Morgunblaðið - 26.08.2021, Side 41

Morgunblaðið - 26.08.2021, Side 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 ur. Elsku dásamlega starfsfólkinu þínu, Þóra mín, sem var líklega þínir bestu vinir og elskaði þig svo mikið, sendi ég mínar hlýjustu kveðjur. Kveð þig með kveðjunni okkar – lofjú. Þín Jóna Dóra. Þóra Kristín var Hafnfirðing- ur, fædd og uppalin og bjó alla sína tíð í Hafnarfirði. Sannur Hafnfirðingur. En Þóra var einn- ig sannur dýravinur og þannig kynntumst við. Að vísu má segja að Guðmundur Örn, bróðir Þóru, hafi líka eitthvað komið að kynn- ingunni en sameiginlegt áhuga- mál okkar Þóru hefði eflaust leitt okkur saman hvort sem er. Hún hleypti mér og mínum hundum inn á heimilið sitt á Norðurbakk- anum og tók ávallt vel á móti okk- ur. Fyrst mætti ég með hann Krumma sem náði þeim glæsilega árangri að starfa sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum í nokkur ár. Hann var í miklu uppáhaldi hjá Þóru og naut góðs af. Salka, hundurinn hennar Þóru, varð stundum pínu öfundsjúk en Þóra tæklaði það ágætlega í þau skipti sem báðir hundarnir voru saman. Ákveðin en samt blíð náði hún góðum tökum á aðstæðum. Síðar átti svo næsti hundurinn minn eftir að fá jafn mikla ást frá henni Þóru og sá gamli. Og þrátt fyrir að sá hundur félli á prófinu hjá Rauða krossinum þá elskaði Þóra hann jafn mikið. Hló oft að honum og hjálpaði mér að ala hann upp með því að leyfa okkur að koma í heimsókn til sín á Norðurbakk- ann. Það að fá hvatningu og stuðning frá henni var afar dýr- mætt. Hún gaf góð ráð og stóð alltaf með vandræðagemlingnum sem er í dag orðinn fyrirmynd- arhundur. Ég sakna þess að geta ekki kíkt í heimsókn til Þóru á Norð- urbakkann þar sem tekið var á móti okkur með svo miklum kær- leika og vináttu. Ég sakna þess að eiga skemmtilegar umræður um uppáhaldsviðfangsefnið okkar beggja, dýr, þó mest pælingar um hunda. Ég sakna hlátursins og gleðinnar þegar við ræddum um hundana í hverfinu, Helenu fögru, Mirru, Galdur, Lunu og fleiri. Endalaust gátum við velt fyrir okkur þeirri gleði sem dýr geta veitt okkur mannfólkinu. Takk fyrir allar þær dásam- legu samverustundir sem við átt- um. Minning um sannan dýravin, Þóru Kristínu Bárðardóttur, mun lifa. Við vottum fjölskyldunni sam- úð okkar. María Birna Jónsdóttir og Baldur Þór Sveinsson. Sæl Þóra mín, mig langar að kasta á þig kveðju. Það sem er mér efst í huga er þakklæti. Þú valdir mig – þú ákvaðst að hafa mig inni í þínu lífi og ég var til’íða, eins og dægurskáldið sagði. Þú sýndir mér ávallt þínar bestu hlið- ar en ég veit vel að þær voru margar og ýmiskonar enda er það tilfellið hjá öllum, líka okkur hin- um sem lífið fer öllu mýkri hönd- um um. Það sem ég dáði helst í fari þínu var eiginleiki þinn til að spjalla. Þú kunnir að vera nógu forvitin til að spyrjast fyrir, þú kunnir að hæðast að manni en samt einhvern veginn á góðlegan og vinalegan máta, þú kunnir að hlæja hátt og vel, þú kunnir að segja sögur og finna skemmtileg- an flöt á annars leiðinlegum mál- um, þú kunnir að detta á dýptina og sýna samhug og nærgætni. Þú kunnir þetta allt svo vel að vand- fundið er annað eins. Ég sakna löngu símtalanna þinna, ég sakna þess að sjá ósvarað frá „Þóru K“ á skjánum, því þá settist ég iðu- lega í djúpan stól eftir háttatíma krakkanna, því ég vissi að þetta yrði langt og gott spjall sem ég vildi gefa mér