Morgunblaðið - 31.08.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.08.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2021 Rigning Erlendir ferðamenn sem hingað koma láta nokkra rigningardropa ekki á sig fá og klæða sig eftir því, sumir í litríkum regnslám eins og þetta ágæta par. Eggert Í stjórnmála- ályktun flokksráðs- fundar Sjálfstæðis- flokksins sem haldinn var 28. ágúst sl. er fjallað um samgöngu- mál. Þar segir m.a.: „Með honum (sam- göngusáttmálanum) skal tryggja bættar almennings- samgöngur, en jafn- framt frelsi ein- staklinga þegar kemur að samgöngumáta, hvort sem um er að ræða almenningssamgöngur, al- menna bifreiðaumferð, gangandi eða hjólandi.“ Ekki hlustað á reynda sérfræðinga Orðið borgarlína kemur ekki fyr- ir í texta ályktunar um samgöngu- mál, sem vekur athygli. Hins vegar segir í ályktuninni: „Einn sam- göngumáti á ekki að þrengja að öðr- um. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að þetta mikilvæga verk- efni sé undirbúið vel, kynnt vel fyrir íbúum og um það sköpuð sátt.“ Eins og málefni borgarlínu hafa verið rekin undanfarin misseri hefur ekki verið gerð minnsta tilraun til að um þetta mál sé sköpuð sátt, heldur þvert á móti. Meirihlutinn í Reykja- vík hefur t.d. gert lítið úr tilllögum fjölmargra virtustu skipulagsfræð- inga og verkfræðinga landsins um svokallaða létta borgarlínu (BRT- Lite), sem er margfalt ódýrari og hagkvæmari valkostur. Þær til- lögur ríma vel við eftirfarandi texta í stjórnmálaályktun flokksráðs- fundar Sjálfstæðisflokksins: „Mik- ilvægt er að tryggja arðbæra nýt- ingu fjármuna þannig að markmið um greiðari samgöngur, aukin lífs- gæði og valfrelsi í sam- göngum náist.“ Núverandi tillögur um borgarlínu munu aldrei ganga upp Óhætt er að fullyrða að núverandi tillögur um borgarlínu muni aldrei ganga upp. Heildarkostnaður verð- ur allt að 100 milljarðar kr. Þegar tekið er með í reikninginn að fyrirhugaðar þrengingar að al- mennri bílaumferð munu leiða til þess að árlegur kostnaður við um- ferðartafir verður mörgum millj- örðum króna meiri en ella, þá er ljóst að fyrirliggjandi tillögur um borgarlínu munu ekki skila þjóð- hagslegum ávinningi nema síður sé. Auk þess er ljóst að gatnakerfi borgarinnar verður á framkvæmda- tíma meira og minna í uppnámi vegna sundurgrafinna gatna víðs- vegar um borgina. Að öllu samanlögðu er ljóst að núverandi áætlanir um borgarlínu eru byggðar á afar ótraustum for- sendum. Hlutaðeigandi yfirvöld hljóta að grípa í taumana áður en framkvæmdir við rándýra og óraunhæfa borgarlínu, sem standa munu yfir í 10-15 ár, verða að veru- leika. Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson » Óhætt er að fullyrða að núverandi til- lögur um borgarlínu muni aldrei ganga upp. