Morgunblaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2021
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími
8:00-16:30
Mjög gott úrval af gæðakjöti
Krydd, sósur og ýmislegt fleira Ef þið eruð í hópi þeirra sem skil-
greinast sem taco-böðlar eða taco-
subbur þá er okkur það sönn
ánægja að tilkynna ykkur að nú
horfir til betri vegar.
Old El Paso hefur sett í sölu svo-
kallaða taco-vasa sem koma í stað
pönnukökunnar sem við setjum
alltaf alltof mikið í svo hún annað-
hvort springur eða það dettur allt
út um endann.
Taco-vasarnir ættu því nokkuð
augljóslega að fá hönnunarverð-
laun fyrir hagkvæmni og hentug-
leika, og fyrst við erum byrjuð á
þessu þá eru taco-bátarnir ekki
síðri fyrir subbur og alla sem vilja
borða reglulega með slíku fólki.
Snilldarhönnun Oft er það einfaldleikinn sem er bestur eins og í þessu til-
felli. Hverju datt eiginlega í hug að rúlla upp matnum?
Taco-subbur sjá
fram á betri tíma
Taco-bátur Bátarnir hafa slegið í
gegn enda stórsniðugir.
Viskíið er frá skoska framleiðandanum Glenli-
vet og hefur verið geymt í eikartunnu frá árinu
1940 eða í yfir 80 ár. Hefur tunnan nú verið
opnuð og mun fyrsti skammturinn fara í
flöskuna sem boðin verður upp og hefur hlotið
nafnið Decanter #1.
Það var arkitektinn sir David Adjaye sem
fékk það hlutverk að hanna flöskuna sem kem-
ur í eikarkassa sem á að tákna tunnuna sem
viskíið var í.
Sá sem kaupir flöskuna fær ýmislegt annað
með í kaupunum eins og viskísmökkun og inn-
rammaðan tappa úr tunnunni svo eitthvað sé
nefnt.
Ágóðinn rennur óskiptur til góðgerðarsjóðs-
ins Trees for Life sem berst fyrir uppgræðslu
skóglendis í Skotlandi.
Afgangurinn af viskíinu verður svo settur á
249 flöskur og geta áhugasamir sett sig í sam-
band við Gordon & MacPhail.
Elsta viskí
heims boðið
upp hjá
Sotheby’s
Í byrjun október verður boðin
upp afar fágæt flaska sem
inniheldur elsta viskí heims.
Ljósmynd/Sotheby’s
Eplakökumúffur
12-16 stykki
Stökkur toppur
40 g smjör við stofuhita
60 g púðursykur
50 g hveiti
½ tsk. kanill
Setjið allt saman í skál og myljið saman með
fingrunum svo úr verði mulningur til að setja
ofan á deigið á eftir. Leggið til hliðar á meðan
þið útbúið múffurnar.
Múffur – uppskrift
2 epli
150 g sykur
120 ml hunang
120 ml súrmjólk
120 ml ljós matarolía
2 egg
2 tsk. vanilludropar
80 g Til hamingju-tröllahafrar
300 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. kanill
½ tsk. salt
Hitið ofninn í 175°C.
Afhýðið eplin og skerið smátt niður (ég var
með eitt grænt epli og eitt „pink lady“), setjið í
stóra skál.
Hellið sykri, hunangi, súrmjólk, olíu, eggj-
um og vanilludropum yfir eplin og blandið
saman við með sleif.
Næst má blanda tröllahöfrunum saman við
og að lokum fer hveiti, lyftiduft, kanill og salt í
skálina.
Blandið öllu saman með sleif og setjið deigið
síðan í zip-lock-poka til að auðveldara sé að
skipta því í formin (eða notið ísskeið).
Setjið pappaform í álform. Ég var með
upphá pappaform og ákvað því að hafa færri
og stærri kökur en það má hafa hefðbundin
pappaform og skipta niður í fleiri einingar.
Þegar þið eruð búin að skipta múffudeiginu
niður í formin má setja kurlið ofan á og baka í
25-30 mínútur.
Best er að baka þar til prjónn kemur nokkuð
hreinn út, allt í lagi að það sé smá kökumylsna
á endanum en ekki blautt deig.
Dýrindis eplakökumúffur
Uppskriftir með eplum fylgja
haustinu og Berglind Hreiðars
á Gotteri.is segist mikil haust-
manneskja enda elski hún allt
sem því fylgi; lyktina, kuldann,
litina og ekki síst rútínuna. Hér
deilir hún með okkur æðislegri
uppskrift að eplakökumúffum
sem svíkja engan.
Haustmúffur Epli og kanill eiga alltaf sérlega vel við á haustin.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir