Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 36
Ljósmynd/Hjörtur Gíslason
Bergþór Baldvinsson Nýsmíði frystitogarans er stórt skref fyrir Nesfisk.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Tímamót verða hjá Nesfiski í
Garði síðar í mánuðinum er nýr
frystitogari bætist í flotann og
það má skynja nokkra eftirvænt-
ingu þegar rætt er við Bergþór
Baldvinsson framkvæmdastjóra.
Nýja skipið er fullkomið í alla
staði og um leið fyrsta nýsmíði
þessa 35 ára gamla fjölskyldufyr-
irtækis á skipi af þessari stærð.
Samfellda sögu má reyndar rekja
aftur til 1973 þegar Baldvin
Njálsson og Þorbjörg Bergsdóttir
kona hans og fjölskylda þeirra
byrjuðu með útgerð og fisk-
vinnslu.
Skipið er smíðað hjá skipa-
smíðastöðinni Armon í Vigo á
Spáni og lýkur Bergþór lofsorði á
samstarfið við fyrirtækið. Allt hafi
staðið eins og stafur á bók og af-
hendingartíminn sé nánast upp á
dag sá sami og miðað var við þeg-
ar skrifað var undir samninga fyr-
ir tveimur árum. Kórónufarald-
urinn og varnaraðgerðir vegna
hans hafi hvorki haft teljandi áhrif
á framvinduna við smíði skipsins
né á afhendingu tækjabúnaðar,
sem kemur frá íslenskum og er-
lendum framleiðendum.
Sævar Birgisson og samstarfs-
fólk hans hjá Skipasýn hönnuðu
skipið.
Kostar yfir fimm milljarða
Bergþór segir að þetta sé stórt
skref fyrir fyrirtækið, en skip eins
og nýr Baldvin kostar yfir fimm
milljarða króna. Komið hafi verið
að endurnýjun á eldri frystitogara
með sama nafni. Ákveðið hafi ver-
ið að fjárfesta í nýju skipi og
halda sig við flakafrystitogara, en
útgerð á gamla Baldvin hafi geng-
ið vel. Það skip var einnig smíðað
Tímamót hjá Nesfiski í Garði
Ljósmynd/Magnús Þór Bjarnason
Baldvin Njálsson Nýja skipið í reynslusiglingu fyrir utan Vigo á Spáni, en skipið er væntanlegt til landsins undir mánaðamót. Samstarfið við Armon-skipasmíðastöðina hefur gengið vel.
- Nýr Baldvin Njálsson til landsins í lok mánaðarins - Allt staðið eins og stafur á bók
5 SJÁ SÍÐU 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
Þorbjörg Bergsdóttir stjórnar-
formaður Nesfisks, gjarnan
kölluð Bobba í Nesfiski, svaraði
í símann þegar hringt var í fyrir-
tækið í vikunni. Hún er 82 ára
og störfin við útgerð og fisk-
vinnslu fjölskyldunnar hafa alla
tíð verið samofin lífi hennar og
Baldvins Njálssonar eiginmanns
hennar, sem lést 63 ára að aldri
árið 2000.
Aðspurð um nýja skipið segir
Þorbjörg að það sé mikill áfangi
að fá nýjan, fullkominn frysti-
togara. Hún segist hafa hvatt til
nýsmíðinnar og segist ekki hafa
sterkt samviskubit af því.
Tímabært hafi verið að fara í
þessa vegferð og um tímamót
sé að ræða hjá Nesfiski. Þor-
björg rifjar upp að þegar fyrir-
tækið fjárfesti síðast í nýsmíði
hafi Bergþór framkvæmdastjóri
verið sex ára. Það skip bar nafn-
ið Benedikt Sæmundsson og
var smíðað í Bátalóni í Hafn-
arfirði.
Bobba segist ganga í það sem
þurfi að gera á skrifstofunni,
meðan margir jafnaldrar hennar
láti sér leiðast. Hún mæti flesta
morgna til starfa, en það sé
misjafnt hvað hún sé þar lengi
dag hvern. Hún sé fyrir löngu
orðin hluti af innréttingunni.
Hvatti til
nýsmíðinnar
ÞORBJÖRG BERGSDÓTTIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Trönuhrauni 8 – 565 2885 | Bíldshöfða 9 – 517 3900 | stod.is
Frábærir alhliða inniskór
fyrir heimilið og
vinnuna
Hannaðir af stoðtækja-
framleiðandanum Schein
Útskiptanlegt innlegg
Hentar sérlega vel fólki
með aumt táberg