Morgunblaðið - 05.11.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2021
17. NÓV. - 01. DES.- 14 DAGA FERÐ
01. - 20. DES. - 20 DAGA FERÐ
Úrvalsferðir til Kanarí í vetur með íslenskri fararstjórn
og skemmtilegri dagskrá á sérkjörum.
Gott úrval gistinga í boði.
INNIFALIÐ Í VERÐI
BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA
INNRITUÐ TASKA 20 KG. OG HANDFARANGUR
GISTING Í 13 EÐA 19 NÆTUR
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI
VERÐ FRÁ 112.900 KR.
VERÐ Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA.
VERÐ FRÁ 129.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA.
ÚRVAL ÚTSÝN | 585 4000 | INFO@UU.IS | UU.IS
ÚRVALSFÓLK 60+
SÉRTILBOÐ TIL KANARÍ
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir skilaði minnisblaði til Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
í gær. Svandís vildi ekki tjá sig um
efnislegt innihald minnisblaðsins
en staðfesti í samtali við mbl.is að
um væri að ræða
tillögur að hert-
um samkomu-
takmörkunum.
„Já, þetta
snýst um hertar
takmarkanir. Við
þekkjum það vel
til hvaða aðgerða
er hægt að grípa
þegar faraldur-
inn er í vexti og
það er það sem
ríkisstjórnin mun fjalla um á
morgun [í dag],“ segir Svandís.
Hún segir þá einnig að minnisblað-
ið fjalli eingöngu um takmarkanir
innanlands.
Átak í bólusetningum
Spurð hvort hún hafi áhyggjur
af minnkandi samstöðu hvað varð-
ar takmarkanir innanlands, segir
Svandís: „Það er auðvitað eitthvað
sem tíminn mun leiða í ljós. Sam-
hliða þessum aðgerðum erum við
að fara af stað í átak í örvunar-
bólusetningum sem munu vonandi
auka ónæmi í samfélaginu. Við er-
um því að keyra á þessum tveimur
þáttum, sem við vitum að virka,
samtímis.“
Hún segir að hertar takmark-
anir og baráttan við veiruna snúist
helst um viðnámsþrótt Landspítala
og heilbrigðiskerfisins.
„Eins og allar þjóðir eru að
glíma við um þessar mundir. Þetta
snýst því bæði um að verja líf og
heilsu fólks og að gæta þess að
kúrfan rísi ekki það hátt að kerfið
ráði ekki við þjónustuna.“
Engin aflétting 18. nóvember
Svandís ítrekar einnig að málið
snúist um líf og heilsu fólks, ekki
bara um kerfin og ferlana. „Það
eru manneskjur sem smitast, það
er fólk sem liggur inni á spít-
alanum í öndunarvél og það er fólk
sem glímir við langvarandi eftir-
köst vegna sýkingar af veirunni.
Þetta snýst um fólk, en ekki bara
kerfin.“
Að lokum sagði hún það ekki
raunhæfan möguleika lengur að
takmörkunum innanlands verði af-
létt 18. nóvember næstkomandi.
„Ég held að við sjáum það öll núna
að vöxtur faraldursins í samfélag-
inu er of mikill.“
Boða hertar
takmarkanir
- Vöxtur faraldursins of hraður
- Snúist um fólk en ekki bara kerfin
Svandís
Svavarsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Beðið eftir sýnatöku Ekki þykir
raunhæft að aflétta 18. nóvember.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Framkvæmdir við endurbætur í
Laugardalshöllinni kunna að dragast
á langinn vegna þess að enn einu sinni
er búið að kæra útboð vegna verksins.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu í
gær ætlar Metatron ehf. að kæra
samkeppnisútboð vegna uppfestibún-
aðar lýsingar og viðburðabúnaðar í
höllinni.
„Mér þykir skelfilegt að heyra
þetta. Þetta hefur áhrif á íþróttaæf-
ingar barna og margt fleira,“ sagði
Birgir Bárðarson, framkvæmdastjóri
Íþrótta- og sýningarhallarinnar ehf.,
sem rekur Laugardalshöllina.
Endurnýja átti lýsingu og gólfefni í
sal Laugardalshallar á liðnu sumri.
Höllin hefur nú verið lokuð sem
íþrótta- og viðburðahús síðan í nóv-
ember í fyrra. Þá varð heitavatnsleki
sem eyðilagði parketgólfið. Búið er að
hreinsa gamla og skemmda parketið
út. Setja á upp lýsingu sem uppfyllir
kröfur við íþróttakeppnir og notkun
hússins sem fjölnota húss. Svo verður
lagt nýtt parket.
„Parketið er komið eða að koma til
landsins. Ljósin eru komin í hús,“
sagði Birgir. Að hans mati er lykil-
atriði að setja fyrst upp burðarvirkið
fyrir ljósakerfið og allar aðrar fram-
kvæmdir fylgi á eftir því.
