Morgunblaðið - 11.11.2021, Side 56
ar Bragi í Spaugstofuna og segist
sakna hennar.
„Ég held að við sem þjóð áttum
okkur ekki alveg á því hversu mikið
okkur vantar svona ýktan spéspegil á
okkur sjálf. Sjáðu hvað hefur gerst
síðan Spaugstofan lagðist af, núna
eru allir að taka sig alveg brjál-
æðislega alvarlega. Allt rosa þungt.
Mjög dramatískt. Mín kenning er að
ef Spaugstofan, eða eitthvað svipað,
væri á skjáum landsmanna vikulega
þá værum við ekki heimsmeistarar í
geðlyfjaáti.
Á tímum forngrísku leikritanna
tíðkaðist það að taka fyrir þjóð-
þekkta lifandi einstaklinga og skrum-
skæla þá á sviði. Leyfa fólki að hlæja
að öllu þessu merkilega liði sem trón-
ir yfir okkur. Hin gullfallega íslenska
hefð þorrablótanna, þar sem bæjar-
félög setja upp revíur, almennir
borgara klæða sig upp sem nágrann-
ar sínir og gera góðlátlegt grín, þetta
er svo falleg leið til streitulosunar,
eins og gott djúpnudd á samfélagið,“
segir Bragi.
Hann bendir á að það sé alvanalegt
að rithöfundar taki fyrir raunveru-
legar persónur en að það séu oftast
aðrir rithöfundar sem eru löngu látn-
ir. Til samanburðar má til dæmis
nefna að hinn raunverulegi Arnaldur
skrifar um Kristján sjöunda Dana-
konung í sinni nýjustu bók, Sigur-
verkinu.
Bragi segir að sínir áhrifavaldar
komi ekki endilega úr heimi bók-
menntanna. „Ég hlusta á tónlist þar
sem músíkantar skjóta á aðra mús-
íkanta, ég horfi á gamanþætti þar
sem gert er grín að raunverulegu
fólki. Steindi jr. gerði mikið af þessu í
Steindanum okkar. Hér er þessi pæl-
ing bara færð inn í bókmennta-
formið. Kannski finnst fólki það al-
varlegra af því að það er litið svo á að
bækur séu einhvern veginn heilagar,
en þær eru það ekki. Þetta eru bara
mjög langar lygasögur sem einhver
er búinn að skrifa niður og láta
prenta út. Þegar ég skrifa bækur er
ég bara í dúkkuleik, stundum finnst
mér gaman að leika með tilbúnar
persónur sem ég skapa alveg sjálfur,
en stundum finnst mér fyndið að
grípa í dúkku sem er alvöru mann-
eskja og láta hana trallast aðeins.
Þetta er bara leikur. Listsköpun á að
vera leikur, á að vera skemmtileg. Ef
höfundurinn er ekki að skemmta sér
við skriftirnar er mjög ólíklegt að les-
andinn muni skemmta sér við lest-
urinn,“ segir Bragi.
Í bókinni dregur Bragi upp nokk-
uð drungalegan heim og heldur uppi
söguþræðinum með bæði frásögnum
af morðingjanum og hugsunum
morðingjans. Til þess að komast al-
mennilega inn í hugarheim morðingj-
ans horfði hann á marga ógeðslega
þætti og kvikmyndir, las mikið af við-
bjóðslegum sögum og viðtölum. „Ég
vildi hafa hann eins og raunveruleg-
an og ég mögulega gat. En ég byggði
hann líka á fólki sem ég þekki,“ segir
Bragi.
Og smám saman var hann kominn
með persónuna. „Það er kannski
soldið óhuggulegt að stíga inn í þenn-
an heim, en þannig getur menningin
verið gluggi inn í ástand sem þú vilt
heimsækja en ekki dvelja í. Það er
spennandi að horfa á hrollvekju og
svo þegar hún er búin dvelur pínulít-
ið af henni í hausnum áfram. Kannski
veldur það smá martröð og svona, en
í rauninni allt mjög meinlaust. Leik-
ur að upplifunum,“ segir Bragi.
