Morgunblaðið - 26.08.2021, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 26.08.2021, Qupperneq 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 ✝ Magnúsína Guðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 16. febr- úar 1929. Hún lést á Grund 12. ágúst 2021. Foreldrar hennar voru Jóna Sigríður Jóhann- esdóttir, fædd á Flateyri 6.7. 1899, d. 28.2. 1935, og Guðmundur Ísleifs- son frá Varmahlíð í Eyja- fjallahreppi, f. 18.9. 1896, d. 11.1. 1962. Systkini Magnúsínu voru El- ín, f. 1923, d. 2010, Guðmundur Óskar, f. 1927, d. 2004, Sesselja Jóna, f. 1930, Ármann, f. 1931, d. 2007, Jóna Sigríður, f. 1935, d. 1978. Samfeðra er Sigurður Óskar, f. 1943. Magnúsína giftist 2.10. 1948 Ólafi Hreiðari Árnasyni klæð- skerameistara, f. 1.9. 1926, d. 20.6. 2014. Foreldrar hans voru Árni Einarsson, f. 4.12. 1886, d. 19.1. 1974, og Guðrún Árnadótt- ir, f. 5.9. 1885, d. 29.9. 1960. Börn Magnúsínu og Ólafs eru 1) Guðmundur, f. 9.1. 1949, kvæntur Láru Erlingsdóttur, f. 31.8. 1951; börn þeirra eru a) Þórdís, f. 1976, gift Brynjari Þór Guðmundssyni, f. 1974, börn Helga Björk, f. 1980, gift Tóm- asi Vigni Guðlaugssyni, f.1978, barn þeirra er Óliver Vignir, f.2008, og barn Tómasar er Aníta Rós, f. 2000, b) Sigurður Árni, f.1988, sambýliskona hans er Svanhildur Sóley Þorleifs- dóttir, f. 1992, börn þeirra eru Magnús Torfi, f. 2014, og Inga Sóley, f. 2019, c) Ólafur Torfi, f. 1989. Magnúsína, eða Maddý eins og hún var alltaf kölluð, var uppalin í Reykjavík og bjó fjöl- skyldan á Bárugötu og Njáls- götu, og fluttist síðan í Skipa- sund 23. Hún nam hárgreiðslu í Iðnskólanum í Reykjavík, og var nemi hjá Línu í Ondúla í Að- alstræti og starfaði þar um hríð. Lengst af var hún með aðstöðu heima við og fór oft í ferðir aust- ur á land þar sem skortur var á hárgreiðsluþjónustu, sérstak- lega á vorin í kringum ferm- ingar. Maddý vann ýmis versl- unarstörf á síðari árum, t.d. í tískuverslun Victor Hugo, Rönn- ing heimilistækjum í Kringl- unni, á sólbaðsstofu og einnig sem gangavörður í Breiðholts- skóla. Magnúsína og Ólafur hófu bú- skap að Bergstaðastræti 78, en fluttust síðan á Laugaveg 42. Árið 1968 fluttist fjölskyldan í Fossvoginn í Hulduland 42 þar sem þau bjuggu fram til ársins 2000 þegar þau hjónin fluttu í Sóltún 13. Útförin verður frá Fossvogs- kirkju 26. ágúst 2021 klukkan 13. þeirra eru Eva Berglind, f. 2001, Brynja Katrín, f. 2002, og Bjarni Hreiðar, f. 2015, barn hennar og Magnúsar Sævars Magnússonar er Lára Theódóra, f. 1995, b) Guðrún Linda, f. 1978, börn hennar og fyrrv. eiginmanns, Óskars Arnars Gunnarssonar, eru Kar- itas Líf, f. 2000, Guðmundur Rafn, f. 2003, og Gísli Rafn, f. 2006, c) Ragnhildur Eva, f. 1983, sambýlismaður Þorgrímur Sveinsson, f. 1976. 2) Sjöfn, f. 28.4. 1953, gift Erlingi Hjalta- syni, f. 22.7. 1955; börn þeirra eru a) Hjalti Már, f. 1983, og b) Magnús Orri, f. 1991, barn Sjafnar og fyrrv. eiginmanns, Joseph Pandolfo, er c) Ólafur Örn Josephsson, f. 1977, börn hans og fyrrv. eiginkonu, Eddu Kristínar Sigurjónsdóttur, eru Arnaldur Konráð, f. 2004, og Bryndís, f. 2007. Sambýliskona Ólafs Arnar er Sara Óskarsdótt- ir, f. 1980, börn hennar eru Logi Þór, f. 2007, og Matthildur Rúna, f. 2012. 3) Guðrún, f. 1.9. 1958, gift Magnúsi Sigurðssyni, f. 20.3. 