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Höfundur er fv. borgarstjóri. Borgarlína ekki nefnd Ég hafði Benedikt Jóhannesson löngum í miklum metum sök- um skoðana- og rök- festu. Hann var enda mjög áheyrilegur ræðumaður, en þótt ákaflega íhaldssam- ur. Sú var tíðin að Benedikt var trúað fyrir yfirráðum yfir einum stærsta eig- anda fiskveiðikvóta á Íslandi. Núna er honum orðið mikið niðri fyrir þegar hann ræðir hlut þeirra sem nytja fiskistofnana við Ísland. Sam- kvæmt lögum fær þjóðin í heild gjald frá þeim sem nýta fiskimiðin. Markmið slíkrar gjaldtöku á m.a. að vera að útgerðin hafi ekki óeðli- lega arðsemi af fjárfestingum í út- gerð. En ekki hef ég séð tölum studda gagnrýni í þá veru að arð- semi útgerðar sé óhófleg. Sjálfsagt væri að taka undir hana og hækka veiðigjaldið, kæmi slíkt fram. Gagn- rýnin er af öðrum toga. Nýjar tilvitnanir í Benedikt Jóhannessson „Stjórnmálamenn hafa í áratugi úthlutað lokuðum hópi vina sinna veiðiheimildum, fyrst endurgjalds- laust og svo gegn málamynda- gjaldi.“ „Hvað skyldu útgerðar- menn hafa greitt fyrir þá afþreyingu að veiða á Íslands- miðum árið 2020?“ „Forréttindin hverfa. Flestar þjóðir hafa lagt af kerfi aðals og lénsherra …“ Til- vitnanir í Benedikt af þessu tagi tækju allt blaðið ef fram yrði haldið og skal því stað- ar numið. Benedikt sér leið út úr þessu. Árlega yrðu milli 5 og 10% kvótans boðin upp. Nýir aðilar geti tekið þátt í upp- boðinu. Varaformaður Viðreisnar telur ekki víst hvort gjaldið myndi hækka eða lækka við uppboð borið saman við núverandi fyrirkomulag. Til hvers er þá unnið? En það þýðir á hinn bóginn að eftir innlimun Evrópu- sambandsins á Íslandi fengi ESB loks sitt svo hugmynd Benedikts sé umorðuð. Gamlar tilvitnanir í Benedikt Jóhannesson Benedikt Jóhannesson var stjórnarformaður Eimskips þegar stjórnmálamenn úthlutuðu lokuðum hópi vina sinna veiðiheimildum að hans sögn. Ég leit ekki svo á, en mér kemur á óvart að hann hafi gert það. Í hans sporum hefði ég ekki gengið til slíkra verka. Þegar hann lét af stjórnarformennsku hélt hann einmitt ræðu um kvót- ann. Látum Benedikt hafa orðið: „Í samtali okkar [við Kjartan Gunn- arsson, framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins] talaði ég um að menn yrðu að gæta sín vel varðandi Brim, en gáleysislegur leikur með það gæti haft mikil pólitísk áhrif, bæði á byggðir um landið, en ekki síður á undirstöðu félagsins, kvóta- kerfið.“ Þessi varnaðarorð Bene- dikts eiga fullt erindi, ekki síst nú. Raunar enn frekar. Þeir sem tóku við kvóta Brims á fullu verði, en ekki sem hópur vina Benedikts, hafa gert fiskveiðarnarnar miklu arðbærari með rekstrarákvörð- unum og innleiðingu nýrrar tækni. Það hefur ekkert með verðmæti miðanna að gera. Þeir eru bara hæfari í útgerð en Benedikt og nýta kvótann betur fyrir land og þjóð. Benedikt hefur ekki skýrt af- stöðubreytingu sína. En kunnara er en frá þurfi að segja að hann telur allt til vinnandi að fara í ESB. Önn- ur skýring væri að hann hafi fyrr- um talað gegn betri vitund meðan hann var hluti einhvers aðals að eigin mati; ég vona ekki. Þriðja skýringin og sú sem mér hugnast síst er sú sem myndi leiða til let- urbreytingar. Því þá yrði að prenta greinar Benedikts í grænu letri. » Benedikt Jóhannes- son fv. kvótagreifi hefur ekki skýrt af- stöðubreytingu sína. Hann telur allt til vinn- andi að fara í ESB. Einar S. Hálfdánarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Fyrrverandi kvótagreifi harðasti andstæðingur fiskveiðistjórnunarkerfisins Eftir Einar S. Hálfdánarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.