Morgunblaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 14
Í TÓKÝÓ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Ég hef litið á það sem svo að þetta
sé hluti af prógrammi lífsins og er
þakklátur fyrir að fá að taka þátt í
þessu með honum.“
Þetta segir Gunnar Már Másson,
faðir Más Gunnarssonar sundkappa,
sem næstur Íslendinganna keppir á
Ólympíumótinu í Tókýó á morgun,
föstudag. Þá er fyrsta grein Más af
fjórum á dagskrá, 50 metra skrið-
sundið í S11, flokki blindra.
Gunnar Már, sem á sínum tíma
var þekktur knattspyrnumaður með
Val, KA og Leiftri, lék sex tímabil
af átta á meistaraflokksferli sínum í
efstu deild og skoraði 47 mörk í 120
leikjum í tveimur efstu deildum Ís-
landsmótsins, er í óvenjulegu hlut-
verki. Hann er svokallaður „bank-
ari“ hjá syni sínum en það er fólgið í
því að vera með stöng á sundlaug-
arbakkanum og banka létt í höfuð
hans þegar hann á stutt eftir að
bakkanum. Már er blindur eins og
áður sagði og þarf því að fá þessa
viðvörun í tæka tíð.
Létti honum róðurinn
Gunnar sagði við Morgunblaðið í
Tókýó að hann hefði verið með Má á
öllum æfingum og í allri keppni
undanfarin þrjú ár.
„Ég hef alla tíð frá því hann hóf
að æfa sund níu ára gamall fylgt
honum stíft eftir og aðstoðað hann
með það sem hann hefur óskað eft-
ir, en síðustu þrjú ár hef ég verið
svokallaður bankari á bakkanum við
æfingar og keppni og farið með
honum á þau mót sem hann hefur
tekið þátt í, erlendis og á Íslandi.
Ég hef því verið hans stuðningshjól
til að létta honum róðurinn í þessu
lífsins ferli sem hann er í og það
hefur verið afskaplega ánægjulegt
að kynnast þessari íþrótt og vera
virkur þátttakandi í því sem er að
gerast,“ sagði Gunnar Már.
Með á öllum æfingum
„Síðustu þrjú ár hef ég verið með
honum á öllum æfingum, í ljósi þess
að fyrir þremur árum fór sjón hans
mjög versnandi. Hann tapaði því
litla sem hann sá, öryggið í lauginni
var þar með ekki lengur til staðar
og þá var mjög mikilvægt að grípa
inn í og vera til staðar til að fyr-
irbyggja meiðsli eða slys. Öryggis-
ins vegna hef ég mætt á allar hans
æfingar síðan.“
Hann fórnar því miklu til þess að
hjálpa syni sínum en kveðst alls
ekki horfa á hlutina þannig.
„Ég hef litið á það sem svo að
þetta sé hluti af prógrammi lífsins
og er þakklátur fyrir að fá að taka
þátt í þessu með honum. Ég er
þakklátur fyrir að eiga möguleika á
því, og þetta er kafli í minni og okk-
ar lífsins bók sem ég hefði ekki vilj-
að missa af.“
Léttleiki, gleði og góður andi
Gunnar Már er því hluti af ís-
lenska hópnum í ólympíuþorpinu í
Tókýó og kveðst afar ánægður með
andann sem þar ríkir og telur hann
geta hjálpað Má til þess að ná
markmiðum sínum á Ólympíu-
mótinu.
„Ég upplifi afar sterkt að hér
ríkja léttleiki og gleði í miklum
mæli, bæði þegar við komum til
Tama og svo hérna í ólympíu-
þorpinu. Gleðistemningin ræður
ríkjum og þetta er einmitt það sem
ég óskaði að myndi gerast. Þetta er
þægileg tilfinning, það er góður
andi í hópnum, fólk grínast og hlær.
