Morgunblaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 35
FRÉTTIR 35Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Bandaríska varnarmálaráðuneytið áætlaði í gær að enn biðu um 10.000 manns þess á alþjóðaflugvellinum í Kabúl að vera fluttir brott frá Afgan- istan, en að mögulega myndi fjölga í þeim hópi eftir því sem fleiri Afganar reyna nú að koma sér undan yfirráð- um talíbana áður en það verður um seinan. Joe Biden Bandaríkjaforseti stað- festi í fyrrinótt að hann hygðist standa við heit sitt um að allir banda- rískir hermenn myndu yfirgefa land- ið 31. ágúst næstkomandi, þrátt fyrir að helstu bandamenn hans í Evrópu hafi sagst þurfa lengri tíma til þess að ljúka brottflutningi þeirra sem séu í hættu. Hyggjast flest vestur- veldanna ætla að setja aukinn kraft í flutninga sína á næstu dögum. Biden sagði í sjónvarpsávarpi sínu að góður gangur hefði verið í flutn- ingunum síðustu daga, og að allt stefndi í að verkefninu yrði lokið fyr- ir næstu mánaðamót. Nú þegar hafa rúmlega 80.000 manns náð að flýja land, þar af voru rúmlega 18.400 fluttir úr landi í fyrradag. Vestræn ríki hafa reynt að fá sam- þykki talíbana fyrir því að hafa her- lið lengur svo ljúka mætti brottflutn- ingi allra en þeir hafa ekki viljað ljá máls á því. Markus Potzel, sendi- herra Þýskalands í Afganistan, sagði hins vegar í gær að talíbanar hefðu fullvissað sig um að þeir Afganar sem hefðu „lögleg skilríki“ myndu fá að ferðast með almennu farþegaflugi frá landinu eftir 31. ágúst. Talíbanar hafa hins vegar einnig verið sakaðir um að hafa reynt að tálma för afganskra ríkisborgara til alþjóðaflugvallarins í Kabúl. Talíb- anar ráða þar yfir inngangnum að flugstöðvarbyggingunni sem er á suðurhlið hans, á meðan vestræn ríki hafa haldið norðurhliðinni, þar sem herflug hefur haft miðstöð, opinni. Fólksflóttinn frá Afganistan á ekki síst rætur sínar í ótta við að ta- líbanar muni aftur viðhalda svipaðri kúgun og þegar þeir réðu yfir land- inu á tíunda áratugnum. Eru það því ekki síst konur, sem reyna nú að yf- irgefa landið, en þeim var meinað að mennta sig og að vinna. Mexíkó tók í gær við 130 flótta- mönnum, þar á meðal voru blaða- menn og lið fimm kvenna sem vöktu athygli árið 2017 fyrir þátttöku sína í alþjóðlegri vélmennakeppni, þar sem þær fengu ekki landvistarleyfi í Bandaríkjunum fyrr en Donald Trump, þáverandi forseti, skarst í leikinn. Þá tóku Ástralar á móti rúm- lega 75 knattspyrnukonum, dómur- um og fjölskyldum þeirra. Angela Merkel Þýskalandskansl- ari sagði í gær að alþjóðasamfélagið yrði að halda uppi viðræðum við ta- líbana og reyna þannig að vernda þá framþróun sem orðið hefði á síðustu 20 árum. „Markmið okkar verður að verja eins mikið af því sem við náð- um fram og við getum.“ AFP Farin burt Flóttamenn frá Afganistan stíga hér frá borði á herflugvelli í nágrenni Madrid, höfuðborgar Spánar. Um 10.000 manns sem bíða - Rúmlega 80.000 manns hafa flúið Afganistan frá því talíbanar tóku völdin - Sagðir meina Afgönum að komast til flugvallarins - Merkel hvetur til viðræðna 1 km 200 km Heimild: Copernicus Sentinel-2 gervihnötturinn, 4. ágúst 1 km Alþjóðaflugvöllurinn í Kabúl Herflug Borgaralegt flug Flugstöðvar- byggingin K A B Ú L KABÚL AFGANISTAN PAKISTAN KABÚL Alþjóða- flugvöllurinn Sendiráð