Morgunblaðið - 26.08.2021, Side 58

Morgunblaðið - 26.08.2021, Side 58
58 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 90 ÁRA Fjóla Kr. Ísfeld fædd- ist 26. ágúst 1931 á Seyðisfirði. Þar ólst hún upp og á fleiri stöð- um á Austfjörðum. Foreldrar hennar voru Jens Kristján Guð- mundsson Ísfeld og Júlía Sigríð- ur Steinsdóttir. Þau ráku m.a. greiðasölu á Seyðisfirði og gerðu út bát en voru einnig bændur. Jens Kristján og Júlía eignuðust fimm börn og er Fjóla þeirra yngst. Eiríkur Jón, Þórunn Ólöf og Einar eru látin, en Lilja lifir og er orðin 97 ára. Fjóla stundaði fimleika á ung- linsárum sínum í Reykjavík og er enn að stunda íþróttir með góð- um árangri á hjúkrunarheimili á Akureyri . Fjóla stundaði nám við Húsmæðraskólann í Varma- landi í Borgarfirði í einn vetur. Hún gerðist ráðskona í Hjaltadal í Skagafirði og þar kynntist hún verðandi eiginmanni sínum, Guðmundi Stefánssyni, bónda, meðhjálpara, oddvita, sláturhússtjóra og síðar verk- stjóra á Akureyri og gjaldkera hjá Félagi aldraðra á Akureyri. Þau gift- ust þann 29. nóvember 1953. Fjóla og Guðmundur bjuggu í Hjaltadal í Skagafirði og eignuðust sex börn. Þau eru Stefán, Jens Kristján, Júlía Rós, Svandís, Sæunn og Guðmundur Auðjón. Fjóla og Guðmundur fluttu til Akureyrar árið 1980 og þar starfaði Fjóla m.a. við barnagæslu, bæði í heimahúsum og á leikvöllum, enda alltaf mjög vinsæl hjá börnum. Einnig starfaði Fjóla í mörg ár í Krist- jánsbakaríi. Fjóla er mikill stuðningsmaður íþróttafélagsins KA, sem einmitt fagnaði 90 ára afmæli árið 2018 og starfaði Fjóla talsvert mikið fyrir KA í áratugi. Fjóla hefur samið mikið af vísum og hefur unnið til verðlauna fyrir sumar þeirra. Einnig hafa margar vísur og greinar eftir Fjólu birst í blöðum og tímaritum. Fjóla hefur alltaf verið mjög glaðvær, hress, vin- sæl og hrókur alls fagnaðar. Barnabörn Fjólu eru ellefu talsins og barnabörnin eru orðin sex. Fjóla Kr. Ísfeld Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Taktu það ekki nærri þér þótt ein- hverjir bregðist illa við þegar þú vilt eiga við þá samvinnu. Vertu örlátur og þú munt uppskera ríkulega. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú hefðir gott af því að breyta um umhverfi, en að umgangast nýtt fólk væri enn betra. Ef þú lætur þetta fram hjá þér fara muntu iðrast þess alla tíð. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Dagurinn í dag er fullkominn til að bregða á leik við ástvini og börn. Mundu að lífið krefst þess að þú gerir þitt besta, en ekki eitthvað ómögulegt. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Hæfni þín til að leita frumlegra lausna á vandamálum kemur fólki á óvart í dag. Settu skýrar línur um það hvað þú ert tilbúin/n til að taka að þér. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Því meira sem þú getur gert til þess að sanna fyrir sjálfum þér að þú þurfir ekki á neinum að halda, því meira laðast fólk að þér. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Ef einhver kemur þér til hjálpar skaltu ekki gleyma að láta í ljós þakklæti þitt. Notaðu daginn til að slaka á og hvíla þig ef þú hefur tækifæri til þess. 23. sept. - 22. okt. k Vog Allt sem viðkemur útlöndum, æðri menntastofnunum, útgáfu, fjölmiðlun og langferðum ætti að ganga vel í dag. Not- færðu þér það skynsamlega. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Notaðu daginn til þess að ákveða hvernig á að skipta einhverju sem þú deilir með öðrum. Treystu á hæfileika þína og vertu óhræddur að breyta til. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þér finnst mjög gaman að sýna þig þegar völlur er á þér. Hlustaðu á hjarta þitt því þar er svörin að finna. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Reyndu að ná betri tökum á lífi þínu, það er ekkert vit að láta bara berast fyrir straumnum og lenda í hverju sem er. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það skiptir sköpum að þú sért skorinorður þannig að ekkert fari á milli mála hvað þú meinar. Vertu jákvæður og opinn og þá mun þér ganga allt í haginn. