Morgunblaðið - 12.08.2021, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 12.08.2021, Qupperneq 66
66 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 Mjólkurbikar karla 16-liða úrslit: Keflavík – KA ........................................... 3:1 Valur – Völsungur .................................... 6:0 ÍA – FH ..................................................... 1:0 HK – KFS ................................................. 7:1 Fylkir – Haukar..................................... (1:0) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Meistarabikar Evrópu Chelsea – Villareal................................. (1:1) _ Framlenging stóð yfir þegar blaðið fór í prentun. England Deildabikarinn: Blackpool – Middlesbrough ................... 3:0 - Daníel Leó Grétarsson var ekki í leik- mannahópi Blackpool. Danmörk Köge – Bröndby ....................................... 2:0 - Barbára Sól Gísladóttir lék allan leikinn með Bröndby. Noregur Bikarkeppni, 32-liða úrslit: Ull/Kisa – Vålerenga .............................. 0:6 - Amanda Andradóttir lék allan leikinn með Vålerenga en Ingibjörg Sigurðardóttir var ekki með. >;(//24)3;( EM U17 kvenna B-deild: Hvíta-Rússland – Ísland...................... 25:26 E(;R&:=/D KNATTSPYRNA Mjólkurbikar karla: Víkingsvöllur: Víkingur R. – KR .........19:15 Lengjudeild kvenna: Varmá: Afturelding – Grótta................19:15 Grindavík: Grindavík – KR ..................19:15 Kaplakriki: FH – ÍA..............................19:15 Kórinn: HK – Haukar ...........................19:15 Í KVÖLD! gerir á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Hann skilaði ótrú- legu magni marka og stoðsendinga hjá Dortmund og United þarf á slíku að halda. Þá er Raphaël Varane á leiðinni til United sömuleiðis en hann hefur verið einn besti varnarmaður Evr- ópu síðustu ár. Leikmannahópur United er því betri nú en fyrir ári, en er hann nægilega góður til að verða Englandsmeistari? Það verður að koma í ljós en breiddin á miðjunni og fram á við mætti vera meiri. United þarf að treysta á að Edinson Cavani eigi gott tímabil. Guardian segir Luke Shaw vera lykilmann Manchester United. Shaw átti glæsilegt síðasta tímabil og var enn besti leikmaður Englands á EM og skoraði í úrslitaleiknum. Hann er orðinn gífurlega góður og því ekki fjarri lagi hjá enska miðlinum. Nær van Dijk sér á strik? Síðasta tímabil var vonbrigði fyrir Liverpool. Liðið var óstöðvandi tímabilið á undan og varð Englands- meistari í fyrsta skipti í 30 ár. Um leið og Virgil van Dijk meiddist snemma á tímabilinu varð hins veg- ar ljóst að liðið myndi eiga erfitt. Fá- ir leikmenn í deildinni eru eins mik- ilvægir fyrir sitt lið eins og hollenski varnarmaðurinn stóri og stæðilegi. Á tímabili var Liverpool í hættu á að missa af sæti í Meistaradeildinni en með góðum endaspretti tókst það að lokum. Jürgen Klopp stillir upp afar svip- uðu liði á komandi leiktíð. Franski varnarmaðurinn Ibrahima Konaté er mættur frá Leipzig í Þýskalandi og Georginio Wijnaldum er farinn til Paris SG, en annað er óbreytt. Það er komin meiri breidd í vörnina. Það veitir ekki af en vandamál Liverpool á síðustu leiktíð voru fyrst og fremst í vörninni, þar sem hver meiðslin á fætur öðrum herjuðu á liðið. Haldi van Dijk heilsu og Konaté aðlagast hratt er Liverpool svo sannarlega líklegt til afreka í toppbaráttunni. Sadio Mané, Mo Salah og Roberto Firmino eru óstöðvandi í sóknar- leiknum og Liverpool mun alltaf skora mörk. Guardian segir van Dijk vera lyk- ilmann Liverpool. Standið á honum gæti skipt öllu fyrir liðið. Leiki hann eins vel og hann gerði þegar Liver- pool varð meistari er liðið í fínum málum. Evrópumeistararnir