1956; börn þeirra eru a) Mamma var góð fyrirmynd, hún var glæsileg og dugleg og umhugað um að hafa heimilið fal- legt og vera vel til fara, en hún var líka alltaf til staðar fyrir okkur og fylgdist vel með. Hún hafði metn- að fyrir okkar hönd, hvatti okkur áfram í námi og veitti alltaf góðan stuðning við það sem við vorum að gera á hverjum tíma. Það hefur eflaust haft mikil á áhrif á mömmu og systkini henn- ar að missa móður sína, sem lést af barnsförum, en þá var mamma bara sex ára. Í minningunni var mömmu alltaf umhugað um vel- ferð systkina sinna og ræktaði tengslin, en einkum voru mikil tengsl milli þeirra systra, mömmu og Sísíar. Báðar voru þær í hand- bolta í sigursælu Íslandsmeist- araliði Ármanns þegar þær voru ungar. Þær voru góðar vinkonur, bjuggu nálægt hvor annarri og voru einnig saman í saumaklúbbi með Stellu, Möggu, Paulu og Jónu og var þetta fjörugur hópur sem hélt saman alla tíð. Mamma og pabbi voru mjög samhent og voru um tíma bæði með vinnuaðstöðu á heimilinu á Laugaveginum þar sem pabbi var með klæðskeraverkstæði og mamma með aðstöðu fyrir hár- greiðsluna. Það var því oft líflegt og gestkvæmt hjá okkur. Þegar ráðist var í að byggja í Fossvog- inum vorum við krakkarnir með í að hreinsa timbur og handlanga. Á þeim tíma þótti ekki tiltökumál að flytja inn í hálfklárað húsnæði, heimilisbíllinn var seldur og strætó notaður. Við tók skemmti- legt tímabil þar sem sett var í for- gang að klára húsið. Minnisstætt er á þessum tíma hvað mamma og pabbi voru hress og ánægð með hvort annað. Þau fóru iðulega út að dansa bara tvö, en dönsuðu líka jive og cha cha cha heima í stofu með okkur krökkunum. Mamma var alltaf fín í tauinu og naut þess að pabbi gat sérsaumað flottar dragtir og kjóla, en á seinni árum komst hún upp á lagið og fór oft og iðulega til útlanda í góðar inn- kaupaferðir. Þá kom hún með fullar ferðatöskur af spennandi flíkum sem okkur þótti aldeilis varið í, enda gátum við mæðgurn- ar samnýtt fötin. Það var alltaf fastur liður á heimilinu okkar að hafa sunnu- dagssteikina í hádeginu og þess- um sið hélt mamma áfram eftir að barnabörnin voru komin til sög- unnar. Jólaboðin voru líka haldin með stæl þar sem allir mættu á aðfangadagskvöld í Huldulandið. Mamma sá um steikina og pabbi um umgjörðina, lagði á borðið og sá um viðeigandi tónlist. Það var alltaf gott að koma til þeirra og njóta þess að vera saman á góð- viðrisdögum á svölunum og í garðinum. Þetta voru góðir tímar. Síðustu árin voru henni erfið. Það var mikill missir fyrir mömmu þegar pabbi dó árið 2014. Hún varð sorgmædd og átti erfitt með að tjá sig og var í raun aðeins hálf manneskja. Það tók að halla undan fæti og hún dvaldi á Grund síðustu fjögur árin þar sem hún fékk góða umönnun og leið vel. Starfsfólki á V2 er þakkað sér- staklega fyrir umhyggju og hlýju í hennar garð. Guðrún, Sjöfn og Guðmundur. Í dag kveðjum við Maddý tengdamóður mína. Mig langar að þakka henni samfylgdina í rúm 45 ár. Ýmsar minningar koma upp í hugann á þessum tímamótum. Maddý og Óli tengdafaðir minn, sem lést fyrir sjö árum, voru ein- staklega samheldin og glæsileg hjón. Þau kunnu vel að njóta lífs- ins og það var alltaf gaman að vera í kringum þau. Þau áttu fallegt og hlýlegt heimili í Huldulandinu. Þar hafði Maddý aðstöðu til að vinna við fag sitt en hún fór ung í Iðnskólann og lærði hárgreiðslu. Þannig voru það hæg heimatökin að leita til hennar með hársnyrtingu og sá