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Bara það að sækjast eftir stöðu gerir hana raunverulega í þínum augum. Gleymdu ekki að gefa þér tíma til að njóta þess sem þú ert að gera. hjónin kunnu vel við sig á Króknum og við heimamenn. „Ég átti nú einn hest á Kópaskeri, en menn fara ekk- ert til Skagafjarðar með minna en heilt stóð,“ segir hann og hlær. Þröstur var í bankanum til 2003, en 2004 varð hann framkvæmdastjóri Dögunar rækjuvinnslu og útgerðar þar sem hann starfaði til 2014. „Það voru mikil viðbrigði, en virkilega skemmtilegt. Mikil uppbygging í lét sig ekki muna um að keyra 200 km leið. „Ég missti aldrei úr leik vegna ófærðar.“ Árið 1996 fer Þröstur á Sauðár- krók og er þar útibússtjóri Lands- bankans. Þá var hann búinn að kynn- ast eiginkonunni, Elínu. „Við kynnt- umst á árshátíð hestamanna í Skúla- garði í Kelduhverfi 1995 og það voru eiginlega tvær sameiginlegar vinkon- ur sem komu okkur saman.“ Ungu Þ röstur Friðfinnsson fædd- ist 26. ágúst 1961 á Akur- eyri en ólst upp að mestu leyti á Húsavík. „Ég hef nú oft sagt að ég hafi al- ist upp með annan fótinn á bryggj- unni og hinn í sveitinni. Það voru for- réttindi að kynnast frá blautu barns- beini þessum grunnatvinnuvegum. Pabbi var til sjós þegar ég var lítill og mamma var úr sveitinni og það voru mjög mikil tengsl þangað. Ég fór oft í sveitina í heyskap og mamma var oft þar í fríum líka, svo við vorum tölu- vert mikið í sveitinni á sumrin.“ Þröstur var mikið í íþróttum og spilaði fótbolta og varð einu sinni Húsavíkurmeistari í badminton. „Svo er maður orðinn svo gamall að maður man tímana fyrir sjónvarp, en það kom ekki norður fyrr en 1967.“ Þröst- ur gekk í Grunnskólann á Húsavík og vann í beitningu sem unglingur. Sex- tán ára fór hann í Samvinnuskólann á Bifröst og varð stúdent þaðan árið 1981. „Þetta var eiginlega miklu hag- nýtara nám en almennt menntaskóla- nám því það var svo mikil áhersla lögð á viðskiptagreinar.“ Hann var byrjaður að vinna í Samvinnubankan- um á Húsavík og síðasta árið í nám- inu tók hann utanskóla með vinnu. Árið 1983 fór hann til Reykjavíkur og vann í höfuðstöðvum Samvinnubank- ans um nokkurra ára skeið og kunni ágætlega við sig en árið 1989 fór hann til Kópaskers. „Ég kunni mjög vel við Kópasker. Þar var gott samfélag og félagslíf og maður var nær náttúr- unni. Dagurinn lengist alveg um 1-2 tíma þegar maður býr í smærri sam- félögum því í bænum fer svo mikill tími í snúninga.“ Þröstur var útibússtjóri Samvinnu- bankans á Kópaskeri sem breyttist í Landsbankann ári síðar þegar hann yfirtók Samvinnubankann og var þar til ársins 1996. „Ég var mikið í blaki þegar ég var yngri og spilaði með landsliðinu í 6-8 ár og mér finnst skemmtilegt að eiga héraðsmeistara- titla bæði í Suður- og Norður-Þing- eyjarsýslu.“ Hann spilaði 30 lands- leiki, sem er nokkuð mikið því ekki eru spilaðir það margir leikir á ári, og vann bæði Íslandsmeistaratitla og bikarmeistaratitla. Hann spilaði tvo vetur með KA í blaki á Akureyri og vinnslunni og tæknivæðingu á þess- um tíma þótt rekstrarumhverfið væri erfitt. Þetta var virkilega skemmti- legur tími, en krefjandi.“ Árið 2014 flutti fjölskyldan á Grenivík þar sem Þröstur varð sveit- arstjóri og hefur verið þar síðan. Þröstur hafði bætt við sig diplóma- námi í rekstrar- og viðskiptafræði í Háskólanum á Akureyri, og segir námið hafa komið sér vel í starfinu. „Það er lítið og gott samfélag hérna á Grenivík. Það er mikil samheldni og líka kraftur og bjartsýni því það er mikil uppbygging hérna.“ Þröstur er mjög ánægður í starfi og segir að skemmtilegasta verkefnið í þessu starfi sé að skapa góða umgjörð fyrir samfélagið. „Þetta starf snýst í raun um að gera líf fólks betra og þróa samfélagið okkar áfram. Hér eru góðir grunninnviðir, bæði hvað varð- ar skóla og þjónustu og við rekum hjúkrunarheimili svo það má segja að þjónustan sé góð frá vöggu til graf- ar.“ Þröstur hefur verið viðloðandi golf alveg frá því hann var unglingur. „Ég var kominn í stjórn Golfklúbbsins á Húsavík þegar ég var 16 ára, en þá var svolítill hópur af ungum mönnum í klúbbnum.“ Hann varð formaður Þröstur Friðfinnsson sveitarstjóri Grýtubakkahrepps – 60 ára Starfið snýst um að gera lífið betra Sumarið 2021 Þröstur uppi á Höfð- anum (Þengilhöfða) þar sem sést yf- ir Grenivík og á Kaldbak. Tindastóll Afadrengirnir Orri og Kári eru með Þresti á myndinni og biðja afa að fara hraðar, hraðar. Hjónin Þröstur og Elín úti í Hrísey. Þröstur lét gamlan draum rætast og keypti sér bát og þau sigla um lygnan Eyja- fjörðinn á góðum dögum. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.