líklegir? Chelsea ætlar sér stóra hluti á komandi tímabili og gæti hæglega blandað sér af alvöru í toppbarátt- una. Thomas Tuchel tók við liðinu af Frank Lampard á miðju síðasta tímabili og það var allt annað að sjá til liðsins undir stjórn Þjóðverjans og liðið varð að lokum Evrópumeist- ari. Félagið er að kaupa Romelu Lukaku frá Inter Mílanó, en þar er á ferðinni einn besti framherji heims. Nái hann sér á strik með Chelsea eru liðinu allir vegir færir. Chelsea varð meistari árið 2017 en hefur ekki verið líklegt til að endurtaka það síð- an. Það gæti breyst á komandi tíma- bili. Chelsea er með mikla breidd út um allan völl, sigursælan stjóra og mikinn meðbyr. Það gæti orðið erfitt að stöðva Evrópumeistarana. Chelsea hélt 19 sinnum hreinu í 30 leikjum undir stjórn Tuchels á síð- ustu leiktíð og með Lukaku að raða inn mörkum hinum megin er Chelsea hættulegur andstæðingur fyrir öll lið. Guardian segir N‘Golo Kanté vera lykilmann Chelsea. Kanté er orðinn afar sigursæll leikmaður og það er engin tilviljun. Hann hefur orðið Englandsmeistari með Chelsea og Leicester, heimsmeistari með Frakklandi og Evrópumeistari með Chelsea. Lið með Kanté á miðjunni hjá sér er yfirleitt í góðum málum. Nokkrum skrefum á eftir Leicester, Tottenham og Arsenal gætu öll blandað sér í baráttu um efstu fjögur sætin, en ljóst er að Manchester-liðin, Chelsea og Liver- pool eru líkleg til að koma sér vel fyrir í fyrsta til fjórða sæti, þau eru einfaldlega betri en önnur lið Eng- lands í dag. Það gæti hjálpað Arsen- al að vera ekki í Evrópukeppni á komandi leiktíð, en liðið virðist of mörgum skrefum fyrir aftan bestu lið deildarinnar til að geta blandað sér í toppbaráttu. Það sama má segja um Tottenham og Leicester, þrátt fyrir að Leicester hafi unnið Samfélagsskjöldinn um síðustu helgi og verið nálægt því að enda í fjórða sæti tvö tímabil í röð. Fjögurra hesta kapphlaup? - Manchester-liðin, Liverpool og Chelsea öll líkleg - Nýir og spennandi leik- menn í öllum stærstu liðunum - Sama sóknarlína hjá Liverpool en breytt vörn AFP Man City Pep Guardiola ENGLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Enska úrvalsdeildin hefur göngu sína á nýjan leik annað kvöld með leik nýliða Brentford á heimavelli gegn Arsenal. Liðin sem enduðu í efstu sætum deildarinnar á síðustu leiktíð hafa öll bætt við sig sterkum leikmönnum og má búast við afar áhugaverðri og spennandi topp- baráttu. Ríkjandi meistarar Manchester City byrja á erfiðum útileik gegn Tottenham. City endaði sem örugg- ur sigurvegari á síðustu leiktíð en gera má ráð fyrir að titilvörnin verði erfiðari, þrátt fyrir að liðið hafi keypt Jack Grealish á 100 milljónir á dögunum. Það vantar alvörufram- herja því Sergio Agüero er farinn til Barcelona og Gabriel Jesus virðist ekki nægilega góður til að vera í fremstu víglínu hjá liði sem ætlar sér stóra hluti bæði heima og í Meistaradeildinni. Það gæti hins vegar allt breyst, nái City að klófesta Harry Kane frá Tottenham. Þá verður erfitt að stöðva meistarana. City hefur orðið meistari þrisvar á síðustu fjórum ár- um og liðið verður í baráttunni aftur í vetur, á því leikur enginn vafi. Það verður hins vegar mikil áhersla lögð á að vinna Meistaradeild Evrópu en knattspyrnustjórinn Pep Guardiola er væntanlega enn svekktur eftir 0:1-tapið fyrir Chelsea í úrslitaleik keppninnar á síðustu leiktíð. Enski miðillinn Guardian segir varnarmanninn Ruben Dias lykil- mann City fyrir komandi leiktíð. Dias lék sitt fyrsta tímabil í ensku deildinni á síðustu leiktíð eftir að City keypti hann frá Benfica og hann fór langt með að fylla upp í það risastóra skarð sem Vincent Komp- any skildi eftir á sínum tíma. Eiga