hún um að klippa fjölskylduna í mörg ár. Í minningunni finnst manni að Maddý hafi alltaf verið eitthvað að sýsla. Eftir að Maddý hætti að vinna við hárgreiðsluna vann hún hin ýmsu störf eins og í verslun og rak sólbaðsstofu svo dæmi sé tek- ið. Hún var mikil hannyrðakona. Ekkert vafðist fyrir henni, hvort heldur var að prjóna peysur á barnabörnin eða sauma búta- saumsteppi fyrir barnabarna- börnin. Allt gert af mikilli vand- virkni. Maddý hélt glæsilegar veislur og var hún jafnvíg í mat- argerð og tertubakstri. Hvort sem tilefnin voru stór eða smá var alltaf vandað til verka. Oft enduðu veislurnar með miklu fjöri þar sem plata var sett á fóninn og dansað. Ég man líka eftir fyrsta Kvennahlaupinu þegar Maddý var til í að hlaupa það með okkur konunum í fjölskyldunni, en hún var alltaf grönn og létt á fæti. Ég minnist jólaboðanna í Huldulandi þar sem stórfjöl- skyldan kom saman. Í þessi boð var mikill undirbúningur lagður og börnin biðu spennt eftir að fara til ömmu og afa á jólunum. Maddý var alltaf boðin og búin að rétta hjálparhönd og gott var að leita til hennar með ýmislegt eins og barnapössun. Það var heldur ekki óalgengt að fá að kíkja í fataskápinn hjá henni ef mikið lá við. En hún var mikil smekkmanneskja og alltaf smart til fara. Þau Óli nutu þess að ferðast og ekki síst til sólarlanda. Það var gaman að heyra þau segja frá ferðum sínum og skoða myndir. Síðustu ferð sína á sólarströnd fór Maddý haustið 2015 og þó að heilsan hafi verið byrjuð að gefa sig þá gat hún notið þess að sitja á sundlaugarbakkanum og láta sól- ina leika um sig. Það er mikið lán að hafa eign- ast svona góða tengdamömmu sem Maddý var og þakka ég henni samfylgdina og minnist hennar með hlýju. Lára. Minningarnar hrannast upp þegar ég kveð Maddý tengda- móður mína og ég þakka henni samferðina í yfir 40 ár. Ég kom fyrst í Huldulandið undir lok árs 1979 og varð strax hluti af fjöl- skyldunni. Þau Ólafur og Maddý voru glæsileg hjón, einstaklega samrýnd og samheldin og héldu vel utan um sig og sína. Þau fóru í gegnum lífið á jákvæðni og vinnu- semi, já og áræðni því á tímum voru þau bæði með sjálfstæðan atvinnurekstur í sinni grein. Við Guðrún bjuggum erlendis framan af við nám og starf og Ólafur og Maddý heimsóttu okk- ur reglulega. Þetta voru kær- komnar stundir og þægilegt og áreynslulaust að taka á móti þeim. Þegar við fluttum heim 1988 bjuggum við í Huldulandinu í hartnær ár, það var sjálfsagt mál og allt gert til að greiða götu okk- ar. Samskiptin hafa verið mikil og það hefur verið hrein unun að fylgjast með þeim hjónum, gift í 65 ár og ekki að sjá að kærleik- urinn hafi dofnað á milli þeirra. Maddý féll aldrei verk úr hendi meðan stafsþrek leyfði, hún hafði bein í nefinu og þótt hún hefði ekki hátt hygg ég að hún hafi ráð- ið því sem hún ráða vildi í hjóna- bandi þeirra Ólafs. Maddý var hárgreiðslukona að mennt og starfaði við það löngum, oft sjálf- stætt. Hún fór iðulega vinnuferðir um landið, sérstaklega Austfirð- ina og greiddi konum fyrir árshá- tíðir og stúlkum fyrir fermingar. Þau Ólafur byggðu sér raðhús í Huldulandi á sjöunda áratugnum, á þessum árum stóð fólk í þessu sjálft, og tekjur Maddýjar í þess- um ferðum hafa skilað drjúgt til þeirrar húsbyggingar. Þau hjónin höfðu unun af að ferðast, gjarnan til sólarlanda. Fjölskyldan var mjög samheldin og samgangur