Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 43
43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 Vetrarverk hjá Veitum Að ýmsu er að huga þegar hallar að hausti og veturinn fer að banka á dyr. Þessir vinnandi menn frá Veitum voru að huga að verkefnum sínum, þótt napurt væri úti við. Eggert Það er ekki alveg sjálfgefið að fyrirtæki sem byggja á því að þjónusta jafn breytilegan og sveiflukenndan atvinnuveg og ís- lenskan sjávarútveg lifi blómlegu lífi áratugum saman. Aðlagist þeim breytingum og umbylt- ingum sem verða í greininni og vinni sig í gegnum andstreymi og niðursveiflur á eigin afli – sama kennitalan allan tímann. Þetta hefur Skipalyftan í Vest- mannaeyjum gert og hún fagnar 40 ára afmæli sínu nú um helgina – stofnuð 14. nóvember 1981 af vélsmiðjunum Magna og Völundi og raftækjaverkstæðinu Geisla. Magni og Völundur hættu rekstri og samein- uðust inn í hið nýja fyrirtæki. Til að byrja með voru breytingar og end- urbætur á fiskiskipum uppistaðan í starfsem- inni og allt að 80 skip tekin upp árlega. Síðan hafa orðið miklar breytingar á útgerð- arháttum – skipum fækkað mikið og þau stækkað. Nú er svo komið að upptökumann- virkin ráða ekki við nema lítinn hluta Eyja- flotans – og Skipalyftan samhliða þessu sér- hæft sig sem plötusmiðja og véla- og renniverkstæði. Mikilvægt er fyrir atvinnu- lífið í Vestmannaeyjum að hjá Skipalyftunni komast iðnnemar í ýmsum greinum á samn- ing sem flýtir fyrir þeim í ávinnslu réttinda. Starfsmenn Skipalyftunnar eru núna um 40 en losuðu 100 þegar umsvifin voru mest. Framtíðarsýnin er að geta aftur aukið starf- semina og þjónustað Eyjaflotann og önnur skip með sama hætti og áður. Til þess þarf ný upptökumannvirki – þurrkví – sem hlýtur að koma til alvar- legrar athugunar hjá öllum hlut- aðeigandi aðilum á næstunni. Mikilvægi fyrirtækis eins og Skipalyftunnar fyrir samfélag eins og Vestmannaeyjar verður hins vegar ekki bara mælt í veltu og starfsmannafjölda. „Lyftan“, eins og fyrirtækið er kallað í daglegu tali í Eyjum, hefur alla tíð lagt sig fram um að vera góður samfélagsþegn; láta allt bæjarfélagið njóta vel- gengni fyrirtækisins í rekstri. Þannig hefur æskulýðs- og íþróttastarf og menningarstarfsemi af ýmsu tagi notið góðs af örlæti fyrirtækisins til þeirra mála áratug- um saman. Ekki síst hefur stuðningur fyrir- tækisins við ÍBV verið dyggilegur. Að öllu samanlögðu hefur starfsemi Skipa- lyftunnar verið til mikilla heilla fyrir atvinnu- líf og mannlíf í Vestmannaeyjum í 40 ár. Fyrir það ber að þakka – og jafnframt eru fyrir- tækinu, starfsmönnum þess og eigendum, sendar hamingju- og velfarnaðaróskir á þess- um merku tímamótum. Eftir Páll Magnússon » Að öllu samanlögðu hefur starfsemi Skipalyftunnar verið til mikilla heilla fyrir atvinnulíf og mannlíf í Vestmannaeyjum í 40 ár. Páll Magnússon Höfundur er fv. alþingismaður. Til farsældar í 40 ár Skýrsla Þjóðskjalasafns um skjalavörslu prestakalla, sem ný- lega var gefin út, var bæði þörf og tímabær. Hún byggist á nið- urstöðum úr spurningakönnun safnsins á skjalavörslu og skjala- stjórn prestakalla sem gerð var í byrjun árs. Í framhaldi þess hyggst Þjóðskjalasafn gefa út leiðbeiningarrit um skjalavörslu prestakalla og verður það sjálf- sagt til mikilla bóta enda mörg og fjölbreytt verk unnin af prestum landsins. Fyrir vikið safnast mikið af upplýsingum fyrir hjá prestaköllum og mik- ilvægt að halda þeim til haga og tryggja að- gengileika þeirra fyrir fræðimenn og aðra þá er geta nýtt sér þær. Biskupsstofa og Þjóð- skjalasafn hafa átt gott samstarf við und- irbúning spurningakönnunarinnar, þar sem meðal annars komu fram tillögur til úrbóta. Fyrirhugað er að kynning á Þjóðskjalasafni um skjalavörslu prestakalla verði hluti af starfsþjálfun prestsefna. Einnig er til um- ræðu að fræðsluerindi um skjalavörslu verði haldin reglubundið á prestastefnum. Þess má geta að í ársbyrjun 2020 var hafið átak í að safna tölulegum upplýsingum frá prestaköllum og sérþjónustuprestum. Þær varða meðal annars fjölda messa, barnaguðs- þjónusta og annarra prestsverka eins og fjölda skírna, ferminga, giftinga og jarð- arfara. Að auki hefur verið bætt við skýrslu vegna safnaðarstarfs sem safnar tölum um barna-, fullorðins- og eldriborgarastarf svo og um námskeið sem haldin eru á vegum prestakallanna. Einnig hefur verið byrjað á því að kalla eftir upplýsingum um sálgæslu, viðtöl vegna athafna og útköll presta sem er mikilvægur hluti af starfi þeirra. Markmiðið er að almenningur, starfsfólk þjóðkirkjunnar og fræðimenn geti nýtt sér upplýsingarnar í framtíðinni. Vönduð skjalavarsla presta- kalla er mikilvæg sem aldrei fyrr. Nokkrar breytingar hafa orðið á prestaköllum vegna sameininga og það hefur eðlilega áhrif á skrif- stofuhald þeirra. Fyrir tíu árum voru presta- köll landsins 95 talsins en eru í dag 70. Í kjöl- far þessara breytinga hefur mikið að segja að fyrirkomulag skjalavörslu sé skýrt. Framtak Þjóðskjalasafns er gott upplegg í að svo megi verða. Eftir Guðbjörgu Gígju Árnadóttur »Nýlega kom út skýrsla Þjóð- skjalasafns um skjalavörslu prestakalla. Þjóðskjalasafn og Biskupsstofa áttu gott samstarf við undirbúning. Guðbjörg Gígja Árnadóttir Höfundur er skjalastjóri Biskupsstofu. Skjalavarsla prestakalla í endurskoðun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.