Morgunblaðið - 26.08.2021, Síða 63

Morgunblaðið - 26.08.2021, Síða 63
MENNING 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND DWAYNE JOHNSON EMILY BLUNT HUGH JACKMAN B andaríska dreifingar- fyrirtækið A24 ber með sér gæðastimpil fyrir sjálfstæðar (e. independ- ent, þ.e.a.s. ekki framleiddar af hollywoodrisunum) gæðamyndir sem hljóta jafnan brautargengi í listabíóum veraldar. Frá stofnun fyrirtækisins árið 2012 hefur það staðið á bak við margar verðlauna- myndir, t.a.m. óskarsverðlauna- myndina Tunglskin (Barry Jenkins, 2016), en eitt af sérkennum þess er mengi af sérkennilegum og vellukk- uðum hrollvekjum eins og Nornin (Robert Eggers, 2015), Undir húð- inni (Jonathan Glazer, 2014) og Ættgengi (Ari Aster, 2018). Kvik- myndin Draugasaga (2017) eftir David Lowery fellur í þann flokk og þrátt fyrir að ná ekki sömu vin- sældum og fyrrnefndir titlar hlaut hún lof gagnrýnenda í sama mæli. Græni riddarinn fellur ekki beint inn í hrollvekjugreinina þótt hún beri ákveðna undirtóna hennar, heldur eru vegir fantasíunnar og riddarasagna fetaðir. Myndin á þó hiklaust heima í hópi sérlundaðra greinamynda sem fyrirtækið hefur dreift og/eða framleitt og er gagn- legt að skoða hana í því samhengi. Lowery er veitt bolmagn og svig- rúm til að hverfa til miðalda og er allt umfang og umgjörð með metn- aðarfyllsta hætti. Verkið er sýn höfundar (Lowery klippir, leikstýrir og skrifar) með öllum sínum vört- um. Umrædd kvikmynd er aðlögun á miðensku riddarasögunni Sir Gaw- ain and the Green Knight sem er hluti af goðsagnaheimi Artúrs kon- ungs og riddara hringborðsins. Frumtextinn er kvæði í hundrað og einu erindi og elsta handritið sem varðveitir það er rakið til aldamót- anna 1400. Ekki krefst það mikillar rannsóknar (sú litla sem var unnin, var gerð eftir áhorf á myndinni) að sjá að kvikmyndin er afar ónákvæm og frjálsleg í aðlögun sinni á frum- textanum. Það ætti ekki að koma á óvart eða vera löstur í sjálfu sér en vekur um leið klassíkar spurningar um sýn listamannsins á frumtext- ann – af hverju breytingar stafi, hvaða erindi listamaðurinn telji textann eiga við sig og nútímann. Í þessu tilviki er „árekstur“ leikstjór- ans við miðaldirnar uppskrift að frásögn og söguheimi sem gengur ekki fyllilega upp. Grunnupplegg sögunnar er á þennan veg: Hirð Artúrs konungs fagnar jólum er óvæntan gest ber að garði, grænan yfirlitum og reyndar alklæddan grænu. Kappi er nokkuð ósvífinn og manar Artúr og hirðina í leik (sem voru algengir þar í heimi). Leikurinn er á þann veg að hann býður kónginum (eða þeim sem þorir, í myndinni a.m.k.) að hálshöggva sig með því skilyrði að hann fái að endurgjalda bragðið að ári liðnu. Gawain, ungur frændi konungsins, þiggur boðið og rekur smiðshöggið en græni riddarinn lætur það ekki á sig fá og tekur upp blóðugt höfuðið og kveður að sinni – sjáumst að ári liðnu! Sir Gawain er leikinn af Dev Patel (m.a. þekktur fyrir aðalhlut- verk í Viltu vinna milljarð? (Boyle, 2008) og nýja aðlögun á Davíð Copperfield (Armando Ianucci, 2019)). Í upphafi myndar er honum fylgt í gegnum myrka ganga vænd- ishúsa þar sem hann dvelur löngum stundum, en móðir hans er ekki par sátt við iðjulausan soninn á jólunum sjálfum. Móðirin er systir konungs- ins og stendur í kukli til að fá græna riddarann sem örlagavald í líf sonarins (ef allt er rétt skilið). Í hringborðssenunni afdrifaríku kall- ar konungurinn frænda sinn til sín, afsakar að hann hafi ekki áður veitt honum athygli og biður hann að segja sér sögu. Gawain hefur ekki frá neinu að segja, hann hefur ekki gert neitt. Hann er fordekraður lúser, engin riddari. Leikaraval og förðun á konungi og drottningu er skemmtilegt en þau eru afar föl og veikluleg að sjá. Samtal frændanna vekur athygli á hljóðrásinni: ekkert heyrist í ridd- urum hringborðsins sem sitja að sumbli, heldur má aðeins heyra aðalleikendur tala lágum rómi og tónlist sem leikin er undir. Hljóð- myndin er sem sagt ekki á neinn hátt raunsæisleg. Fiðlur og manns- raddir einkenna tónlist myndar- innar, sem er gegnumgangandi og ofnotuð, þótt hún sé vel gerð. Að öðru leyti virðist Lowery þok- ast að „raunsærri“ mynd af miðöld- um, að minnsta kosti að færa goð- sögnina til upplifunar fyrir Jón og Gunnu. Breytingin á aðalpersón- unni hlýtur að teljast liður í þessu en í kvæðinu er kynferðisleg van- kunnátta Gawains lykilþáttur en hér er hann talsvert veraldarvan- ari. Hljóðmyndin á að upplagi að auka innlifun áhorfandans í hugar- heim söguhetjunnar – hennar sjón- arhóll verði okkar, en til þess er búið að afskræma meginreglurnar of mikið. Tæpu ári seinna fer Gawain af stað til að mæta ridd- aranum í Grænu kapellunni og hefst þá sundurlaus framvinda, sem er skipt í aðgreinda þætti með millititlum. Gawain er misheppn- aður í riddaraleik – ekta andhetja fyrir póstmóderníska öld. Afbygg- ing Lowerys á aldagömlum texta gengur þó ekki upp – frásögnin of brotakennd og teygð þótt hún hafi ljósa punkta. Búningar og leikmynd eru í hæsta gæðaflokki og kvik- myndataka áhugaverð á köflum. Hápunkturinn er án efa hönnunin á græna riddaranum, sem er magn- aður á að líta, undarleg blanda af tré og manneskju. Ytri þættir eru þó ekki nóg til að bæta innihaldið. Misskilin riddarasaga Borgarbíó, Háskólabíó, Laugar- ásbíó og Smárabíó Græni riddarinn/The Green Knight bbmnn Leikstjórn, handrit og klipping: David Lowery. Kvikmyndataka: Andrew Droz Palermo. Aðalleikarar: Dev Patel, Alicia Vikander, Joel Edgerton, Sarita Choudh- ury. Kanada/Írland/Bretland/ Bandaríkin, 2021. 130 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR Fordekraður Dev Patel í hlutverki sir Gawains.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.