mikill, t.d. voru að- fangadagskvöld í Huldulandinu fastur liður, ört stækkandi sam- komur eftir því sem afkomendun- um fjölgaði. Þau voru líka ætíð boðin og búin að aðstoða í hinu daglega basli barnanna sinna. Ólafur lést árið 2014 og sá missir var Maddý þungbær. Þau höfðu flutt úr Fossvoginum í íbúð í Sóltúni um aldamótin og Maddý hélt þar heimili áfram næstu þrjú árin. Síðustu fjögur árin dvaldi hún á hjúkrunarheimilinu Grund og tvö síðustu árin þar hrakaði henni ört. Þau systkinin Guð- mundur, Sjöfn og Guðrún skipt- ust á að heimsækja hana nær dag- lega en Covid-faraldurinn kom í veg fyrir þær heimsóknir í lengri tíma og það var henni þungbært. Starfsfólki Grundar er þökkuð umönnun Maddýjar á þessum erfiðu tímum. Ég vil votta þeim systkinum Guðmundi, Sjöfn og Guðrúnu og afkomendum þeirra sem og öðr- um aðstandendum samúð mína. Magnús Sigurðsson. Tengdamóðir mín Magnúsína Guðmundsdóttir er látin í hárri elli. Maddý var hún alltaf kölluð. Það eru rúm fjörutíu ár síðan ég kynntist fjölskyldunni í Huldu- landi, en Maddý og Óli byggðu raðhúsið sitt í Huldulandi með dugnaði og eljusemi. Maddý var dugleg að bjóða fjölskyldu sinni í mat og var ár- visst í mörg ár að vera hjá þeim á aðfangadagskvöld. Maddý var glæsileg kona og alltaf vel tilhöfð, hugsaði mikið um heilsuna og útilitið og varalit- urinn aldrei langt undan, heldur ekki þegar var farið út með ruslið, aldrei að vita hverjum maður mætti! Hún hafði gaman af því að kaupa ný föt. Hún var hárgreiðslukona og fór ég ekki varhluta af nýjustu tísku í hárskurði, permanenti, strípum og síðu að aftan. Þau hjónin elskuðu að vera í sólinni og ferðuðust mikið til sól- arlanda og komu heim kaffibrún. Þau voru mjög samrýnd hjón, höfðu gaman af að fara út að dansa og fóru í gönguferðir upp á hvern einasta dag svo til. Hún var aldrei mjög ræðin en var alltaf að sinna sínu fólki. Árið 2000 ákváðu þau að selja Huldulandið og fluttu í Sóltún 13, þar sem þau áttu góðar stundir síðustu árin. Við andlát Óla 2014 slokknaði á einhverjum lífsneista hjá Maddý og fljótlega fer að bera á veikind- um hennar. Það var orðið erfitt að búa ein. Ég kom í nokkuð mörg skipti og eldaði fyrir hana og var hún mjög þakklát fyrir það. En áður en eldamennskan hófst setti mín í tvö staup af Cointreau og vorum við farin að fela þessa drykkju okkar fyrir konunni minni. Síðustu árin dvaldi hún á Grund eða í hartnær fjögur ár. Þar var vel hugsað um hana og henni leið vel. Undir það síðasta gat hún ekki tjáð sig og fékk hægt andlát. Blessuð sé minning hennar. Erlingur Hjaltason. Á kveðjustund elsku Maddýjar ömmu er margs að minnast og fyrir margt ber að þakka. Það var alltaf gott að koma til ömmu og afa í Huldulandið, ég man sólríka daga þar sem við flat- möguðum á sólbekkjum á milli þess sem við afi spiluðum krokket eða ólsen ólsen. Súkkulaðirúsínur á vísum stað fyrir okkur Hjalta að maula. Ömmu var ótalmargt til lista lagt, flink hannyrðakona sem hélt glæsilegar veislur sem við fjöl- skyldan nutum góðs af. Jólaboðin í Huldulandi voru fastur liður á aðfangadag, öll fjölskyldan sam- ankomin og pakkaflóðið eftir því. Amma elskaði sól, ferðalög og elsku afa og það var mikið af henni tekið þegar hann kvaddi þessa jarðvist. Samband þeirra var einstakt og nú sé ég þau fyrir mér saman, geislandi falleg á sól- ríkri strönd að stíga léttan