Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 44

Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 ✝ María Guðrún Sigurðardóttir fæddist í Reykjavík 30. maí 1936. Hún lést 13. ágúst 2021 á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík. Foreldar hennar voru Sigurður Ein- ar Ingimundarson stýrimaður frá Hnífsdal, f. 14.8. 1897, fórst með Goðafossi 10. nóvember 1944, og Guðrún Agatha Einarsdóttir, húsmóðir og saumakona frá Skeggjastöðum í Kjósarhreppi, f. 22.6. 1905, d. 25.9. 1951. Systir Maríu Guðrúnar var Helga María Margrét, f. 31.3. 1933, d. 24.5. 2017. Hennar eig- inmaður var Ívar Bjarnason, f. 8.12. 1925, d. 28.12. 2014. Þau og þeirra börn; Sigurður Rúnar, Bjarnheiður Jóna, María Björk, Svandís Guðrún og Bjarni Hrafn, og einnig þeirra fjöl- skyldur, voru henni mjög náin. sem hjúkrunarfræðingur við Sentralsykehuset, Akershus Noregi á handlækninga- og barnadeild frá 1. apríl til 1. sept- ember 1970. Hún fór í fram- haldsnám í deildarstjórnun til Noregs við Norges Sykepleier- höyskole allt árið 1975 og árið 1979 nam hún Socialpediatrik við Nordiska Hälsovårdshög- skolan í Gautaborg. Hún var hjúkrunarfræðingur á Land- spítala bráðamóttöku frá 1. október 1987 til 31. ágúst 1988. María starfaði frá 1. september 1988 á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur barnadeild við ungbarnavernd. Síðar hóf hún störf á BUGL (barna- og ung- lingageðdeild) og starfaði þar til starfsloka 2003. María keypti nýja íbúð í Hörðalandi 24 Reykjavík árið 1968 og bjó þar meðan heilsan leyfði. Hún var í Kvenfélagi Hringsins í mörg ár. Hún saum- aði mikið út, bæði til styrktar Hringnum og fyrir sína nánustu. Útförin fer fram frá Foss- vogskapellu í dag, 26. ágúst 2021, klukkan 15 með nánustu aðstandendum og vinum. At- höfninni verður streymt. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat María ólst upp á Skólavörðustíg 38 í Reykjavík í húsi sem kallast Bjarg. Á unga aldri misstu hún og systir henn- ar báða foreldra sína og tókust á við lífið saman upp frá því. María átti langan og farsælan náms- og starfsferil. Hún gekk bæði í barnaskóla Austur- bæjar og Miðbæjarskóla og lauk gagnfræðaprófi frá Miðbæj- arskóla. Hún lauk námi frá Hjúkrunar- skóla Íslands haustið 1959. Starfaði sem hjúkrunarfræð- ingur við Sjúkrahús Sólheima 1959-1960, á Landspítalanum 1960-1961, Dronning Louises Börnehospital í Kaupmannahöfn 1961-1962, Landspítalanum barnadeild 1962-1987 þar af sem deildarstjóri frá árinu 1965 til ársins 1987. Einnig starfaði hún Það eru margar fallegar minn- ingar sem streyma og kalla fram bros á vör þegar við fjölskyldan hugsum til Maríu sem kvaddi okkur þann 13. ágúst síðastlið- inn. María sem ávallt var kölluð Maja frænka lék mjög stórt hlut- verk í okkar fjölskyldulífi. Tengsl Bjarna og Maju voru svo sterk og náin, allt frá fyrstu tíð og þar til yfir lauk. Maja hefur alltaf verið dætr- um okkar, Þórunni Björk og Rakel Þöll, sem yndisleg amma, verið boðin og búin að hjálpa til, hlúa að, sækja á æfingu, skutla í sjúkraþjálfun, koma við með bakkelsi, baka döðlubrauð, fara í bíó, kíkja á kaffihús og ekki er hægt að sleppa því að minnast á alla göngutúrana og ferðirnar í Perluna. Maja var einstaklega hug- myndarík og hafði einstak lag á að kaupa eitthvað sniðugt til að stytta stelpunum stundir þegar þær voru litlar sem kom sér allt- af vel til dæmis þegar verið var að fara í langar flugferðir. Þegar þær urðu eldri var sjálfsagt að fá lánaðan bílinn og þegar hún var komin á hjúkrunarheimili bjó Þórunn Björk í hennar íbúð. Maju frænku var virkilega um- hugað um velferð og heilsu okkar allra, gætti þess og lagði sig fram við að láta öllum líða vel. Maja vildi alltaf hafa eitthvað fyrir stafni, hafa einhverja dag- skrá og gera eitthvað skemmti- legt. Hún var framtaksöm og drífandi og þegar hún fékk hug- mynd þá þurfti helst að fram- kvæma hana strax. Maja frænka hafði létta lund og skemmtilegan húmor. Hún sá alltaf það fallega og jákvæða, var alltaf glöð þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Þá er