Morgunblaðið - 26.08.2021, Síða 45

Morgunblaðið - 26.08.2021, Síða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 ✝ Ólöf Brands- dóttir fæddist á Suður-Götum í Mýrdal 26. maí 1926. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni 11. ágúst 2021. For- eldrar hennar voru Brandur Einarsson frá Reyni í Mýrdal, f. 8 ágúst 1889, d. 1. febrúar 1969, og Guðbjörg Árnadóttir, f. 5. mars 1893, d. 7. október 1956. Bræður Ólafar voru: Einar, f. 1. júní 1921, d. 6. júní 1921. Árni Hálfdán, f. 6. október 1924, d. 11. maí 2006. Einar, f. 1. janúar 1931, d. 10 mars 2005. Eiginmaður Ólafar var Vall- og Bjarnrún, f. 21. febrúar 1981. Fyrir átti Jón dótturina Brynhildi Hrund, f. 14. desem- ber 1975. 2) Guðný Bjarnrún, f. 30. júní 1956, d. 30. nóvember 1956. 3) Sigrún sjúkraliði, f. 5. nóvember 1957. Dætur hennar og Kristjáns Björnssonar eru: Ólöf, f. 18. janúar 1980, og Kristín Rut, f. 25. nóvember 1983. Langömmubörnin eru nú orðin þrettán talsins. Ólöf fluttist ung að heiman. Hún vann við ýmis þjónustu- störf, m.a. þrif og heimilishjálp í Kópavogi, lengst af vann hún sem aðstoðarmaður á rann- sóknardeild Landspítalans við Hringbraut. Eftir starfslok byrjaði hún að smíða og skera út í tré. . Útför Ólafar verður gerð frá Guðríðarkirkju í dag, 26. ágúst 2021, klukkan 13. aður Pálsson, f. á Stóru-Völlum í Landsveit 16. mars 1928, d. 11. sept- ember 2003. For- eldrar hans voru Páll Jónsson og Sigríður Guðjóns- dóttir. Á sjötta ald- ursári fór Vallaður í fóstur að Múla í Landsveit, fóstur- foreldrar hans voru Guðmundur Árnason og Bjarnrún Jónsdóttir. Dætur Ólafar og Vallaðs eru: 1) Guðbjörg ljósmóðir, f. 21. febrúar 1955, gift Jóni Norð- mann Engilbertssyni rafvirkja, f. 29. janúar 1953. Börn þeirra eru Kristinn, f. 10. janúar 1979, Mamma. Blóm, trjárækt, fuglar. Að vera úti í náttúrunni og njóta sín í fallegu umhverfi með blómin sín. Ég sé hana fyrir mér að dunda við ræktun grænmetis, blóma og trjáa. Hún var frændrækin og lagið rækt við vini sína. Fylgdist vel með sínu fólki og var mjög um- hugað um alla. Það var gott að spyrja hana því hún var góð í ættfræði. Laghent var hún og saumaði allan fatnað á okkur fjöl- skylduna, jafnvel upp úr gömlum flíkum. Nýjan kjól og náttföt fengum við systur fyrir hver jól. Hún saumaði einnig fatnað á börn vina og vandamanna. Í seinni tíð saumaði hún út marga fallega dúka. Hún var flink í matargerð og hafði fjölbreyttan og góðan ís- lenskan mat á borðum. Ekki mátti gleyma spónamatnum, því pabbi vildi fá grautinn sinn til að fylla upp í holurnar eins og hann orðaði það. Hún ræktaði sitt grænmeti og kartöflur lengst af sjálf á meðan hún gat. Hún unni æskuslóðunum í Mýrdal alla tíð, en ekki síður í Landsveitinni þar sem fjölskyld- an hefur dvalið í Múla mikið til öll sumur. Þau pabbi byggðu sinn bústað í landi Litla-Klofa sem nefndur var Klofaból. Þar var oft gaman og margt um manninn. Eftir lát pabba seldi hún Klofaból og reisti ásamt Sigrúnu nýjan bú- stað við Múla og í nágrenni við okkur Donna. Var hann nefndur Gullekra. Hún var stolt 80 ára gömul með litla húsið sitt og undi sér vel í Gullekru og Múlakoti hjá okkur systrum til skiptis á meðan heils- an leyfði. Söngelsk var hún og hafði gaman af vísum og kveðskap, hún söng