BNA Forsetahöllin Háskólinn Þinghúsið Spencer Elden, sem birtist sem kornabarn á umslagi hljómplöt- unnar Nevermind, hefur kært hljómsveitina Nirvana fyrir að hafa dreift barnaklámi af sér. Elden var fjögurra mánaða gamall þegar tek- in var mynd af honum kviknöktum á kafi í sundlaug, að teygja sig eftir dollaraseðli á öngli. Umslagið er eitt hið þekktasta í tónlistarsög- unni, en Nevermind-platan hefur selst í 30 milljónum eintaka frá því að hún kom út árið 1991. Í kærunni segir að hvorki Elder né forráðamenn hans hafi veitt heimild fyrir notkun myndarinnar, og að hann hafi aldrei fengið neina þóknun fyrir. Þá hafi hann orðið fyrir tilfinningalegum skaða vegna myndatökunnar, og hún valdið hon- um fjárhagstjóni. Krefst hann 150.000 bandaríkjadala skaðabóta frá 15 mismunandi sakborningum, en þeirra á meðal eru ljósmynd- arinn Kirk Weddle, dánarbú Kurts Cobains, og Dave Grohl og Krist Novoselic, eftirlifandi meðlimir sveitarinnar. BANDARÍKIN Nevermind Umslagið er eitt hið þekkt- asta í tónlistarsögu seinni tíma. Kærir Nirvana fyrir plötuumslagið fræga Arababandalagið, Samtök um ísl- amska samvinnu og Sádi-Arabía kölluðu í gær eftir viðræðum á milli nágrannaríkjanna Alsírs og Mar- okkó til að leysa ágreining þeirra, en stjórnvöld í Alsír lýstu því yfir á þriðjudaginn að þau hefðu slitið stjórnmálasambandi við Marokkó vegna „fjandsamlegra aðgerða“. Ríkin hafa elt grátt silfur saman um nokkra hríð, m.a. vegna yfir- ráða Marokkó yfir Vestur-Sahara, sem og vegna viðurkenningar Mar- okkó á Ísraelsríki. ALSÍR Vilja viðræður milli nágrannaríkjanna Engar niðurstöður um uppruna kór- ónuveirunnar er að finna í nýrri skýrslu, sem bandarískar leyniþjón- ustustofnanir sömdu að beiðni Joes Bidens Bandaríkjaforseta og af- hentu Hvíta húsinu á þriðjudaginn. Bandarískir fjölmiðlar greindu frá skýrslunni í gær, en hún hefur ekki enn verið gerð opinber. Heimildar- menn, sem kunnugir eru efni henn- ar, sögðu hins vegar við Washington Post að það skorti frekari upplýsing- ar frá Kínverjum til þess að hægt sé að fullyrða hvort kórónuveiran hafi borist úr dýrum í menn, eða hvort hún hafi „lekið“ af rannsóknarstofu í Wuhan-borg. Biden óskaði eftir skýrslunni fyrir 90 dögum, en hann sagði þá að njósnastofnanir Bandaríkjanna væru ekki sammála um hvor skýr- ingin væri líklegri. Heimildarmenn- irnir sögðu að hluti hennar yrði mögulega gerður opinber á næstu dögum. Kínverjar hafa brugðist illa við öll- um ásökunum þess efnis að kórónu- veiran hafi á einhvern hátt lekið frá veirurannsóknarstofunni í Wuhan. Kröfðust þeir þess í gær að Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin WHO myndi rannsaka lífrannsóknastofu Bandaríkjahers í Detrick-virki, en höfnuðu því að rannsókn WHO á uppruna veirunnar í Kína fengi að halda áfram. Fu Cong, yfirmaður afvopnunar- mála hjá kínverska utanríkisráðu- neytinu, sagði að ef Bandaríkjamenn vildu ásaka Kínverja að tilefnislausu yrðu þeir að sætta sig við gagnásak- anir. Sagði Cong að það væri Banda- ríkjamanna að setja fram sönnunar- gögn fyrir ásökunum sínum. Skortir upplýs- ingar frá Kína - Engin svör í nýrri Covid-skýrslu AFP Wuhan Teymi WHO heimsótti rann- sóknarstofuna í Wuhan í janúar. TAKTU HAUSTIÐ HEIM Í HÚS KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.