dans. Hvíl í friði, elsku amma mín. Ragnhildur Eva. Maddý amma var aðeins öðru- vísi en ömmur vinkvennanna; hún rak ljósastofu í JL-húsinu og var með hárgreiðsluherbergi heima. Alltaf svo fín í tauinu og vel til- höfð. Eilífðarskvísa. Áratugum síðar er minning ljóslifandi af ömmu í anddyrinu að snyrta sig fyrir ferð í Gufunes. Enda alveg rétt, öll erindi verða skemmtilegri með smá varalit. Jól barnæskunnar eru nátengd ömmu og afa í Huldulandi. Stór- fjölskyldan saman á aðfangadag og sama hvað fjölgaði í hópnum þá var bara bætt við fleiri borð- um. Nóg pláss og aldrei var rætt um fyrirhöfn, sem þó var örugg- lega heilmikil. Við systurnar og Óli frændi dunduðum okkur iðu- lega í eldhúsinu hjá ömmu að blanda ógeðisdrykki, ár eftir ár og löngu fyrir tíma 70 mínútna. Einu skiptin sem hún byrsti sig við okkur var ef það voru slags- mál, annars máttum við fram- kvæma tilraunir eins og okkur lysti. Það var alltaf einhver ævin- týrabragur á Huldulandi. Bæði gamlar dúkkur og dót frá Sjöfn og Guðrúnu en líka endalaus upp- spretta mynda og minninga frá ferðalögum ömmu og afa innan- lands og erlendis. Maddý amma var sjálfstæð kona og góð fyrirmynd, við minn- umst hennar með hlýju og vitum að það urðu fagnaðarfundir þegar þau Óli afi sameinuðust á ný. Þórdís og Guðrún Linda. Magnúsína Guðmundsdóttir Í dag kveð ég góða æskuvinkonu. Ég kynntist Helgu þegar ég flutti á Skaga- strönd 1985 og við urðum strax góðar vinkonur. Ekki vinkonur sem leika sér saman á hverjum degi heldur spjölluðum við oft og hún var mjög góð við mig. Við bárum sama eftirnafnið og sögðumst við oft vera systur. Það var ekkert amalegt að fá eina stóra systur fyrir mig ein- birnið. Þegar unglingsárin gengu í garð var gott að eiga eina Helgu á kantinum. Hún var svona eins og eldri systir sem hægt var að leita ráða hjá. Helga Brynhildur Kristmundsdóttir ✝ Helga Bryn- hildur Krist- mundsdóttir fædd- ist 29. nóvember 1974. Hún lést 20. júlí 2021. Útförin fór fram 16. ágúst 2021. Ráðin hafa eflaust ekki alltaf verið þau skynsamleg- ustu eins og götu- fræðslan vill verða, en það skipti engu. Það að hafa ein- hvern til að tala við var mikilvægast. Gott að hafa ein- hvern til að gráta á öxlina á og fá svör við ýmsu sem hvílir á unglingsstúlkum. Þegar ég flutti frá Skagaströnd misstum við samband en þegar Helga flutti til Reykjavíkur fórum við að hittast með strákana okkar. Eftir það hittumst við og heyrðumst af og til við sérstök tilefni og það var alltaf eins og við hefðum hist eða heyrst dag- inn áður, þótt mörg ár liðu á milli. Síðustu ár fylgdist ég með Helgu í gegnum mömmur okkar sem eru vinkonur og fékk fréttir af henni. Þegar ég frétti að Helga væri dáin fór ég að skoða göm- ul myndaalbúm síðan á ung- lingsárum og rifja upp gamlar og góðar minningar. Þessar minningar ætla ég að geyma og munu þær fylgja minningunni um hressa og skemmtilega stelpu sem var alltaf brosandi og alltaf tilbúin að aðstoða. Elsku vinkona, hvíldu í friði og megi allar góðar vættir heimsins styrkja þína nánustu. Elsku Tóta mín, Óli, Hólmi og börnin hennar Helgu, Hólm- bert, María Kristín og Guðný Erla og fjölskyldur ykkar. Ykk- ar sorg er mikil og samhryggist ég ykkur innilega við þennan mikla missi. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Guðbjörg Kristmundsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.