Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 64

Morgunblaðið - 12.08.2021, Page 64
64 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Dragðu það fram eftir degi að ganga frá hvers konar kaupum eða samn- ingum. Gefðu þér svo tíma til að vera með því fólki sem skiptir þig öllu máli. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú verður að gera þér grein fyrir að- stæðum þínum á þessum tímapunkti í lífi þínu og þarft að hafa í huga að halda ró þinni ef á móti blæs. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Stutt ferðalag í dag mun bæði gleðja þig og uppörva. Gluggaðu í sjálfs- hjálparbækur og reyndu að hreyfa þig sem mest. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þér tekst betur en nokkru sinni að samþykkja sjálfan þig, og það eykur vel- gengnina. Gefðu þér því tíma og uppfylltu langanir þínar. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það væri ákaflega misráðið af þér að byrja á nýju verkefni áður en þú hefur lokið við það sem þú vinnur að nú. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er mikil spenna í gangi milli þín og kunningja þíns og þú þarft að komast að því hvað veldur henni. Þú kemst nefnilega ekkert áleiðis upp á eigin spýtur. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ert að uppgötva nýja hluti og þarft að gefa þér tíma til að njóta þeirra sem best þú getur. Grasið er ekkert grænna handan girðingarinnar, þótt þú haldir það. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú þarft að leysa fjárhagslega flækju sem upp hefur komið. Ekki taka ákvörðun fyrr en að vandlega athuguðu máli. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þér hefur tekist að koma mál- um þínum svo fyrir að fólk sem áður skellti við þér skollaeyrum fylgist nú með þér fullt af áhuga. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Alveg sama hvernig þér finnst að hlutirnir eigi að vera, þá er einhver náinn þér algerlega ósammála. Hugsaðu um eigin velferð. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú lagðir hart að þér í byrjun vikunnar og ættir því ekki að vera of gagn- rýnin/n á sjálfa/n þig þótt sjálfsagi þinn hafi minnkað. Vertu jákvæður og hafðu trú á sjálfum þér. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þig langar til að kaupa eitthvað og það strax. Farðu varlega. við Toms Schokoladefabrik, sem framleiðir Anton Berg m.a. og svo hjá Christian Rovsing, sem á þess- um tíma var í verkefnum fyrir NASA – geimferðastofnun Banda- ríkjanna. Þar var ég viðstödd þegar fyrstu tilraunir með telefax voru í blóðmeinafræði og hlaut danska löggildingu. Þegar börnin voru orðin tvö og bóndinn enn námsmaður, vildi ég vera lausari við og starfaði því sem víkar-einkaritari forstjóra á vegum starfsmannaleigunnar Manpower hjá fyrirtækum á borð I ngibjörg Sigurðardóttir fæddist 12. ágúst 1951 í Reykjavík og ólst upp í fjöl- skylduhúsinu á Víðimel 25. „Þar bjuggu ásamt fjöl- skyldunni, afi Egill og amma Ingi- björg og einnig systur föður míns með sínar fjölskyldur, svo það var mikið líf og fjör. Á bolludag var þotið á milli allra hæða og náð að bolla eða flengja sem flesta. Á jólum var okk- ur krökkunum raðað í stærðarröð áður en stofan var opnum með við- höfn og við krakkarnir gengum prúð í röð að jólatrénu,“ svolítið eins og hjá von Trapp,“ segir hún og bætir við að mikið hafi verið að gera og hún hafi lært á píanó og verið í dansi og fimleikum meðfram skólanum. Ingibjörg fór fyrst í Ísaksskóla og síðan í Melaskóla og Hagaskóla. Eft- ir grunnskólann var það Verzl- unarskóli Íslands og hún segir að á menntaskólaárunum hafi hún eign- ast sína tryggustu vini. „Við Verzló- vinkonurnar hittumst enn einu sinni í mánuði.“ Í skólanum kynntist hún einnig tilvonandi eiginmanni sínum, Kristjáni, og giftu þau sig árið 1973. Á unglingsárunum var Ingibjörg sumarlangt við tungumálanám á Fjóni í Danmörku, í Vínaborg í Aust- urríki og í Eastborne í Bretlandi. „Allir þessir staðir hafa mótað mitt líf mikið, bæði hvað varðar menn- ingu, mataræði og lífsstíl.“ Ingibjörg hefur alltaf verið hrifin af útivist og má eflaust rekja það til æskunnar. „Frænka mín, Inga Ásta, var með föður sínum, Birgi apótek- ara, í hestamennsku og frá fermingu fékk ég að fylgja með og átti minn eigin gæðing, Sleipni. Við riðum reglulega út, fórum í langferðir og á skemmtileg hestamannamót. Þá var gist í tjöldum og þessi tími var hreint ævintýri.