Morgunblaðið - 16.09.2021, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
#9?4+ C :CB=23). 15= <8--+ 2E3 0?+32DA<+0-+ !9-93?=F
%D;6*31)<0+< G 'A<
"E--23). G (B23). G !>00+<
&13=?)7 *;5+<
!4042/5, " 650-53*2)./ '& " 7+/1# $%$%(%( <)3/-
Óðinn vitri á Viðskiptablaði opn-
ar glufu á hvað hann muni
hugsanlega kjósa annan laugardag.
Þessi flokkur er varla heitur:
- - -
Viðreisn var
stofnuð af fólki
sem hélt því fram
að flokkurinn væri
hægriflokkur. Í ein-
staka málum hefur
Viðreisn staðið sig
ágætlega. Þing-
menn flokksins
stóðu sig til að
mynda vel í um-
ræðum um krabba-
meinsleit, þegar
heilbrigðisráðherr-
ann, heilbrigðis-
ráðuneytið og
Landspítalinn
brugðust al-
gjörlega. Einnig
hefur flokkurinn
barist fyrir því að landbúnaðar-
kerfið verði endurskoðað frá
grunni.
- - -
En hvernig eiga hægrimenn að
geta stutt flokk sem vill ganga
í miðstýrt bandalag – tollabandalag
– sem nefnist Evrópusambandið?
- - -
Og myntbandalag þar sem efna-
hagur margra aðildarríkjanna
stendur á brauðfótum? Krónan er
ekki gallalaus. En hvað er evran?
Hún er pólitískur harmleikur fyrir
mörg aðildarríki myntbandalags-
ins.
- - -
Á það var bent í ræðu á dög-
unum að ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur hefði haft fjögur
meginstefnumál. Evrópusam-
bandið, evruna, að kollvarpa
fiskveiðistjórnunarkerfinu og
stjórnarskrána.
- - -
Og öll þessi mál hafi Viðreisn
tekið upp – án þess einu sinni
að biðja Jóhönnu um leyfi.“
Jóhanna önnur?
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
var tilkynnt í fyrrakvöld um hóp
unglinga sem höfðu verið að gera
dyraat. Hefði húsráðandi hlaupið
uppi einn unglinginn og haldið hon-
um þar til lögregla kom. Enginn
meiddist en málið var tilkynnt til
barnaverndar.
Hljóp uppi ungling
eftir dyraat
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar
samþykkti á fundi sínum 2. september sl. að ganga
að tilboði Þarfaþings ehf. um uppbyggingu og fulln-
aðarfrágang nýs leikskóla að Kleppsvegi 150-152.
Hins vegar var hafnað öllum tilboðum sem bárust í
uppbyggingu og fullnaðarfrágang leikskóla í Safa-
mýri 5, áður Safamýrarskóla.
Alls bárust átta tilboð í uppbyggingu leikskólans
við Kleppsveg og voru öll yfir kostnaðaráætlun,
sem hljóðaði upp á rúmar 837 milljónir. Meðal bjóð-
enda voru nokkur öflugustu fyrirtækin á verktaka-
markaði svo sem Ístak hf. og Íslenskir að-
alverktakar hf. Þarfaþing átti lægsta tilboðið,
krónur 927.073.459, sem var 110% af kostnaðar-
áætlun. Hæsta tilboðið átti Kappar ehf., tæpar
1.374 milljónir. Starfsmenn Þarfaþings eru byrj-
aðir að vinna á staðnum.
Fjögur tilboð bárust í uppbyggingu leikskóla í
Safamýri. Kostnaðaráætlun var rúmar 487 millj-
ónir og var eitt tilboð undir þeirri tölu, frá Gímó
ehf., 375 milljónir. Önnur tilboð, frá Alefli ehf., Flot-
gólfi ehf. og Spöngu ehf., voru yfir áætlun.
Reykjavíkurborg keypti fasteignirnar á Klepps-
vegi 150 og Kleppsvegi 152 á samtals rúmlega 642
milljónir króna. Hvort hús um sig er um eitt þús-
und fermetrar. Breyta átti húsnæðinu í leikskóla
fyrir 120-130 börn. Þarna var var áður að finna
margvíslega starfsemi, svo sem artkitektastofuna
Arkís og kynlífstækjabúðina Adam og Evu. Í frum-
kostnaðaráætlun borgaryfirvalda var gert ráð fyrir
að það myndi kosta 623 milljónir að breyta húsnæð-
inu í leikskóla. Nú er ljóst að framkvæmdin fer
langt fram úr áætlun. Heildarkostnaður við kaup
og endurgerð verður um 1.570 milljónir. Fulltrúar
minnihlutaflokkanna í borgarstjórn gagnrýndu
áform meirihlutans harðlega og töldu vænlegra að
jafna húsin við jörðu og byggja nýtt hús fyrir vænt-
anlegan leikskóla.
Samið um uppbyggingu leikskóla
við Kleppsveg fyrir 927 milljónir
Morgunblaðið/sisi
Kleppsvegur 152 Í þessu húsi var um skeið rekin kynlífstækjaverslun undir heitinu Adam og Eva.