góðan tíma í. Það var hefð hjá okkur að ég liti inn hjá þér á aðfangadag, svona þegar allt var að detta í ró og langur listinn annars útstrik- aður. Síðasta heimsókn mín verð- ur sú minnisstæðasta en þá sast þú og horfðir á minningarmynd- band móður þinnar og felldir tár. Þú sýndir mér annars aldrei þessa hlið en þarna kom undan- tekningin. Það var eitthvað öðru- vísi en áður, ætli þú hafir ekki verið farin að hugsa að tími væri kominn til að vitja hennar aftur, sem þú og svo gerðir aðeins nokkrum vikum seinna. Ég leyfi mér að ímynda mér það, að þetta hafi verið þinn rétti tími, þótt ég hefði kosið að njóta samverunnar lengur. Ég bið að heilsa ykkur báðum og þakka fyrir tímann okkar saman. Gunnar Helgi Gunnsteinsson. Elsku Þóra. Það er svo furðu- legt að koma ekki lengur á vakt til þín öll miðvikudagskvöld eins og ég hafði gert síðustu átta árin. Ég sem trúði því ekki þegar ég kom til þín á síðustu vaktina mína uppi á spítala, einmitt á miðvikudags- kvöldi, að það yrði mín síðasta vakt. Við vorum bæði tvö viss um að nú værir þú að hressast og byrj- uðum að djóka með hvað við ætl- uðum nú að panta okkur að borða þegar þú kæmir heim af spítalan- um. En veikindin þín voru erfið og þú varst held ég alveg tilbúin að fara til mömmu þinnar. Þú tal- aðir svo oft til hennar og saknaðir svo mikið. Þú lifðir í þrjá sólar- hringa eftir þessa síðustu sam- veru okkar. Við gátum nú heldur betur skemmt okkur á vöktum. Jólatón- listina, sem ég var alltaf að djóka í þér með, byrjaðir þú í október á hverju ári að spila. Þú varst nátt- úrlega mesta jólabarn í heimi. Ég var greinilega uppáhalds- starfsmaðurinn, eða var það ekki? Ég fékk allavega að fara með þér á alla tónleika og leikhúsferðir. Justin Bieber var klárlega hátind- urinn. Fengum alltaf bestu sætin alls staðar sem við fórum, ef það var eitthvert vesen þá fórst þú í málið og reddaðir hlutunum. Held að djammið sem við tvö fórum á í keiluhöllinni sé skemmtilegasta kvöldið okkar saman. Ekki allir sem fá að að dreypa á bjór í vinnunni í boði yfirmannsins. Þú auðvitað „drakkst mig und- ir borðið“ og talaðir um að ég væri nú bara slakur drykkjumað- ur. En ekki varstu mikið fyrir áfengið Þóra mín. Sagðir það ekki gott fyrir veikindi þín. Þú varst nefnilega mjög skynsöm. En það besta við okkar sam- band var hversu mikið traust var á milli okkar, við vorum svo góðir vinir, vinátta sem ég mun varð- veita allt mitt líf. Ég vil votta Bárði og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Takk fyrir allt elsku Þóra. Þinn vinur, Fannar. Elsku Þóra Kristín mín. Veit hreinlega ekki hvar ég á að byrja þegar kemur að þér elsku vin- kona. Þú sem kenndir mér svo margt, skammaðir mig eins og hund þegar ég átti það skilið og hrósaðir svo fallega þegar vel gekk, og knúsin þín sem voru svo þétt og góð. Þú vissir allt um börnin okkar Gústa, enda hafðirðu svo mikinn og einlægan áhuga á börnunum í þínu lífi, þú áttir svo mikið í þeim og varst þeim svo góð. Mér hefur alltaf þótt svo aðdáunarverður áhugi þinn á öllu fólki, hann var svo einlægur og hreinn og tær, eins og þú sjálf. Við fórum að vinna saman fyrst árið 2012 og með árunum varstu orðin eins og sjöunda barnið mitt eins og við grínuðumst svo oft með. Þetta var auðvitað miklu meira en bara einhver vinna, við vorum bestu vinkonur. Vinkonur sem gerðu hvor aðra vitlausa stundum en væntumþykjan