Morgunblaðið - 26.08.2021, Qupperneq 72
Sófadagar
SCOTT HORNSÓFI MEÐ TUNGU
Bonded koníakslitað leður. Litur: Kentucky 9 cognac.
Fætur eru úr duftlökkuðu stáli. H85xB206xL349cm.
429.900 kr. Nú 343.920 kr.
LARVIK HORNSÓFI MEÐ TUNGU
H79xB208xL301cm
229.900 kr. Nú 183.920 kr.
PETRI ÞRIGGJA SÆTA SÓFI
Toro emerald flauelsáklæði. H78xD105xL242cm.
229.900 kr. Nú 137.900 kr.
LINA HÆGINDASTÓLL OG SKEMILL
Ljósgrátt áklæði og beykifætur. Stóll 79.900 kr. Nú
63.920 kr. Skemill 19.900 kr. Nú 15.920 kr.
PABLO
GÓLFLAMPI
24.995 kr.
Nú 19.996 kr.
20%
af öllum mottum
Sparadu-
20%
af öllum HÆGINDASTÓLUM
Sparadu-
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
Virkir dagar 11-18:30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
Virkir dagar 11-18
s: 522 4500 - www.ILVA.is
BELLA SÓFABORÐ
H39x Ø90cm
74.900 kr. Nú 59.920 kr.
Fyrstu tónleikar vetrarins í tónleikaröðinni Á ljúfum
nótum í Fríkirkjunni verða haldnir í dag, 26. ágúst, kl.
12. Á efnisskrá tónleikanna verða hress og skemmtileg
gítarverk frá Suður-Ameríku og Frakklandi sem Óskar
Magnússon, gítarleikari og flytjandi á tónleikunum,
hefur haldið mikið upp á í gegnum árin. Tónleikarnir
fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og verða um 30
mínútur að lengd.
Á ljúfum nótum með Óskari
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 238. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Valur er Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í tólfta
sinn eftir stórsigur gegn Tindastóli í úrvalsdeildinni,
Pepsi Max-deildinni, á Hlíðarenda í gær. Leiknum lauk
með 6:1-sigri Vals og hefur Valur tíu stiga forskot á
Breiðablik sem er í öðru sæti og á leik til góða. Breiða-
blik á þrjá leiki eftir og getur þar af leiðandi ekki náð
Val að stigum úr því sem komið er.
Valur varð Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í
tólfta sinn og hefur unnið tvívegis á síðustu þremur ár-
um eftir mögur ár þar á undan. »61
Valur varð í gær Íslandsmeistari
kvenna í knattspyrnu í tólfta sinn
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Átta metra hár heggur í reit gömlu
gróðrarstöðvarinnar við Rauðavatn í
Reykjavík var í gær við hátíðlega at-
höfn útnefndur tré ársins af Skóg-
ræktarfélagi Íslands. Útnefningin er
árleg og er ætlað að beina sjónum að
skógræktarstarfi í landinu og menn-
ingarsögu einstakra trjáa. Fyrsta
útnefningin var árið 1989 og hefur
svo verið árleg frá 1992. Gráreynir,
rauðgreni og víðir eru útnefningar
síðustu ára og nú var röðin komin að
heggnum.
Græn borgarmynd
„Tré eru sterkur hluti af grænni
borgarmynd Reykjavíkur,“ sagði
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
sem veitti viðtöku skjali sem stað-
festir titilinn sem heggurinn nú ber.
Þeir Dagur og Hafliði Þórisson sem
rekur gróðrarstöðina Lambhaga í
Úlfarsárdal afhjúpuðu skilti þar sem
fram kemur margvíslegur fróðleikur
um skóginn við Rauðavatn, sem er á
landi í borgareign. Kunnugir telja að
heggurinn góði sé 100-120 ára,
sprottinn af rótarskoti eldra trés á
svæðinu. Dagur borgarstjóri vill þó
halda því fram að tréð sé á sínu reki í
aldri og nálgist fimmtíu árin. Sjálfur
er hann uppalinn í Árbæjarhverfi og
kom sem barn stundum í Rauða-
vatnslundinn.
Skógræktarfélag Reykjavíkur var
stofnað fyrir réttum og sléttum 120
árum, 25. ágúst 1901. Eitt af fyrstu
verkefnum þess var að kaupa 14
hektara skika til ræktunar við
Rauðavatn. Þar var plantað lengi og
í skóginum þar má finna ríflega ald-
argamlar fjallafurur, birki og rauð-
ber sem vaxa hvergi annars staðar á
Suður- eða Vesturlandi. Auk þess
var í einni röð sett niður sitkagreni,
250 metra löng röð grenitrjáa, sem
skýlir svæðinu frá Suðurlandsvegi.
Segja má svo að ræktunarstarf þetta
hafi haft smitandi áhrif, því í grónum
hverfum Reykjavíkur og víðar er
gjarnan að finna tré frá Rauðavatni.
Jafna kolefnisbókhaldið
í Reykjavík
„Skógræktarstarfið er í senn
áhugavert og gefandi,“ sagði Jó-
hannes Benediktsson, formaður
Skógræktarfélags Reykjavíkur, við
athöfnina í gær. Mörg spennandi
verkefni séu framundan eða yfir-
standandi á vettvangi félagsins. Ný-
lega hafi verið byrjað að planta í
loftslagsskóga í Úlfarsfelli. Með
slíku sé verið að jafna kolefnis-
bókhaldið í Reykjavík, rétt eins og
til standi að gera með frekara rækt-
unarstarfi í Esjuhlíðum og þá er
ræktun í Geldinganesi í því sama
skyni í undirbúningi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ræktunarfólk Í grænum lundi við Rauðavatn síðdegis í gær. Frá vinstri talið eru á þessari mynd: Jónatan Garð-
arsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, Jóhannes Benedikts-
son, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, og loks framkvæmdastjóri þess félags, Auður Elva Kjartansdóttir.
Heggur við Rauðavatn
- Tilkynnt var um tré ársins - Fallegur reitur í Reykjavík
- Aldur er álitamál - Loftslagsskógar komnir á dagskrá
Mælt átta metrar Tré ársins var
mælt eftir kúnstarinnar reglum.