Morgunblaðið - 12.08.2021, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 12.08.2021, Qupperneq 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 AFTUR Í SKÓLANN afslátt af öllum barnafatnaði máli, kærasta hans Judith, á með- an á jarðarför móður hans stend- ur. Við leitina að Judith þarf Guillaume að horfast í augu við þær staðreyndir sem fjölskylda hans og vinir hafa leynt honum og þann sannleik sem hann hafði sjálfur kosið að hunsa. Tómas getur lítið sagt um hlut- verk sitt í þáttunum. „Þetta er mikilvægur karakter í sögunni sem heitir Ostertag og hefur verið í frönsku útlendingahersveitinni. Þetta er mjög skemmtilegt hlut- verk.“ Þættirnir voru teknir upp í Nice síðasta haust. „Ég var þarna í þrjá og hálfan mánuð í tökum í miðju Covid. Þetta voru skrítnir tímar. Við vorum í lítilli búbblu þarna á frönsku rívíerunni og hitt- um engan. Maður var ekki að Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Leikarinn Tómas Lemarquis, sem Íslendingar þekkja einna helst úr kvikmyndinni Nóa albinóa frá 2003, hefur gert það gott erlendis undanfarið. Hann hefur til dæmis komið fram í myndum á borð við X-Men: Apocalypse (2016) og Blade Runner 2049 (2017). Nú síðast landaði hann hlut- verki í franskri Netflix-þáttaröð sem ber titilinn Gone for Good eða Disparu à jamais á frönsku. Hún verður frumsýnd á morgun, föstu- daginn 13. ágúst. „Mér skilst að frumsýningin verði á öllum svæð- um Netflix, 190 löndum,“ segir leikarinn. Þættirnir eru byggðir á bókinni Gone for Good eftir Harlan Cob- en. „Hann er metsöluhöfundur sem þú finnur á öllum flugvöllum og selur í milljónavís. Hann er bú- inn að selja tíu bækur til Netflix og það er búið að gera fjórar serí- ur eftir bókum hans; í Bretlandi, á Spáni og í Póllandi og svo núna þessa í Frakklandi,“ segir Tómas. Það eru þáttaraðirnar The Strang- er, Innocent og Safe. Mikil leynd ríkir Gone for Good segir Tómas að sé spennutryllir í fimm þáttum. Með leikstjórn fer Juan Carlos Medina en þeir Tómas unnu áður saman að spænskri hryllingsmynd sem ber titilinn Painless (2012). Mikil leynd ríkir yfir frumsýn- ingum sem þessum. Hjá Netflix gilda strangar reglur um hversu mikið megi segja áður en að frum- sýningu kemur. Tómas vill því ekki ljóstra upp of miklu til þess að eyðileggja ekki spennuna fyrir tilvonandi áhorfendum. Í kynningartexta um þáttaröð- ina segir: Tíu árum eftir að Guill- aume Lucchesi verður vitni að hræðilegum harmleik, þar sem bæði Sonia, fyrsta ástin hans, og bróðir hans Fred létu lífið, hverf- ur konan sem skiptir hann öllu hitta fólk eftir vinnu. Það var út- göngubann á kvöldin, við máttum ekki fara út eftir klukkan átta. Það var svolítið þrúgandi and- rúmsloft í gangi og það flækti málin að allir þurftu að vera með grímu á setti. Dvölin var þó ekki alslæm. „Á móti kom að ég var þarna á yndis- legum stað, á besta stað með öld- urnar beint fyrir neðan svalirnar. Ég bjó við hliðina á villunni hans Seans Connerys. Svo ég var á algjörum draumastað og gat ekki kvartað yfir því. Ég gat labbað niður og farið beint í sjóinn fyrir utan húsið.“ Þekkt úr Gullpálmamynd Meðleikarar Tómasar eru að hans sögn ungt og upprennnandi fólk sem er mjög þekkt í Frakk- landi í dag. Með stærstu hlutverk þáttanna fara Finnegan Oldfield, Nicolas Duvauchelle, Guillaume Gouix, Grégoire Colin, Nailia Harzoune og Garance Marillier. Sú síðastnefnda var í einu af aðal- hlutverkunum í Titane, kvikmynd- inni sem hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í sumar, auk þess sem hún lék í myndinni Madame Claude sem var frumsýnd nýverið á Netflix. Tómas segir það hafa verið skemmtilegt að fá að leika á sínu föðurmáli, en hann er hálfur Frakki. „Ég hef aðeins leikið í Frakklandi en ekki eins mikið og ég hefði viljað.“ Hann nefnir sem dæmi að kvik- myndin 3 Days to Kill (2014) með Kevin Costner, sem hann lék í, hafi verið tekin upp í París en hún hafi verið á ensku. Hann hafi að- eins leikið í einni mynd í fullri lengd á frönsku. Honum hafi því þótt gaman að fá hlutverk í Gone for Good. Þessa dagana er Tómas í tökum á Ísafirði fyrir kvikmynd Hilmars Oddssonar sem mun bera titilinn Á ferð með mömmu. Þar verða Þröstur Leó Gunnarsson og Krist- björg Kjeld í aðalhlutverkum. Ískyggilegur „Þetta er mikilvægur karakter í sögunni,“ segir Tómas um hlutverk sitt í Gone for Good. Mikilvægt hlutverk í spennutrylli - Tómas Lemarquis leikur í frönsku Netflix-þáttaröðinni Disparu á jamais - Frumsýnd á morgun - Gerð eftir bók metsöluhöfundarins Harlans Cobens - Gaman að leika á föðurmálinu frönsku Spennutryllir Leikararnir í þáttunum eru ungir og upprennandi. Flygladúóið Sóley, skipað píanó- leikurunum Laufeyju Sigrúnu Haraldsdóttur og Sólborgu Valdi- marsdóttur, heldur tónleika í kvöld, 12. ágúst, kl. 20 í Norður- ljósasal Hörpu og flytur fjölbreytt verk fyrir tvo flygla, allt frá bar- okktímanum til samtímans. Tvö íslensk tónskáld, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir, sömdu verk fyrir dúóið sérstaklega fyrir þessa tón- leika. Mun það vera heldur óal- gengt að haldnir séu tónleikar fyrir þessa hljóðfæraskipan þar sem fáir tónleikastaðir hér á landi hafa aðstöðu fyrir slíka tónleika. Auk þess eru fá íslensk verk til sem samin hafa verið fyrir tvo flygla og voru fyrrnefnd tónskáld því fengin til að semja fyrir dúó- ið. Tónleikarnir eru m.a. styrktir af Tónlistarsjóði Rannís og Reykjavíkurborg og fer miðasala fram á harpa.is. Frumflytja íslensk verk fyrir tvo flygla Tvíeyki Sólborg Valdimarsdóttir og Laufey Sigrún Haraldsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.