„Mig minnir að það séu 22 metrar
upp í rjáfur. Það þarf að skrúfa upp-
hengibúnaðinn upp í kúluþakið. Við
þetta þarf tæki sem ná alla leið, stórar
og þungar vinnulyftur. Tækin þurfa
að geta keyrt á steyptri gólfplötunni.
Þess vegna er ekki hægt að leggja
parketið fyrr en búið er að setja upp-
hengibúnaðinn upp.“
Verkið tefst lík-
lega enn lengur
- Útboð vegna Laugardalshallar kært
Morgunblaðið/Eggert
Laugardalshöll Þar hafa farið fram
fjöldabólusetningar að undanförnu.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það er ekki nokkur spurning að fólk
á að þiggja bólusetningu. Við sjáum
að bólusetning er svona 50% virk við
að koma í veg fyrir smit og við náum
ekki hjarðónæmi með henni. Engu
að síður er hún áhrifarík við að
hindra smit og sérstaklega að koma í
veg fyrir alvarleg
veikindi. Þetta
sýna tölur erlendis
frá sem passa við
okkar tölur sem
sýna þetta mjög
glöggt,“ segir Þór-
ólfur Guðnason
sóttvarnalæknir.
Alls hafa um
7.400 manns
greinst hér á landi
með Covid-19 frá 1. júlí þegar Delta-
afbrigðið fór að breiðast út. Af þeim
sem greindust voru 59% fullbólusett
og um 40% óbólusett. Á þessu tíma-
bili hafa 159 manns þurft að leggjast
inn á Landspítalann eða Sjúkrahúsið
á Akureyri. Af þeim voru 56% full-
bólusett. Inn á gjörgæslu þessara
sjúkrahúsa lögðust 33 sjúklingar og
var um helmingur þeirra fullbólu-
settur. Hafa 17 þurft að fara á önd-
unarvél og af þeim voru 45% full-
bólusett. Fjórir hafa látist á þessu
tímabili og voru tveir fullbólusettir.
Gott er að hafa í huga að búið er að
fullbólusetja 89% landsmanna 12 ára
og eldri, samkvæmt covid.is. Það
þýðir að um 11% landsmanna 12 ára
og eldri eru óbólusett.
Þórólfur segir því haldið fram að
það að um og yfir helmingur þeirra
sem veikjast sé bólusettur sýni að
bólusetning geri ekkert gagn. Hann
bendir á að nýgengi smita hjá óbólu-
settum sé þrisvar sinnum hærra
heldur en hjá bólusettum. Þá eru
fimmfalt meiri líkur á því að óbólu-
settir þurfi að leggjast á spítala
vegna Covid-19 en fullbólusettir.
„Ef við reiknum líkurnar á að
þurfa að leggjast á gjörgæslu vegna
Covid-19 hjá bólusettum og óbólu-
settum þá er nýgengi hjá óbólusett-
um sex sinnum hærra en hjá bólu-
settum,“ segir Þórólfur.
Hann segir þessar tölur sýna að
miklu meiri líkur séu á að óbólusettir
smitist af Covid-19 en fullbólusettir.
Sjúkdómurinn verði alvarlegri hjá
þeim óbólusettu og leiði til fleiri inn-
lagna á sjúkrahús og gjörgæslu en
hjá fullbólusettum.
„Enda segja smitsjúkdómalæknar
að jafnvel þótt fullbólusettir leggist
inn á spítalann þá séu þeir fljótari að
jafna sig og útskrifist fyrr heldur en
þeir sem eru óbólusettir,“ sagði Þór-
ólfur.
Smitum fjölgar ört á landinu
Fjöldi þeirra smita sem greindust
í fyrradag var rakinn til skemmtana-
lífs. Þar af voru 50 smit á Akranesi
og voru 109 í sóttkví og 75 í einangr-
un. Skólar í bænum verða lokaðir í
dag. Lágmarksstarfsemi var á stofn-
unum bæjarins í gær og falla íþrótta-
æfingar hjá ÍA niður fram yfir
helgina.
Alveg ljóst að bólu-
setning gerir gagn
- Hindrar smit og kemur í veg fyrir alvarleg veikindi hjá
mörgum fullbólusettum - 89% tólf ára og eldri fullbólusett
150
125
100
75
50
25
0
júlí ágúst september okt.
Staðfest smit
7 daga meðaltal
H
ei
m
ild
:c
ov
id
.is
kl
.1
1.
0
0
íg
æ
r
144 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
1.129 einstaklingar
eru í sóttkví
Fjöldi innanlands-
smita frá 12. júlí
291 er í skimunar-
sóttkví1.015 eru með virkt smit
og í einangrun
17 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar affimmá gjörgæslu
Óbreyttar
aðgerðir á landa-
mærum til 15.
janúar 2022
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning Fullbólusettir útskrif-
ast jafnan fyrr af Landspítalanum.
Þórólfur
Guðnason