Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 66

Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Norsk-íslenska tónlistarkonan Odd- rún Lilja Jónsdóttir hefur ferðast víða um heim og hafa ferðalögin veitt henni mikinn innblástur. Í fyrra gaf hún út plötuna Marble, sem hefur hlotið góðar viðtökur í Noregi, og ætlar nú að halda þrenna tónleika hér á landi þar sem hún mun leika tónlist af plötunni. Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld, fimmtudagskvöld 26. ágúst, kl. 20, hjá Jazzfjelagi Suðurnesja. Aðrir tónleikar verða í Norðurljósum Hörpu á Jazzhátíð Reykjavíkur á laugardag, 28. ágúst, og loks kemur hún fram í Vinaminni á Akranesi mánudaginn 30. ágúst. Með gítarleikaranum Oddrúnu munu leika íslenskir gestatónlist- armenn, Sunna Gunnlaugsdóttir á píanó og Erik Qvick á trommur, auk þess sem hollenska söngkonan Sanne Rambags og norski bassaleik- arinn Jo Skaansar verða með í för. „Þetta verður spennandi. Ég hlakka til að koma heim til Íslands og spila,“ segir Oddrún. Á Marble er að finna tíu lög sem hvert um sig heitir eftir þeirri borg sem veitti Oddrúnu innblástur. „Ég er búin að vinna með þjóðlagatón- listarfólki um allan heim. Ég hef til dæmis verið í Keníu, Eþíópíu, Ind- landi, Nepal og mörgum fleiri stöð- um.“ Raga, gnawa og íslenskt Oddrún er sjálf djasstónlistar- maður í grunninn og spilar með ýmsum norskum djasshljóm- sveitum. „Ég er búin að stúdera djass í Noregi en ég hef fengið mik- inn innblástur frá því fólki sem ég hef unnið með. Þú getur heyrt inn- blásturinn frá þjóðlagatónlist frá ýmsum stöðum í tónlistinni á plöt- unni,“ segir hún. Þar séu meðal ann- ars ummerki um indverska raga- tónlist, gnawatónlist frá Marokkó og jafnvel geti maður heyrt íslensk áhrif. „Ég þurfti að búa til þessa plötu af því ég þurfti að hafa ein- hvern stað til þess að safna saman öllum áhrifunum,“ segir Oddrún. Hverju lagi á Marble fylgir saga af ferðalögum og kynnum af heima- mönnum. Um tengsl sín við Indland og innblásturinn fyrir lagið „Kol- kata“ segir hún: „Ég er búin að vera að spila með sítarleikara frá Pak- istan í átta ár. Hann er ragatónlist- armaður í níunda ættlið. Hann tók mig með til Indlands og við vorum þarna í mánuð og æfðum tíu tíma á dag og spiluðum á raga-hátíðum. Það var mjög spennandi.“ Lagið „Tyr“ á rætur að rekja til samnefndrar borgar í Líbanon. Þar eru flóttamannabúðir fyrir Palest- ínumenn og í þeim búðum er að finna hljómsveit fyrir börn. „Þangað geta börnin komið einu sinni í viku til þess að spila saman. Þarna eru saxófónn, fiðlur, trommur, gítarar og fleira. Ég er búin að fara þangað tvisvar til þess að vinna með þeim. Þau spila á plötunni. Við tókum lagið upp í Noregi og svo var kór og hljómsveit tekin upp í Líbanon.“ Íslenskur innblástur Síðasta lagið á plötunni ber titilinn „Reykjavík“. Oddrún fæddist í Nor- egi en bjó tvisvar á Íslandi sem barn, fyrst þegar hún var eins árs og svo þegar hún var ellefu ára. Móðir hennar er íslensk en faðirinn er norskur. Oddrún hefur haldið móð- urmálinu við og fer samtalið við blaðamann fram á ágætri íslensku. „Ég var forvitin um tónlistarsviðið á Íslandi svo árið 2014 bókaði ég nokkra tónleika þar og spurði Matt- hías Hemstock, Leif Gunnarsson og Sigrúnu Jónsdóttur hvort þau vildu spila með mér. Nokkrum árum seinna var ég beðin að semja tónlist fyrir tónlistarhátíð og var að vinna með norskri konu, sem er fiðluleik- ari frá Harðangri í Noregi og sér- hæfir sig í þjóðlagatónlist. Við fórum til Harðangurs og til Íslands til að kynna okkur þjóðlagatónlist. Við hlustuðum á tvísöng og rímur og skrifuðum nýja tónlist.