Morgunblaðið - 12.08.2021, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021
hagvangur.is
Almenni lífeyrissjóðurinn óskar eftir að ráða ráðgjafa í lífeyris- og
lánamálum. Starfið felst meðal annars í þjónustu og samskiptum við
sjóðfélaga ásamt undirbúningi og vinnslu lánaumsókna. Hjá sjóðnum
starfar samheldinn hópur starfsmanna sem leggur metnað sinn í að vinna
vel fyrir sjóðfélaga og veita úrvalsþjónustu. Í boði er vinnustaður sem hlúir
að starfsfólki með góðri vinnuaðstöðu og áhugaverðum og fjölbreyttum
verkefnum.
Hæfniskröfur
• Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
• Frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku
• Reynsla af störfum á fjármálamarkaði kostur
Umsóknarfrestur er til 17. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veita Inga S. Arnardóttir – inga@hagvangur.is og Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is
Almenni lífeyrissjóðurinn er fullgildur
lífeyrissjóður og hefur starfsleyfi samkvæmt
lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og
starfsemi lífeyrissjóða.
Ráðgjafi
Héraðsdómur Reykjavíkur er stærsti dómstóll
landsins með aðsetur á Lækjartorgi. Þar
starfa nú um 50 manns, þar af eru 22 dómarar
og fjölbreyttur hópur annarra sérhæfðra
starfsmanna. Þau gildi sem dómstólinn starfar
eftir eru SJÁLFSTÆÐI – TRAUST – SKILVIRKNI
og GÆÐI. Við höfum metnað til að mæta
kröfum tímans um notkun rafrænna lausna til
að auka skilvirkni og bæta þjónustu og á sama
tíma tryggja réttláta og opinbera málsmeðferð.
Nánari upplýsingar um starfsemi dómstólsins
og stefnu dómstólasýslunnar má finna á
heimasíðu dómstólanna, www.domstolar.is.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um,
óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
!(#.5 35&4-/1.%5 *50 1& "$".1 +*1,'.)2
Umsóknir óskast fylltar út á
www.vinnvinn.is.
Héraðsdómur Reykjavíkur leitar að drífandi og metnaðarfullum skrifstofustjóra. Skrifstofustjóri
tekur þátt í að móta og framfylgja stefnu dómstólsins og annast daglegan rekstur hans í umboði og
samstarfi við dómstjóra.
Verkefni skrifstofustjóra eru afar fjölbreytt og krefjast þekkingar og skilnings á rekstri dómstóla, hæfni
í mannlegum samskiptum og mannauðsmálum og færni í rekstri og fjármálastjórn opinberra stofnana.
Við leitum að starfsmanni sem hefur brennandi áhuga á starfsemi dómstóla og þeim gildum sem
dómstólar starfa eftir og er reiðubúinn til að taka þátt í mótun verklags og vinnuumhverfis sem mætir
kröfum um skilvirkni og gæði sem tryggir sjálfstæði og trúverðugleika dómstólsins.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu dómstólsins.
• Stjórnun mannauðs og yfirsýn yfir verkefnastöðu, verkaskiptingu og vellíðan starfsmanna.
• Þátttaka í stefnumótun og ábyrgð á eftirfylgni við stefnu dómstólsins.
• Ábyrgð á gerð og þróun verkferla.
• Ábyrgð á gerð fjárhagsáætlana og fjárfestinga.
• Samskipti og samstarf við dómstólasýsluna, aðra dómstóla og stjórnvöld varðandi málefni
sem tengjast rekstri dómstólsins.
Hæfniskröfur:
• Meistarapróf í lögfræði.
• Reynsla og/eða menntun á sviði stjórnunar sem nýtist í opinberum rekstri.
• Leiðtogahæfni og færni í mannlegum samskiptum.
• Skilvirk vinnubrögð, yfirsýn og frumkvæði.
• Skilningur og færni í þróun og notkun rafrænna lausna.
• Færni í að tjá sig í töluðu og rituðu máli á íslensku, ensku og kostur er að umsækjandi
hafi einnig tök á einu Norðurlandamáli.
• Þekking á starfsemi og rekstri dómstóla er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst nk.
.-*/&, -3' *):+#,( 1:2: "('(+ !/:+,:6
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Jensína K.
!%'9:+*4&))0+ 8/3,*0,:$90,,90,,50*75
Skrifstofustjóri
Héraðsdóms Reykjavíkur
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is