mikið með okkur á ferð- um um landið í gamla rússajepp- anum sem pabbi átti. Hún söng með Skaftfellingakórnum í 30 ár. Eftir starfslok fór hún að smíða og skera út í tré. Ótal fal- legir munir liggja eftir hana sem við fjölskyldan eigum eftir að njóta um ókomin ár. Meðal þess- ara muna eru gestabók og kassi utan um hana sem hún gaf Reyn- iskirkju til minningar um látna ástvini sína. Síðustu fjögur árin dvaldi mamma á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni, þar var vel hugsað um hana og hún var ánægð. Við fær- um þeim innilegt þakklæti fyrir einstaka umönnun og góðvild. Elsku mamma takk fyrir allt. Guð geymi þig. Þín Guðbjörg. Nú kveð ég ömmu mína með sorg í hjarta. Amma var hjartahlý og góð kona. Mátti ekk- ert aumt sjá og var alltaf tilbúin að hjálpa og vera til staðar. Hún stóð alltaf með þeim sem voru minni máttar. Alltaf þótti okkur krökkunum gott að fara til ömmu og afa. Þar var mikið dekrað við okkur. Hún gaf sér alltaf tíma fyrir okkur og kvartaði aldrei þó að hún hafi oft verið þreytt og lét hún það aldrei stoppa sig. Amma kenndi mér að sauma í og það voru mín fyrstu skref í handavinnu. Oft sátum við löngum stundum í sófanum og amma beið tilbúin að laga villurn- ar sem ég var að gera. Þess á milli nuddaði hún á mér fæturna. Allt sem hún gerði gerði hún með ást og hlýju. Amma var ekki með bílpróf og fór því alltaf gangandi í búðina. Það leiddist okkur ekki þar sem alltaf var komið við í bókabúðinni á Háaleitisbrautinni sem var í sama kjarna og matvörubúðin. Þar keypti hún litabækur, dúkkulísur eða eitthvert annað föndur til að dunda við á meðan hún var að elda matinn. Allar stundir með ömmu voru gæða- stundir. Amma hafði mikla unun af því að vera í Landsveitinni, þar naut hún sín vel og eyddi þar mörgum stundum á meðan að heilsan leyfði. Þegar langömmubörnin komu hvert af öðru naut hún þess að fylgjast með þeim vaxa og dafna. Þau nutu góðs af þeirri ást og hlýju sem amma hafði að gefa. Það sem mér þykir alltaf gaman að rifja upp og við hlógum mikið að saman var að þegar ég eign- aðist mitt fyrsta barn, hana Guð- björgu Söru, sagðist hún vonast til að lifa það að sjá hana labba en hún gerði það og gott betur og náði að sjá hana klára grunn- skóla. Elsku amma hvíldu í friði. Þín Bjarnrún Jónsdóttir. Elsku besta amma Óla mín var svo góð. Hún elskaði blóm, fugla, söng, sálma, vísur, súkkulaði, brjóstsykur, Mýrdalinn og hún elskaði fólkið sitt af öllu hjarta. Amma sá til þess að við ættum alltaf til ferðabæn í veskinu, handskrifaða af henni, það var ein af hennar leiðum til að segja að hún elskaði okkur. Amma kenndi mér margt, líka vinnu- semi. Amma og afi voru alltaf að, að smíða, gróðursetja, slá, sauma, sulta og hvaðeina. Við vörðum sumarfríunum okkar austur í Múla í Landsveit, þar sem afi ólst upp. En þar sátum við ekki auðum höndum, heldur fólst afslöppunin í alls konar dútli og ánægju þess að sjá afrakstur verkanna og hugsa vel um elsku Múla okkar. Ég er þakklát fyrir allar dýr- mætu minningarnar sem ég á með henni, allar heimsóknirnar, kvöldmáltíðirnar, Múlaferðirnar, útsaumskennsluna, fótanuddið þegar ég laumaði köldum tánum í kjöltuna hennar, öll símtölin þeg- ar hún hringdi til að athuga með okkur, alltaf að biðja okkur