Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
Ert þú leiðtoginn sem við leitum að?
Menntunar- og hæfniskröfur:
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða tvo öfluga stjórnendur til að leiða nýjar einingar
innan embættisins. Leitað er að einstaklingum sem hafa framtíðarsýn, frumkvæði, metnað og kraft til að hrinda
verkefnum í framkvæmd og fylgja þeim eftir.
Nánari upplýsingar um störfin veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is)
í síma 511 1225.
• Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn, milli- og ársuppgjörum og kostnaðareftirliti
• Ábyrgð á gerð greininga, fjárhags- og rekstraráætlana ásamt upplýsingagjöf
til sýslumanns
• Stjórnun mannauðs og yfirsýn yfir verkefnastöðu teymis
• Gerð og þróun verkferla
• Stefnumótun verkþátta á sviði rekstrar og fjármála í samvinnu við sýslumann
• Samstarf við fagsvið og ytri aðila
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum
umsóknarfrests. Launakjör eru skv. gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu
embættisins.
• Háskólamenntun á sviði fjármála og reksturs sem nýtist í starfi
• Haldbær starfsreynsla af fagsviði fjármála
• Reynsla og þekking á áætlanagerð og uppgjörum
• Frábær greiningarhæfni, framsetning og miðlun fjárhagsupplýsinga
• Leiðtogahæfni, yfirsýn, árangursmiðað viðhorf
• Góð samskipta- og skipulagshæfni, frumkvæði
• Mjög gott vald á íslensku í mæltu og rituðu máli
Fjármálastjóri
Fjármálastjóri leiðir fjármál og rekstur embættisins og vinnur að umbótum í samstarfi við sýslumann og stjórnendur. Starf fjármálastjóra er
umfangsmikið og krefjandi en helstu verkefni eru fjárhagslegur rekstur, áætlanagerð, samningagerð, húsnæðismál, innkaup, og öryggismál.
Fjármálastjóri heyrir undir sýslumann og situr í framkvæmdastjórn embættisins.
Þjónustu- og þróunarstjóri
Þjónusta og þróun er ný eining innan embættisins. Undir eininguna heyra þjónustuver, almenn afgreiðsla og móttaka umsókna fyrir ökuskírteini
og vegabréf. Hlutverk þjónustu- og þróunarstjóra er að leiða þjónustu- og umbótastarf innan embættisins með það að markmiði að einfalda
verkferla og auðvelda aðgengi viðskiptavina að þjónustu og upplýsingum, m.a. með stafrænum lausnum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stjórnun mannauðs og ábyrgð á daglegri starfsemi einingarinnar
• Skipulag mönnunar og áætlanagerð út frá þjónustuþörf
• Þjálfun og miðlun þekkingar í þjónustuveri
• Þróun og innleiðing þjónustustefnu og markmiða
• Gæðastýring einingar og eftirfylgni með árangri
• Umbótavinna og samstarf við fagsvið vegna þjónustu við viðskiptavini
• Utanumhald um þróunarverkefni á vegum embættisins
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Stjórnunarreynsla er kostur
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi, s.s. reynsla af þjónustustýringu,
straumlínustjórnun og verkefnastjórnun
• Brennandi áhugi á stafrænum lausnum
• Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
• Geta til að byggja upp öfluga liðsheild og leiða umbótastarf
• Góð tölvufærni, skipulagshæfni og traust vinnubrögð
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í mæltu og rituðu máli
Sýslumenn fara með framkvæmdavald og stjórnsýslu ríkisins í héraði hvert í sínu umdæmi samkvæmt lögum nr. 50/2014. Hjá embætti Sýslumannsins á höfuðborgar-
svæðinu starfa um 100 manns og íbúar umdæmisins eru rúmlega 235.000. Nýr kafli er hafinn í sögu sýslumannsembætta sem rekja má til tækniframfara í samfélaginu
og eru embættin á fleygiferð í stafrænni vegferð og þróun þjónustu til viðskiptavina.
Þátttakandi í íslensku
atvinnulífi í 50 ár
hagvangur.is