Inn í þennan myrka heim steig
Bragi á kvöldin þegar hann hafði
sinnt skyldum sem vísitölufjölskyldu-
faðir þarf að sinna. „Bróðurpartur
bókarinnar er þannig skrifaður í
myrkri, þar sem ég er þreyttur, lík-
lega soldið illa fyrirkallaður og rugl-
aður, og mér finnst það sjást á út-
komunni. Þau voru að sofna svona
um átta á kvöldin, þá settist ég niður
og byrjaði að skrifa og var að hætta
svona um og upp úr miðnætti. Þá var
sambýliskona mín sofnuð líka, þann-
ig að ég skreið upp í og var um morg-
uninn yfirleitt búinn að gleyma því
sem ég skrifaði kvöldið áður. Við tók
annar dagur uppfullur að skyldum og
verkefnum og ábyrgð. Að þeim lokn-
um settist ég niður í myrkrinu, rugl-
aður eftir daginn og skrifaði. Fjöl-
skyldan þurfti þá voða lítið að verða
vör við það að þessi bók væri að fæð-
ast,“ segir Bragi.
Samansettur úr fárveikum ein-
staklingum
Aðalpersóna sögunnar er rithöf-
undur. Persónan er nokkuð mis-
heppnuð, rembist eins og rjúpan við
staurinn við að skrifa og gefa út en
hefur brennt flest allar brýr að baki
sér. Hugmyndin að honum kemur úr
ýmsum áttum að sögn Braga. „Ég
veit ekki hvort það er eitthvert sér-
íslenskt fyrirbæri, en á Íslandi eru til
nokkrir einstaklingar sem ég kýs að
kalla skálda-aumingja. Þetta eru ein-
staklingar sem hafa verið að skrifa
bækur, ljóð, skáldsögur og allskonar,
í allmörg ár, án þess að hafa nokkurn
tíma hlotið neina raunverulega við-
urkenningu. Þrátt fyrir þetta böðlast
þeir áfram, skrifa og skrifa, pranga
bókum upp á fólk, ónáða fjölmiðlafólk
og þeir bara skilja ekkert í því af
hverju enginn er að fatta snilldina
þeirra. Það bara hlýtur að vera ein-
hverjum öðrum að kenna en þeim,
því þeir eru jú svoddan djöfulsins
meistarar. Þá kenna þeir fjölmiðlum
um, úthlutunarnefnd listamanna-
launa er vinsæll skotspónn, lesendur,
aðrir rithöfundar, því ástæðan fyrir
því að þeir hafa ekki slegið í gegn
getur einfaldlega ekki legið hjá þeim
sjálfum. Þessir menn eru skrokk-
urinn að því sem varð að Ugga,“ seg-
ir Bragi.
En í aðalpersónunni er líka hluti af
Braga. „Ég verð 38 ára í mars á
næsta ári. Ég hef gefið út tvær ljóða-
bækur sem allir eru búnir að gleyma
og eina skáldsögu sem hvarf í jóla-
bókaflóðinu. Þrátt fyrir þetta er ég
fullviss um eigið ágæti. Að minnsta
kosti talsvert sannfærður um að
skriftir séu það sem ég er bestur í að
gera og því sé á það reynandi að
draga fram lífið á þeim. En hvað ef
mér er bara ekki ætlað að verða rit-
höfundur? Hvað ef þessir draumar
sem ég hef haft síðan ég var barn
eiga bara ekki að verða að raunveru-
leika? Ætti ég bara að gefast upp,
hætta að leita að sökudólgnum ann-
ars staðar, ná mér í kennsluréttindi
og gerast framhaldsskólakennari eða
fara bara á sjó og hætta þessu rugli?
Fá bara fastan launatékka á hverjum
mánuði? Hversu lengi á ég að böðlast
á draumnum? Stefni ég í að verða
bara enn einn skálda-auminginn, eins
og Uggi? Þetta óöryggi mitt varð svo
innyflin í honum. Restin er svo sam-
ansett úr hinum og þessum fárveiku
einstaklingum sem ég hef ýmist
kynnst raunverulega eða í gegnum
menningarverk, skálduð og sönn.“
Morgunblaðið/Eggert
Dimma Bragi dregur upp
myrka mynd í Arnaldur
Indriðason deyr.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
Þegar þú velur íslenska
vöru eða þjónustu skilar
það sér aftur til þín.