Morgunblaðið - 31.08.2021, Page 9

Morgunblaðið - 31.08.2021, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Einnig getum við úvegað startara og alternatora í allskonar smávélar frá Ameríku Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði í alternator og startaraviðgerðum. Við höfum áratuga reynslu í viðgerðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Verkstæðið er með öll nauðsynleg tæki og tól til þessara verka. Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í prufubekk til að tryggja að allt sé í lagi. Þeim er einnig skilað hreinum og máluðum. Áratuga reynsla Fulltrúar ríkisins eiga í viðræðum við eigendur þess notaða skips sem helst kemur til greina að kaupa fyr- ir Landhelgisgæsluna. Ekki hefur þó verið ákveðið að kaupa skipið. Leitað hefur verið að hentugu og hagkvæmu skipi frá því í mars að ríkisstjórnin ákvað að ráðast í kaup á varðskipi til að leysa varðskipið Tý af hólmi. Í upphafi ársins kom í ljós við slipptöku Týs að önnur að- alvél skipsins er biluð og smíði nýrra varahluta tímafrek. Auk þess að tveir af tönkum skipsins væru ónýtir vegna tæringar og að sjó- kælikerfi þess lekur. Slíkur leki er talinn ógna öryggi skips og áhafn- ar. Ríkisstjórnin ákvað í mars að kaupa notað skip sem komi í stað Týs við gæslustörf. Talið var unnt að fá gott skip fyrir einn til einn og hálfan milljarð króna. Skipið mun fá nafnið Freyja. Fimm tilboð bárust í kjölfar út- boðs sem Ríkiskaup auglýstu og fóru sérfræðingar yfir gögn um skipin. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er mikilvægt að velja öflugt varðskip sem er sér- staklega útbúið til að sinna lög- gæslu, leit og björgun á krefjandi hafsvæðum umhverfis Ísland. Ekki þóttu öll fullnægja skilyrðum í út- boðslýsingu. Starfsmenn Landhelg- isgæslunnar hafa skoðað þau skip sem áhugi var á að kanna nánar. Nú standa yfir viðræður við eig- endur þess skips sem helst er talið koma til greina að kaupa. Búist er við að málin skýrist í fyrri hluta septembermánaðar. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Seyðisfjörður Týr var til taks í náttúruhamförunum í desember. Hafa augastað á Freyju í stað Týs - Viðræður um kaup á varðskipi Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verktakafyrirtækið Eykt mun ann- ast hönnun og framkvæmdir við stækkun seiðaeldisstöðvar Arctic Fish í Norður-Botni í Tálknafirði og norska fyrirtækið Eyvi sér um tæknibúnað stöðvarinnar. Áætlað er að kostnaður við verkið verði um 3,5 milljarðar króna og verður það ein af stærstu framkvæmdum einka- aðila á Vestfjörðum. Arctic Smolt, dótturfyrirtæki Arctic Fish, hefur komið upp mikilli seiðastöð í Norður-Botni og rekið síðustu ár. Ákvörðun var tekin um að stækka stöðina til að fylgja eftir stækkun sjókvíaeldis fyrirtækisins, að afloknu vel heppnuðu hlutafjár- útboði síðastliðinn vetur. Framkvæmdir að hefjast Sú aðstaða sem fyrir er nýtist stærri stöð, meðal annars klakstöð, rannsóknarstofa og fleira. Húsnæði verður stækkað um 4.200 fermetra og verður samtals 14.200 og kerja- rými verður meira en tvöfaldað, við bætast 7.200 rúmmetrar og verður alls 13.500 rúmmetrar eftir stækk- un. Framleiðslugeta stöðvarinnar tvöfaldast, verður 1.000 tonn sem svarar til um fimm milljóna 200 gramma seiða. Úr þeim fjölda á að vera hægt að ala um það bil 25 þús- und tonn af laxi í sjókvíum í slátur- stærð. Ráðgert er að hefja framkvæmdir á næstu dögum, þegar byggingar- leyfi fást. Færeyska fiskeldisráð- gjafarfyrirtækið SMJ Aqua var Arc- tic Fish til ráðgjafar við hönnun. Sú vinna er langt komin, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrir- tækinu. Gert er ráð fyrir að verktími verði um tvö ár og að 40-50 manns komi að vinnunni á framkvæmdatíma. Norska fyrirtækið Eyvi, sem hannar og selur heildarlausnir í seiðaeldisstöðvar, mun þróa sér- sniðna lausn sem hentar þörfum Arctic Fish og aðstæðum á Íslandi. Meðal búnaðar er vatnshreinsikerfi (RAS) en slíkt kerfi er fyrir í núver- andi seiðastöð og var það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Tryggt rafmagn er mikilvægur þáttur í fisk- eldi á landi. Sett verður upp vara- aflstöð við seiðaeldisstöðina með þremur 1,4 megavatta vélum. Tvöfalda sjókvíaeldið Arctic Fish áformar að slátra um 12 þúsund tonnum af laxi upp úr sjókvíum á þessu ári. Fyrirtækið er að stækka og gera áætlanir ráð fyrir að framleiðslan tvöfaldist innan þriggja ára. Um 70 manns vinna hjá Arctic Fish, þar af 15 í seiðaeldisstöðinni. Samið um vinnu við tvö- földun seiðaeldisstöðvar - 3,5 milljarða króna framkvæmd að hefjast í Tálknafirði Eldisker Rúmmál eldiskerja meira en tvöfaldast við stækkun seiðaeldis- stöðvar Arctic Fish í Tálknafirði. Framkvæmdir hefjast á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.