alltaf svo sterk. Þú varst í huga mér flesta daga og núna þegar þú ert farin þá er ég hálftóm, og þú ert enn í huga mér alla daga. Ég veit ekki hvað ég á gera án þín elsku stelpan mín og sökn- uðurinn er mikill og sár. Þau voru erfið verkefnin sem þú fékkst oft á tíðum en hetjan sem þú varst sýndir aftur og aftur hversu ótrúlegur karakter þú varst, alltaf komstu manni á óvart. Það var því svo óviðbúið að síðustu veikindi myndu fara eins og fór, ég var svo viss um að þú stæðir upp og myndir rjúka heim á Norðurbakkann eins og í öll hin skiptin. Þessi heimur var ekki tilbúinn fyrir þig og baráttumálin svo mörg vegna þess, mörgu náðum við í gegn, öðru vorum við að vinna að, við vorum bara ekki al- veg búnar og það er sárt. Hafn- arfjarðarbæ á ég enn eftir að fyr- irgefa framkomuna við þig síðustu árin, það kemur kannski einn daginn. Það er sárt að sjá þig ekki á nýja bílnum sem var á leið til landsins og þú varst svo spennt að fá. En ég las einhvers staðar um daginn að hamingjan í lífinu er oft fólgin í tilhlökkun. Leiðin á áfangastaðinn er oft betri en loka- punkturinn. Og þar var enginn betri en þú, fallega þú lifðir lífinu þannig að það var alltaf eitthvað að hlakka til. Alltaf eitthvað næst á dagskrá. Ég mun taka þetta með mér áfram út lífið. Það er einhver huggun að þessi kroppur, sem var þér aldrei sér- staklega góður, hefur fengið frið, og að þú sem elskaðir hana mömmu þína svo heitt og sakn- aðir svo sárt ert komin í mömmu- fang aftur. Takk fyrir allt elsku hjartans Þóra mín og góða ferð. Koss á ennið – guð geymi þig. Þú verður í hjörtum okkar alla tíð. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til fjölskyldu, allra vin- anna, og samstarfsfólks okkar á Norðurbakkanum. Þín vinkona, Hildur Guðmundsdóttir. Að sigra heiminn er eins og að spila á spil eð spekingslegum svip og taka í nefið. (Og allt með glöðu geði er gjarna sett að veði.) Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til, því það er nefnilega vitlaust gefið. (Steinn Steinarr) Það er staðreynd að lífið færir okkur miserfiðar áskoranir til að takast á við. Þegar Þóru Kristínar er minnst er ómögulegt að líta fram hjá þeim áskorunum sem féllu í hennar hlut á lífsleiðinni. Uppeldisárin voru henni að mörgu leyti krefjandi og það tók langan tíma að finna lífi hennar réttan farveg. Það er erfitt hlut- skipti að glíma við fötlun og vera upp á aðra komin til að geta lifað eðlilegu og mannsæmandi lífi. Mótlætið sem Þóra hefur staðið frammi fyrir í gegnum lífsleiðina hefði dugað flestum margfalt en einhvern veginn tókst henni að yf- irstíga hverja hindrunina á fætur annarri með þrautseigju og æðru- leysi og standa uppi sem sigur- vegari. Þóra var enda alla tíð sterk, ákveðin og þrjósk kona sem lét engan vaða yfir sig. Inn við beinið var þó enginn ljúfari og ástríkari. Fyrir því fengu allir sem kynnt- ust Þóru að finna en ég efast þó um að nokkur hafi upplifað það jafn sterkt og Aníta Eik, litla frænka Þóru. Hún tók hlutverk sitt sem uppáhaldsfrænkan mjög alvarlega og stjanaði við Anítu meira en góðu hófi gegnir. Það er ómögulegt að lýsa Þóru fyllilega án þess að minnast á þann aragrúa áhugamála sem áttu hug hennar allan. Það fór t.a.m. ekki fram hjá neinum sem heimsótti Þóru á Norðurbakkann að þar fór mikil áhugamanneskja um hvers lags Disney-varning, bangsa og bolla. Hún gætti þess enda vel