Morgunblaðið - 26.08.2021, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.08.2021, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Heilbrigð- iskerfið var til umræðu á áhugaverðum fundi Samtaka at- vinnulífsins (SA) sem haldinn var í gær. Heilbrigðis- kerfið er meðal þess sem helst er til umræðu í þeirri kosninga- baráttu sem rétt er að hefjast, en að sögn Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, framkvæmda- stjóra SA, er tilefni fundarins ekki komandi kosningar heldur hafi verið unnið lengi að þessum málum innan SA. Hugmyndin hafi verið að kynna hvernig SA sjái heilbrigðiskerfið til fram- tíðar og í því sambandi hafi verið horft til annarra landa, meðal annars til Norðurlandanna, til að draga lærdóm af því sem best gerist. Það veitir ekki af að beina sjónum að heilbrigðiskerfinu ís- lenska. Þar er margt vel gert og starfsfólk heilbrigðiskerfisins vinnur mikið og gott verk, um það eru flestir þeir sem sækja þurfa þjónustu til þessa kerfis, meðal annars til Landspítalans, sammála. Þetta breytir því ekki að nauðsynlegt er að skoða kerf- ið og það þolir ekki mikla bið þó að því hafi verið haldið fram að nú sé ekki heppilegur tími til þess. Það skiptir máli að hugað sé að þessu nú en ekki síðar því að staðreyndin er sú að Íslendingar eru tiltölulega ung þjóð en við eldumst hratt og innan fárra ára verður mun þyngra fyrir fæti að halda úti öflugu heilbrigð- iskerfi nema betur takist til í rekstri með vaxandi framleiðni. Í máli Halldórs Benjamíns á fundinum í gær kom fram að í fyrra hafi 4,11 einstaklingar á aldrinum 20-64 ára staðið að baki hverjum þeirra sem væri 65 ára eða eldri. Eftir áratug yrði hlutfallið komið niður í 3,20 og árið 2060 væru aðeins 2,00 úr yngri hópnum að baki hverjum þeirra sem eldri væru. Þessar tölur sýna afar skýrt að rekstur heilbrigðiskerfisins og velferðarkerfisins alls mun þyngjast hratt á næstu árum. Þetta felur einnig í sér að þeir sem starfa innan kerfisins ættu að fagna umræðum um kerfið og hvernig megi mögulega bæta það. Vonandi verður fundi SA og því sem þar var kynnt tekið á þann hátt, en allt of algengt er að innan kerfisins kveinki menn sér undan umræðunni og beiti sér jafnvel fyrir því að gera um- ræður sem torveldastar og upp- lýsingagjöf sem minnsta og jafnvel villandi. Þetta háttalag er ekki til þess fallið að auðvelda nauðsynlegar umbætur á kerf- inu. Ræða verður um það sem betur má fara í heilbrigðiskerfinu en reyna ekki að hindra umræður} Nauðsynlegar umræður Margar af helstu frétta- stofum Bandaríkj- anna og virt „stór- blöð“ létu í aðdraganda kosn- inga á sl. ári eins og þau hefðu engar at- hugasemdir heyrt um kjall- araþáttinn í Delawere. Það kemur í bakið á þeim núna. Fréttastofurnar létu eins og Biden, þá forseti, hefði ekki fallið í þrígang flatur á leið í forsetavélina. Seinast var hálmstráið að gola á staðnum hefði verið rok sem feykti for- setanum um koll. Fáránleiki þessa var augljós, og hitt að ör- yggissveitir forsetans biðu ró- legar á vellinum á meðan for- setinn paufaðist upp í „óveðrinu!“ Enginn fréttahaukanna sagði frá fjölda dæma um að fram- bjóðandinn vissi ekki hvar hann var staddur og ekki í hvað framboði hann var! Allt þetta kemur þeim í koll núna. Veru- leikinn verður ekki falinn leng- ur og veldur handlöngurum for- setans vaxandi vandræðum. Þeir leggja á flótta með hann sem er ömurlegt. Þetta var raunar gert við Wilson forseta fyrir rúmri öld, en það voru aðrir tímar. Í þingræðis- löndum eins og okkar eða t.d. Bret- landi geta kjörnir fulltrúar gengið að æðsta handhafa framkvæmdavalds- ins í hverri viku á meðan þing situr. Enginn, af tæplega 600 þingmönnum í báðum þing- deildum í Washington, getur spurt forseta landsins út úr. Hann mætir þar nokkrum sinn- um á