ekki nema um mánuður síðan hún bað Rakel um að koma mér sér í bíó og bauðst til að skutla okkur heim, þá rúmföst á Eir en langaði svo mikið til að gera eitt- hvað skemmtilegt. Í sumar hefur Þórunn Björk unnið á Eir og því haft tækifæri til að kíkja oftar til Maju frænku en ella. Undir það síðasta átti frænka erfitt með að þekkja og greina hver var hvað, en alltaf tengdi hún við augun. Tengslin svo sterk, samskiptin og samver- an svo áreynslulaus, falleg og notaleg. Æviskeiðinu lokið, ævi ein- stakrar konu sem menntaði sig ung þrátt fyrir erfið uppvaxtar- ár. Konu sem naut þess að ferðast og hafa gaman. Konu sem hugsaði alltaf um okkur um- fram sig. Konu sem við munum aldrei gleyma. Maju frænku verður fagnað á nýjum slóðum. Foreldrar sem kvöddu svo snemma, Helga og Ívar, Solla, Anna og fleiri bíða hennar. Það verður glatt á hjalla, skálað, hlegið og fagnað. Fallega sál, hvíldu í náð, sjáumst síðar en ei í bráð. Margt hefur þú okkur gefið, umhyggju, þakklæti og gleði. Lífsstígurinn nú á enda genginn, blessun hefur þú fengið. Elsa Björk Knútsdóttir. María var móðursystir mín og á stóran þátt í mínu lífi, en þær systur voru mjög samrýndar og var María hluti af okkar fjöl- skyldu. Þær systur voru einu börn foreldra sinna og misstu foreldra sína ungar; faðir þeirra drukkn- aði þegar Goðafoss var skotinn niður og móðir þeirra lést nokkr- um áður síðar en þá var María 15 ára og mamma 18 ára. Þær áttu fáa að og fram undan voru erfið ár, en móðir þeirra hafði sótt um íbúð í verka- mannabústað áður en hún lést. Þær fengu fjárhaldsmann sem hélt utan um fjármálin og eftir nokkur ár fengu þær íbúð í verkamannabústöðunum í Skip- holti, það var þeirra gæfa. María fór svo í hjúkrunarnám og starfaði sem hjúkrunarfræð- ingur alla sína ævi, lengst á Barnadeild Hringsins sem yfir- hjúkrunarfræðingur. María var einhleyp og barn- laus, en systir hennar átti okkur fimm systkinin og létti María á mömmu með pössun og bara það að vera til og vera til staðar, hún var einfaldlega ómissandi hluti af okkar fjölskyldu. Hún fór oft ut- an í vinnu eða frí, og kom þá heim með gjafir til okkar barnanna, þá átti maður dót sem enginn annar átti. Mér er það minnisstætt þegar ég var nýkominn með bílpróf, þá var María erlendis í námi, hvort ég vildi ekki passa bílinn fyrir hana á meðan, það var vel þegið. Eins fékk ég reglulega að heyra sögurnar af því þegar hún og vinkonur hennar voru að ganga með mig, frumburð mömmu, í vagni um bæinn og hún var spurð hvort þetta væri hennar barn. Það er einkennilegt að hugsa til þess að þær voru næstum án fjölskyldu, en ættingjar þeirra fluttu flestir úr landi þannig að stuðningur sem flestar ungar konur fá frá nánum ættingjum var ekki til staðar. Það var lán Maríu að hún eignaðist ómetan- lega traustar og góðar vinkonur sem studdu hver aðra og hjálp- uðust að allt lífið, og nú síðustu árin, þegar María var komin á hjúkrunarheimili fyrir alzheim- ersjúklinga, þá komu þær reglu- lega í heimsókn eða töluðu við hana í síma, og vil ég nota tæki- færið og koma kveðju og þakk- læti til þeirra. Hvíl í friði María mín og takk fyrir allt. Sigurður Rúnar Ívarsson. Það góða sem maður gefur frá sér út í heiminn glatast ekki. (A. Sch.) Kær skólasystir, Maja Sig., lést á hjúkrunarheimilinu Eir 13. ágúst sl. Nú eru senn 60 ár síðan við byrjuðum í forskóla í Hjúkrunar- skóla Íslands. Fæstar þekktumst við fyrir, en kynni og vinátta tók- ust fljótt og vel. Við vorum fyrsta hollið sem bjó í nýja skólahúsinu við áður óþekkt þægindi, einka- herbergi með breiðu, góðu rúmi. Maja starfaði lengst af á barnadeild Landspítalans við miklar vinsældir. Hún elskaði börn og börn voru elsk að henni. Við skólasystur Maju kveðjum hana með mikilli hlýju, söknuði og þakklæti. