Morgunblaðið - 26.08.2021, Page 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2021
Fidelio, eina óperan sem Beethoven
samdi, verður sýnd í styttri útgáfu í
Norðurljósum í kvöld í leikstjórn
Bjarna Thors Kristinssonar bassa-
söngvara sem jafnframt samdi leik-
gerðina og syngur í uppfærslunni
sem er um 75 mínútur að lengd og á
vegum Óperudaga. Segir á facebook-
síðu viðburðarins að afleiðingar frels-
issviptingar, hlutverk kynjanna, ást
og grimmd séu viðfangsefnin í þess-
ari uppfærslu.
Átti að sýna í fyrra
Upphaflega var ætlunin að sýna
verkið á 250 ára afmæli tónskáldsins í
fyrra en vegna kófsins varð ekkert af
því. Nú er hins vegar komið að sýn-
ingu, á 251 árs afmæli tónskáldsins
og 40 árum eftir að óperan var sýnd
hér á landi í fyrsta og eina skiptið, þá
í tónleikaformi, árið 1981.
Í óperunni segir af Leonore nokk-
urri sem leitar eiginmanns síns Flor-
estans sem ómennið Pizarro heldur
föngnum. Hún dulbýr sig sem karl-
maður, tekur upp nafnið Fidelio og
kemur sér í mjúkinn hjá undirmanni
Pizarros, Rocco, eins og segir um
óperuna í tilkynningu. Marzelline,
dóttir Roccos, verður ástfangin af
Fidelio á meðan vonbiðill hennar
Jacquino gerir allt til að ná athygli
hennar. Á meðan bíður Florestan ör-
laga sinna.
Fyrst haldin 2016
Já, dramatíkin er mikil eins og oft
vill verða í óperum og þegar ljós-
myndari leit inn á æfingu í byrjun
vikunnar gekk mikið á, eins og mynd-
irnar bera með sér. Með hlutverk
Roccos fer Bjarni Thor, Egill Árni
Pálsson er með hlutverk Florestan,
Dísella Lárusdóttir með hlutverk
Marzelline, Gissur Páll Gissurarson
með hlutverk Jacquino og Oddur
Arnþór Jónsson með hlutverk Piz-
arro. Sem fyrr segir er verkið sýnt í
styttri útgáfu og í útsetningu Daniels
Schlosbergs fyrir sjö manna hljóm-
sveit.
Óperudagar er grasrótarhátíð klass-
ískra söngvara á Íslandi og samstarfs-
fólks þeirra og var hátíðin fyrst haldin í
Kópavogi árið 2016. Var hún valin Tón-
listarhátíð ársins á Íslensku tónlistar-
verðlaununum árið 2019. „Á hátíðinni
er leitast við að beina athyglinni að
klassískri sönglist í öllum sínum mis-
munandi formum og bjóða upp á við-
burði á venjulegum og óvenjulegum
stöðum um allan bæ sem og að efla
starfsvettvang klassískra söngvara og
samstarfsfólks þeirra hér á landi.
Áhersla er lögð á alþjóðlegt samstarf,
samfélagsleg verkefni, ýmiss konar til-
raunir og viðburði fyrir alla aldurs-
hópa,“ segir um hátíðina á Facebook.
Miðasala á Fidelio fer fram á vefn-
um Tix.is og frekari upplýsingar um
Óperudaga má finna á operudagar.is.
Kynjahlutverk, ást og grimmd
- Atlaga gerð að óperu Beethovens, Fidelio, í Norðurljósum í kvöld - Óperan
sýnd á Íslandi árið 1981 - Bjarni Thor samdi leikgerð, leikstýrir og syngur
Fjör Bjarni Thor, Gissur Páll og Dísella á æfingu í Norðurljósum í fyrrakvöld og var glatt á hjalla og mikið havarí og innlifun, eins og sjá má.
Átök Gissur Páll í öngum sínum.
Myndlistarmennirnir Eggert Pét-
ursson og Einar Garibaldi Eiríks-
son veita leiðsögn um sýninguna
Eilíf endurkoma á Kjarvalsstöðum
í kvöld kl. 20 og er nauðsynlegt
fyrir þá sem vilja sækja hana að
skrá sig á vef Listasafns Reykja-
víkur. Á sýningunni mynda verk
Jóhannesar S. Kjarvals þráð sem
tengir tvenna tíma, að því er fram
kemur á vefnum og er verkum
hans teflt fram með verkum
myndlistarmanna sem sett hafa
svip sinn á íslenskt listalíf hin síð-
ustu ár.
Aðgangur er ókeypis að leið-
sögninni.
Listamenn Eggert Pétursson og Einar
Garibaldi Eiríksson segja frá sýningu.
Eggert og Eiríkur
veita leiðsögn
Jónatan Grétarsson og Sigurður
Ámundason opna samsýninguna
Formlag í Midpunkt á listahátíð-
inni Hamraborg festival í kvöld kl.
20. Listamaðurinn Goddur skrifar
af því tilefni: „Listasagan snýst
nánast öll um hlutföll af tvennum
toga. Annars vegar á mannslíkam-
anum og landslagi, hins vegar um
grunnformin; ferninga, þríhyrn-
inga og hringi eða kassaform,
píramída og kúlur. Fyrri hlutinn
eru náttúruform en seinna fyr-
irbærið eru huglægar greiningar á
grundvelli alls sem við horfum á,
frumformum. Myndbygging er
grundvölluð oftar en ekki á þess-
um formum, þau leynast á bak við.
Vörumerkin sem Sigurður vinnur
með eru samspil á milli tákna, auð-
kenna, tilvísana, leiðsagna, að-
dráttar, eins konar leiðarljós, vitar
og vörður. Þau vísa að innri heimi,
symbólisma. Myndir Jónatans eru
líka samspil. Mannslíkaminn er
staðsettur í kassaformum í form-
líkingu landslags, eins konar
stuðlabergi. Formlag er réttnefni á
þessari samsýningu. Tvö mismun-
andi sjónarhorn á það sem sjón-
rænn hluti alheimsins byggir allt
sitt á.“
Samsýning Jónatan Grétarsson og Sigurður Ámundason sýna saman.
Jónatan og Sigurður í Midpunkt
Sigurður Ang-
antýsson Hólm
opnar myndlist-
arsýningu í Gall-
eríi Gróttu í dag,
26. ágúst, kl. 17
og ber hún titil-
inn Aðskota-
hlutir. Sigurður
sýnir landslags-
myndir sem eru
draumkenndar í
eðli sínu og lýsa frekar þeim lands-
lögum sem búa í undirmeðvitund
okkar heldur en þeim sem við
sjáum dags daglega, eins og segir í
tilkynningu. Aðskotahlutir vísi í
þessu tilfelli í allt sem við getum
ekki borið kennsl á í eigin hugar-
heimum. Á sýningunni má sjá mál-
verk og teikningar frá þessu ári.
Sigurður er menntaður í graf-
ískri hönnun og sjálfstætt starfandi
hönnuður og myndlistarmaður.
Aðskotahlutir í
Galleríi Gróttu
Sigurður Ang-
antýsson Hólm
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
Allt til
kerrusmíða
2012
2020
Morgunblaðið/Eggert