Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meðalfallþungi dilka í nýlokinni sláturtíð var 17,40 kíló. Eru dilkarnir vænni en áður hefur þekkst, hálfu kílói þyngri en í fyrra sem þó var metár. Sauðfjárslátrun lauk í lok síðustu viku hjá þeim sláturhúsum sem lengst voru opin. 20 þúsund færri lömb Til slátrunar komu liðlega 465 þúsund lömb, rúmlega 20 þúsund færri en árið á undan, samkvæmt upplýsingum frá Mat- vælastofnun. Samdrátturinn samsvarar rúm- um fjórum prósentum. Er það svipaður sam- dráttur í slátrun og í fyrra. Sauðfjárræktin hefur verið að dragast saman undanfarin ár. Til samanburðar má geta þess að árið 2017 komu til slátrunar tæplega 561 þúsund lömb þannig að fram- leiðslan hefur dregist saman um liðlega 95 þúsund dilka á fjórum árum. Ekki hafa verið lagðir inn færri dilkar síðan haustið 2006. Samdráttur í dilkakjöti er minni en nemur fækkun sláturfjár vegna aukins fallþunga. Út úr slátruninni kom liðlega 100 tonnum minna af dilkakjöti en árið áður. Slátrun á fullorðnu fé var nokkurn veginn sú sama og í fyrra. Vitað er að einhver stórbú hafa hætt í haust og margir bændur fækkað fé með það í huga að hætta á næstu árum. Einar Kári Magnússon, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun, segir að út frá upplýs- ingum um slátrun á fullorðnu fé í haust megi leiða líkum að því að áfram verði samdráttur næsta haust, um 15-20 þúsund dilka. Hann tekur þó fram að það verði ekki fyllilega ljóst fyrr en bændur hafi skilað öllum haust- skýrslum. Ef tilfinning hans reynist rétt verða næsta haust lögð inn færri lömb en þekkst hefur á þessari öld. Meiri fækkun virðist hafa orðið norðan- lands en sunnan. Þannig heldur Sláturfélag Suðurlands sínu betur en Kaupfélag Skag- firðinga, svo dæmi séu tekin af stærstu slát- urhúsum landsins. Hagstætt veður um allt land Einar segir að ekki hafi orðið röskun á slátrun vegna kórónuveirufaraldursins en takmarkanir vegna veirunnar hafi þó sett mark sitt á sláturtíðina. Þannig hafi gengið erfiðlega að manna sláturhús og þar af leið- andi ekki verið hægt að ná fullum afköstum. Veður hefur verið hagstætt í sumar fyrir sauðfjárræktina um allt land. Alls staðar voru dilkar vænni en í fyrra og meðaltalið var nýtt Íslandsmet, 17,40 kg. Tíðarfarið virðist þó hafa verið best fyrir fé á Suðurlandi. Einar segist hafa óttast að hitar og þurrkar á Norður- og Austurlandi yrðu ekki til góðs fyrir sauðfé en það hafi sloppið til. „Sauðfjárbændur keppast við að skila af sér hágæðavöru og eiga hrós skilið fyrir að halda áfram að sækja fram, þrátt fyrir slaka afkomu í greininni,“ segir Einar Kári. Nýtt Íslandsmet í fallþunga dilka - Framleiðsla dilkakjöts dregst saman enn eitt árið og útlit fyrir að sú þróun haldi áfram á næsta ári - 95 þúsund færri dilkum slátrað en fyrir fjórum árum - Meðalfallþungi dilka aldrei verið meiri Morgunblaðið/RAX Slátrun Auðveldara ætti að vera að selja dilkakjötið á næsta ári vegna þess að framleiðslan hefur dregist saman. 17,0 16,5 16,0 15,5 15,0 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 Sauðfjárslátrun 2021 Meðalvigt sláturlamba 2011-2021 (kg) Heimild: Mast 2020 2021 Breyting 2020-2021 Heildarfjöldi sláturlamba 485.701 465.292 -20.409 -4,2% Innvegið (kg) 8.203.490 8.096.632 -106.858 kg -1,3% Meðalvigt (kg) 16,89 17,40 +0,51 kg +3,0% 15,77 16,28 15,99 16,32 16,18 16,70 16,52 16,89 17,40 16,41 16,56 Fjöldi Meðalvigt (kg) 2021 2020 2021 Kaupfélag Skagfirðinga 86.392 16,90 17,34 Sláturfélag Suðurlands 94.800 16,51 17,28 Sláturfélag Vopnfirðinga 26.566 16,56 16,81 Sláturhús Norðlenska 77.188 16,99 17,26 Fjallalamb 20.914 16,89 17,35 Sláturhús KVH ehf. 84.081 17,37 17,86 SAH afurðir ehf. 73.874 16,81 17,46 Sláturhús Vesturlands 776 17,42 18,19 Sláturhús Seglbúðum 701 18,35 18,49 Alls 465.292 16,89 17,40 Óskum Landhelgisgæslunni og Íslendingum innilega til hamingju með nýja varðskipið. Freyja, líkt og Þór, er hannað og með búnað frá Kongsberg Maritime Mynd: Guðmundur St. Valdimarsson Undanfarið hefur samstarfshópur unnið að gerð stjórnunar- og vernd- aráætlunar fyrir náttúruvættið Kirkjugólf. Í áætluninni er lögð fram stefnumótun til 10 ára, ásamt að- gerðaáætlun til þriggja ára. Í að- gerðaáætluninni kemur m.a. fram að á næsta ári er áætlað að svæðið verði gert aðgengilegt fyrir fólk með fötlun. Þar segir líka að fylgst verði með ágengum, framandi tegundum og þær fjarlægðar eftir því sem unnt er. Gróður og annað verði hreinsað af og frá Kirkjugólfinu eftir þörfum þannig að stuðlarnir njóti sín. Tillaga að stjórnunar- og verndar- áætluninni hefur verið lögð fram til kynningar á heimasíðu Umhverfis- stofnunar og þar kemur fram að áætluninni er ætlað að vera stefnu- mótandi skjal, unnið í samvinnu við fulltrúa landeigenda, sveitarfélag og hagsmunaaðila og er hugsað sem stjórntæki til að móta framtíðarsýn svæðisins. Markmiðið með gerð hennar er að leggja fram stefnu um verndun nátt- úruvættisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi svæðisins þannig að sem mest sátt ríki um. Á heima- síðu Umhverfisstofnunar er eftirfar- andi lýsing á náttúruvættinu: Kirkjugólf er lág jökul- og brimsorf- in stuðlabergsklöpp þar sem endar lóðréttra stuðlabergssúlna ná upp úr jörðu. Kirkjugólf er staðsett í túni í austurjaðri þorpsins Kirkjubæjar- klausturs. Kirkjugólf var friðlýst sem náttúruvætti árið 1987. Það hef- ur jarðfræði- og sögulegt verndar- gildi sem og fræðslugildi. aij@mbl.is Kirkjugólf verði að- gengilegt fötluðum - Stefnumótun til 10 ára í stjórnunar- og verndaráætlun Ljósmynd/Umhverfisstofnun Náttúruvætti Hluti stuðlabergsins í Kirkjugólfinu við Klaustur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.