Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 20

Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 20
VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég var bara mánaðargömul þeg- ar Víetnamarnir komu og yfirtóku borgina og við þurftum bara að flýja,“ segir Danith Chan, sem samkvæmt þjóðskráningu er eini núverandi ríkisborgari Íslands sem fæddur er í Kambódíu, en hún kom í heiminn í höfuðborginni Phnom Penh, í ógnarríki Pols Pots og kommúnísku skæruliðahreyf- ingarinnar Rauðu khmeranna, 6. desember 1978, á lokametrum veldis Pots, sem breytti tímatalinu í árið núll við valdatöku khmer- anna árið 1975, bannaði öll erlend áhrif og erlend tungumál og bar að lokum ábyrgð á dauða fjórð- ungs kambódísku þjóðarinnar, meðal annars á hinum alræmdu „ökrum dauðans“, hrísgrjóna- ökrum þar sem íbúum landsins var þrælað út með skelfilegum af- leiðingum. Danith, sem við nefnum fornafni hér að íslenskum sið, enda talar hún lýtalausa íslensku og býr í Mosfellsbæ, lifði nákvæmlega síð- asta mánuðinn af valdatíma Rauðu khmeranna áður en Víetnamar réðust inn í Kambódíu á jóladag 1978 og nýttu sér þar styrk og stuðning Sovétríkjanna sálugu. Steyptu þeir Pol Pot af stóli í byrjun nýs árs. Stráfelldu Kambódíumenn Sú innrás var svo blóðug, að Danith segir hörmungar, sem fyr- ir hafi verið skelfilegar, í raun hafa orðið enn verri. „Phnom Penh tæmdist bara, allir þurftu að flýja. Fólk hljóp út úr borginni í hópum, ég man auðvitað ekkert eftir þessu,“ segir Danith, sem var nýfædd þegar Víetnamar komu og stráfelldu Kambódíumenn. „Mamma var bara með mig í fang- inu. Fólk forðaði sér inn í frum- skóginn og margir urðu að henda börnum sínum frá sér, inni í skóg- inum mátti ekki heyrast barns- grátur, þá komu Víetnamarnir og murkuðu lífið úr öllum hópnum, þar sem voru vopnlausir og ósjálf- bjarga Kambódíumenn,“ segir hún frá. „Þetta var í raun bara landtaka, sem lítið hefur verið fjallað um síðan, enda voru það Víetnamarnir sem skrifuðu söguna. Sumir náðu að flýja til Malasíu á bátum, en aðrir voru drepnir við ströndina þar. Flestir flúðu til Taílands, tóku lestir eða fóru hreinlega fót- gangandi gegnum frumskóga og fen, sem var erfitt og stór- hættulegt ferðalag. Síðar byggð- ust flóttamannabúðir upp í Suður- Taílandi, en það tók tíma, alþjóða- samfélagið var lengi að semja við Taílendinga um að opna búðirnar. Þetta varð til þess að hvort tveggja Taílendingum og Víetnöm- um gafst tími til að stráfella fólk, sem var innikróað og hafði ekki til annarra saka unnið en að vera Kambódíumenn,“ segir Danith um mánuðina eftir að Víetnamar tóku Kambódíu. Afi og amma hurfu sporlaust Móðurforeldrar hennar voru efnafólk, lyfjaframleiðendur og lyfsalar í Kambódíu, áberandi í þarlendu viðskiptalífi. Þau hurfu sporlaust í stjórnartíð Pols Pots ásamt yngstu dóttur sinni í kjölfar þess að hafa verið svipt öllum eignum sínum og fyrirtækjum. „Hafði þá móðurafi minn komið öllum öðrum börnum sínum fyrir erlendis, þar með talið móður minni. Sá tími var mjög sorglegur og erfiður þar sem margir af ætt- ingjum mínum dóu, hurfu og flúðu land. Það hefur aldrei verið og mun aldrei verða bætt,“ segir Danith um grimmileg örlög afa síns og ömmu og fleiri ættingja. Föðurafi hennar var Chan Your- an, hægri hönd Norodoms Sih- anouks, konungs Kambódíu, og gegndi stöðu sendiherra landsins. „Afi minn var skipaður sendiherra mjög ungur í Senegal. Þar ólst faðir minn upp. Því er ég komin úr stjórnmálafjölskyldu bæði í föð- urætt og móðurætt, af fólki í við- skiptum, sem tengdist beint at- vinnulífi Kambódíu og víðar,“ segir hún frá. Tók lagið fyrir