“ Heyra má áhrif frá íslenskri þjóð- lagatónlist í lokalagi Marble. „Ég skrifaði lagið „Reykjavík“ þegar fjölskyldan mín frá Íslandi var í heimsókn í Noregi. Þá skrifaði ég gítarmelódíu og svo skrifaði ég ljóð sem mamma mín og frænka þýddu yfir á íslensku.“ Gítarleikari Hin norsk-íslenska Oddrún Lilja hefur ferðast um allan heim og unnið með þjóðlagatónlistarfólki. Tíu lög, tíu lönd, tíu sögur - Oddrún Lilja Jónsdóttir, hálfíslensk tónlistarkona frá Noregi, heldur tónleika hér á landi - Spilar tónlist af plötunni Marble sem er innblásin af ferðalögum Orri Vésteinsson fornleifafræð- ingur leiðir sögugöngu á Rauðar- árholti í kvöld kl. 20. Gangan, sem hefst fyrir framan Sjómannaskól- ann, er hluti af hverfishátíðinni Menning og minjar á Rauðarárholti sem Vinir Saltfiskmóans standa fyrir 26. ágúst til 4. september. Í lýsingu á sögugöngunni segir: „Reykjavíkurborg hefur vaxið hratt á skömmum tíma og víðast hvar hefur borgarlandslagið valtað yfir holt og móa og afmáð öll um- merki um það sem áður var – gamla búsetulandslagið og eldri kafla í sögu borgarinnar sjálfrar. Á stöku stað hafa þó orðið eftir svæði þar sem hægt er að skynja það sem á undan er gengið, eins og gluggar inn í fortíðina. Einn af þessum stöð- um er Rauðarárholt þar sem röð at- vika hefur valdið því að dálítið opið svæði hefur orðið eftir. Orri mun stikla á stóru um sögu Rauðarár- holts og setja í samhengi við þróun borgarinnar og lífsgæðin sem hún býr íbúum sínum.“ Orri er prófessor í fornleifafræði við sagnfræði- og heimspekideild hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Rannsóknir hans beinast að land- námi, mótun samfélags í kjölfar landnáms og langtímaþróun hag- kerfis og félagsgerðar. Hverfishátíðin Menning og minj- ar á Rauðarárholti er styrkt af Reykjavíkurborg í gegnum Borgina okkar 2021. Aðgangur er ókeypis. Fortíð Úrklippa af Herforingjaráðskorti frá 1909. Rauðarárholt má sjá neðst á kortinu. Söguganga með Orra Vésteinssyni Eins og þú ert núna var ég einu sinni / Eins og ég er núna, svo munt þú verða nefnist sýning sem opnuð er í Nýlistasafninu í dag milli kl. 17 og 21. Um er að ræða samsýningu þriggja myndlistarmanna sem búa og starfa á Íslandi, þeirra Klavs Liepins, Renâte Feizaka og Rai- monda Sereikaitë-Kiziria. „Með ólík sjónarhorn mætast þau á töfrandi hátt á vettvangi óviss- unnar sem fylgir manneskjunni,“ segir í tilkynningu. Sýningarstjóri er Katerína Spathí. Sýningin stendur til 3. októ- ber og verður opin á hefðbundnum afgreiðslutímum safnsins út sýning- artímabilið. Samsýning opnuð í Nýlistasafninu Óvissa Eitt verkanna á sýningunni. Margir heims- kunnir listamenn hafa minnst trommarans Charlies Watts úr Rolling Stones sem lést í fyrra- dag, áttræður að aldri. Félagar hans úr hljóm- sveitinni, þeir Mick Jagger og Keith Richards, minntust Watts á Twitter með ljós- myndum, annars vegar af honum skælbrosandi við trommusettið og hins vegar af trommusetti með merkimiða sem á stendur „lokað“. „Hann var hinn fullkomni trommu- leikari,“ skrifaði Elton John á sama miðli og birti gamla mynd af þeim Watts saman. Tom Morello úr Rage Against the Machine sagði að rokk- ið væri ekki það sem það er í dag hefði Watts ekki notið við. Bítillinn Ringo Starr bað guð að blessa Watts og félagi hans Paul McCart- ney minntist trommarans með víd- eói. „Hinn fullkomni trommuleikari“ Charlie Watts Veiðivefur í samstarfi við

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.