Krakkarnir eru glaðir og lifandi
þrátt fyrir sérstakar aðstæður og
þetta skiptir svo miklu máli.“
Fullur tilhlökkunar
„Ég hef mikla trú á því að gleðin
og léttleikinn hjálpi Mása til að
halda sínu striki og hann geti synt
áfram sitt mjúka sund. Þá er hann í
mjög sterkri stöðu til að fljóta vel
og hratt í vatninu. Þetta er einfald-
lega þannig að þegar Már er mjúk-
ur og lætur ekki utanaðkomandi
áhrif hækka spennustigið, nær hann
þessum fínu tökum sem hann er svo
góður í og rennslinu sem skiptir svo
ótrúlega miklu máli. ef léttleikinn er
allsráðandi og allt er sultuslakt, þá
geta ótrúlegustu hlutir gerst.
Ég er fullur tilhlökkunar að sjá
hans frammistöðu í lauginni þegar
að stóru dögunum kemur. Eftir all-
an þann undirbúning og alla þá
vinnu sem hann er búinn að leggja á
sig með þetta flotta þjálfarateymi í
kringum sig og allt þetta fólk sem
styður við bakið á honum. Þá hefur
það um leið ótrúlega góð áhrif á
hann að finna allar þessar mjúku
fallegu hugsanir sem honum berast
víðs vegar að.“
Sigurvegari nú þegar
„Hvað varðar niðurstöðu og út-
komu þegar upp úr lauginni er kom-
ið, þá get ég bara sagt það enn og
aftur að ef mýktin og léttleikinn eru
til staðar getur allt gerst. En fyrir
mér er hann sigurvegari nú þegar,
eins og allir þessir krakkar sem eru
hérna og hafa komist hingað, og ég
veit að þau munu öll gera sitt besta
til að ná sínum besta persónulega
árangri.
Fyrir mína parta þá finnst mér
það mikilvægast að þeim líði vel.
Allt fólkið sem vinnur hérna í kring-
um þessa krakka hefur sérstaklega
góða og þægilega áru og ég hef
tröllatrú á að það skipti mestu máli í
minningunni seinna meir þegar þau
líta til baka.
Það eru margir sem koma að
þessu, það er í mörg horn að líta, og
mér finnst aðdáunarvert hvað fólkið
í hópnum er samstiga um að klára
þetta verkefni með bravör. En
mestu máli skiptir, finnst mér, þeg-
ar á svona stórt mót er komið, að
öllum líði vel, það sé góður andi og
spennustigið sé ekki of hátt. Ég geri
alla vega mitt besta til að gefa af
mér til krakkanna, sér í lagi til Más.
Það er mitt hlutverk,“ sagði Gunnar
Már Másson.
„Hluti af prógrammi lífsins“
Ljósmynd/ÍF
Tilbúnir Már Gunnarsson og Gunnar Már Másson eru ánægðir með aðstæður og umhverfi í Tókýó. Már keppir í sinni fyrstu grein á Ólympíumótinu, 50
metra skriðsundi, laust eftir miðnættið í nótt, en aðalgrein hans, 100 metra baksund í flokki blindra, er á dagskrá sólarhring síðar.
- Gunnar Már Másson er „bankari“ hjá Má syni sínum á Ólympíumóti fatlaðra sem er hafið í Tókýó
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
HONDA - JAZZ – RN. 331310
Nýskráður 5/2014, ekinn 96 þ.km., bensín, brúnn,
sjálfskipting, hraðastillir, loftkæling, álfelgur, usb
tengi, stöðugleikakerfi, litað gler, hiti í sætum.
Verð 1.490.000 kr.
TOYOTA - RAV4 HYBRID – RN. 331504
Nýskráður 10/2018, ekinn 162 þ.km., bensín/
rafmagn, hvítur, sjálfskipting, stöðugleikakerfi,
bluetooth, bakkmyndavél, litað gler.
Verð 3.790.000 kr.
PEUGEOT - 3008 HYBRID 300 HP – RN. 331494
Nýskráður 6/2020, ekinn 14 þ.km., bensín/rafmagn,
steingrár, sjálfskipting, litað gler, stöðugleikakerfi,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar, bluetooth, GPS.
Verð 6.490.000 kr.
TOYOTA - RAV4 STYLE HYBRID – RN. 340448
Nýskráður 12/2020 (2021), ekinn 4 þ.km.,
bensín/rafmagn, blár, sjálfskiptur, bakkmyndavél,
hiti í sætum og framrúðu, bluetooth, glertopplúga.
Verð 7.490.000 kr.
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel
Sími 555 3100 www.donna.is
dreifingHeildsölu
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma