Morgunblaðið - 26.08.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.08.2021, Qupperneq 29
FRÉTTIR 29Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 um. Sílinu var haldið niðri af síðbún- um blóma en í núverandi ástandi fjölgar ljósátu mjög og hefur keyrt upp ungaframleiðsluna í Eyjum frá 2017. Það eru þessar tvær tegundir sem lundinn er að bera í pysjuna. Hefðbundið pysjutímabil er ágústmánuður en undanfarin ár hef- ur hann byrjað tveimur til þremur vikum seinna og náði að teygjast fram í nóvember árið 2015. Í ár er hann kominn í gamla horfið. „Stóra spurningin er, heldur þetta áfram, og fer aftur í gamla kerfið með sílið í aðalhlutverki? Það verður að segjast eins og er, að vitum ekki af hverju þessi seinkun varð á blómanum. Það þarf að rannsaka betur því þetta virðist ekki hafa gerst áður í þau 130 ár sem við höfum gögn um,“ sagði Erpur. Lundakarlar bjartsýnir Lundakarlar sem Morgunblaðið talaði við segja mikið af lunda og æti virðist vera nægt. „Mikið var að sjá í byrjun sumars á Heimakletti sem ég geng reglulega á en um mitt sumar var lítið að sjá. Í águst kom hann aft- ur og allt var hvítt af fugli í Bjarnar- ey um miðjan ágúst. Þá heyrði mað- ur að sjórinn í kringum Eyjar hefði verið svartur af fugli í sumar,“ sagði Pétur Steingrímsson Bjarnar- eyingur. „Við erum sammála um það fé- lagarnir að aldrei hefði sést eins mikill lundi í Suðurey og þegar við skruppum þangað um daginn. Eyjan var eins og ein lundahola,“ sagði Stefán Geir Gunnarsson, Suður- eyingur og áhugaljósmyndari. Lundaveiði var leyfð í Vest- mannaeyjum í níu daga í ár, frá 7. til 15. ágúst. Leyfi sem fáir nýttu því lundakarlar hafa látið lundann njóta vafans. Lundakarlar í Brandinum, svokallaðir Brandarar, stefna á lundaball í lok september og kemur lundinn úr Grímsey. Ljósmynd/Stefán Geir Lending Lundi kemur svífandi úr háloftunum og sest síðan á syllu sína. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Mælingar Valgerður Erla Óskarsdóttir og Brynjólfur Ásgeir Brynjólfsson, úr Reykjavík, að- stoða hér krakkana sína, Malín Erlu og Kára Kristin, við mælingar á einni pysjunni. Ljósmynd/Stefán Geir Vængjasláttur Sílisfugl með æti. Næg fæða skilar góðri viðkomu. Ljósmynd/Stefán Geir Lundavarp Lundar á flugi að kvöldlagi en stofninn er sterkur þetta árið. „Mikil gleði hefur ávallt einkennt pysjueftirlitið sem tók til starfa árið 2003 og er það alltaf einn af há- punktum ársins. Það einkennist af lífi og fjöri og ákveð- inn vertíðarbragur yfir því,“ segja þær Gígja Ósk- arsdóttir og Margrét Lilja Magnúsdóttir. Þær tóku á móti krökkum og pysjum og mældu þangað til í fyrra að pysjueftirlitið varð rafrænt vegna Covid-19 og fór á vef- síðuna lundi.is. „Skráningin hefur gengið vel og er í raun auðveldari á margan hátt, bæði fyrir okkur velunnarana sem og björgunarfólkið sem er þá ekki háð opnunartíma eft- irlitsins. Auðvitað mun taka smá tíma fyrir alla að átta sig á breyttu sniði, en á hverju tímabili sækir okkur fjöldi fólks heim, Eyjamenn og gestir ofan af landi, allir til að aðstoða við pysjubjörgun. Um tíma var óttast að pysjutíminn væri að líða undir lok, sbr. að árið 2010 komu aðeins tíu pysjur í eftirlitið og voru árin þar um kring mjög slök. „Því var svo frá- bært að sjá fjöldann fara upp aftur en árin 2019 og 2020 voru pysjurnar um 7.600. Þær eru reyndar nokkru færri í ár en á móti kemur að þær hafa aldrei verið eins þungar. Annar mjög jákvæður punktur í ár er að mjög lítið hefur verið um slasaðar, olíublautar og dúnaðar pysjur sem hafa þurft á aðstoð frá okkur að halda en það hefur verið eitt af mikilvægum hlut- verkum pysjueftirlitins að taka á móti þeim,“ segja þær stöllur. Fleiri pysjur sem hafa aldrei verið þyngri PYSJUTÍMINN SKEMMTILEGUR OG EINN AF HÁPUNKTUM ÁRSINS Í EYJUM Pysjueftirlitið Gígja Óskarsdóttir og Margrét Lilja Magn- úsdóttir, t.h., huga að fuglum og eru í mikilvægu hlutverki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.