Solskjær og United séns? Þrátt fyrir að hafa endað í öðru sæti á síðustu leiktíð var Manchest- er United, undir stjórn hins geð- þekka Oles Gunnars Solskjærs, aldrei líklegt til að verða meistari. Yfirburðir nágrannanna voru ein- faldlega of miklir. Næsta skref hlýt- ur að vera alvörutitilbarátta. United hefur ekki verið líklegt til þess að verða meistari síðan sir Alex Fergu- son lét af störfum árið 2013. Það er allt of langur tími fyrir eins stórt fé- lag og United. Nær Solskjær að gera það sem Louis van Gaal, David Moyes og José Mourinho mistókst? Hann er með verkfærin til þess. Líkt og Manchester City er Unit- ed búið að kaupa skemmtilegan enskan landsliðsmann en Jadon Sancho er loksins kominn aftur til heimalandsins eftir glæsilega spila- mennsku með Dortmund í Þýska- landi. Sancho hefur verið einn mest spennandi ungi leikmaður Evrópu og það verður áhugavert hvað hann AFP Man Utd Ole Gunnar Solskjær. AFP Liverpool Jürgen Klopp. AFP Chelsea Thomas Tuchel. Körfuknattleiksmaðurinn Jón Axel Guðmundsson mun leika með ítalska félaginu Bologna á næstu leiktíð. Hann kemur til félagsins frá Fraport Skyliners í Þýskalandi. Sportando greindi frá þessu í gær en Bologna hefur ekki formlega staðfest félagaskiptin. Bologna hafnaði í 12. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðustu leiktíð og lék í Meistaradeild Evrópu. Bol- ogna hefur í tvígang orðið ítalskur meistari. Jón Axel spreytir sig um þessar mundir með Phoenix Suns í sumardeild NBA. Jón Axel sagður fara til Ítalíu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ítalía Jón Axel Guðmundsson virð- ist vera á leið til Bologna. Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR og Aron Snær Júlíusson, GKG, eru stigameistarar Golfsambands Ís- lands árið 2021. Ragnhildur fékk 4.210 stig en hún lék á fimm mót- um. Hún vann í Hvaleyrarbikarnum og hafnaði í þrígang í öðru sæti. Berglind Björnsdóttir úr GR varð önnur með 3.800 stig og Guðrún Brá Björgvinsdóttir 3.733. Aron Snær lék á fjórum mótum af sex og vann tvisvar, þar á meðal Íslandsmótið um síðustu helgi. Ar- on fékk 3.414 stig. Andri Már Ósk- arsson varð annar með 3.371 stig. Stigameistarar GSÍ árið 2021 Ljósmynd/Þórir Tryggvason Stigameistari Ragnhildur hafnaði fjórum sinnum í 1. eða 2. sæti. _ Haraldur Franklín Magnús lék best Íslendinganna þriggja á fyrsta hring á Made in Esbjerg-mótinu á Áskor- endamótaröð Evrópu í golfi í gær. Haraldur lék á 71 höggi, eða á pari, og er í 36. sæti. Hann á góða möguleika á að fara í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi. Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék á einu höggi meira en Haraldur og er í 56. sæti. Bjarki Pétursson lék á 73 höggum og er í 74. sæti. TiM Widing frá Svíþjóð er efstur eftir fyrsta hring á fimm undir pari. _ Íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik skipað leikmönnum 17 ára og yngri vann glæsilegan 26:25-sigur á Hvíta-Rússlandi í æsispennandi þriðja leik liðsins í Litháen í gær. Ísland hefur unnið alla leiki sína í b-deildinni á mótinu til þessa. Elísa Elíasdóttir og Elín Klára Þorkelsdóttir voru marka- hæstar í íslenska liðinu með sex mörk hvor og Lilja Ágústsdóttir skoraði fjögur. _ Ítölsk knattspyrnufélög halda áfram að sanka að sér ungum og efni- legum íslenskum leikmönnum. Ben- óný Breki Andrésson og Birgir Steinn Styrmisson eru báðir búnir að semja við ítölsk A-deildarfélög. Blikinn Ben- óný Breki er 15 ára gamall sóknar- maður og fer til Bologna og verður þar með þriðji Íslendingurinn á mála hjá félaginu. KR-ingurinn Birgir Steinn er 17 ára gamall varnarmaður sem fer til Spezia Eitt ogannað
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.