ráðherra Fyrir valdatöku Rauðu khmer- anna árið 1975 stundaði móðir Danithar nám í París, þar sem afi hennar hafði einnig á yngri árum setið á skólabekk og áður en hann var skipaður sendiherra. Youran starfaði náið með Sihanouk kon- ungi, hvort tveggja áður en honum var steypt af stóli um 1979 og eft- ir að hann tók við konungstign á ný árið 1993. Afi Danithar fór þá með stjórn samninganefndar, sem hafði það hlutverk að semja um krýningu Sihanouks er hann tók við landinu öðru sinni. Árið 1985 heimsótti Sihanouk Ísland og hefur Danith skemmti- lega sögu að segja af þeirri heim- sókn. „Á sínum tíma fór Sihanouk víða um heim til að berjast fyrir sjálfstæði þjóðar sinnar og kom af því tilefni til Íslands í september- mánuði 1985. Hann tók þá meðal annars lagið í Ráðherrabústaðnum fyrir Ragnhildi Helgadóttur, þá starfandi utanríkisráðherra, en hún hélt þar veislu honum til heið- urs. Í móttökunefndinni var meðal annarra Ólafur Egilsson, sendi- herra og góður fjölskylduvinur okkar,“ segir Danith af konungs- heimsókninni og færir sig yfir í enn magnaðri frásögn. Hittust í fyrsta sinn á flótta „Í kringum mitt ár 1979 voru fjölmargir Kambódíumenn komnir í flóttamannabúðir í Taílandi. Árið 1982 var föðurafi minn á ferðalagi sem sendiherra Kambódíu, þá með aðsetur í Egyptalandi. Hann var í Taílandi til að kanna aðstöðu fólks í flóttamannabúðunum á landa- mærum Kambódíu og Taílands. Á þessum tímapunkti vissi hann ekki að fyrsta barnabarn hans var í þessum flóttamannabúðum og þarna hittumst við ásamt móður minni,“ segir Danith, en raunar var það þó svo, í ringulreiðinni í kjölfar innrásar Víetnama nokkr- um árum fyrr, að afi hennar vissi ekki enn þá af tilvist hennar yfir- höfuð. Þau hittust í fyrsta skipti fyrir tilviljun á flótta. „Afi vissi ekki að ég væri til fyrr en 1979, þá hittumst við í fyrsta sinn í lestinni til Taílands þegar við vorum að flýja Phnom Penh. Þá fyrst komst hann að því að hann væri orðinn afi þegar hann hitti dóttur sína fyrir hreina tilviljun í lest á flótta undan Víet- nömum. Hann dó í fyrra, en rifjaði þetta augnablik sífellt upp við mig, hvernig hann gæti ekki gleymt þessum fyrstu kynnum okkar í lestinni,“ segir Danith. Þegar hann svo rakst á barna- barn sitt á nýjan leik í flótta- mannabúðum í Taílandi árið 1982 tók hann þá skiljanlegu ákvörðun að taka Danith með sér þaðan. „Hann fór þá með mig til Egypta- lands, foreldrar mínir voru þá sendir í nám. Frá 1982 elst ég því upp í Kaíró í Egyptalandi hjá ömmu og afa,“ segir Danith af tímanum eftir að hún losnaði úr flóttamannabúðunum og föðurafi hennar var orðinn sendiherra í Egyptalandi. Sihanouk eins og annar afi „Þaðan á ég yndislegar minn- ingar. Árið 2010 heimsótti ég gamla sendiráðið þar með dætrum mínum og fjölskyldu. Stuttu síðar braust þar út borgarastyrjöld, en það er önnur saga,“ bætir hún við. Danith fylgdi afa sínum svo til Peking í Kína þegar hann tók við stöðu sendiherra þar. Hóf hún þar nám í sex ára bekk í pakist- önskum einkaskóla þar sem kennslan fór fram á ensku. „Frá 1975 til 1985, þegar ég er að byrja í skólanum, var Sihanouk í útlegð í Kína, en Kínastjórn, hvort tveggja Mao Zedong [leiðtogi Kín- „Afi vissi ekki að ég væri til“ - Fæddist í ógnarríki Rauðu khmeranna í Kambódíu - Fólk þurfti að kasta börnum sínum frá sér í skóginum - Hitti afa sinn í flóttamannabúðum í Taílandi - Feimnismál að byrja að tala íslenskuna Víðförul Danith Chan hefur farið víða um ævina síðan hún kom í heiminn í Phnom Penh í valdatíð Pols Pots og Rauðu khmeranna á ofanverðu ári 1978. 20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.