Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 18
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sívaxandi umferð stórra skipa um norðurslóðir og vilji til þess að styrkja viðbragðsgetu í almanna- vörnum á norðanverðu landinu voru ráðandi þættir þegar ákveðið var að heimahöfn og útgerð Freyju, nýs varðskips Landhelgisgæslunnar, yrði á Siglufirði. Skipið kom þangað inn síðastliðinn laugardag og þar var formleg móttökuathöfn. Á sunnudag var svo haldið suður um land og nú er skipið komið í Reykja- víkurhöfn, þar sem verið er að koma fyrir í því búnaði, yfirfara tæki, stilla fjarskiptatæki og fleira slíkt. Góður búnaður og mikil dráttargeta „Freyja hefur flesta þá kosti sem varðskip þurfa að hafa,“ segir Einar H. Valsson skipherra í samtali við Morgunblaðið. „Við sóttum skipið til Rotterdam í Hollandi. Heimsigl- ingin gekk að óskum og ekkert óvænt hefur komið upp á. Stóra verkefnið á næstunni, fyrstu túr- arnir, fara sjálfsagt að miklu leyti í lærdóm og þjálfun. Í skipinu eru ýmis tæki og búnaður sem áhöfnin þarf að læra á og venjast. Einnig þarf að taka æfingar með áhöfnum þyrlna Gæslunnar og öðrum þeim sem við störfum með. En þetta verður ekkert mál. Áhöfnin sem kemur af gamla varðskipinu Tý er vel þjálfuð og mannskapurinn nær mjög vel saman.“ Varðskipið Freyja var smíðað ár- ið 2010 og var lengst notað til ýmiss konar þjónustuverkefna fyrir olíu- iðnaðinn, síðast þegar sett var niður gaslögn frá Svíþjóð yfir til Póllands. Alls er skipið er 4.556 brúttótonn, 86 metra langt og 20 metra breitt, ganghraði er 12 hnútar og dráttar- getan 210 tonn. Þá er öflugur slökkvibúnaður um borð í skipinu, sem jafnframt fylgja tveir tíu manna léttabátar sem nýtast vel til ýmiss konar gæslu- og þjónustu- verkefna. Þannig er eftirlit með afla og veiðarfærum skipa, í samvinnu við Fiskistofu, alltaf stór þáttur í starfi áhafna varðskipanna, enda þótt björgun og aðstoð hvers konar við strjálbýlar strandbyggðir séu þau verkefni sem mest ber á. Stórborgir á siglingu „Í rauninni er Freyja mjög sam- bærilegt og Þór, hitt varðskip Landhelgisgæslunnar. Í útboði horfðum við mjög til þess að kaupa skip með toggetu yfir 200 tonn, með tilliti til þess ferðum stórra flutn- ingaskipa um norðurhöf er alltaf að fjölga. Sama má segja um farþega- skipin, sem koma kannski fyrst til Íslands, fara svo að Grænlandi og jafnvel norður til Svalbarða. Sum skipin þar eru líkust stórborgum, um borð eru á stundum um 5.000 manns. Þá mun Norðuríshafið í ná- inni framtíð hugsanlega opnast sem siglingaleið milli heimsálfa. Allt þetta kallar á öfluga björgunargetu í norðurhöfum sem í raun og veru hefur verið takmörkuð hingað til.“ Verkefnin á sviði almannavarna þar sem varðskip koma sér vel eru margvísleg. Þar nefnir Einar skip- herra sem dæmi að í nokkurra sóla- hring rafmagnsleysi á Dalvík í kjöl- far ofsaveðurs í desember 2019 hafi varðskipið Þór verið við bryggju þar í bæ og framleitt rafmagn inn á veitukerfi bæjarins. Um slíkt hafi mjög munað. Í snjóflóðum á Flat- eyri í byrjun síðasta árs hafi varð- skip verið mikilvægur þáttur í öllum björgunaraðgerðum og eins þegar skriður féllu á Seyðisfjörð á aðventu í fyrra. Þá megi minnast þess að snemma á þessu ári hafi varðskipið Týr, sem þá var við norðanvert landið, verið notað til að flytja sjúk- ling frá Siglufirði til Akureyrar, enda landleiðin lokuð í ofsaveðri. Fyrsta ferðin 22. nóvember Miðað er við að Freyja fari í fyrstu eftirlitsferðina þann 22. nóv- ember næstkomandi. Þá verður bú- ið að færa ýmsan lausan búnað, sem nú er í Tý, yfir í nýja skipið, svo sem ýmis björgunartæki. Um líkt leyti fer varðskipið Þór í slipp og Freyja fær því sviðið, fyrst í stað. „Með því að varðskip hafi heima- höfn á Siglufirði – og fleiri ráðstöf- unum – er verið að dreifa björgun betur um landið. Viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar verður meiri og betur hægt að tryggja öryggi sjófarenda og annarra sem og sinna eftirliti með auðlindum,“ segir Ein- ar H. Valsson sem hefur verið á skipum Landhelgisgæslunnar í 40 ár. Byrjaði ferilinn árið 1981 sem viðvaningur á Tý, þar sem Guð- mundur Kjærnested var þá skip- herra. „Fyrstu árin var ég til sjós með mörgum af köppum þorskastríð- anna, járnkörlunum, og slíkt var mjög lærdómsríkt,“ segir Einar og brosir. Sjálfur segist hann vera með frábæran mannskap í áhöfn – og til- tekur þar meðal annars Guðmund St. Valdimarsson bátsmann og Hauk Grímsson smyrjara sem báðir hafa verið í áratugi á varðskipum. Yfirstýrimaður á Freyju er Friðrik Höskuldsson, sem tekur túr á Freyju sem skipherra yfir jól og áramót. Freyja er varðskip flestra kosta - Nýtt skip Landhelgisgæslunnar gert klárt - Einar skipherra með góða áhöfn - Fyrstu túrarnir verða lærdómur og þjálfun - Aukin umferð stórskipa um norðurhöf krefst sterkari viðbragðsgetu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skipherra Viðbragðsgeta meiri og betur hægt að tryggja öryggi sjófarenda og annarra sem og sinna eftirliti með auðlindum, segir Einar H. Valsson um varðskipið nýja. Hann á að baki 40 ára feril hjá Landhelgisgæslunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Móttaka Einar H. Valsson skipherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dóms- málaráðhera, Guðni Th. Jóhannesson forseti og Georg Kr. Lárusson, for- stjóri Gæslunnar, í brúnni á Freyju, þegar skipið kom til Siglufjarðar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stórskip Freyja liggur nú við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn og nú nýta skip- verjar og aðrir dagana til að læra á og koma ýmsum búnaði fyrir, stilla tæki og fleira. Alls er skipið 4.556 brúttótonn, 86 metra langt og 20 metra breitt. 18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARST með og án rafmagns lyftibú Komið og skoðið úrvalið ÓLUM naði Nafn varðskipsins Freyju minnir á að nafnið er ekki óþekkt í sögu Landhelgisgæslunnar. Freyja, sem var skipshundur á varðskipinu Óðni 1961-1968, var fræg á sinni tíð eins og segir í grein Bjarnheiðar Erlendsdóttur í Sjómannadagsblaðinu Víkingi (3-2018). Freyja var dóttir Trýnu, sem var skipshundur á varð- skipinu Gauti, gamla Óðni. Hún átti stutt stefnumót við rakka frá Sauðanesi á bryggju á Siglufirði og þannig varð Freyja til. Guðmundur Hallvarðsson, formaður Hollvina- samtaka Óðins og fyrrverandi skipverji á Óðni, man vel eftir Freyju. „Það var virkilega skemmtilegt að hafa Freyju. Hún lífgaði upp á tilveruna og bætti andrúms- loftið um borð. En við höfðum alltaf samúð með tíkinni þegar stýrimennirnir voru að æfa skotfimi með fall- byssunni. Þá varð Freyja lafhrædd og skreið eins neðar- lega í skipið og hún mögulega komst. Hún fór þó aldrei í vélarrúmið en lét ekki sjá sig meðan á skotæfingunni stóð,“ segir Guðmundur. Hann segir að skipverjar hafi oft tekið Freyju með þegar þeir fóru í land. Þeim var uppálagt að passa tík- ina, sérstaklega þegar hún var á lóðaríi. Það tókst ekki betur en svo að Freyja gaut hátt í tuttugu hvolpum um ævina. Einn þeirra náði þeim frama að verða forseta- hundur á Bessastöðum í tíð Ásgeirs Ásgeirssonar for- seta Íslands. Freyja skipti um skiprúm árið 1968 þegar hún fylgdi fóstra sínum, Agli Pálssyni bátsmanni, yfir á varðskipið Ægi. Ævi hennar lauk skömmu eftir það. gudni@mbl.is Freyja lífgaði upp á tilveruna FRÆGUR SKIPSHUNDUR Á VARÐSKIPINU ÓÐNI Skipshundur Freyja með einum af hvolpum sínum. Ljósmynd/Helgi Hallvarðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.