Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 57

Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 57 hagvangur.is Verkefnastjóri stafrænnar þróunar Helstu verkefni • Leiða stafræna þróun Úrvinnslusjóðs • Þróa nýjar stafrænar lausnir og sjálfvirknivæða ferla • Hagnýting gagna við stjórnun, þjónustu og afstemmingu milli kerfa • Uppbygging og þróun á vöruhúsi gagna • Innleiðing á skilvirkum og öruggum gagnasamskiptum við almenning og verktaka • Umsjón með innri vef og upplýsingamiðlun meðal starfsmanna • Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. tölvunarfræði eða verkfræði • Víðtæk þekking og reynsla af upplýsingatækni, verkefnastjórnun og innleiðingu stafrænna lausna • Þekking á uppbyggingu tölvukerfa og samskiptum þeirra á milli • Reynsla af samstarfi við ráðgjafa og sérfræðinga í upplýsingatækni • Hæfni til að miðla efni til starfsmanna og ytri aðila • Lipurð í mannlegum samskiptum og metnaður til að ná árangri • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð • Gott vald á íslensku og ensku, jafnt í töluðu sem rituðu máli Við leitum að öflugum verkefnastjóra til að leiða stafræna þróun hjá Úrvinnslusjóði. Framundan eru spennandi verkefni tengd tæknivæðingu og gagnavinnslu, Úrvinnslusjóður spilar mikilvægt hlutverk í að ýta undir endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs. Hráefni og orka til vöruframleiðslu eru oft takmarkaðar auðlindir sem ber að fara eins sparlega með og kostur er. Úrvinnslusjóður er ríkisstofnun sem sinnir umsýslu úrvinnslugjalds sem lagt er á vörur og ráðstöfun þess. Úrvinnslugjaldið er notað til að stuðla að sem mestri endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs. Úrvinnslusjóður semur við verktaka um þessa verkþætti á grundvelli verksamninga. Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst nk. (2$$ 4& #* %$<&3.> " %$<&3<$'&17.%8 *4> #*%2,) %,<+ 39+1-< 34&.+%,&" "%<*$ ,9)).)1<&;&=3. !<& %4* 14&> 4& 1&4.) 39&.& "%$6># #*%2,)<& '1 &/,%$#>).)1#& 39&.& 063). #*%6,-<):< 5 %$<&3.>7 Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi, stefania@hagvangur.is. Stafræn þróun Úrvinnslusjóður SJÁ NÁNAR Á WWW.HEILSUGAESLAN.IS UNDIR LAUS STÖRF OG Á WWW.STARFATORG.IS HJÚKRUNARFRÆÐINGUR HEILSUGÆSLAN EFSTALEITI Heilsugæslan Efstaleiti auglýsir eftir hjúkrunar- fræðingi tímabundið í 80-100% starf. Ráðið verður í starfið frá 1. sept. n.k. eða eftir nánara samkomu- lagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Heilsugæslan Efstaleiti leggur áherslu á þverfag- lega teymisvinnu. Góður starfsandi er á stöðinni og öflugt félagslíf, starfsaðstaða og starfsumhverfi eru til fyrirmyndar. Öflug kennsla sérnámshjúkrunarfræðinga í heilsu- gæsluhjúkrun, hjúkrunarnema, sálfræðinema, sér- námslækna í heimilislækningum, kandidata og læknanema fer fram á stöðinni í akademísku um- hverfi þar sem mikil áhersla er lögð á rannsóknir og gæðastarf. Starfsmenn taka almennt þátt í rannsókna- og gæðastarfi. Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Má sem dæmi nefna sykursýkismóttöku, lífsstílsmóttöku, fjölskylduteymi og heilsuvernd eldra fólks. Megin starfssvið er skólaheilsugæsla og almenn hjúkrunarmót- taka á heilsugæslustöð Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. Starfssvið í móttöku er mjög víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð. Einnig er boðið upp á lífsstíls- og sykursýkisráðgjöf. FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ HÆFNISKRÖFUR Íslenskt hjúkrunarleyfi Reynsla af heilsugæsluhjúkrun æskileg Reynsla af fjölskylduhjúkrun æskileg Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum Áhugi og þekking á forvarnar- og heilsueflingarstarfi Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð Reynsla og áhugi á teymisvinnu Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ Umsóknarfrestur er til og með 16.8.2021. Nánari upplýsingar veitir Áslaug Birna Ólafsdóttir aslaug.birna.olafsdottir@heilsugaeslan.is - 513 5350 Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmda- stjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Starfshlutfall er 80 - 100%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.