Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 53

Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 53 1 1 4 4 2 2 5 5 3 3 6 6 7 7 A A B B C C D D E E F F G G H H I I J J K K Samgönguverkfræðingur Viltu taka þátt í mótun skipulags samgangna í borgar- og bæjarumhverfi? Hefurðu brennandi áhuga á hvernig fólk ferðast á milli staða á sjálfbæran hátt? Við leitum að liðsauka til að styrkja samgöngufaghópinn okkar á sviði mannvirkja og umhverfis. Við bjóðum upp á fjölbreytt störf sem m.a. felast í vinnu við umferðargreiningar, samgönguskipulag og þátttöku í þverfaglegri vinnu á sviði samgangna á skipulagsstigi, auk annarra samgönguverkefna eftir því sem menntun, bakgrunnur og áhugi gefur tilefni til. Menntunar- og hæfnikröfur: • Menntun á sviði samgönguverkfræði eða sambærileg. • Reynsla af umferðargreiningum eða samgöngumálum á skipulagsstigi er æskileg. • Góð hæfni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku. • Skipulagshæfileikar og frumkvæði í starfi. • Góð samskiptafærni, jákvætt viðhorf og árangursdrifni. • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudagsins 17. ágúst 2021. Frekari upplýsingar veita Ólöf Kristjánsdóttir fagstjóri samgangna, olof@mannvit.is eða í síma 842 3320 og Einar Ragnarsson sviðsstjóri mannvirkja og umhverfis, er@mannvit.is eða í síma 862 4199. Veituhönnuður Langar þig að taka þátt í að hanna og móta innviði veitna á Íslandi? Við leitum að öflugum byggingartæknifræðingi eða verkfræðingi til að bætast við fjölmennan og fjölbreyttan hóp á sviði samgangna og veitna. Verkefnin eru fjölbreytt og felast í hönnun fráveitna, vatnsveitna og hitaveitna bæði í þéttbýli og dreifbýli. Menntunar- og hæfnikröfur: • Háskólamenntun á sviði tæknifræði eða verkfræði. • Reynsla af hönnun veitna er kostur. • Reynsla af hönnun í Civil 3D er kostur. • Frumkvæði í starfi, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. • Góð samskiptafærni, jákvætt viðhorf og árangursdrifni. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudagsins 17. ágúst 2021. Frekari upplýsingar veita Brynjólfur Björnsson fagstjóri veitna, bb@mannvit.is eða í síma 899 4647 og Einar Ragnarsson sviðsstjóri mannvirkja og umhverfis, er@mannvit.is eða í síma 862 4199. Hönnuður vega, gatna og stíga Viltu taka þátt í hönnun samgöngumannvirkja í dreifbýli og þéttbýli? Við leitum að byggingartæknifræðingi eða verkfræðingi til að starfa með fjölmennum og fjölbreyttum hópi sérfræðinga á sviði samgangna og veitna. Verkefnin eru fjölbreytt og felast í hönnun vega, gatna og stíga, bæði í dreifbýli og þéttbýli, á forhönnunar og verkhönnunarstigi. Menntunar- og hæfnikröfur: • Menntun í byggingarverkfræði eða tæknifræði • Menntun með áherslu á samgöngur og/eða veitur er æskileg. • Reynsla í vega- og gatnahönnun er æskileg. • Þekking á almennum teikniforritum og þrívíddarhönnunarforritum (Autocad Civil 3D eða Microstation Inroads) er æskileg. • Skipulagshæfileikar og frumkvæði í starfi. • Góð samskiptafærni, jákvætt viðhorf og árangursdrifni. • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til og með þriðjudagsins 17. ágúst 2021. Frekari upplýsingar veita Ólöf Kristjánsdóttir fagstjóri samgangna, olof@mannvit.is eða í síma 842 3320 og Einar Ragnarsson sviðsstjóri mannvirkja og umhverfis, er@mannvit.is eða í síma 862 4199. Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2021. Nánari upplýsingar á www.mannvit.is/starfsumsokn Viltu vera hluti af sterkri liðsheild? Stuðlum að sjálfbæru samfélagi Mannvit veitir ráðgjöf og þjónustu á sviði verkfræði, tækni og nýsköpunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur verkfræðinga og tæknimenntaðs starfsfólks með fjölbreytta reynslu. Mannvit er metnaðarfullur og skemmtilegur vinnustaður þar sem starfsfólki líður vel og hefur tækifæri til að móta framtíðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.