kjörtímabili og les upp skýrslu af rafspjöldum og eng- ar umræður eru um hana. Fjölmiðlar eiga að tryggja aðhaldið gagnvart forsetanum. Nú er þess gætt í Hvíta húsinu hver fær að spyrja forsetann einhvers, sem er sjaldgæft. Forsetinn þarf iðulega að grípa í spjöld sín þótt hinir örfáu spyrjendur séu af hliðhollum spyrjendum. Í Afganistan- fárinu hafa áhorfendur flutt sig í milljónavís frá fyrrnefndum fjölmiðlum yfir á FOX sem handlangarar forsetans hata. Aðrir fjölmiðlar, og eigendur þeirra, óttast þessa þróun. Þeir sjá að yfirhylmingin er að verða óvinnandi verk. Fylgið hrynur af Biden og demókrötum. Þetta heldur ekki lengur. Það er dapurlegt og ósvífið í senn að láta forseta Bandaríkj- anna niðurlægja sig og eigin þjóð} Feluleikurinn á enda R íkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem nú situr var mynduð þvert á hið pólítíska svið, frá vinstri til hægri. Ríkisstjórnin hafði skýra sýn um uppbyggingu velferðar- kerfisins og umbætur á mörgum sviðum sem hefðu það markmið að á Íslandi yrði gott að lifa, fyrir unga sem aldna. Þegar litið er yfir kjörtímabilið sem nú er að renna sitt skeið getum við í Vinstrihreyf- ingunni – grænu framboði verið stolt af ár- angri ríkisstjórnarinnar. Verkefni sem unnið hefur verið að og kláruð á tímabilinu endur- spegla vel grunnstoðirnar í stefnu VG; um- hverfisvernd, kvenfrelsi, alþjóðlega friðar- hyggju og félagslegt réttlæti og eru til þess fallnar að byggja hér upp gott samfélag, þar sem jöfnuður ríkir. Mig langar til að nefna nokkur verkefni sem hafa verið unnin á kjörtímabilinu. Í heilbrigðismálum hefur heilbrigðisstefna verið sam- þykkt, 140 ný hjúkrunarrými verið byggð og aðstaða bætt í enn fleirum, greiðsluþátttaka sjúklinga hefur ver- ið lækkuð verulega, framlög til heilsugæslunnar aukin um 25% og framkvæmdir fjármagnaðar og hafnar við nýtt þjóðarsjúkrahús. Í jafnréttismálum má nefna að ný löggjöf um þung- unarrof, sem ég lagði fram á Alþingi, var samþykkt, en lögin tryggja sjálfsforræði og sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama. Einnig má nefna aukna niður- greiðslu á hormónagetnaðarvörnum og þá breytingu sem gerð hefur verið að hjúkrunarfræðingar og ljós- mæður mega núna skrifa upp á getnaðar- varnarlyf. Réttur til að skilgreina eigið kyn hefur verið tryggður með nýjum lögum um kynrænt sjálfræði og fæðingarorlof lengt úr níu mánuðum í heilt ár. Lögð hefur verið áhersla á umhverfismál á kjörtímabilinu. Stórátak var gert í friðlýs- ingum svæða, fyrsta fjármagnaða aðgerða- áætlunin gegn loftslagsvánni unnin og Lofts- lagsráð og Loftslagssjóður stofnuð. Innleiðing hringrásarhagkerfisins hófst af krafti, m.a. með breytingum á lögum um úr- gangsmál og hringrásarhagkerfi sett af stað. Mikilvægar aðgerðir í lýðræðismálum hafa orðið að veruleika á tímabilinu. Löggjafar-, fjárstjórnar- og eftirlitshlutverk Alþingis hefur verið styrkt á kjörtímabilinu með aukn- um stuðningi við nefndarstarf og þingflokka, skattrannsóknir efldar og mörk sett á eignarhald á landi með nýjum jarðalögum, svo nokkur dæmi séu tekin. Ef við ræðum velferðarmál sérstaklega þá má nefna að hlutdeildarlán fyrir nýtt fólk á húsnæðismarkaði voru sett á, en þau geta hjálpað tekjulágum fyrstu kaup- endum að ná kröfu um fyrstu útborgun, 35% lækkun á skerðingu örorkulífeyrisþega gagnvart atvinnutekjum varð, 75.000 kr. hækkun á frítekjumarki aldraðra og 35% hækkun grunnatvinnuleysisbóta á tímabilinu. Ríkisstjórn sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð leiðir er besta mögulega ríkisstjórnin, fyrir samfélagið allt. Veljum Vinstri græn. Svandís Svavarsdóttir Pistill Við lok kjörtímabils Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is S ala á hraðprófum við kór- ónuveirunni er þegar hafin á nokkrum stöðum og fer vel af stað samkvæmt upp- lýsingum frá seljendum. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra heimilaði í vikunni sölu á prófunum. „Miðað við þann fjölda fyrir- spurna sem við höfum fengið frá fé- lagsmönnum okkar í mismunandi greinum þá er alveg dagljóst að það er mikill áhugi á að bjóða þessa þjónustu víða í fyrirtækjum,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmda- stjóri Samtaka verslunar og þjón- ustu. „Við sjáum það í hendi okkar að þetta muni hjálpa til við að koma á eðlilegu ástandi í samfélaginu. Hrað- prófin munu til dæmis gagnast fólki þegar það er að fara í fermingar- veislur, brúðkaup eða leikhús, það hlýtur að vera af hinu góða að sam- félagið fari að virka á eðlilegan hátt á ný,“ segir hann. Víða erlendis hafa stjórnvöld útdeilt slíkum hraðprófum eða nið- urgreitt þau. Andrés segir að- spurður að hann eigi ekki von á því að svo verði hér. „Ég sé það ekki gerast. Stjórnvöld hafa verið í nánu samstarfi við atvinnulífið og hafa leitt fyrirtækin í gegnum þennan skafl. Ég held að það sé ekki nein stemning fyrir því að ríkið komi að þessum prófum. Aðalatriðið er að það verði nægilega margir sem bjóði upp á þessi próf svo samkeppnin verði eðlileg.“ Tvenns konar próf eru þegar komin á markað, próf sem greind eru úr munnvatnssýni og próf sem tekið er með stroku úr nefi. Sec- uritas selur munnvatnspróf sem skilar niðurstöðum á 15 mínútum og er sagt vera með 97% öryggi. Þau eru seld 20 saman í pakka sem kost- ar 36.600 eða 1.830 krónur hvert próf. Pakkinn kostaði reyndar 45.750 krónur samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins í gærmorgun en verðið var lækkað eftir fyrirspurn Morgun- blaðsins. „Við einbeitum okkur fyrst og fremst að fyrirtækjum og seljum þetta í magnkaupum. Það hafa margir spurst fyrir um prófin og hugsa þetta kannski sem forvarn- argildi, ef fólk er að koma úr ferða- lögum eða eitthvað slíkt. Svo eru dæmi um að fólk taki próf á hverjum morgni ef um viðkvæma starfsemi er að ræða,“ segir Fannar Örn Þor- björnsson, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Securitas. Hann kveðst telja að næmni þessara prófa sé sambærileg við næmni stroku- prófa en mun þægilegri í notkun. „Þetta eru náttúrlega sjálfspróf og ég get ímyndað mér að margir muni ekki setja pinnann nógu langt upp í nefið, muni veigra sér við því.“ Strokupróf eru þegar komin í sölu hjá Lyfsalanum. Þar eru þau seld í stykkjatali og kostar hvert þeirra 990 krónur. Á vef apótekanna er fólk hvatt til að fylgja leiðbein- ingum um það hversu langt upp í nef pinninn þarf að fara. Hjá Lyfju fara hraðprófin í sölu á næstu dögum að sögn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur fram- kvæmdastjóra. Fyrst um sinn verð- ur boðið upp á próf þar sem sýni er tekið úr nefholi. „Við teljum að það sé áreiðanlegri kostur,“ segir hún. Verð prófanna verður undir þúsund krónum. Þau verða seld í stykkjatali og fimm saman í kassa. „Fólk þarf áfram að sinna per- sónubundnum sóttvörnum og fara í PCR-próf ef það er með einkenni. Þessi lausn getur hins vegar nýst mjög vel, til dæmis fyrir ein- staklinga sem eru að fara á hóp- fundi, viðburði eða að hitta ættingja sem eru í aukinni áhættu,“ segir Sig- ríður en hún segir líka nokkuð um áhuga hjá fyrirtækjum að geta boðið starfsfólki upp á próf. „Það getur dregið úr líkunum á að upp komi hópsmit ef í boði eru sjálfspróf sem framkvæmd eru á réttan hátt. Þetta verður eitt af þeim verkfærum sem við höfum til að geta lifað með veir- unni.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Próf Þessi hraðpróf við kórónuveirunni verða brátt komin í sölu í Lyfju. Hvert próf kostar undir þúsund krónum. Mikill áhugi fyrir hendi á hraðprófum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.