“ Uppáhaldsfög Ingibjargar í skóla voru alltaf stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði. Það kom því ekki á óvart að hún skyldi fara í Tækniskólann í lífeindafræði þar sem hún sérhæfði sig í bakteríulogíu og hematologíu. Ungu hjónin fóru til Danmerkur þar sem Kristján fór í nám. „Í Dan- mörku starfaði ég á Frederiksberg Hospital og bætti ég við sérhæfingu gerðar og fleira spennandi, sem þyk- ir hversdagsmál í dag.“ Fjölskyldan naut verunnar í Dan- mörku. „Við bjuggum á stúd- entagarði í úthverfi á mjög fallegu svæði og fórum að gera ýmislegt sem við höfðum ekki gert hér heima. Má þar nefna útilegur um Dan- mörku og Þýskaland, skógarferðir, sveppatínslu, hjólreiðar og fleira og fundum svona annan lífsstíl sem við höfum haldið mikið í síðan. Þannig er ég enn dyggur áskrifandi að Familie Journal. Þá var ég á þessum árum ansi dugleg við hannyrðar, átti góða saumavél og stóra prjónavél og prjónaði á fjölskylduna og saumaði og sneið eftir eigin hönnun á mig sjálfa og börnin.“ Þegar heim var komið starfaði Ingibjörg fyrst á rannsóknarstof- unni á Landakoti, en ákvað síðan að einbeita sér alveg að uppeldi barnanna. „Þegar þau uxu úr grasi skipti ég um vettvang og stofnaði verslunina MKM við Óðinstorg og rak hana í 20 ár. Við vorum með mjög vandaðan kvenfatnað í dýrari kantinum og ég er enn að sjá fólk í fatnaði frá okkur á förnum vegi, nú ellefu árum síðar – gæðin voru slík. Verslunin átti hug minn allan og ég naut samskipta við viðskiptavinina og erlendu birgjana. Ég sakna við- skiptavinanna, sem margir urðu fastagestir í versluninni og stöldr- uðu við til spjalls og ráðagerða. Þessi viðskipti kölluðu á regluleg ferðalög til Munchen, Dusseldorf, Parísar, London, Dublin og Brussel. Kristján var með mér í þessum ferðum og við nutum því einnig frístunda í þessum borgum að loknum viðskiptum.“ Ingibjörg og Kristján eru mjög samhent hjón og hafa haldið í virkan lífsstíl frá Danmerkurárunum og stunda göngutúra og golf. „Portúgal er okkar land til golfiðkunar. Við hjónin fórum fyrst til Faró fyrir 50 árum, sem kærustupar, og höfum haldið tryggð við svæðið síðan. Til margra ára stunduðum við líka há- lendisgöngur með góðum vinahópi. Vorum þá gjarnan fjóra daga með vistir og tjald á bakinu og það er mjög gefandi að kynnast landinu á þann hátt.“ En fjölskyldan og Ingibjörg Sigurðardóttir lífeindafræðingur – 70 ára Fjölskyldan Talið frá vinstri: Eldur Ólafsson, Guðrún Helga, hjónin Krist- ján og Ingibjörg, Sigríður Ósk, Jóhann Ingi og Inga Rósa Guðmundsdóttir. Fjölskyldan alltaf í fyrsta sæti Verslunareigandinn Ingibjörg að störfum erlendis í innkaupum fyrir MKM. Í dag eiga 60 ára hjúskaparafmæli hjónin Margrét Örnólfsdóttir og Jón Kristinn Valdimarsson. Þau voru gefin saman í hjónaband af séra Jóni Thorarensen í Nes- kirkju í Reykjavík 12. ágúst 1961, Margrét þá 18 ára en Jón Kristinn 23. Jón er fæddur 1938 á Húsavík á Skjálfanda og uppalinn þar en Margrét er fædd í Reykjavík 1942. Hún átti þó heima á Húsavík frá tveggja til níu ára aldurs. Þau kynntust á Hótel Borg og bjuggu fyrstu þrjú ár hjúskapar síns í Stokkhólmi en hafa verið Reykvíkingar allar götur síðan. Jón er tæknifræðingur og starfaði næstum allan starfsaldur sinn hjá Landsíma Íslands og Margrét er læknaritari með BA í sænsku frá HÍ, starfaði m.a. hjá Vöku-Helgafelli, hollenska konsúlatinu og Landspítala. Þau eignuðust þrjú börn: Valdimar, f. 1963, Örnólf, f. 1967, og Katrínu, f. 1971. Barnabörnin eru orðin 8 og á þessu ári fæddust tvö barna- barnabörn. Þegar allir koma saman telur fjölskyldan 22 og segja tengdabörnin fjölskylduna hávaðasama, en samt sé alltaf gaman saman. Flestir í fjölskyldunni spila golf bæði innanlands og erlendis. Margrét og Jón eru þakklát fyrir að hafa átt gæfurík ár, góða heilsu, góða fjölskyldu og góða og mannbætandi vini í ár- anna rás. Fjölskyldan fagnar demantsbrúðkaupinu í Rangárþingi nk. laugardag með dagskrá sem tekur allan daginn og endar á brekkusöng. Þrátt fyrir bólu- setningu vegna Covid verða varúðarráðstafanir í heiðri hafðar. Árnað heilla Demantsbrúðkaup Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Gelísprautun • Gefur náttúrulega fyllingu • Grynnkar línur og hrukkur • Sléttir húðina Gelísprautun er náttúruleg andlitslyfting án skurðaðgerðar sem framkvæmd er með náttúrulegu fjölsykrunum frá Neauvia Organic. Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.