að enginn nákominn kæmist upp með það að stíga fæti út fyrir landsteinana án þess að semja fyrst um hóflega heim- komugjöf. Hundar áttu líka sér- stakan stað í hjarta hennar og það var fátt sem gladdi hana meira en að fá heimsókn frá óstýrlátum hundi, og þá sérstaklega fjöl- skylduhundinum Sölku. Að hundafaðmi slepptum naut Þóra sín líklega hvergi betur en á há- værum tónleikum eða úti að borða með vinum og vandamönn- um. Það sem stendur hins vegar upp úr fyrir mér þegar ég hugsa til Þóru er að hún skildi manna best mikilvægi þess að viðhalda tengslum og rækta sambandið við vini og vandamenn. Eins og allir sem Þóru þekktu vita var hún mikil félagsvera með ríka þörf fyrir samskipti og samneyti við aðra. Að baki Þóru hefur enda ávallt staðið vinamörg og sam- rýnd fjölskylda sem hefur gert sitt besta til að veita henni þann stuðning sem hún hefur þurft á að halda. Á erfiðum tímum þurfti oft ekki mikið meira en eina stutta heimsókn eða eitt lítið símtal til að leiða hugann annað og breyta gráti í hlátur. Nú þegar vegir skiljast verður efst í huga mínum þakklæti sem mig langar að koma á framfæri til allra þeirra sem hafa sýnt Þóru ást og umhyggju og glætt lífi hennar lit í gegnum tíðina. Að sama skapi sendi ég öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát Þóru innilegar þakkir. Elsku Þóra mín Við söknum þín meira en orð fá lýst en um leið minnumst við þín með stolti og gleði. Ég trúi því að nú sért þú í faðmi mömmu þar sem þér líður best. Sigurgeir Bárðarson. Þegar ég hugsa um Þóru Krist- ínu kemur upp í hugann brosið, hláturinn og endalausa orkan til að spjalla og syngja. Þóra Kristín var ein af sterkustu konum sem ég þekkti, og dáðist ég að hennar lífshamingju, vilja og styrk. Ég er þakklát fyrir allar þær minningar sem við upplifðum og gerðum saman og mun aldrei gleyma. Þóra var alltaf með allt á hreinu og svo dugleg að finna leiðir til að gera hluti og plana. Ég gleymi ekki þessum stundum sem við höfðum saman að baka og hlusta á tónlist saman. Hvað við gátum verið lengi að tala og slúðra um alla þá hunda sem við þekktum og vissum af. Ennþá bíð ég eftir því að geta talað við þig. Minning Þóru mun halda áfram í hjarta mínu. Margt þú hefur misjafnt reynt, mörg þín dulið sárin. Þú hefur alltaf getað greint, gleði bak við tárin. (J.Á.) María Lind Baldursdóttir. Hún Þóra Kristín Bárðardóttir átti ekki alltaf sjö dagana sæla á stuttu æviskeiði. Hún barðist við erfiða sjúkdóma frá unga aldri, sem skertu til muna lífsgæði hennar. En baráttuþrek hennar, í blíðu og stríðu, var til eftir- breytni. Hvernig hún gat glaðst yfir litlum hversdagslegum hlut- um og upplifunum í dagsins önn og þrautum var þannig að við vin- ir hennar dáðumst að og glödd- umst með henni. Hennar lífsgöngu lauk hinn 6. mars á þessu ári, eftir stutta sjúkrahúslegu. Hún verður jarð- sungin á 35. afmælisdegi sínum 26. ágúst; degi sem hún hafði hlakkað til og ætlaði að halda mikla og skemmtilega veislu. Þóra Kristín er frumburður æskuvinar míns Bárðar Sigur- geirssonar og konu hans, Jennýj- ar Axelsdóttur, sem lést langt fyr- ir aldur fram 2016 eftir erfið veikindi, þá aðeins 58 ára gömul. Nú eru þær saman á góðum stað, þær mæðgurnar sem aldrei gátu séð hvor af annarri og elskuðu hvor aðra takmarkalaust. En veikindi æskuára ágerðust og ráðaleysi einkenndi um margt stoðkerfi félags- og