Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 61

Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 61
ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 FÓTBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Valur er Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í tólfta sinn eftir stór- sigur gegn Tindastóli í 15. umferð úrvalsdeildar kvenna, Pepsi Max- deildarinnar, á Origo-vellinum á Hlíðarenda í gær. Leiknum lauk með 6:1-sigri Vals en Fanndís Friðriksdóttir skoraði tvívegis fyrir Valskonur eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 62. mínútu. Valskonur byrjuðu leikinn af krafti, skoruðu eftir sex mínútna leik, og bættu svo við öðru marki á 35. mínútu og leiddu 2:0 í hálfleik. Þær létu kné fylgja kviði í síðari hálfleik en sigur Vals var aldrei í hættu og þær voru með fulla stjórn á leiknum allt frá fyrstu mínútu. „Þetta var afar öruggur sigur hjá liði Vals og svo sannarlega sann- gjarn. Sóknarlína Vals var til fyr- Morgunblaðið/Sigurður Unnar Íslandsmeistarar Valskonur fögnuðu sigrinum og tólfta Íslandsmeistaratitlinum vel og innilega með stuðningsmönnum sínum á Hlíðarenda í gær. irmyndar í kvöld og áttu varnar- menn Tindastóls í miklum vandræðum með léttleikandi lið Vals. Satt að segja reyndi ekki mikið á varnarlínuna hjá Val í kvöld þar sem Tindastóll sótti ekki á mörgum leik- mönnum,“ skrifaði Þór Bæring Ólafsson meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Þetta er annar Íslandsmeistara- titill Vals á þremur árum en liðið vann deildina síðast tímabilið 2019. Valskonur eru með 41 stig á toppi deildarinnar eftir sextán spilaða leiki. Breiðablik er í öðru sætinu með 31 stig eftir fimmtán spilaða leiki og því ljóst að Blikar, sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar, geta ekki náð Valskonum að stigum. Eins og áður sagði var þetta tólfti Íslandsmeistaratitill Valskvenna en Breiðablik hefur unnið Íslands- meistaratitilinn átján sinnum. KR hefur sex sinnum orðið Ís- landsmeistari og FH og Stjarnan fjórum sinnum hvor. Meistarar í tólfta sinn - Valur er Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu eftir stórsigur gegn Tindastóli Knattspyrnumaðurinn Steven Len- non leikur ekki meira með FH á þessari leiktíð. Lennon meiddist í 5:0-sigri FH gegn Keflavík á HS Orku-vellinum í Keflavík í 18. um- ferð deildarinnar um síðustu helgi og missir því af lokaleikjum tíma- bilsins. Lennon, sem er 33 ára gam- all, hefur skorað 9 mörk í sautján leikjum með FH í efstu deild í sum- ar en alls á hann að baki 182 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað 97 mörk. FH hefur valdið vonbrigðum í sumar en liðið er með 26 stig í 6. sæti deildarinnar. Missir af lokaleikjunum Ljósmynd/Kristinn Steinn Meiddur Lennon hefur skorað níu mörk í úrvalsdeildinni í sumar. Anton Sveinn McKee mun stinga sér til sunds á ný í fyrsta skipti síð- an á Ólympíuleikunum í Tókýó þeg- ar ISL-mótaröðin hefst á ný í da- g.Eins og áður keppir Anton þar fyrir Toronto Titans en um liða- keppni er að ræða og verður nú keppt á Ítalíu. Deildin var stofnuð 2019 og er fyrsta atvinnu- mannadeildin í íþróttinni. Liðin eru tíu sem hvert og eitt er skipað 32 sundmönnum sem teljast til bestu sundmanna heims. Anton fór mikinn í deildinni á síð- asta tímabili og setti fjölda meta. Keppir aftur fyrir Toronto Ljósmynd/Simone Castrovillari Ítalía Anton Sveinn McKee keppir í bringusundi í Napolí á næstunni. VALUR – TINDASTÓLL 6:1 1:0 Elín Metta Jensen 6. 2:0 Cyera Hintzen 35. 3:0 Mist Edvardsdóttir 48. 4:0 Ásdís Karen Halldórsdóttir 58. 5:0 Fanndís Friðriksdóttir 70. 5:1 Jacqueline Altschuld (víti) 84. 6:1 Fanndís Friðriksdóttir 88. M Elín Metta Jensen (Val) Cyera Hintzen (Val) Mary Vignola (Val) Dóra María Lárusdóttir (Val) Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val) Mist Edvardsdóttir (Val) Lára Kristín Pedersen (Val) Fanndís Friðriksdóttir (Val) Amber Michael (Tindastól) Jaqueline Altschuld (Tindastól) Dómari: Sveinn Arnarsson – 8. Áhorfendur: Um 150. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og grein um leikinn – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. _ Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Aalborg í sínum fyrsta leik fyrir félagið þegar liðið mætti Mors í danska meistarabikarnum í hand- knattleik í Viborg í gær. Leiknum lauk með 33:25-sigri Aalborgar sem leiddi með einu marki í hálfleik, 15:14, en jafnræði var með liðunum í fyrri hálf- leik. Aalborg náði snemma fimm marka forskoti í síðari hálfleik og Mors tókst ekki að snúa leiknum sér í vil etir það. Aron gekk til liðs við Aalborg í sumar eftir fjögur ár í herbúðum Barcelona á Spáni en Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aalborgar. _ Hið kunna franska íþróttablað L’Equipe fullyrti í gær að knatt- spyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo væri reiðubúinn að ganga til liðs við Manchester City. Fari svo að Ronaldo verði leikmaður Manchester City þá myndu það teljast nokkur tíðindi þar sem hann lék lengi með Manchester United og er afar vinsæll í þeim hluta borgarinnar. Ronaldo er samnings- bundinn Juventus á Ítalíu en samn- ingur hans rennur út næsta sumar. _ Davíð Snorri Jónsson, þjálfari U21 árs landsliðs karla í knattspyrnu, tilkynnti í gær hvaða leikmenn munu spila fyrir Íslands hönd gegn Hvíta-Rússlandi og Grikklandi í undankeppni EM 2023 í byrjun september. Hefst þá ný undan- keppni hjá liðinu. Leikmannahópinn má sjá í frétt á mbl.is/sport. _ Harry Kane, framherji enska knatt- spyrnufélagsins Tottenham, verður áfram í herbúðum enska félagsins. Þetta tilkynnti hann á samfélags- miðlum sínum í gær. Kane hefur verið sterklega orðaður við Manchester City en Englandsmeistararnir lögðu fram nokkur tilboð í leikmanninn. „Það var ótrúlegt að sjá móttökurnar sem ég fékk frá stuðningsmönnum Tottenham um síðustu helgi. Ég verð áfram í herbúðum félagsins og er ein- beittur á að hjálpa liðinu að ná mark- miðum sín- um,“ sagði Kane m.a. í yfirlýsing- unni. Eitt ogannað asta landsliðsverkefni var orkan á milli eldri og yngri leikmanna liðsins,“ sagði Arnar Þór Við- arsson, þjálfari íslenska liðsins, á blaðamanna- fundi landsliðsins í höfuðstöðvum KSÍ í Laug- ardalnum í gær þegar hópurinn var opinberaður. „Það er akkúrat þessi orka og tenging sem er gríðarlega mikilvæg fyrir okkur til að ná fram því sem við viljum fá frá liðinu. Þessi tenging milli leikmanna gæti orðið okkar helsti stykleiki í þessum þremur heimaleikjum. Við erum því gríðarlega spenntir fyrir þessu verkefni og hópnum sem við veljum núna,“ bætti Arnar meðal annars við. Fleiri fréttir um landsliðshóp Íslands má sjá á mbl.is/sport/efstadeild og þar er einnig hægt að sjá landsliðshópinn í heild sinni. HM 2022 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Andri Lucas Guðjohnsen og Mikael Egill Ell- ertsson eru einu nýliðarnir í landsliðshóp ís- lenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi í undankeppni HM í byrjun sept- ember en allir leikirnir fara fram á Laug- ardalsvelli. Ísland mætir Rúmeníu 2. september, Norð- ur-Makedóníu 5. september og loks Þýska- landi hinn 8. september en íslenska liðið er með 3 stig í fimmta og næstneðsta sæti J-riðils undankeppninnar. Armenía trónir nokkuð óvænt á toppi riðils- ins með 9 stig eða fullt hús stiga, Norður- Makedónía og Þýskaland koma þar á eftir með 6 stig, Rúmenía og Ísland eru með 3 stig og Liechtenstein er án stiga í neðsta sæti riðilsins. Markvörðurinn Patrik Sigurður Gunn- arsson gæti einnig leikið sinn fyrsta landsleik og þá eru margir reynslulitlir leikmenn í hópn- um á borð við Brynjar Inga Bjarnason, Alfons Sampsted, Andra Fannar Baldursson, Þóri Jó- hann Helgason og Ísak Bergmann Jóhann- esson. Lykilmenn fjarverandi Birkir Bjarnason og Birkir Már Sævarsson eru reynslumestu leikmennirnir í hópnum að þessu sinni með 98 A-landsleiki hvor. Kári Árna- son kemur þar á eftir með 89 A-landsleiki, Ari Freyr Skúlason hefur leikið 79 A-landsleiki líkt og Jóhann Berg Guðmundsson og Kolbeinn Sig- þórsson kemur þar á eftir með 64 A-landsleiki. Íslenska liðið saknar hins vegar margra lyk- ilmanna en landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er ekki í hópnum að þessu sinni, sem og Gylfi Þór Sigurðsson og Ragnar Sig- urðsson. Aron Einar greindist með kórónuveiruna á dögunum og er á miðju undirbúningstímabili með félagsliði sínu Al-Arabi. Gylfi Þór Sigurðs- son er í farbanni eftir að hafa verið handtekinn í júlí, grunaður um brot gegn ólögráða ein- staklingi, og Ragnar Sigurðsson var ekki val- inn að þessu sinni. „Það sem við vorum ánægðastir með úr síð- „Gæti orðið okkar helsti styrkleiki“ - Landsliðsfyrirliðinn ekki valinn að þessu sinni - Þrír leikmenn gætu leikið sinn fyrsta A-landsleik

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.