Morgunblaðið - 31.08.2021, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 2021
Fjöldi gesta var viðstaddur opnun sýningar
á verkum Hrafhildar Arnardóttur / Shop-
lifter í menningarhúsinu Norðurbryggju í
Kaupmannahöfn á föstudagskvöldið var.
Sýningin ber nafnið Nervescape IX og er
níunda og nýjasta verkið í Nervescape-
sýningaröð Hrafnhildar. Fyrir opnun sýn-
ingarinnar ræddi Heiðar Kári Rannversson
sýningarsjóri Norðurbryggju, og jafnframt
sýningarinnar ásamt listakonunni, við
Hrafnhildi á sviði og komust færri gestir að
en vildu til að hlýða á líflegt samtalið. Sýn-
ingin var síðan opnuð af sendiherra Íslands
í Danmörku, Helgu Hauksdóttur.
Umfangsmikil sýning Hrafnhildar er í
báðum helstu sýningarsölum Norður-
bryggju, á tveimur hæðum. Er innsetningin
gerð úr lituðu gervihári, eins og á fyrri
Nervescape-sýningum hennar en þær hafa
verið settar upp víða um lönd. Þá var litríkt
gervihárið einnig efniviðurinn í verki henar,
Chromo Sapiens, sem var sett upp á síðasta
Feneyjatvíæringi þegar hún var fulltrúi
Íslands.
Verk Hrafnhildar verða áberandi í Dan-
mörku næstu misseri því í desember verður
opnuð sýning hennar í hinu virta listasafni
ARoS í Árósum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hárdrýli Gestir við opnun sýningarinnar á Norðurbryggju nutu þess að hverfa inn í marglitan heim Hrafnhildar.
Hár á Norðurbryggju
- Sýning á verkum Hrafnhildar Arnardóttur / Shoplifter
opnuð í menningarhúsi Íslands, Færeyja og Grænlands
Samtal Fyrir opnun sýningar ræddu sýningarstjórinn Heiðar Kári
Rannversson og Hrafnhildur uppruna og litríkan heim verka hennar.
Blásið er til söngveislu í Salnum í
kvöld kl. 19.30 í tilefni af 75+1 árs
afmælis tónskáldsins Johns
Speight. Söngvararnir Hallveig
Rúnarsdóttir, Hildigunnur Einars-
dóttir, Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir, Eyjólfur Eyjólfsson og Ágúst
Ólafsson frumflytja þar lög eftir
John við ljóð að eigin vali. Um
píanóleik sjá Edda Erlendsdóttir,
Eva Þyri Hilmarsdóttir og Svein-
björg Vilhjálmsdóttir.
„Þó John sé betur þekktur fyrir
stærri tónsmíðar svo sem sinfóníur,
óratoríur og kammerverk þá hefur
hann samið um hundrað lög fyrir
rödd og píanó. John hefur undan-
farin ár unnið að verkefni sem felst
í því að hann spyr söngvara sem
hafa vakið hrifningu hans hvort
hann megi semja verk fyrir þá. Ef
svar söngvarans er jákvætt upp-
ljóstrar hann um skilyrðin sem eru
þau að söngvaranum beri að velja
ljóð. Þetta gæti verið vandasamt
þar sem smekkur fólks á ljóðum er
mismunandi – en útkoman er nokk-
uð góð,“ segir í tilkynningu og á
það bent að efnisskrá tónleikanna
samanstandi „af lögum sem John
hefur samið fyrir yngri kynslóð
söngvara – sem voru nægilega
áræðnir til að segja „já“.“
Frumflutningur söng-
laga eftir John Speight
Morgunblaðið/RAX
Tónskáldið John Speight.
Bassaleikarinn Þorgrímur Jóns-
son fagnar annarri sólóplötu sinni
með útgáfutónleikum á Jazzhátíð
Reykjavíkur í Flóa Hörpu í kvöld,
þriðjudag, kl. 20. Platan er „inn-
blásin af íslenskri náttúru,
síbreytilegu veðri og þá sér í lagi
frá sunnanverðum Vestfjörðum.
Titillag plötunnar er einmitt
nefnt í höfðuðið á sveitabænum
Haga á Barðaströnd þar sem höf-
undur eyddi ófáum sumrum í
æsku. Tónlistin, sem er öll samin/
skrifuð og útsett af Þorgrími, er
af ýmsum toga, allt frá austræn-
um áhrifum Balkanskagans, vest-
rænni popp- og rokktónlist sem
og evrópskum djassi. Í fyrirrúmi
eru lagrænar og vel ígrundaðar
tónsmíðar og útsetningar sem
ættu að sýna styrkleika hljóm-
sveitarinnar í heild sinni. Hér rík-
ir gott jafnvægi á milli tónsmíða
þó svo að fjölbreytileikinn sé í
fyrirrúmi,“ segir í tilkynningu.
Með Þorgrími leika Rögnvaldur
Borgþórsson á gítar, Tómas Jóns-
son á píanó og ýmis önnur hljóm-
borð og Magnús Trygvason Elias-
sen á trommur.
Haga fagnað í Flóa
Fjölhæfur Þorgrímur Jónsson,
bassaleikari og tónskáld.