heilbrigðis- þjónustunnar. Foreldrarnir börðust eins og ljón fyrir rétt- indum Þóru Kristínar. En bar- átta foreldranna, fjölskyldu og vina fyrir rétti Þóru Kristínar hætti aldrei. Síðustu árin hefur Þóra Krist- ín búið ein í Hafnarfirðinum, sem er hennar heimabær. Þar hefur hún notið sólarhringsþjónustu, samkvæmt svokölluðu NPA-úr- ræði (notendastýrð persónuleg aðstoð). Örlög höguðu því þannig að dóttir mín, synir mínir og barnabarn komu mjög að aðstoð og umönnun við hana síðustu ár- in. Einstök vinátta, sem var til staðar á árum áður vegna fjöl- skylduvináttu, efldist mjög milli þeirra og Þóru á þessum árum. Vissulega komu upp erfiðir dag- ar, en Þóra Kristín var langt í frá skaplaus, og stundum pirruð vegna þrauta og veikinda. En ávallt vann einlæg vinátta og gagnkvæm virðing og elska sig- urinn. Þau sakna nú vinar í stað. Ekki verður hjá því komist að nefna áralanga baráttu Þóru Kristínar gagnvart félagsþjón- ustu Hafnarfjarðarbæjar. Tregða, fálæti, áhugaleysi og þekkingarleysi nokkurra embætt- ismanna bæjarins gagnvart þörf- um Þóru og réttindum hennar og möguleikum til að lifa lífinu eins og ófatlaðir er gagnrýnivert og kallar á stórfelldar lagfæringar þar á bæ. Ósjaldan þegar Þóra vissi af ferðum mínum til Stokkhólms, þá hringdi hún og bað mig að kaupa prinsessutertu og taka með heim. Það gerði ég auðvitað með ánægju og færði henni við heim- komu. Þá brosti hún breitt og kyssti mig á kinnina. Það voru góðar stundir. Þóra Kristín Bárðardóttir er fyrirmynd. Baráttuþrek hennar, hlátur hennar og bros í miðjum þrautum er nokkuð sem við ófatl- að fólk getum og eigum að læra af í dagsins erli. Ég sendi hugheilar samúðar- kveðjur til vina minna, fjölskyldu Þóru Kristínar; Bárðar og Lindu, Sigurgeirs og Hörpu, Guðmundar og Maju. Og Kanthi fjölskyldu- vinar sem hefur búið á heimili fjölskyldunnar um áratugaskeið og lét sér sérstaklega annt um Þóru Kristínu. Ennfremur kærar kveðjur til annarra ættmenna og vina. Guð blessi minningu Þóru Kristínar Bárðardóttur. Hvíl í friði kæra vinkona. Guðmundur Árni. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTHILDUR GÍGJA KJARTANSDÓTTIR, Lynghvammi 6, Hafnarfirði, lést á líknardeildinni í Kópavogi 12. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Helgi Friðjónsson Sif Ægisdóttir Ragnar Darri Hal Svandís B. Harðardóttir og ömmubörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR HÓLMGEIR JÓNSSON vörubílstjóri, lést 17. ágúst á líknardeildinni í Kópavogi. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 31. ágúst klukkan 13. Jóna Gunnarsdóttir Hákon Gunnarsson Helga Kristinsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Björn Stefánsson Kristín Gunnarsdóttir og afabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA BENEDIKTSDÓTTIR, Barðavogi 32, Reykjavík, lést miðvikudaginn 18. ágúst á Hjúkrunarheimilinu Mörk. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 30. ágúst klukkan 14. Garðar Sigurðsson Benedikt Garðarsson Elín K. Helgadóttir Helga Garðarsdóttir Nis Albrechtsen Ingibjörg Garðarsdóttir Róbert Hlöðversson Jóhanna Garðarsdóttir Jakob R. Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur frændi minn, LOFTUR RUNÓLFSSON, fyrrum bóndi að Strönd í Meðallandi, lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum þriðjudaginn 24. ágúst. Loftur Magnússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.