að fara varlega. Ég er þakklát fyrir hvað samvera og samskipti okkar voru mikil og fyrir að eiga fyr- irmynd góðmennsku og hjarta- hlýju. Lát opnast himins hlið, þá héðan burt ég fer, mitt andlát vertu við og veit mér frið hjá þér. Þá augun ekkert sjá og eyrun heyra’ ei meir og tungan mæla’ ei má, þá mitt þú andvarp heyr. (Valdimar Briem) Ólöf Kristjánsdóttir. Ég hugsa oft um að líklega hefði amma viljað gera ýmislegt sem hún fékk ekki tækifæri til. Amma hafði óþreytandi áhuga á líffræði og náttúrufræði, hún bjó yfir heilmikilli þekkingu um nátt- úruöflin, bæði sögu þeirra og framtíð, auk mikillar þekkingar um fugla, plöntur og grös. Hún hefði notið þess að læra hvers kyns náttúruvísindi. Í staðinn efldi hún tengsl við náttúruna á sinn hátt og talaði hún iðulega við blómin, trén, fuglana og fjöllin, þá helst Heklu, og skildi náttúr- unnar ríki eflaust betur en nokk- ur fræðingur. Hún var fyrst og fremst forvitin og fróðleiksfús, og hafði að auki einstaklega gott minni. Hún hefði einnig viljað ferðast meira og kynnast öðrum menningarheimum og náttúru annarra landa. Hún var oftast fá- mál um ágæti annarra landa, sér- staklega þegar barnabörnin fengu hugmyndir um að hverfa þangað, en hún sagði mér ein- hvern tíma alveg upp úr þurru að hana hafði dreymt um að læra frönsku. Hún sagði að henni fyndist það einstaklega fallegt mál og hefði viljað upplifa að fara til Frakklands til að heyra hana talaða í kringum sig, og auðvitað til að skoða grasagarðana. En í fyrirrúmi voru tengslin við fólkið sitt, góða vini, ættingja og fjölskyldu. Það lék enginn vafi á um það í æsku minni að amma og afi væru traustur punktur í til- verunni og alltaf til staðar. Við frændsystkinin nutum þess að vaxa úr grasi í þéttri fjölskyldu sem fagnaði öllum hátíðar- stundum saman, hjálpuðumst að með öll stærri verkefni og gerð- um eiginlega allt saman. Fastur liður á aðfangadagskvöld var að amma og afi komu til okkar eftir matinn og gjafirnar og síðan var ekið til Guðbjargar og Donna í kakó og gafst þá færi á að sýna frændsystkinunum strax hvað við höfðum fengið í jólagjöf. Við fylgdum einnig ömmu iðulega á tónleika og viðburði Skaftfell- ingafélagsins þar sem hún undi sér sérstaklega vel við söng í kórnum og mikinn mannfögnuð. Amma undi sér best með fólkið sitt í kringum sig, og nærðist á því. Sérstaklega nærðist hún á því síðustu árin í Sóltúni að fá tíð- ar heimsóknir fjölskyldu og góðra vina. Því er það hamingju- efni að hún hafi fengið að kveðja með alla fjölskylduna sína sér við hlið. Vertu sæl elsku amma. Kristín Rut Kristjánsdóttir. Ólöf Brandsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, PHILIPPE RICART handverks- og listamanns. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar 14EG á Landspítalanum og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi fyrir góða umönnun. Jóhanna Hálfdánsdóttir Martha Ricart Andri Júlíusson Finnur, Alda og Elmar Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og sonar, INGA FRIÐBJÖRNSSONAR. Rósa Eiríksdóttir Þórhildur Ingadóttir Pétur Friðjónsson Ingibjörg Ingadóttir Jón Sindri Tryggvason Óli Arnar, Helga, Ingi, Rósa Sól og Katla Lind Svanhildur Guðjónsdóttir Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur stuðning og hlýhug í veikindum og við fráfall elsku móður okkar, stjúpmóður, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR, Kópavogsbraut 1b. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans og heimahjúkrunar Kópavogs fyrir góða umönnun. Halldóra Viðarsdóttir Jóhann Úlfarsson Kristín Ingu Viðarsdóttir Timothy Hercules Spanos Björn Leví Viðarsson Einar Ingi Magnússon Sigrún Guðmundsdóttir Sigrún Magnúsdóttir Jón Helgason Ása Magnúsdóttir Ragnhildur Magnúsdóttir Guðmundur Björnsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur föðurbróðir okkar, DAVÍÐ RAGNARSSON, Tjarnarbrú 14, Höfn í Hornafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði 23. ágúst. Útförin fer fram föstudaginn 3. september klukkan 13 frá Hafnarkirkju. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Skjólgarðs. Aðstandendur Elsku Alli minn, ég er ekki að vakna úr þessari martröð, þú ert í alvöru far- inn, ég á fá orð til að lýsa tilfinn- ingum mínum þessa dagana. Fyr- ir nokkru stóð ég frammi fyrir því að koma til þín og kveðja þig því eins og þú sagðir þá var lífsklukk- an þín að klárast og engin leið að trekkja hana af stað aftur. Ég vildi ekki trúa því eftir heimsóknina þar sem við ræddum um daginn og veginn eins og píluna, tímann á Kristinu, og þú sagðir að þú værir búinn að kaupa efni til að laga parketið heima hjá þér því það var skemmt eftir pílukast, en ég fann að þú varst þreyttur og orkan var að klárast enda búinn að heyja þessa baráttu síðan 2013. Ég hugsaði með mér: Hvernig kveð ég besta vin minn? Mann sem hef- ur verið mér sem bróðir? Þannig að ég knúsaði þig og sagðist elska þig sem bróðir og þú sagðir „sömuleiðis og sjáumst kannski á morgun“. En sá dagur kom bara ekki og tíminn okkar er búinn. Ég náði ekki að segja þér hvað ég er þakklátur fyrir að hafa haft þig í lífi mínu. Þakklátur fyrir að hafa kynnst þér um borð í Krist- Aðalsteinn Smárason ✝ Aðalsteinn Smárason fæddist 30. júlí 1977. Hann lést 19. júlí 2021. Útförin fór fram í kyrrþey. inu, þakklátur fyrir þá óeigingjörnu vin- áttu sem við deild- um, þakklátur fyrir að þú gast breytt ömurlegri líðan í vel- líðan, þakklátur fyrir að þú dæmdir aldrei, alveg sama hvaða væl var í mér. Og þegar ég kom með mín vandamál til þín er ég þakklátur fyrir hvernig þér tókst að kenna mér að horfa á lífið með einfaldari augum og að það þýddi ekkert að vera að pirra sig á því sem maður gæti ekki breytt, þakklátur fyrir þessi einstöku tengsl á milli okkar, og svo margt fleira. Svona vinátta er gull og þú varst svo sannarlega með gullhjarta og ekki til illt í þér. Tilhugsunin um líf þar sem þú ert ekki er mér þungbær og tóm- leikinn er algjör á þessari stundu, ég sakna þín nú þegar svo mikið að mig verkjar í magann. Við héld- um að tíminn okkar saman væri rétt að byrja en núna er hann lið- inn og það er óraunverulegt. Happy Hour verður ekki happy, pílukastið verður marklaust, að horfa á Liverpool-leiki verður tómlegt og dauft, og að fá ekki símtöl lengur sem innihalda kald- hæðinn húmor og sögur af þínu hversdagslega lífi er ömurleg til- hugsun. Elsku Alli hvíldu í friði, ég elska þig og sakna óendanlega. „You’ll Never Walk Alone.“ Pétur Skarphéðinsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.