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mun hverfa úr minni. Og nú ertu gengin á guðanna fund Það geislar af minningu þinni. (FGÞ) Innilegar samúðarkveðjur til ykkar ættingjanna. Hrefna, Kristbjörg, Ól- ína, Una og Þóra Björk. María vinkona mín frá barn- æsku hefur nú kvatt eftir lang- varandi veikindi. Við kynntumst þegar við 10 ára gamlar vorum á leið í nýjan skóla, Miðbæjarbarnaskólann, í fyrsta sinn. Hún af Skólavörðu- stígnum og ég Freyjugötunni. Við lentum í sama bekk og höfum ávallt verið vinkonur síð- an. Þegar Mæja var 8 ára hafði hún orðið fyrir þeirri sáru reynslu að missa föður sinn. Hann fórst þegar sá hörmulegi atburður átti sér stað á stríðs- árunum að farþegaskipinu Detti- fossi var sökkt. Móðir hennar, Guðrún, stóð þá ein uppi með tvær ungar dæt- ur, Maríu og Helgu sem var tveimur árum eldri. Hún vann fyrir þeim með saumaskap fyrir karlmannafataverslun Andrésar Andréssonar. Þannig gat hún alltaf verið heima við vinnu sína. Guðrún var falleg kona, fín- gerð og fáguð í framkomu. Hún var einstök manneskja. Dæmi um það sem ég aldrei gleymi eru afmælisboðin hennar Mæju. Móðir hennar varð vör við að ég sneiddi hjá afmælistertunni, þessari fínu rjómatertu, því að ég gat ekki borðað rjóma. Það var nóg annað góðgæti svo það skipti mig engu máli, en í næsta afmæli var súkkulaðiterta komin á borðið sem Mæja sagði mér að móðir hennar hefði bakað sér- staklega fyrir mig. Svona var Guðrún. Heimili þeirra mæðgna á Skólavörðustígnum var sérlega fallegt. Fyrir mig sem kom úr stórum systkinahópi var yndislegt að koma í þetta friðsæla umhverfi. Mæja var vinsæll gestur á mínu heimili, litlu bræður mínir dáðu Mæju. Eitt sinn sat einn þeirra á gólfinu og fletti mynda- albúmi, þar fremst var skóla- myndin af 12 ára bekknum okkar Mæju, þar sem hún sat fremst fyrir miðju, þá heyrðist hann segja: „Nú horfir Mæja á mig.“ Þegar Mæja og Helga voru unglingar veiktist móðir þeirra skyndilega. Ekki náðist í lækni til að koma til þeirra í vitjun, og móðir þeirra andast þarna í höndunum á þeim. Í einni svipan stóðu þær einar uppi. Við tók erfitt tímabil. Þær bjuggu hjá móðursystrum sínum tveimur til skiptis fyrst um sinn, en fengu síðan íbúð á leigu og hófu að vinna fyrir sér. Helga kynntist ung Ívari sín- um, þeim góða dreng, sem hún giftist síðar. Hann reyndist Mæju hinn besti bróðir og vinur, heimili þeirra var Mæju griða- staður og börnin þeirra voru sól- argeislar í lífi hennar. Þau hafa reynst Mæju frænku sinni aðdá- anlega vel síðustu erfiðu árin. Mæju dreymdi alltaf um að læra hjúkrun, og við skráðum okkur samtímis í nám, og út- skrifuðumst sem hjúkrunarfræð- ingar haustið 1959. María starfaði við barnahjúkr- un æ síðan. Hún stóð sig mjög vel í starfi, og var sífellt að bæta við sig þekkingu, bæði hér heima og erlendis. Hún var vinmörg og vinsæl, alltaf fljót að sjá hið skoplega í lífinu. Hún var dugleg að sækja alls konar námskeið, meðal ann- ars í postulínsmálningu og gerði afar fallega og líka gagnlega hluti á því sviði. Hún hafði yndi af hannyrðum, mjög vandvirk og flink í höndunum. Hún var félagi í Hringnum, kvenfélaginu sem hefur stutt rausnarlega við Barnaspítalann um árabil. Ég þakka Mæju minni fyrir tryggð og vináttu hennar við mig og fjölskyldu mína öll þessi ár. Guð blessi minningu hennar. Rannveig Sigurbjörns- dóttir og fjölskylda. María Guðrún Sigurðardóttir Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Þorbergur Þórðarsson Elís Rúnarsson Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Elskulegur bróðir okkar og mágur, ÁSMUNDUR JAKOBSSON, Barmahlíð 22, sem lést 17. ágúst, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 27. ágúst klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarfélög. Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/fY_s4VcmMcM Jakob Jakobsson Moira Jakobsson Aðalbjörg Jakobsdóttir Hallgrímur B. Geirsson Steinunn S. Jakobsdóttir Sverrir Hilmarsson Ástkær eiginkona mín, móðir mín, amma, tengdamóðir og systir, HANIA OSIPOWSKA frá Ustka í Póllandi, lést á heimili sínu sunnudaginn 22. ágúst. Útförin fer fram í Húsavíkurkirkju laugardaginn 28. ágúst klukkan 11. Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og hlýju. Leopold Osipowski Kasia Cieslukowska Jacek Cieslukowski Patrycja Olinska Maria Pawlowska

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.