Morgunblaðið - 31.08.2021, Side 25

Morgunblaðið - 31.08.2021, Side 25
hjólaferðir erlendis og er mikið fyrir alla útivist. „Svo er ég búin að vera mikið í golfinu núna. Golfvöllurinn er eiginlega eins og félagsmiðstöð full- orðna fólksins,“ segir hún og hlær. „Maður fattar það á þessum aldri hvað maður hefur verið lánsamur þegar maður lítur til baka, bæði í starfi og að eiga fjögur börn og sex barnabörn.“ Fjölskylda Sambýlismaður Sigrúnar er Haf- þór Júlíusson málari, f. 28.6. 1961. Áður átti Sigrún börnin: 1) Þór Sig- urðsson, f. 18.4. 1978, kvæntur Hildi Eddu Grétarsdóttur, f. 18.4. 1985, þau eiga börnin Kolbrúnu Gígju, f. 2012; Sigurð Grétar, f. 2013 og Finn- boga Þór, f. 2017, áður átti Þór son- inn Þórhall Darra, f. 1998; 2) Jónínu Þóru Einarsdóttur, f. 3.2. 1989, gift Arnari Páli Skúlasyni, f. 4.5. 1989 og þau eiga Róbert Þór, f. 2014 og stúlku, f. 2021; 3) Bjarka Má Ólafs- son, f. 26.9. 1994 og 4) Ólaf Ægi Ólafsson, f. 28.10. 1995. Systur Sig- rúnar eru Lilja Hjördís, f. 16.12. 1958; Hafdís Ægisdóttir Hougaard, f. 7.7. 1966 og Þóra Guðný, f. 7.7. 1972. Foreldrar Sigrúnar eru hjónin Ægir Ólason, skipstjóri og síðar starfsmaður Fiskistofu, f. 27.1. 1938 og Jónína Þóra Einarsdóttir, vann við félagsþjónustu hjá Seltjarnar- nesbæ, f. 5.9. 1941. Þau búa á Sel- tjarnarnesi. Sigrún Kristín Ægisdóttir Engilráð Benediktsdóttir húsfr. á Dynjanda í Grunnavík í N-Ís. Einar Bæringsson bóndi og hreppstjóri á Dynjanda í Grunnavík í N-Ís. Sigrún Jóna Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík Einar Guðbjartsson stýrimaður í Reykjavík Jónína Þóra Rannveig Einarsdóttir vann við félagsþjónustu hjá Seltjarnarnesbæ Ragnheiður Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja og ljósmóðir í Grunnavíkursókn og Kjós, Staðarsókn, N-Ís. Guðbjartur Kristinsson b. í Kollsá, Grunnavíkursókn, N-Ís. Guðfinna Sveinsdóttir húsfr. í Háarima í Þykkvabæ, Rang. Sigurður Guðnason bóndi í Háarima í Þykkvabæ, Rang. Lilja Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Óli Guðmundsson skipstjóri og útgerðarmaður í Reykjavík Ingibjörg Árnadóttir húsfreyja á Höfða í Vallahr., S-Múl. og í Keflavík Guðmundur Ólason bóndi á Höfða, Klyppsstað og á Seyðisfirði, síðar verkamaður í Keflavík Úr frændgarði Sigrúnar KristínarÆgisdóttur Ægir Ólason skipstjóri á Seltjarnarnesi og vann síðar hjá Fiskistofu DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2021 Í klípu „ÉG KEMST EKKI Í DAG, ÉG ER MEÐ IN-FLUG-ENSU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ GETUR EKKI ÆTLAST TIL ÞESS AÐ GERA ÞETTA RÉTT Í FYRSTU TILRAUN!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera með báða fætur á jörðinni. ÉG FÉKK MÉR TÚNFISK- SALAT Í HÁDEGINU OG NÚNA ER ÉG HRÆDD UM AÐ ÉG SÉ MEÐ TÚNFISKS-ANDREMMU KYSSTU MIG, KJÁNINN ÞINN! KEMURÐU OFT Á ÞENNAN BAR? NEI… BARA EINU SINNI… ÉG KOM HINGAÐ SÍÐASTA ÞRIÐJUDAG! Komur tollur Sigmundur Benediktsson skrifaði mér á sunnudag: „Hef fengið kvartanir um vísnaþögn mína, svo mér datt í hug að senda þér þrjár ágústvísur síðan í gær, sem þú mátt birta ef þér líkar við þær“: Hamfarahlýnun. (Hringhent). Hitamökkur hækkar stig hratt við skökku völdin, ágúst dökkvinn eflir sig örvar rökkurtjöldin. Þokan. (Tvær hringhendur). Vefjasíðar voðir ber, vegi skríður langa. Þokan víða þrýstir sér þétt að hlíðarvanga. Döggin klæðir grund og grein gildna hæðadrögin. Stráin græða mátt og mein mild við æðaslögin. Ég þakka Sigmundi gott bréf og vildi gjarna fá meira að heyra. Gunnar J. Straumland skrifar á Boðnarmjöð: Um óþægindi okkur hjá aldrei skulum hrópa, óþrifum svo alltaf má undir teppi sópa. Hallmundur Kristinsson fer með „Gamla lítillætisvísu“: Aðdáun hefur að mér sótt. Eykur á lestrarvildina andagift mín og orðsins gnótt, að ekki sé minnst á snilldina! Á laugardag orti Sigurlín Her- mannsdóttir við mynd af borg- arstjóra, þar sem hann stóð við „tré ársins“: Á borðinu blaði er flett þá birtist mér undarleg frétt um hinn háa Dag B sem heiðrar eitt tré og heggur svo – skilji ég rétt. Friðrik Steingrímsson yrkir um málglaða frambjóðendur: Orðaflaumi aus’úr sér um það næsta fátt ég hirði, loforðanna listi er langur mjög, en einskisvirði. Guðmundur Arnfinnsson yrkir og kallar „Heimsókn“: Sumarið ljósa er liðið og leika skuggar um sviðið, ég bíð eftir gesti á bleikum hesti, það hringlar í beisli við hliðið. Jónas Frímannsson kvað þetta fallega vísu og setti vísu um svipað efni eftir föður sinn heitinn, Frí- mann Jónasson: Vopnin kvödd og lokið leik, liggur sundrað brakið. Heim í traðir heyri ég Bleik herða fótatakið. Halldór Blöndal Vísnahorn Síðsumarsvísur og tré ársins Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 g Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061g Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 g alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA alnabaer.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.