elsku mamma.
Þín
Elín.
Elsku hjartans mamma mín.
Að sitja hér og skrifa minning-
arorð er svo óraunverulegt eins
og síðustu dagar hafa verið. Mér
líður eins og ég eigi eftir að
vakna upp úr þessum slæma
draumi.
Þú varst miklu meira en
mamma mín, þú varst líka besta
vinkona mín. Það leið aldrei sá
dagur sem byrjaði ekki á að
heyra í þér, og svo töluðum við
saman oft á dag um allt mögu-
legt. Við mæðgur vorum líka
duglegar að hittast yfir kaffi-
bolla eða fá okkur góðan hádeg-
ismat og spjalla saman um lífið
og tilveruna.
Þegar ég lít til baka þá voru
allar stundir með þér gæða-
stundir. Þú kunnir svo að njóta
lífsins. Þínar bestu stundir voru
upp í bústað með pabba en þar
gastu hlustað á fuglana og hugað
að fallegu blómunum þínum sem
þú unnir svo mikið. Þegar við
komum til ykkar upp í bústað
labbaðir þú með okkur um lóðina
og sýndir okkur fallegu blómin
þín og sagðir okkur hvað þau
hétu. Svo eldaðir þú dýrindismat
eða bakaðir pönnukökur með
kaffinu og við áttum svo dýr-
mætar stundir saman sem aldrei
munu gleymast. Við munum
passa blómin þín, elsku mamma.
Allt sem þú gerðir var svo
vandað. Ég gleymi aldrei góðu
tilfinningunni þegar við Elín
systir komum úr baði og þú
signdir okkur, klæddir okkur í
hrein náttföt og við lögðumst
upp í brakandi hreint rúm.
Helgarnar sem við vöknuðum
við ömmu Ellu kökulykt þar sem
þú varst búin að baka um morg-
uninn og allan góða matinn sem
þú hefur eldað fyrir okkur frá
grunni af mikilli ástúð. Hvert
sem við fórum, tjaldútilegu,
gönguferðir eða á skíði upp í
Bláfjöll, varstu alltaf búin að út-
búa dýrindisnesti handa okkur.
Eftir að ég eignaðist börn hef
ég oft spáð í því hvernig þú fórst
að öllu sem þú gerðir með okk-
ur, þú í fullri vinnu, eldaðir allan
mat, saumaðir á okkur föt og
eyddir löngum sumarkvöldum
með pabba út í garði að sinna
garðverkunum og hélst heim-
ilinu alltaf tandurhreinu og áttir
alltaf tíma fyrir fólkið þitt.
Ömmuhlutverkið var þér svo
kært og barnabörnin elskuðu
ömmu sína svo mikið. Allar
gæðastundirnar ykkar verða
varðveittar í hjörtunum þeirra
og þau vita að þar er amma, í
hjartanu þeirra eins og þú sagð-
ir þeim.
Alls staðar sem þú varst
fannst fólki gott að vera. Þú
hafðir svo góða nærveru og þú
vildi öllum vel. Hvernig þú og
pabbi tókuð á veikindum þínum
er aðdáunarvert. Þú kvartaðir
aldrei og hélst áfram að lifa líf-
inu með pabba þér við hlið sem
studdi þig í gegnum veikindin af
mikilli ást og alúð. Þið sköpuðuð
margar dýrmætar minningar
bæði saman og með okkur börn-
unum ykkar og barnabörnum.
Þú ert stærsta fyrirmyndin í
lífi mínu og þú munt alltaf eiga
stóran stað í hjarta mínu. Það
hefði enginn getað sagt mér
hversu sárt yrði að missa þig. Þú
verður alltaf besta vinkona mín
og ég mun fara í gönguferðir og
spjalla við þig eins og þú sagðir
mér að gera. Þú ert í hjarta
mínu.
Guð geymi þig og allir engl-
arnir.
Þín dóttir,
Unnur.
Elsku mamma, það er erfitt
að setjast niður og skrifa þessi
orð, símhringing frá Unni um
miðja nótt um verslunarmanna-
helgi gat í raun bara þýtt eitt;
þú varst farin. Það var skrítið að
heyra þessi orð en einhvern veg-
inn þá var þetta viðbúið, elsku
mamma. Við Anna höfðum heim-
sótt þig nokkrum dögum áður og
það var ljóst að nokkuð var af
þér dregið.
Það eru ótal minningar sem
leita á hugann á þessum tíma,
þegar maður syrgir, en það sem
skín í gegnum þær allar er það
að þú varst einstaklega góð og
falleg persóna. Þú máttir ekkert
illt sjá eða aðra veika þá varstu
komin um leið að hjálpa og hlúa
að með kærleik og hlýjunni sem
umlék þig.
Elsku mamma, þú varst rík af
börnum, barnabörnum og barna-
barnabarni og einstaklega vel
gift Edda sem var þinn sálu-
félagi sl. 40 ár. Ég naut þess
innilega að ferðast með ykkur í
æsku og ég á margar góðar
minningar af veiðiferðum og öðr-
um ferðum sem kenndu mér að
virða náttúruna okkar og fræð-
ast um landið okkar. Einnig eru
minnisstæðar ferðir á Stokks-
eyri og til Vestmannaeyja þar
sem þú undir þér ávallt vel.
Á yngri árum okkar systk-
inanna þá kenndirðu okkur
margt sem við búum að alla ævi.
Eitt af því minnisstæða úr minni
æsku voru allir bökunartímanir
fyrir jól þar sem minnst 10-15
sortir voru bakaðar. Það var
aldrei bakað nema að ég fengi að
vera með. Það eru oft litlu hlut-
irnir í lífinu sem skipta máli þeg-
ar maður eldist og áfram kemur
maður þessum hefðum yfir á
næstu kynslóðir.
Skoðandi myndir af okkur
systkinum í gegnum öll þessi ár
sem við áttum með þér þá er eitt
sem skín alls staðar í gegn, en
það eru fallegu blómin sem þú
varst alltaf með í kringum þig.
Þú varst sannarlega náttúrunn-
ar kona af lífi og sál.
Ég hef hugsað mikið um síð-
ustu heimsókn okkar Önnu í
Steinunn Hlín
Guðbjartsdóttir
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HANNES PÉTURSSON,
prófessor í geðlækningum,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
miðvikudaginn 4. ágúst.
Hann verður jarðsunginn í Dómkirkjunni 16. ágúst
klukkan 15 og verður athöfninni streymt á www.sonik.is/hannes.
Færum starfsfólki Markar þakkir fyrir allan kærleikann
og einstaka umönnun.
Júlíana Sigurðardóttir
Sólveig Guðrún Hannesd. Jónas Páll Jónasson
Kristín Inga Hannesdóttir Hilmar Hauksson
Þórunn Hannesdóttir Jason Andrew Doyle
og barnabörn
Hjartkær móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, systir, amma og langamma,
INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 1b,
lést á líknardeild Landspítalans á
85 ára afmælisdegi sínum, 6. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni, hlekk á streymi má
nálgast á mbl.is/andlát á útfarardaginn.
Halldóra Viðarsdóttir Jóhann Úlfarsson
Kristín Inga Viðarsdóttir Timothy Hercules Spanos
Björn Leví Viðarsson
Einar Ingi Magnússon Sigrún Guðmundsdóttir
Sigrún Magnúsdóttir Jón Helgason
Ása Magnúsdóttir
Ragnhildur Magnúsdóttir
Guðmundur Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN J. GUÐLAUGSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold 29. júlí.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 17. ágúst klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir
viðstaddir útförina.
Kærar þakkir fær starfsfólk Ísafoldar fyrir hlýhug og góða
umönnun.
Inga Jóhannsdóttir Daði Bragason
Jóna G. Jóhannsdóttir Þorgils E. Ámundason
Guðmundur Jóhannsson Guðrún Á. Unnsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA STEINÞÓRSDÓTTIR
saumakona,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 6.
ágúst. Útför hennar fer fram frá
Grafarvogskirkju mánudaginn 16. ágúst klukkan 15. Sérstakar
þakkir færum við starfsfólki Eirar 3. hæð norður fyrir alúð og
góða umönnun.
Þór Ingi Árdal An Thi Hoang
Svandís Bára Karlsdóttir Einar Berg Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR,
Hagamel 50, Reykjavík,
lést 30. júlí.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 16. ágúst klukkan 15. Blóm afþökkuð en þeim sem
vilja minnast Katrínar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Helgi Magnússon Arna Borg Einarsdóttir
Sigurður Gylfi Magnússon Tinna Laufey Ásgeirsdóttir
Magnús Örn Helgason
Sunna María Helgadóttir
Arnar Þór Helgason
Pétur Bjarni Einarsson
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744